Morgunblaðið - 12.02.1992, Blaðsíða 38
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRÚAR 1992
38
OLYMPIULEIKARNIR I ALBERTVILLE
ALBERTVILLE92
CXX)
■ KEPPENDUR frá Fjjieyjum
hafa enn ekki komið fram í Albert-
ville, en þeir voru skráðir í skíða-
göngu. Þeir tóku ekki þátt í opnun-
arhátíðinni á laugardaginn, en eru
skráðir með síma í ólympíuþorpinu
sem ekki hefur verið svarað í. „Við
höfum
ekkert frétt af þeim og vitum ekki
hvort þeir koma eða ekki,“ sagði
talsmaður ólympíuþorpsins.
■ NENER-systurnar frá Aust-
urríki, Doris og Angelika, er í
fyrsta og öðru sæti í sleðakeppninni
einstaklinga eftir tvær fyrstu um-
ferðirnar af fjórum. Doris er fyrst
á 1:33.354 mín og er 0,175 sekúnd-
um á undan eldri systur sinni,
Angeliku. Keppninni lýkur í dag.
I BONNIE Blair, skautakona frá
Bandaríkjunum, sigraði í 500 m
skautahlaupi og varði ólympíutitl-
inn frá því í Calgary fyrir fjórum
árum. Hún kepþir í 1.500 metra
skautahlaupi í dag og á þar við
þýsku guil stúlkuna, Gunde Nie-
mann. Blair, sem er 27 ára frá
Illinois, tileinkaði föður sínum gull-
verðlaunin, en hann lést fyrir tveim-
ur árum.
■ YE Qiaobo varð önnur í 500
metra skautahlaupi kvenna og varð
þar með fyrst Kínverja til að kom-
ast á verðlaunapall á vetrarólymp-
íuleikum. Hún var 0,18 sek. á eftir
Bonnie Blair. Qiaobo keppti ekki
á Ólympíuleikunum í Calgary þar
sem hún féll á lyfjaprófi eftir að
hafa tekið inn lyf sem kínverskur
læknir hafi látið hana hafa 1988,
rétt fyrir leikana í Calgary. Hún
var þá sett í 15 mánaða keppnis-
bann.
„ ■ LJÓSMYNDARI varð fyrstur
til þess að frá rauða spjaldið í Al-
bertville. Ljósmyndarinn var að
mynda verðlaunaafhendingu í 500
m skautahlaupi kvenna á mánudag-
inn og gekk þá út á ísinn á keppnis-
brautinni, sem er bannað. í fram-
haldi að því ákvað framkvæmda-
stjórn leikanna að setja hann í 24
klukkustunda ljósmyndabann;
Ginther úr leik
Olympíuleikamir runnu á enda
áður en þeir hófust hjá aust-
urrísku skíðakonunni, Sabinu Gint-
her. Hún braut hryggjarlið er hún
féll illa á æfingu í brunbrautinni í
gær.
Ginther, sem var talin mjög sig-
urstrangleg í alpatvíkeppni kvenna,
kom illa niður eftir að hún hafði
misst jafnvægið og flogið út úr
brautinni og í öryggisnetið. Hún var
flutt á sjúkrahús í Meribel þar sem
gert var að sárum hennar. í dag
verður hún flutt á sjúkrahús í Inns-
bruck til frekari rannsókna.
Idag
Dagskrá Ólympíuleikanna í
Albertville í dag:
09.00- 10 km skíðaskotfimi karla.
09.00- Sleðakeppni kvenna.
11.15- Tvikeppnisbrun kvenna.
13.00- Hólasvig (Moguls).
13.30- 15 km ganga karla.
15.00- 1.500 m skautahlaup kvenna.
Íshokkí, b-riðill:
12.00- Noregur - Kanada
15.30- Frakkland - Sviss
19.15- SSL - Tékkoslóvakía
Veðurútlit: Skýjað en léttir til um
miðjan daginn.
Reuter
Rússar
sigruðu í
áttunda
sinn
RÚSSNESKA parið, Matalta
Míshkútíenok og Artúr
Dmítríev, urðu ólympíu-
meistarar í listhiaupi á
skautum. Þau höfðu forystu
eftir skylduæfingarnar á
mánudag og fylgdu því eftir
með glæsibrag ífrjálsu æf-
ingunum í gær og sigruðu
nokkuð örugglega.
Æfingar þeirra voru næst-
um fullkomnar undir
tónlist Franz Liszt, eins og þeg-
ar þau unnu Evrópu- og heims-
meistaratitilinn á síðasta ári.
Elena Betsjke og Denís Petrov
unnu silfurverðlaunin og kana-
díska parið, Isabelle Brasseur
og Lloyd Eisler, bronsverðlaun-
in.
Þetta var í áttunda sinn í röð
sem Rússneskt par fagnar sigri
á ólympíuleikum í parakeppni í
listhlaupi á skautum. Það var
Tamara Moskvína sem fagnaði
mest allra þar sem hún þjálfar
bæði ólympíumeistarana og silf-
urverðlaunahafana í heimabæ
sínum, St Petersburg.
Josef Polig sigraði mjög óvænt í alpatvíkeppni karla og var þar með fyrsti ólympíumeistari Itala á Ólympíuleikunum
í Albertville. Hann er hér á fullri ferð í svigi alpatvíkeppninnar í gær.
ttalinn Josef Polig stal senunni
AUSTURRÍSKI ólympíumeist-
arinn í alpatvíkeppni frá því í
Calgary, Hubert Strolz, var
hænufeti frá því að verja titil-
inn. Hann var með besta tím-
ann í fyrri umferð svigsins í
gær og átti aðeins eftir fjögur
hlið í síðari umferð er hann
keyrði útúr og kastaði þar með
sigrinum yfirtil Josefs Polig frá
Ítalíu.
Strolz var sjötti eftir brunið á
mánudaginn og stefndi því
allt í að hann myndi veija titilinn
eftir fyrri umferð svigsins í gær og
hefði þá orðið fyrsti skíðamaðurinn
í sögunni til áð verja titilinn. En
honum urðu á mistök í síðari um-
ferðinni og þar með varð sá draum-
ur á enda.
Ólympíumeistarinn Josef Polig
hefur aldrei náð að vera á meðal
þriggja efstu í heimsbikarnum og
SKÍÐASKOTFIMI
Á þessum Ólympíuleikum keppa
konur í fyrsta sinn til verðlauna í
þessari krefjandi tvíkeppni.
áttu því fáir von á því að hann stæði;
sem sigurvegari. Hann var sjötti í
■bruninu og fimmti sviginu í gær
og það dugði. Landi hans, Gianfran-
. co Martin, vann silfurverðlaun og
var aðeins 0,06 sek. frá sigri í tví-
keppninni. Steve Locher frá Sviss
varð þriðji og vann fyrstu verðlaun
Svisslendinga á leikunum.
Paul Accola, sem var talinn sig-
urstranglegastur fyrir svigið, gerði
mistök í fyrri umferð og missti við
það dýrmætan tíma og þar með
möguleika á sigri. Snjókoma var
meðan á keppninni stóð og brautirn-
ar mjög harðar og erfiðar yfirferð-
ar. Heimsmeistarinn austurríski,
Stefan Eberharter, féll úr keppni í
gær, en á mánudaginn féllu þeir
Marc Girardelli og Gúnther Mader,
sem voru taldir sigurstranglegir
fyrirfram.
„Ég trúði því ekki að þetta gæti
gerst," sagði Polig. „Ég átti alls
ekki von á því að ná svona góðum
árangri hér í Albertville. Þetta er
mikill sigur fyrir mig og stór dagur
í lífi mínu,“ sagði ítalinn.
Restzova skráði nafn
sitt á spjöld sögunnar
RUSSNESKA stúlkan Anfissa
Restzova skráði nafn sitt á
sjöld sögunnar í gær er hún
varð fyrsti ólympíumeistarinn í
skíðaskotfimi kvenna. Hún
varð ólympíumeistari i boð-
göngu kvenna á síðustu ólymp-
íuleikum, en snéri sér að skíða-
skotfimi er hún komst ekki í
rússneska göngulandsliðið eft-
ir að hafa eignast barn.
Restzova, sem er 27 ára, var
örmagna er hún kom í mark
eftir 7,5 km. En hún gat þó stunið
því upp að hún tryði því ekki að
hún hefði sigrað. Þetta voru fyrstu
gullverðlaun Restzovu í einstakl-
ingsgrein, en hún vann silfurverð-
laun í 20 km göngu á ÓL í Calg-
ary. Ekki hefur áður verið keppt í
kvennaflokki í skíðaskotfimi á
Ólympíuleikum. v
Antje Misersky frá Þýskalandi
varð önnur, 15,9 sekúndum á eftir
Restzovu. Elena Belova frá Sam-
veldi sjálfstæðra lýðvelda varð
þriðja. Rússnesku göngukonurnar
hafa nú unnið fjögur af sex verð-
launum í göngugreinunum leik-
anna.
Norska stúlkan Grete-Ingeborg
Nykkelmo, fyrrum heimsmeistari í
skíðagöngu, keppti í fyrsta sinn í
skíðaskotfimi og hafnað í 31. sæti.
Hún missti marks fjórum sirinum í
upréttri skotstöðu og varð því refs-
að fyrir það með aukahring. Snjó-
koma vat meðan á keppninni stóð
og það gerði keppendum erfitt fyrir
að hitta skotskífurnar.
Hvað er hólasvig?
m
Idag hefst keppni í hólasvigi eða „moguls“ og er það ný grein á
Ólympíuleikunum. Keppnin fer þannig fram að þátttakendur renna
sér niður brekku sem í eru litlir hólar og grafningar. Keppandinn á
að fara níður brekkuna með snöggum beygjum og stökkum á sem
stystum tíma. Dómarar gefa síðan einkunn fyrir frammistöðuna. Beygj-
urnar gilda 50%, stökkin 25% og hraðinn 25% í einkunnagjöfinni.
Edgar Grospiron frá Fr'akkiandi og Donna Weinbrecht frá Bandaríkj-
unum er talin sígurstranglegust í hólasviginu. Grospiron hefur verið
nær ósigrandi í heimsbikarnum í þessari grein síðustu árin og er m.a.
tvöfaldur heimameístari. Weinbrecht varð heimsmeistari í hólasvigi í
Lake Placid og var efst í heimsbikarnum síðustu tvö árin.