Morgunblaðið - 21.02.1992, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1992
15
upp við sig á miðnæturstund hvort
hún eigi að sökkva sér í Skjálfanda-
flóann eða að rísa aftur upp á hvolf-
ið án þess að hafa þar viðstöðu. Á
slíkum stundum verður litum og
blæbrigðum Kinnafjallanna ekki
lýst með orðum.
Hógværð var förunautur Jóns
Sigtryggsonar í leik og starfí. Hann
kunni ekki þá list að trana sjálfum
sér fram eða láta á sér bera. Eng-
inn gat þó vænt hann um skapleysi
eða skoðanaleysi. Þvert á móti vissi
hann að hveiju stefna bæri og
hvernig ætti að ná markmiðum.
Hann hafði sinn hátt á, og með
honum tókst honum í senn að
ávinna sér bæði virðingu og vináttu
þeirra sem urðu honum samferða á
lífsleiðinni.
Ég hygg að okkur öllum hafí
þótt skarð fyrir skildi þegar annar
mannaði stólinn hans við kvöldverð-
arborðið og í setustofunni og
kannski fundum við þá betur en
nokkru sinni fyrr að Jón Sigtryggs-
son var einlægur vinur okkar allra.
Hugurinn hvarfaði til hans og ég
er ekki í nokkrum vafa um að hug-
ur hans var hjá okkur. Og í framtíð-
inni munum við geyma minningu
hans, minningu sem oftsinnis verð-
ur rifjuð upp á komandi veiðidögum.
Sá þáttur sem hann átti í að mynda
félagsskapinn og móta venjur hans
og siði mun ekki gleymast okkur
sem nú fetum í fótsporin.
Steinar J. Lúðvíksson.
Dauðinn hinn slyngi sláttumaður
er alltaf að og enginn slær völlinn
betur. Hin síbeitta sigð hans hefur
nú hitt fyrir vin minn prófessor Jón
Sigtryggsson, tannlækni. Ekki get
ég sagt að andlát Jóns kæmi mér
á óvart, því lífshlaup hans var langt
orðið, heilsan farin og mikið dags-
verk að baki, sem unnið var af
meiri óeigingirni, en flestum er lag-
ið.
Nokkuð lýsir það manninum, að
skömmu eftir að hann hætti tann-
læknisstörfum tók hann sér plast-
poka í hönd og tæmdi í hann nokkr-
ar skúffur af ógoldum reikningum
viðskiptavina sinna. Að svo búnu
gekk hann að húsabaki og brenndi
þar allt til ösku. Svo glaður var Jón
eftir þessa bálför, að engu var lík-
ara en hann hefði kastað ellibelgn-
um og taldi sig sjálfsagt verk unn-
ið hafa. Jón var maður eigi mikill
að vallarsýn, en þeim mun stærri
var hans hlýja sál og eigi að undra,
þótt méir og fleirum kæmi hann oft
í hug þá góðs manns var getið. Um
langdrægt fjögurra áratuga skeið
var það snar þáttur í lífi Jóns að
fara á hveiju sumri til laxveiða
norður að Laxá í Aðaldal. Til þess-
ara ferða hlakkaði hann meira en
nokkurs annars, enda tók hann í
upphafí slíku ástfóstri við ána og
umhverfi hennar að með fádæmum
var. Laxá var í hans augum vafa-
laus drottning hinna íslensku fall-
vatna og engan hljóm vissi hann
fegurri en þann, sem barst frá foss-
aflaumi og hinum bláu og síkviku
strengjum drottningarinnar.
Gróðurfar og fuglalíf við Laxá, var
í hans augum makalaust meistara-
verk skaparans. Mér er ógleyman-
legt atvik, er ég á húmblárri sumar-
nótt hitti Jón þar sem hann sat
milii tveggja þúfna og strauk þeim
blítt sína með hvorri hendi, samtím-
is því að horfa til árinnar með
ósvikna lotningu í andlitinu. Á þann
hátt hlóð hann sig bæði orku og
yndi frá því umhverfí sem honum
var kærast.
Við hér á bökkum Laxár fögnum
komu farfuglanna vor hvert og þó
einkum ióunnar, sem kemur að
kveða burt snjóinn. Við fögnum
einnig komu veiðimannanna og má
segja, að Jón hafí skipað sæti lóunn-
ar í þeirra hópi. Hann átti hvar-
vetna vinum að mæta á bökkum
uppáhaldsárinnar sinnar, enda fór
það að líkum með annað eins ljúf-
menni. Hann uppskar svo sannar-
lega eins og hann sáði. Lóan mun
halda áfram að koma og kveða
burt snjóinn og veiðimennirnir
munu halda áfram að koma, en Jón
verður ekki með í för, því hann á
ekki afturkvæmt og við munum
sakna vinar í stað, meira að segja
breytist niður árinnar í saknaðar-
ljóð, ef við hlustum rétt.
Það var ekki ætlun mín að skrifa
um lífshlaup Jóns Sigtryggssonar
sem slíkt, heldur aðeins að þakka
honum ljúfa og ógleymanlega sam-
fylgd hér við Laxá þar sem snjór
gleymskunnar mun seint fenna í
spor hans sem svo hljóðlega gekk
og varlega fór.
Nú þegar Jón er horfinn fyrir
feigðarbrún vil ég f.h. okkar vina
hans hér við Laxá senda honum
einlægar þakkir fyrir kærar stundir
og kynni góð og oska honum yndis
á hinni ókunnu strönd handan þess
hafs, sem aðskilur lifendur og
dauða. Fjölskyldu hans og aðstand-
endum öllum sendum við hugheilar
samúðarkveðjur.
Vigfús B. Jónsson.
Fleiri greinar um Jón Sigtryggs-
son bíða birtingar og munu birt-
ast næstu daga.
ÍS 4k
RAÐSTEFNA
UM ATVINNUMÁL
VERKFRÆÐINGA
laugardaginn 22. febrúar 1992
í þingsal A, Hótel Sögu
Dagskrá:
Kl. 14.00 Ráðstefnan sett:
Þorsteinn Sigurjónsson, formaður SV.
Kl. 14.10 Ávarp iðnaðarráðherra:
Jón Sigurðsson, iðnaðarráðherra.
Kl. 14.20 Launamál verkfræðinga, kjarakönnun SV:
Halldór Ingólfsson, stjórnarmaður í SV.
Kl. 14.45 Vinnumarkaður verkfræðinga
Jón Erlendsson, yfirverkfræðingur og
Guðrún Zoega, framkvæmdastjóri FRV.
Kl. 15.15 Kaffihlé
Kl. 15.45 Áhrif EES-samninga á atvinnumál verkfræðinga:
Jón Steindór Valdimarsson, lögfræðingur hjá FÍI
og Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra.
Kl. 16.30 Pallborðsumræður
Jón Sigurðsson, iðnaðarráðherra,
Guðmundur G. Þórarinsson, verkfræðingur,
Þorsteinn Helgason, forseti verkfræðideildar HÍ,
Halldór Þ. Halldórsson, formaður VFÍ og
Ólafur Erlingsson, formaður FRV.
Aðgangseyrir er enginn
og ráðstefnan öllum opin.
íslenskt skátastarf 80 ára
NÚ I ár fagnar íslenska skáta-
hreyfingin því að 80 ár eru liðin
síðan skátastarf hófst á íslandi.
Skátahreyfingin var stofnuð 1907
af Robert Baden-Powell. I dag er
skátahreyfingin stærsta einstaka
æskulýðshreyfingin I heiminum,
starfandi í yfir 100 löndum og um
26 milljónir drengja og stúlkna
taka þátt í starfinu.
Skátar á íslandi eru um 11.000
og starfa í um 40 skátafélögum víðs-
vegar um landið.
Upp á ýmsu verður bryddað á af-
mælisárinu. Formlega hefst afmælis-
árið 22. febrúar nk. en sá dagur hef-
ur ávallt verið hátíðardagur skáta um
allan heim þar sem hann er fæðingar-
dagur stofnanda hreyfingarinnar,
Baden-Powells, og konu hans, Oliviu.
Flest skátafélögin á landinu munu
verða með einhveija hátíðardagskrá
í sínni heimabyggð. En síðan munu
öll félögin koma saman og hvert á
sínum stað kl. 18.30 og kveikja bál-
köst, syngja og hefja afmælisárið
formlega með því að skjóta upp 80
flugeldum.
Gömlum skátum og öðrum velunn-
urum hreyfíngarinnar er bent á að
spyijast um það hjá sínu heimafélagi
hvar dagskrá félagsins fari fram og
taka þátt í henni sem og öðrum.
í sumar verður síðan afmælis-skát-
amót á Úlfljótsvatni á vegum Skáta-
sambands Reykjavíkur. Út verður
gefið mjög veglegt afmælisblað
Skátablaðsins í sumar og að lokum
mun verða haldið sérstaklega upp á
sjálfan afmælisdaginn 2. nóvember
nl.
(F réttatilky nning)
ILMANDI
ÁISMÍN
EKKI AÐEINS HEITT, HELDUR
LÍKA NÝBAKAÐ
HATTING brauðið er fryst áður en það er fullbakað .
Þú setur frosið brauðið í bökunarpokanum í ofninn og lýkur bakstrinum
á fimmtán mínútum. Afraksturinn er nýbakað, mjúkt
og ilmandi hvítlauksbrauð.