Morgunblaðið - 21.02.1992, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1992
5
Háskólinn:
88% fall á fyrsta ári
1 almennri lögfræði
AF 123 laganemum á 1. ári sem þreyttu próf í almennri lögfræði í
desember á síðasta ári náðu 15 nemar tilskildum árangri, lágmarks-
einkunninni 7. Fallið í almennri lögfræði var með öðrum orðum um
88 af hundraði.
Davíð Þór Björgvinsson, dósent
í lagadeild HÍ, sagði að þessar nið-
urstöður væru ekki ósvipaðar niður-
stöðum fyrri ára. Gera mætti ráð
fyrir að einhver hluti þeirra er féllu
á prófinu þreyttu það að nýju næsta
haust og miðað við reynsluna mætti
gera ráð fyrir að 10-20 manns
stæðust það þá. Á bilinu 30-40
manns næðu þannig tilskildum ár-
angri á fyrsta ári í lögfræði. Um
50 manns stunda nú nám á öðru ári.
Davíð sagði að athuga bæri það
að gerðar væru nokkuð strangar
kröfur í lagadeild. Almenn lögfræði
væri eins og nokkurs konar inn-
tökupróf. Lágmarkseinkunn í al-
mennri lögfræði er sjö en lágmarks-
einkunn í námskeiðum í verkfræði-
og raunvísindadeild og félagsvís-
indadeild væri á hinn bóginn fjórir.
A
Islenzka átti
það að vera
í blaðauka Morgunblaðsins í gær
um gæðastjórnun urðu þau mistök,
að auglýsing frá Verksmiðjunni
Vífilfelli hf. birtist með erlendum
texta, þar sem íslenzka átti að
sjálfsögðu að vera. Morgunblaðið
biðst afsökunar á þessum mistök-
um
Enn lægra hlutfall nemenda í nám-
skeiðum þessara deilda næðu ein-
kunninni sjö. Davíð sagði að það
kæmi sér ekki á óvart ef innan við
10% nemenda þar næðu einkunn-
inni sjö. í verkfræði- og raunvís-
indadeild væri hátt í 50% fall þótt
lágmarkseinkunn sé fjórir.
------»■ 4 -4--
Góð loðnuveiði:
Sólarhrings-
aflinn nam
18.500 tonnum
MJÖG góð veiði var á loðnumið-
unum út af Suðurlandi 19. til 20.
febrúar og nam sólarhringsaflinn
um 18.500 tonnum. Að scgn Jóns
Olafssonar hjá Félagi fiskimjöls-
framleiðenda dreifðist þessi afli á
allar loðnulöndunarstöðvar lands-
ins.
Heildaraflinn af loðnu er nú orð-
inn 330.000 tonn á þessari vertíð
en kvótinn er kominn í rúm 700.000
tonn eftir að kvótahlutdeild Norð-
manna og Grænlendinga var færð
yfir á íslendinga. Jón Ólafsson segir
að ef sömu ógæftir haldi áfram eins
og verið hefur í vetur muni þessi
kvóti vart nást í hús.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
15-20 manns vinna á hverjum degi við að búa til páskaegg hjá Nóa og Síríusi.
350 þúsund páskaegg borðuð
EKKI er ráð nenia í tíma sé tekið og því var byrjað að steypa
páskaegg fyrsta vinnudaginn í janúar þó enn séu tveir mánuðir
í sjálfa páskahátíðina. Örn Ottesen, skrifstofustjóri hjá Nóa og
Síríusi, segist reikna með að Islendingar sporðrenni um 350.000
páskaeggjum á hverju ári. Af því framleiðir fyrirtækið 200.000-
250.000 egg. Á bilinu 15-20 manns vinnur við framleiðsluna á
hverjum degi.
Örn sagði að eggin væru með
svipuðum hætti á hveiju ári. „Svo
eru málshættirnir helmingurinn
af öllu saman. Þegar svo óheppi-
lega hefur vilja til að gleymst
hefur að sitja málshætti í einhver
egg höfum við fengið upphring-
ingar strax eftir hátíðina. Fólk
er gjörsamlega eyðlagt ef það fær
ekki málshátt. Við höfum þá boð-
ist til að senda því málshætti í
pósti. Farið er í málsháttaboxið,
dregin málsháttur af handahófi
og sendur í bréfi. Töluvert er um
að fólk taki þessu boði,“ sagði
Örn.
Ennfremur sagði hann að
mikilvægt væri að reyna að koma
í veg fyrir að sami málshátturinn
kæmi í tveimur eggjum á sama
heimilinu. Valið er úr 200 máls-
háttum og á hveiju ári er einhveij-
um bætt við og aðrir teknir úr
umferð.
RÝMII H NGAI IA n RSALA ij KS
HEIMILISHÚSGÖGN GKS SKRIFSTOFUHÚSGÖGN
HESTHALSI 2 - 4 BÍLDSHÖFÐA 18
SÍMI : 672110 SÍMI : 676500
SÓFASETT RÚMGAFLAR SKRIFBORÐ
SOFABORÐ DYNUR FUNDARBORÐ
STÓLAR RÚMTEPPI HILLUR
HORNBORÐ NÁTTBORÐ SKÁPAR
SMÁBORÐ PÚÐAR STÓLAR
STAKIR SOFAR FATAHENGI ELDHÚSBORÐ
OG STOLAR OG MARGT OG MARGT
SKÁPAR FLEIRA.. FLEIRA...
HILLUR ca 2 <0 (tJ D) *> C w
30 - 6C D) n % AFSLÁTTUR ! í '< “3 oc LL