Morgunblaðið - 12.02.1992, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 12.02.1992, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRÚAR 1992 13 > í > i > i í i ) i \ MEÐ EFTIRFARANDI SÉRBÚNAÐI FRÁ BÍLABÚÐ BENNA: Kristín Ólafsdóttir bæta fyrir trassaskapinn, sem hlóðst upp þegar hvunndagslíf Reykvík- inga gleymdist vegna rándýrra veisluhalda. Sú betrumbót mun taka allmörg ár því hún er fjárfrek eftir sveltið og skuldasöfnunin mun auk þess kosta sitt. Hætt er við að á næstu mánuðum komi í ljós að rekstrarútgjöld voru vanáætluð í ijárhagsáætlun meiri- hlutans og tekjur ofmetnar. Þá verð- ur að bregðast við því með nýjum - lántökum eða niðurskurði fram- kvæmda. Þá reynir á hvort bata- merkin fá að halda sínu eða hvort lítt aðkallandi kosningaloforð Davíðs Oddssonar verði sett þeim ofar. Við sjáum hvað setur, en von- um að menn rísi úr timburmönnum með gleggri sýn á þarfir nútíma- fólks í Reykjvík. Höfundur er borgarfulltrúi Nýs vettvangs. Erfiðir timburmenn eftir Kristínu Ólafsdóttur Eftir langvarandi fyllerí gera timburmennirnir vart við sig. Þessi hugsun flýgur í gegnum hugann þegar nýsamþykkt fjárhagsáætlun Reykjavíkur er skoðuð í ljósi þeirra verkefna sem bíða óunnin og út frá skuldastöðu borgarsjóðs. A þessu ári eigum við Reykvík- ingar að greiða tæpar 900 milljónir króna í vexti og afborganir af lán- um, einungis af skuldum borgar- sjóðs. Fyrir þá peninga gætum við reist hjúkrunarheimili fyrir 100 manns, en nú bíða a.m.k. 250 las- burða gamalmenni eftir hjúkrunar- vist. Og hafa beðið lengi. Hópurinn mun stækka þegar harkalegra árása ríkisstjórnarinnar á sjúkrahúsin í borginni fer að gæta. A meðan Davíð Oddsson forsæt- isráðherra sat í stól borgarstjóra tvöfölduðust heildarskuldir borgar- sjóðs. Þær námu í árslok 1990 rúm- lega 4.000 milljón krónum, en voru á sama verðlagi tæpar 2.000_milij- ónir um áramótin 1982-83. Á við- skilnaðarári borgarstjórans, 1991, uxu þær enn um 500 milljónir. Ráð- húss- og Perluveislan var í algleym- ingi og hitaveita tók sitt 450 millj- óna króna lán að auki. Oflátungar við stjórn Borgarsjóður neyddist ekki til skuldasöfnunar vegna björgunarað- gerða við veikt atvinnulíf, eins og mörg önnur sveitarfélög hafa orðið að reyna síðustu ár. Skuldirnar hlóð- ust ekki upp vegna tekjurýrnunar. Öðru nær. Þetta gerðist í mestu gósentíð sem komið hefur yfir borg- arsjóð. Á síðasta áratug jukust sam- eiginlegar tekjur okkar í borgarsjóði um nær 50% að raungildi, þótt fjölg- un íbúanna næmi aðeins 17 af hundraði. Rót skuldasöfnunarinnar er sú, að víð stjórnvölinn sátu oflá- tungar sem þurftu að slá um sig með glæsibrag svo ekki færi fram- hjá neinum. „Hér var ÉG!“ má sjá letrað ímynduðum stöfum þegar litið er upp á Öskjuhlíð, niður að Tjörn, út í Viðey eða á glæsilegt Borgarleik- hús í nýjum miðbæ. Stjórnendur vildu fá ummerkin um sig ekki seinna en strax, mörg í senn, sama hvað þau kostuðu. „Sjáið þið ekki hvað þetta er fallegt, glæsilegt, skemmtilegt," sögðu þeir, ef einhver reyndi að ná þeim niður og benda á fólk hér og hvar í borginni sem raðaði sér í stöðugt lengri biðraðir eftir margvíslegri þjónustu sem sveitarfélagið á samkvæmt lands- lögum að útvega. Gagnrýnendur voru snarlega afgreiddir sem svarta- gallsrausarar: „Vesalings fólkið er haldið músarholusjónarmiðum og kann ekki að skemmta sér.“ Veislunni lokið? En nú er aðalveislustjórinn fluttur í aðra og fátæklegri sali en timb- urmenn borgarveislunnar að koma í ljós. Það þrengir að sjóðum Reyk- víkinga vegna samdráttar í atvinnu- lífi og vegna aðgerða og nýrra skatta á sveitarfélög sem veislu- stjórinn fyrrverandi stendur fyrir. Og þá verður enn erfiðara að bregð- ast við og leyna þörf eftir úrræðum eins og hjúkrunarvist, þjónustuíbúð- um eða öðru öruggu leiguhúsnæði. 6-9 umsækjendur eru um hveija félagslega íbúð sem borgin hefur að bjóða. Foldaskóli, sem verða átti einsetinn fyrirmyndarskóli í Grafar- vogi, er útúrsprunginn og tvísetinn, enda sækja hann nær 1.100 nem- endur en ekki 750 eins og húsið var byggt fyrir. Reykjavík er það fræðsludæmi sem lengst á í land með að eiga húsnæði fyrir einsetinn grunnskóla. Börnum á biðlistum eftir e.k. dagvistun á vegum borgar- innar hefur fjölgað um 1.000 síð- ustu tvö ár. Eru nú hátt í 3.000. íþróttahús borgarinnar eru meira en fullnýtt og íþróttafélög kvarta sáran yfir að fá ekki fé til frekari framkvæmda. Iðrunarmerki Viðbrögð meirihlutans í borgar- stjórn við þröngri stöðu og fortíðar- „A meðan Davíð Odds- son forsætisráðherra sat í stól borgarstjóra tvöfölduðust heildar- skuldir borgarsjóðs. Þær námu í árslok 1990 rúmlega 4.000 milljón krónum, en voru á sama verðlagi tæpar 2.000 milljónir um áramótin 1982-83. Áviðskilnað- arári borgarstjórans, 1991, uxu þær enn um 500 milljónir.“ vanda eru þau, að fram er sett óraunhæf fjárhagsáætlun fyrir árið 1992. Auðvitað er sjálfstæðismönn- um vorkunn, því það er alltaf erfitt að horfast í augu við eigin mistök. En vissulega sjást iðrunarmerki. Framkvæmdafé á milli ára er hækk- að meira til dagvistarstofnana en sést hefur undanfarin ár. Kosið er að ganga frekar á gatnafram- kvæmdir en að minnka framlög til bygginga í þágu aldraðra, svo dæmi séu tekin um batamerkin. Og það brá svo við, að margra ára krafa minnihlutans um að koma upp fé- lagsaðstöðu fyrir unglinga í Selja- hverfi var loksins virt. En þrátt fyr- ir viðleitnina er svo óralangt frá því að hægt sé að nokkru marki að FJALLAGARPURINN L 200 - FRA MITSUBISHI / Yfirbygging upphækkuð um 3' / Brettakantar úr gúmmíi / Gangbretti úr áli / 32 x 11 50R15LT radíaldekk / 15 x 8 álfelgur með plasthúð / Slökkvitæki - Sjúkrakassi / 6000 punda Warn spil / Svartur ljósabogi 2 stk. Dick Cepek 130 w. ljóskastarar á toppi / 2 stk. D. C. 100 w. þokuljóskastarar á grind / Svört Warn grind að framan / Sérskoðun Verð kr. 1.741.000 stgr. m. vsk. með ofantöldum búnaði A MITSUBISHI MOTORS HEKIA LAUGAVEGI174 SÍMI695500 PiCKUPTRUCK iOF THE YEftRi FOUR WHEELER MAGAZINE Bíllirm. sem vakti almenna athygli á sýningu ferðaklúbbsins 4x4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.