Morgunblaðið - 21.02.1992, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. FÉBRÚAR 1992
Halldór Jónsson
frá Ey — Minning
Fæddur 16. júní 1896
Dáinn 12. febrúar 1992
I dag verður til moldar borinn afí
okkar Halldór Jónsson, frá Ey í
Austur-Landeyjum, og með þessum
fátæklegu orðum viljum við systkin-
in minnast hans.
Hann hafði lifað í hartnær heila
öld og því mátti búast við að enda-
lokin væru nálæg, en samt er alltaf
erfitt að sætta sig við að sjá á bak
ástvini. Afi reyndist okkur systkin-
unum ætíð ákaflega vel, jafnt í blíðu
sem stríðu, og í hugum okkar mun-
um vi^ ávallt geyma mynd hans
með þakklæti og virðingu. Ekki er
ástæða til að riíja hér upp í smáatr-
iðum einstök atvik enda af svo
mörgu að taka, en það er bjart yfir
minningunni og hana munum við
alltaf geyma í hjörtum okkar. Um
leið og við kveðjum afa hinstu
kveðju þökkum við forsjóninni fyrir
að hafa átt þess kost að verða hon-
um samferða hluta af lífsleiðinni
og fá að njóta leiðsagnar hans og
velvildar.
Halli, Guðrún, Þórunn og
Smári.
Látinn er 95 ára gamall móður-
bróðir minn, Halldór Jónsson, bif-
reiðastjóri frá Ey í Vestur-Landeyj-
um. Hann var bráðkvaddur á hjúkr-
unarheimilinu Grund í Reykjavík
16. febrúar 1992.
Halldór fæddist að Sleif í Vestur-
Landeyjum hinn 16. júní 1896 og
ólst þar upp í foreldrahúsum. Eins
og þá tíðkaðist stundaði hann öll
almenn sveitastörf á unglingsárun-
um. Kornungur byrjaði hann sjó-
róðra frá Landeyjasandi með afa
sínum, Jóni Nikulássyni, formanni
og bónda á Álfhólum. Fjórtán ára
fór hann til sjóróðra frá Grindavík
og einnig reri hann nokkrar vertíð-
ir frá Vestmannaeyjum.
Árið 1921 var ráðin ung kaupa-
kona að Hemlu í V-Landeyjum,
vakti hún athygli fyrir glæsileika,
há og tíguleg, ljós yfirlitum með
skærblá augu. Gulllitað hárið féll í
mittisstað. Þetta var Guðríður Jóns-
dóttir, stúlka frá Eyrarbakka, köll-
uð stúlkan með gullflétturnar. Hall-
dór frá Sleif, síðar venjulega kennd-
ur við Ey í sömu sveit, hafði næmt
fegurðarskyn og var framtakssam-
ari en aðrir jafnaldrar í sveitinni,
og hann náði fundum stúlkunnar
með gullflétturnar. Þau giftu sig
1. júní 1924 og hófu búskap á
Kanastöðum í Austur-Landeyjum.
Á Kanastöðum fæddust þijú
fyrstu börnin: Jón Guðmundur, f.
31. júlí 1925, meistari í bifreiða-
smíði, kvæntur Margréti Þorsteins-
dóttur, og eiga þau þrjú börn og
átta barnabörn. Næstur kom Guð-
mundur, f. 24. desember 1926,
hann var bifreiðastjóri í Reykjavík,
kvæntur Halldóru Valdemarsdóttur
ljósmóður, ættaðri frá Raufarhöfn
og eru börn þeirra sex en barna-
börn fímmtán og barnabarnabörn
tvö. Guðmundur og Halldóra eru
bæði dáin. Þriðja barnið, Þórunn
Jóna, fæddist einnig á Kanastöðum,
26. mars 1928. Hún var fyrst gift
Guðgeiri Þórarinssyni klæðskera og
eignuðust þau tvö börn, en Þórunn
og Guðgeir skildu. Seinni maður
Þórunnar var Antony Lopez, þeirra
börn eru þijú. Barnabörn Þórunnar
eru fjögur. Hún lést í bílslysi í
Bandaríkjunum 12. desember 1967.
Árið 1929 keypti Halldór sér bif-
reið og flutti að Hellu á Rangárvöll-
um og tók að sér flutninga fyrir
Þorstein Björnsson kaupmann.
Bjuggu Halldór og Guðríður á Hellu
árið 1929-30 og þar fæddist þeim
fjórða barnið, Elsa, f. 27. október
1929, og mun hún vera fyrsta barn-
ið sem fætt er á Hellu. Hún giftist
Olgeiri Sigurðssyni, bílstjóra í
Minning:
Hrafnhildur Þorbergs-
dóttír frá Þingeyri
Fædd 10. ágúst 1923
Dáin 14. febrúar 1992
í dag fer fram útför elskulegrar
móðursystur minnar er lést á
Landspítalanum 14. þ.m., eftir
stutta en erfiða sjúkdómslegu.
Hrafnhildur Þorbergsdóttir
fæddist 10. ágúst 1923 á Þingeyri
við Dýrafjörð og var yngst 9 barna,
hjónanna Jónínu Benjamínsdóttur
og Þorbergs Steinssonar skipstjóra
þar. Er nú bara einn bróðir eftir,
Leifur, búsettur á Þingeyri.
Hrafnhildur fluttist ung til
Reykjavíkur og bjó þar alla tíð síð-
an.
Ung kynntist hún Garðari Karls-
syni, Lúðvíkssonar kaupmanns, og
gengu þau í hjónaband 17. júlí
1948.
Garðar lést fyrir rúmum tveim
árum, svo ekki var langt á miili
þeirra hjóna. Sonur þeirra er Iiörð-
ur Þorbergur Garðarsson, bygging-
arverkfræðingur hjá Húsnæðis-
stofnun ríkisins.
Hörður sér nú á eftir umhyggju-
samri móður, sem vakti yfir velferð
hans, svona fljótt eftir andlát föður
síns, Garðars. Hrafnhildur og Garð-
ar bjuggu Herði, sólargeislanum í
lífi beggja, yndislegt heimili, lengst
af á Kleppsvegi 48. Þau voru sam-
hent í sinni einstöku gestrisni og
var mjög gott þangað að koma.
Margs er að minnast á langri
ævi, en ætla ég ekki að fara að
telja það upp hér, enda ekki í anda
frænku minnar, en þó er mér eitt
efst í huga — sú yndislega vel
heppnaða ferð sl. sumar í Dýra-
fjörðinn.
Vorum við þar saman komnir,
niðjar afa og ömmu. Dýrafjörðurinn
skartaði sínu fegursta. Þar sátu í
heiðurssætunum systkinin Hrafn-
hildur og Leifur, hún þá helsjúk en
hörð af sér og naut hún hverrar
mínútu á heimaslóðum um leið og
hún naut þess að vera í Þorbergs-
húsi hjá bróður sínum og mágkonu.
Minning:
Sigurbjörg Bjöms-
dóttir frá Hryggjum
Fædd 3. desember 1902
Dáin 11. febrúar 1992
Um leið og ég kveð hana ömmu
mína Sigurbjörgu, langar mig til
að minnast hennar með nokkrum
orðum.
Þannig var að í kjölfar veikinda
móður minnar fluttum ég og bróðir
minn, Sigurbjörn, að Álafossi þar
sem amma bjó og starfaði í ein 30
ár. Amma lét ekki á sér standa
frekar en fyrri daginn og bauð okk-
ur til sín og bjuggum við hjá henni
í litlu húsi sem Brekka hét. Það
verður að segjast að þau tvö ár sem
við bjuggum hjá henni eru ógleym-
anlegur tími í lífi okkar bræðranna.
Hún var alltaf svo góð við okkur
og vildi allt fyrir okkur gera en þó
var hún líka ströng þegar á þurfti
að halda. Það má kannski segja að
hún hafi líka lagt okkur bræðrum
lífsreglurnar hvað vinnusemi varðar
því hún útvegaði okkur alltaf sum-
arvinnu óumbeðin og fannst sjálf-
sagt að við værum í fullri vinnu á
sumrin og má segja að vinnusemi
hafi loðað við okkur bræðurna síð-
an.
Amma var líka mjög félagslynd
kona, ferðaðist mikið og lét sig aldr-
ei vanta á spilakvöld og annað slíkt.
Sömuleiðis var hún mjög gestrisin
og var fólk ávallt velkomið á heim-
ili hennar.
Ég kveð fænku mína með virð-
ingu og söknuði um leið og ég bið
góðan Guð að styrkja Hörð á þess-
ari erfiðu stundu.
Far þú í friði
friður Guðs þig blessi
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Tobbý.
Fleiri minningargreinar um
Hrafnhildi Þorbergsdóttur
bíða birtingar og munu birtast
í biaðinu næstu daga.
En hún amma hefur nú lokið lífs-
hlaupi sinu og er ég henni ævinlega
þakklátur fyrir þær samverustundir
sem ég átti með henni.
Friðrik Karlsson.
Reykjavík, og eignuðust þau fjögur
börn, átta barnabörn og tvö fóstur-
börn. Þau skildu.
Til Reykjavíkur fluttu þau Guð-
ríður og Halldór 1930 þegar hann
gerðist meðeigandi að Bifreiðastöð
Reykjavíkur (BSR) þar sem hann
starfaði og keyrði lengst af frá
Reykjavík að Múlakoti og síðar til
Víkur í Mýrdal. Spinna var BSR
skipt upp og í Halldórs hlut kom
sérleyfið Reykjavík — Vífilsstaðir,
sem hann rak um 15 ára skeið, eða
þangað til hann hætti akstri.
í Reykjavík fæddist þeim hjónum
yngsta barnið, Ingibjörg Þórunn,
f. 26. janúar 1936. Giftist hún
Guðbjarti Torfa Guðbjartssyni flug-
vélavirkja. Þau eignuðust fjóra syni
en misstu tvo þeira í frumbernsku.
Barnabörnin eru fjögur. Torfi lést
langt um aldur fram 2. október
1977. Ingibjörg Þórunn er nú gift
Sváfni Sveinbjarnarsyni, prófasti á
Breiðabólstað í Fljótshlíð, með því
stækkaði fjölskyldan myndarlega
með átta stjúpbörnum og ellefu
ömmuþörnum.
Foreldrar Halldói-s voru Jón Gísl-
ason, bóndi og oddviti í Ey í Vestur-
Landeyjum, fæddur 5. október
1871, látinn 27. apríl 1956, og
Þórunn Jónsdóttir Ijósmóðir, fædd
27. júlí 1876, látin 2. júlí 1964. Þau
byijuðu búskap í Sleif í Landeyjum
vorið 1895 en fluttu síðar að Ey
og bjuggu þar þangað til Jón lést.
Börn Þórunnar og Jóns voru alls
tólf: 1. Halldór, sem hér er minnst.
2. Siguijón, trésmíðameistari í
Reykjavík, f. 1897, dáinn. 3. Guð-
rún, húsmóðir í Reykjavík, f. 1898,
dáin. 4. Guðbjörg, húsmóðir, lengst
af kennd við Uxahrygg, f. 1901,
dáin. 5. Ingibjörg, f. 1907, var lengi
við hótelrekstur. 6. Ólafur, bóndi í
Eylandi, stundaði lengi bifreiða-
akstur, f. 1909. 7. Ágúst, fyrrv.
hreppstjóri í Sigluvík, f. 1910. 8.
Gísli, pípulagningameistari, f. 1912.
9. Jónína, ljósmóðir á Keldum, f.
1913. 10. Ragnar, f. 1914, lést 14
ára. 11. Karl, bifreiðastjóri í
Reykjavík, f. 1915, dáinn. 12 Jó-
hann, f. 1917, lést vikugamall.
Þegar Halldór hætti öllum akstri
starfaði hann í mörg ár í vélsmiðj-
unni Héðni en síðar á Hótel Sögu
sem birgðavörður. Vann hann þau
störf sem önnur af stakri trú-
mennsku.
Þegar.ég lít til baka minnist'ég
þess að margir austur um sveitir
héldu mikið upp á Halldór vegna
þess hve hjálpsamur hann var og
viljugur að útvega mönnum ýmsa
hluti sem þá vanhagaði um og áttu
erfitt með að útvega sér með öðrum
hætti því þá voru samgöngur stijál-
ar og fæstir áttu bíl. Einlæg vin-
átta var á milli foreldra mmna og
þeirra hjóna, Halldórs og Guðríðar.
Ég sem rita þessi kveðjuorð
minnist með ánægju þeirra stunda
í æsku þegar þau hjónin, Guðríður
og Halldór, komu í heimsókn að
Uxahrygg en það var oftast á
hveiju hausti. Sama gegndi um
heimsóknir okkar til þeirra í
Reykjavík, við áttum þar margar
ánægjustundir.
Skemmtilegt var þegar Halldór
tók bræður sína með sér að Uxa-
hi-ygg og ekki skemmdi það heim-
sóknina þegar lagið var tekið en
þeir Eyjabræður höfðu allir góða
söngrödd og voru mjög söngelskir.
Faðir þeirra var forsöngvari í kirkju
sinní um langt árabil.
Þegar ég kveð frænda viljum við
ættingjar og vinir þakka þá góðu
umönnun sem honum var veitt á
Litlu-Grund og seinast á Grund þar
sem fórnfýsi og hjálpsemi kom fram
í hvívetna.
Ég kveð frænda minn með virð-
ingu og þökk.
Guð blessi minningu góðra hjóna.
Aðstandendum öllum sendi ég og
fjölskylda mín innilegar samúðar-
kveðjur.
Jón Þórarinn Sveinsson.
t
ÁGÚST JÓNSSON
fyrrum bifreiðastjóri hjá ÁTVR,
lést á Hrafnistu sunnudaginn 9. febrúar.
Jarðarförin hefur farið fram.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Hrafnistu fyrir góða umönnun.
Aðstandendur.
t
Innilegar þakkir fyrir vinarhug og samúð við fráfall
AÐALSTEINS HALLGRÍMSSONAR,
Hraunbæ 42,
Reykjavík.
Sigurbjörg Ragnarsdóttir,
Ragnar S. Aðalsteinsson,
Eggert Birgir Aðalsteinsson,
Svanlaug Aðalsteinsdóttir,
Friðjón Hallgrimsson,
og fjölskyldur.
Kristfn Aðalsteinsdóttir,
Jónina Magnúsdóttir,
Kristín Aðalsteinsdóttir,
Helga Hallgrimsdóttir,
Pétur Hallgrimsson
t
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför eigin-
manns míns, föður, tengdaföður og afa,
MAGNÚSAR HELGA BJARNASONAR,
Vesturgötu 69,
Reykjavík.
Anna Hjartardóttir,
Bjarni Magnússon,
Guðlaug Magnúsdóttir, Frank P. Hall,
Björg Magnúsdóttir, Örn E. Henningsson,
Magnþóra Magnúsdóttir, Árni Ó. Thorlacius
ög barnabörn.
t
Innilegar þakkir til allra, sem veittu okkur samúð og ómetanlegan
hlýhug við andlát og útför elskulegrar eiginkonu, móður, tengda-
móður og ömmu okkar,
KRISTBJARGAR Ó. BJÖRNSDÓTTUR,
Stafholti 12,
Akureyri.
Sérstakar þakkir eru færðar til lyfjadeildar og gjörgæsludeildar
Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri og til lyfjadeildar A-7 á Borg-
arspítalanum í Reykjavík fyrir alla þeirra góðu umönnun.
Aðalsteinn Hjaltason,
Anna Aðalsteinsdóttir, Björn Aðalsteinsson,
Freyr Aðalsteinsson, Lilja Aðalsteinsdóttir,
tengdabörn og barnabörn.