Morgunblaðið - 21.02.1992, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1992
25
Fyrirlest-
ur um heil-
brigðis-
þjónustu
VILHJÁLMUR Árnason, dósent
í heimspeki við Háskóla Islands,
heldur fyrirlestur á vegum Fé-
lags áhugamanna um heimspeki
á Akureyri. Fyrirlesturinn verð-
ur fluttur í Háskólanum á Akur-
eyri við Þórunnarstræti á morg-
un, laugardag, kl. 14. og nefnist
hann „Hvað er heilbrigðisþjón-
usta“.
í viðleitni sinni til að svara þeirri
spurningu mun Vilhjálmur velta
því fyrir sér hver séu meginmark-
mið og verkefni heilbrigðisþjón-
ustu, hvert sé inntak mannlegs
heilbrigðis og hvernig skipta megi
gögnum og gæðum heilbrigðis-
þjónustunnar á réttlátan hátt.
- 9 -m 0 Morgunblaðið/Snorri Snorrason
Reynslusigling
BYLGJAN VE 75 fór í sína fyrstu siglingu síðastlið-
inn sunnudag, er skipið var reynt á Eyjafirði. Skip-
ið var smíðað af Slippstöðinni á Akureyri og hefur
verið unnið við það með hléum frá árinu 1988. Jó-
hannes Óli Garðarsson, framleiðlsustjóri Slippstöðv-
arinnar, segir að reynslusiglingin hafi gengið vel í
alla staði og hafi menn verið mjög ánægðir með
skipið. Bylgjan er 277 tonn að stærð, 36,4 metrar
að lengd og 8,6 að breidd. Hún er alhliða togveiði-
skip búið til vinnslu og frystingar á þorski. Um
borð eru tilhreyandi vinnsluvélar og þrír láréttir
plötufrystar og annar hver þeirra um 8 tonnum á
sólarhring. Frystilest er í skipinu, 260 rúmmetrar
að stærð.
Vilhjálmur lauk stúdentsprófi
frá Menntaskólanum á Laugar-
vatni, BA-prófi í heimspeki og
uppeldis- og kennslufræði frá Há-
skóla íslands, og síðar doktors-
gráðu í heimspeki frá Purdue-
háskólanum í Bandaríkjunum árið
1982. Erindi hans og greinar um
heimspeki og siðfræðileg efni hafa
birst í blöðum og tímaritum hér á
landi og erlendis.
Með fyrirlestri Dr. Vilhjálms
lýkur þeirri umræðu sem Félag
áhugamanna um heimspeki efndi
til um heilbrigðishugtakið, en Pét-
ur Pétursson heilsugæslulæknir og
Brynjólfur Ingvarsson geðlæknir
fjölluðu um þetta efni á sl. vetri.
(Fréttatilkynning)
Kröfum upp á 62 milljómr
króna lýst í þrotabú Oslax
LÝSTAR kröfur í þrotabús Óslax er rekið í húsakynnum þrotabúsins. verið fiskeldishús, sem Byggða-
í Ólafsfirði nema tæpum 62 millj- Heildarkröfur í þrotabúið eru 62 stofnun leysti til sín og þá hefði
ónum króna. Þær eignir sem til milljónir og lýsir Byggðastofnun búið átt ker og búnað, auk hafbeit-
voru í búinu hafa verið seldar á langstærstu kröfunni, eða 46,5 arlaxa í sjó. „Lausafé og veiðivon,“
500 þúsund krónur. milljónum. Þá lýsir Sparisjóður eins og bústjórinn orðaði það voru
Ólafsfjarðar kröfum upp á 11,5 seld á hálfa milljón króna.
Óslax var úrskurðað gjaldþrota milljónir króna. Fyrsti skiptafundur í þrotabúinu
í lok október á síðasta ári. Heima- verður haldinn 5. mars næstkom-
menn stofnuðu fljótlega nýtt fyrir- Ólafur Birgir Árnason bústjóri andi og bjóst Ólafur Birgir við að
tæki um reksturinn, Laxós sem nú þrotabúsins sagði að eignir hefur málinu yrði lokið á þeim fundi.
Mikilvægur
íshokkíleikur
SKAUTAFÉLAG Akureyrar tek-
ur á móti Skautafélagi Reykjavík-
ur í 3. umferð íslandsmótsins í
íshokkí á morgun, laugardag.
Leikið verður á skautasvellinu á
Akureyri og hefst leikurinn kl. 14.
Fyrir leikinn eru liðin efst og jöfn
að stigum og úrslit leiksins eru því
mikilvæg fyrir bæði liðin í keppninni
um íslandsmeistaratitilinn.
Vert er að geta þess að marka-
hlutfall hefur ekki áhrif á úrslit
mótsins heldur verður leikinn úr-
slitaleikur ef tvö lið verða efst og
jöfn. (Fréttatilkynning)
Dalvík:
Hver á fiskinn?
HVER á fiskinn? er yfirskrift
fundar sem haldinn verður í Vík-
urröst á Dalvík á morgun, laugar-
dag, og hefst kl. 13.30.
Það er Stafnbúi, félag sjávarút-
vegsfræðinema við Háskólann á
Akureyri, sem gengst fyrir fundin-
um, en félagið hefur síðustu vikur
efnt til sams konar funda víða um
Norðurland þar sem fjallað hefur
verið um forsendur fiskveiði-
stjórnunar, ákvörðun heildarkvóta,
áhrif fiskveiðistjórnunar á hags-
munaaðila og áhrif fiskveiðistjórn-
unar á búsetu.
Á fundinum á laugardag verða
flutt fjögur framsöguerindi, en þau
flytja Hannes Hólmsteinn Gissurar-
son, lektor við Háskóla íslands,
Styrmir Gunnarsson, ritstjóri Morg-
unblaðsins, Snjólfur Ólafsson, dós-
ent við Háskóla íslands, og Valdi-
mar Bragason framkvæmdastjóri en
fundarstjóri verður Kristján Þór Jú-
líusson bæjarstjóri. Að ioknum fram-
söguerindum verður opnað fyrir fyr-
irspurnir og almennar umræður.
Vigdís Sigurðar-
dóttir — Minning
Fædd 8. september 1956
Dáin 16. febrúar 1992
Manstu, manstu orð og atvik,
öðrum hulin, týnd og gleymd,
— töfrablik og unaðsóma,
ævintýri séð og dreymd.
Æsku minnar gulli góðu
gat oss engin ránshönd svipt.
Það er mótað barnsins brosi,
ber þess mynd og yfirskrift.
(Örn Amarson)
Með þessu ljóði kveðjum við ást-
kæra systur og frænku.
Blessuð sé minning hennar.
Gunnar Sigurðson,
Sigurður Snorri Gunnarsson.
Með örfáum orðum langar mig til
að minnast mágkonu minnar, Vig-
dísar Sigurðardóttur.
Foreldrar hennar eru Sigurður
Sigurðsson bóndi á Sleitustöðum í
Skagafirði og Margrét Haraldsdótt-
ir. Vigdís átti við mikil veikindi að
stríða í mörg ár, en það lét hún aldrei
á sig fá, og aldrei talaði hún um það
eða kvartaði ef hún fann til. Við
áttum margar góðar stundir saman
þau sl. níu ár sem við þekktumst.
Hún var mér mjög hjálpsöm við að
læra og þekkja lífið í sveitinni. Og
oft dáðist ég að því hvað hún var
dugleg við heimilisverkin. Vigdís
þótti gaman að syngja og fara með
vísur, enda komin af góðu söng-
fólki. Hún hafði yndi af að hitta
fólk og fórum við saman í heimsókn-
ir og í bíltúra og þá var hlustað á
útvarp og sungið með.
Við hittumst síðast helgina
14.-16. febrúar og þá datt manni
ekki í hug að þetta yrði í síðasta
skipti sem við hittumst. En maður
veit aldrei næsta augnablik.
Ég votta foreldrum Vigdísar,
systkinum og öðrum aðstandendum
mína dýpstu samúð. Blessuð sé
minning hennar.
Hvert örstutt spor var auðnuspor með þér
hvert andartak er tafðir þú hjá mér
var sólskinsstund og sælustraumur hár
minn sáttmáli við Guð um þúsund ár.
(Halldór Laxness.)
Svanhildur Jóhannesdóttir.
Austurlensk teppi
Nýjar sendingar
'sia
Verslunarhús Faxafeni 11, sími 686999
Sérverslun með mottur og teppi
FÉLAGSÚF
I.O.O.F. 12 = 1732218'h =
Erindi.
I.O.O.F. 1 S1732218ViS9.il.*
FERÐAFÉLAG
ÍSIANDS
ÖLDUGÖTU 3S11798 19533
Vetrarfagnaður
Ferðafélagsins 7. mars
Félagar og aðrir, mætið vel
á vetrarfagnaðinn laugardaginn
7. mars i Básnum, Ölfusi.
Frábær skemmtun.
Gullfossferð kl. 10.30 og Kjalar-
nesgangan 4. ferð kl. 13 sunnu-
daginn 23. febrúar. Ski'ðagang-
an verður auglýst um lelð og
snjóalög leyfa.
Vinnudagur í Mörkinni 6
á morgun, laugardag, frá kl.
9-17. Sjálfboðaliðar óskast.
Hafið samband við skrifstofuna.
Kvöldvaka með Ævari Peder-
sen um Breiðafjarðareyjar
verður nk. miðvikudagskvöld
26. febrúar í Sóknarsalnum.
Þorrablót Hornstranda-
fara 22. febrúar
Við minnum Hornstrandafara
F.í. síðustu tveggja sumra á
þorrablót laugardaginn 22. fe-
brúar í veitingasalnum við Bláa
lónið. Brottför með rútu kl.
19.00. Upplýsingar veitir undir-
búningsnefndin: Guðmundur í
síma 686111, Guðrún í síma
46887, Gróa í síma 671018,
Ágústa í síma 92-68206, Andri
i síma 72524 og Unnur í síma
21486.
Mætum síðan öll i vetrarfagnað
Feröafélagsins 7. mars.
Skíðaganga f Noregi 20.-29.
mars. Staðfesta þarf pantanir
fyrir lok febrúar.
Ferðafélag islands.
Samvera fyrir fólk á öllum aldri
i kvöld í Suðurhólum 35.
Bænastund kl. 20.05.
Samveran hefst kl. 20.30.
Allt er fertugum fært
Hjónahópur annast samver-
una. Ungt fólk á öllum aldri ec
velkomið.
Frá Guöspeki-
fétaginu
■ngontitrNU zz.
Askrtftarsimi
Oanglm w
39673.
I kvöld kl. 21.00 flytur Jörundur
erindi: „Sókrates meðal meist-
ara" í húsi félagsins, Ingólfs-
stræti 22. Á laugardag er opið
hús frá kl. 15.00 með fræðslu
og umræðum kl. 15.30. Gestur:
Sveinn Freyr. Allir eru velkomnir
og aðgangur ókeypis.
UTIVIST
Hallveigarstíg 1, sími 14606
Dagsferðir sunnud. 23. febr.
Kirkjugangan 4. áfangi
Kl. 10.30: Esjuberg - Hof -
Brautarholt.
Kl. 13.00: Sjávarhólar - Hof -
Brautarholt.
Sjáumst!
Útivist.
KFUK
KFUM
Fræðslustundir
m
á laugardögum í aðalstöðvunum
við Holtaveg kl. 10.30-12.00.
Á morgun verður fjallað um efnið:
Fylling heilags anda.
Umsjón Jónas Gíslason.