Morgunblaðið - 12.02.1992, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 12.02.1992, Blaðsíða 12
‘'félag ITfasteignasala- 12 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRÚAR 1992 w U3ÖÁRA FASTEIQNA MIÐSTOÐIN SKIPHOLTI 50B ..ICmvu IIAUSI S 62 20 301 Fyrir börnin okkar eftir Jón Steinar Gunnlaugsson Að undanförnu hefur gripið um sig hálfgerð múgæsing yfir því sem æsingamenn hafa í æsingaskyni nefnt „aðför að velferðarkerfinu". Þetta hefur gerst að miklu leyti að undirlagi öpinberra starfsmanna m.a. úr hópi kennara og starfsfólks í heilbrigðisþjónustu og með dyggri aðstoð fjölmiðlunga, sem nærast á æsingamálum. Hafa ríkisstarfs- mennirnir á Ríkisútvarpinu t.d. ekki legið á liði sínu. Tilefni æsinganna er að ríkis- stjórn landsins er í fyrsta sinn um langt árabil að sýna viðleitni í þá átt að hamla gegn aukningu ríkisút- gjalda og ná jafnvægi í rekstri ríkis- sjóðs. Með jafnvægi er átt við að aflað sé tekna fyrir útgjöldum. Síð- ustu uplýsingar segja okkur, að á síðasta ári hafi ríkissjóður verið rekinn með um 13 milljarða króna halla og munu ekki öll kurl komin til grafar. Hallanum á ríkissjóði hefur verið mætt með lántökum. Lán þarf að endurgreiða og það með vöxtum. M.ö.o. höfurrúvið nú- tímamennirnir, sem viljum hafa það svo gott, ákveðið með sjálfum okk- ur að skuldbinda þá sem á eftir okkur koma, börnin okkar, til að Sýnishorn úr söluskrá: Njörvasund - laus Mjög falleg 3ja-4ra herb. íb. - efri hæð í þríb. Öll endurn., m.a. Innr. og gólf- efni. Laus strax. Áhv. 4,0 millj. húsbréf. Álfheimar - laus Rúmg. 122 fm íb. í fjölbh. á tveimur hæð- um. Þvottahús í íb. Gott aukaherb. í kj. Bílskúrsréttur. Ákv. sala. Verð 9,5 millj. Garðabær - laus Góð 2ja-3ja herb. íb. í lyftuhúsi ásamt stæði í bílskýli. Áhv. allt að 5,3 millj. langtímalán. Laus strax. Ákv. sala. í smíðum: Hafnarfjörður - 2ja og 3ja herb, Garðabær - 3ja herb. m. bilsk. Ktukkuberg - Hf. - 4ra-5 herb. Dof raberg - Hf. - 6-6 herb. (Sk.). Grafarv. - parh. á tveimur hæðum. Grafarvogur - endaraðhús. Garðabær - glæell. einbhús. Bergur Guðnason, hdl., Brynjar Harðarson, viðskfr., Guðrún Árnadóttir, viðskfr., Haukur Geir Garðarsson, viðskfr. SAMTENGD SÖLUSKRÁ ÁSBYRGI EIGNASALAM 623444 2ja-3ja herb. Austurberg - 2ja V. 4,9 m. Efstasund - 2ja V. 4,0 m. Asparfell - 2ja V. 4,7 m. Háaleitisbraut - 2ja V. 5,1 m. Vesturbær - 2ja V. 5,8 m. Kríuhólar - 2ja V. 4,7 m, Austurströnd - 2ja V. 5,5 m. Krummahólar - 2ja m/bílsk. V. 6,0 m. Asparfell - 3ja V. 6,2 m. írabakki - 3ja V. 6,3 m. Hraunbær-3ja V.6,2m. 4ra—5 herb. Sörlaskjól - 4ra V. 6,2 m. Birkimelur - 4ra V. 6,1 m. Frostafold - 5 herb. m/bílsk. V. 10,5 m. Stærri eignir Kögursel-einb. Seltjarnarnes - raðhús Hólar-einb. V. 14,0 m. V. 13,0 m. V. 17,8 m. ASBYRGI INGILEIFUR EINARSSON jm löggiltur fasteignasali, H Borgartúni 33 „Miklu nær væri að stofna samtök gegn þeirri hálfglæpsamlegu stefnu að skrifa kostn- aðinn við lifnaðarhætti okkar hjá börnunum okkar.“ stofna samtök gegn þeirri hálfglæp- samlegu stefnu að skrifa kostnað- inn við lifnaðarhætti okkar hjá börnunum okkar. Það fer svo um mann hálfgerður hrollur, þegar æsingamennimir nota það sem áróðursbragð, að niðurskurður rík- isútgjalda bitni á börnunum vegna þess að eitthvað sé reynt að spara í skólakerfinu. Hvílíkt og annað eins. Undanfarin 10 ár eða svo hefur orðið mikil útgjaldaaukning í skólakerfinu. Hver er það sem man eftir einhverri vá í skólakerfinu fyrir 10 árum? Allt eru þetta tóm áróðursbrögð hjá æsingamönnum.. Staðreyndin er sú, að ríkisstjórn- in gengur allt of skammt í að skera niður ríkisútgjöld. Hallareksturinn mun halda áfram. Allir ærlegir ís- lendingar eiga að hvetja hana til meiri dáða í niðurskurðinum. Það er hægt að ná miklu meiri árangri, en eiga samt nóg til útgjalda til hagsbóta þeim, sem eiga undir högg að sækja. Við skulum gera það fyr- ir börnin okkar að eyða ekki meiru en við öflum. Höfundur er hæstaréttarlögmaður Minningarsj óður um Odd Olafsson STOFNAÐUR hefur verið sjóður til minningar um Odd Ólafsson lækni og alþingismann, sem andaðist 18. janúar 1990. Stofnendur sjóðsins eru Oryrkjabandalag Islands, hússjóður þess og Samband íslenskra berkla- og brjóstliolssjúklinga, SIBS. Stofnfé sjóðsins er 15 milljónir króna. Tilgangur sjóðsins er að styrkja: rannsóknir á fötlun og fræðslu um hana, forvamir í þágu fatlaðra og endurhæfingu þeirra, rannsókna- verkefni á sviði öndunarfærasjúk- dóma og fræðslu um þá, foravam- ir og endurhæfingu vegna önd- unarfærasjúkdóma, fatlaða til framhaldsnáms og rannsókna- starfa. Samkvæmt skipulagsskrá sjóðsins verður fyrst úthlutað úr honum árið 1994. Með þessu móti vilja stofnendur sjóðsins, að því er segir í fréttatil- Tríó Reykja- víkur leikur í Hafnarborg TRÍÓ Reykjavíkur heldur tón- leika í Hafnarborg, menningar- og listastofnun Hafnarfjarðar fimmtudaginn 13. febrúar kl. 20.00. Þetta eru þriðju tónleikar í tónleikaröð sem Hafnarborg og Trió Reykjavíkur standa fyrir á þessu ári. Tríó Reykjavíkur skipa þau Hall- dór Haraldsson píanóleikari, Guðný Guðmundsdóttir fiðluleikari og Gunnar Kvaran sellóleikari. Á efnis- skránni verða: Þrjú andlit í lát- bragðsleik eftir Þorkel Sigurbjörns- son. Verkið er frá árinu 1982 og var þá frumflutt í Kennedy Center í Washington. Verkið hefur.aðeins einu sinni áður heyrst á íslandi. Onnur verk eru tríó í e-moll op. 67 eftir Dimitri Sjostakovits og tríö í Es-dúr op. 100 eftir Franz Schub- ert. Tríó Reykjavíkur er á förum til Danmerkur í lok febrúar þar sem þau munu halda sjö tónleika og auk þess gera upptökur fyrir útvarp. kynningu frá ÖBÍ, minnast af- burðastarfa Odds Ólafssonar fyrir berklasjúklinga og öryrkja. Oddur sat stofnþing SIBS 23. október 1938. Hann var kosinn í stjórn SÍBS á öðru þingi þess 1940 og sat samfellt í stjórninni til 1984. Hann var kosinn formaður SÍBS 1988 og gengdi því starfi til dauða- dags. Oddur Ólafsson varð yfirlæknir og framkvæmdastjóri Reykjalund- ar þegar vinnuheimilið þar tók til starfa 1945. Yfirlæknisstarfí gengdi hann til 1970. Hann var formaður stjómar Reykjalundar 1982-1988. Hann beitti sér fyrir stofnun Öryrkjabandalags íslands og var formaður þess um árabil og síðan heiðursformaður. Með störfum sínum beitti hann sér sér- staklega fyrir endurhæfingu og starfsþjálfun sjúklinga og öryrkja, var formaður Hússjóðs Öryrkja- bandalagsins frá stofnun hans 1966 og til dauðadags. Skrifstofa ÖBÍ tekur við fram- lögum í sjóðinn, svo og skrifstofa SIBS. ------» ♦ «----- Staða og nýt- ing þorsk- stofnsins FYRIRLESTUR á vegum Líf- fræðifélags íslands verður hald- inn stofu 101 í Odda, húsi Há- skóla íslands finuntudaginn 13. febrúar klukkan 20,30. Fyrirlesari er Ólafur Karvel Fálsson sérfræðingur á Hafrann- sóknastofnun. Fyrirlesturinn nefn- ist „Staða og nýting þorskstofnsins í fjölstofnasamhengi“-. Jón Steinar Gunnlaugsson borga velferðarkerfið okkar. Miklir menn erum við. Og þegar ríkis- stjórnin reynir að sporna við fæti og minnka byrðarnar, sem við velt- um yfir á afkomendurna, þá er okkur nóg boðið. Við látum ekki bjóða okkur þetta. Við stofnum samtök og köllum þau „Almanna- heill“. Svo segjum við í undirtitli, að þetta séu samtök um réttlæti. Minna má það ekki vera. Orðin „heill“ og „réttlæti" snúast ekki um að geta í dag haldið uppi svonefndu „velferðarkerfi" og látið börnin okkar borga kostnaðinn síð- ar. Með slíkri notkun er búið að snúa merkingu þessara orða í and- hverfu sína. Miklu nær væri að

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.