Morgunblaðið - 21.02.1992, Síða 39

Morgunblaðið - 21.02.1992, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1992 39 I I I ( I I I I I j Í I BADMINTON / HM íslenska karlalið- ið vann sinn ríðil - en tapaði svo tyrir Samveldisríkjunum í gær HANDKNATTLEIKUR Jón Kristjánsson með Val í bikar- úrslitaleiknum! ÍSLENSKA karlalandsliðið í badminton vann sinn riðil í heimsmeistaramóti landsliða. ísland vann Mexíkó 5:0 í síð- asta leik í riðlakeppninni á mið- vikudagskvöld. Liðið tapaði svo fyrir liði Samveldis sjálfstæðra ríkja, fyrrum Sovétríkja, 0:5, í fyrsta leik undanúrslitariðilsins í gærkvöldi. roddi Kristjánsson, Þorsteinn Páll Hængsson og Árni Þór Hallgrímsson unnu allir í einliðaleik gegn Mexíkó. Og sömuleiðis Broddi og Þorsteinn Páll og Árni Þór og Óli Zimsen í tvíliðaleik. íslenska liðið vann riðilinn, var jafnt franska liðinu að stigum en með betra vinningshlutfall. ísland leikur nú í undanúrslitum, sem fyrr segir og mætir þá mun sterkari þjóðum en áður — þjóðum sem sátu hjá í fyrstu umferð. Broddi tapaði fyrir ANdrej Antropov 1:15, 1:15. Jón Zimsen tapaði fyrir Mik- haíl Korshínk 2:15, 2:15 og Óli Zimsen tapaði fyrir Igor Dmítríev 3:15, 2:15. í tvíliðaleik töpuðu svo Broddi og Ámi Þór 14:18 og 3:15 fyrir Antropov og Níkolaí Znev og Þorsteinn Páll og Óli Zimsen töpuðu fyrir Míkhaíl Korshink og Igor Dmítríev 1:15, 14:18. í dag, föstudag, mæta íslending- ar Svíum og sigufliði b-riðils, sem er líklega írland. íslenska kvennaliðið tapaði síð- asta leik sínum í riðlinum gegn Ungverjum, 1:4, og er úr leik. Þór- dís Edwald og Ása Pálsdóttir unnu í tvíliðaleik og var það eini sigurleik- urinn gegn Ungveijum. Jón Kristjánsson JÓN Kristjánsson, sem leikið hefur með þýska liðinu Suhl í vetur, leikur með Val í bikarúr- slitaleiknum gegn FH á mora- un, laugardag. Hann er laus allra mála frá þýska félaginu, sem þegar er fallið í 2. deild. Jón kemur til landsins í dag. Jón gekk til liðs við Suhl sl. haust, en áður var hann í hlutverki leikstjórnanda hjá Val. Engum blöð- um er um það að fletta, að Jón er mikill liðsstyrkur fyrir Val, sem hefur verið með fjóra til fimm leik- menn á sjúkralista undanfarið. Skeyti barst frá þýska félaginu í gær til handknattleiksdeildar Vals ress efnis að Jón væri laus allra mála og gætið því leikið með Val. Þær reglur eru.í gildi hjá HSÍ að Ieikmenn sem koma heim úr at- vinnumennsku séu löglegir saifCT' dægurs, þ.e.a.s. ef viðkomandi félag gefur grænt Ijós. Suhl lék gegn Grosswalstadt á miðvikudagskvöld og tapaði með 10 marka mun og )á var liðið endanlega fallið þó svo að fjórar umferðir séu enn eftir. „Endurkoma Jóns er geysilegur styrkur fyrir okkur. Hann hleypir lífi í ungu strákana. Hann er leik- maður sem getur tekið af skarið," sagði Jóhann Birgisson, stjórnar- maður handknattleiksdeildar Vals í gær. KÖRFUKNATTLEIKUR / ISLANDSMOTIÐ ÚRSLIT Enn sigruðu Njarð- vfldngar í Keflavík NJARÐVÍKINGAR geröu sér lítið fyrir og sigruðu nágranna sína Keflvíkinga í Keflavík öðru sinni á fimm dögum, nú með 3ja stiga mun, 84:81, eftir æsi- spennandi lokamínútur. Þetta var mikilvægur sigur fyrir Njarðvíkinga með tilliti til úrsli- takeppninnar því þar fær það lið oddaleikinn sem fæstum stigum tapar. Leikurinn var hnífjafn frá upphafi til enda. Njarðvíkingar at- kvæðameiri í upphafi en síðan kom góður sprettur ÍBK Bjöm sem náðu frumkvæð- Blöndal jnu en j hálfleik var skrifarfrá munurinn aðeins 3 Keflavík -stig. Njarðvíkingar náðu 7 stiga forskoti, 74:67, þegar um 4 m voru til leiksloka. ÍBK tókst með mikilli baráttu að komast yfir, 80:79, þegar.innan við mínútu var eftir. Njarðvíkingar komust yfir 80:81, en Keflvíkingar jöfnuðu 81:81 þegar 28 sekúndur voru til leiksloka. Robinson gerði 2 stig og fékk víta- skot að auki, sem hann nýtti. Þá voru eftir 5 sekúndur sem Keflvík- ingum tókst ekki að nýta. „Þetta voru mikilvæg stig fyrir okkur varðandi úrslitakeppnina. Þessi lið eru ákaflega jöfn og lítill munur á þeim en við náðum að skora fleiri stig núna,“ sagði Friðrik Rún- arsson þjálfari Njarðvíkinga. Jón Kr. var besti maður IBK ásamt Jonathan Bow. Albert tók stöðu Sig- urður Ingimundarsonar og stóð sig vel og Hjörtur gerði laglega hluti. Rondey Robinson var bestur í liði Njaðrvíkur ásamt bræðrunum Sturlu og Teiti og ísaki Tómassyni. Stórsigur Tindastóls Tindastóll vann Val örugglega á Sauðárkróki, 103:78. Aður en leikurinn hófst fékk Valur Ingimund- arson blóm og ágraf- inn stein frá körfu- knattleiksdeild Tindastóls, því hann varð þrítugur í gær. Leikmenn og áhorfendur hylltu hann innilega í upphafi leiks, en það virt- ist ekki fara vel í heimaliðið því Valsmenn byrjuðu mun betur. í seinni hálfleik komu heimamenn grimmir til leiks og tóku nánast öll völd. Vörnin góð sem fyrr og Harald- ur Leifsson átti stórleik, gerði sjö þriggja stiga körfur, þar af fímm í seinni hálfleik. Haraldur var bestur í liði Tinda- stóls, Ivan Jónas hélt Magnúsi Matt- híassyni niðri og Valur og Pétur voru ágætir. Þá var Björn Sigtryggsson mjög sterkur í vörn. Hjá Val var Booker bestur og Símon góður, sér- staklega í seinni hálfleik. Frá Birn: Björnssyni á Sauöárkróki Dýrmæt stig Snæfells Með 122:125 sigri á Haukum í tvíframlengdum leik í Hafn- arfirði tókst Snæfellingum að nánast að tryggja áfram- haldandi veru sína í deildinni. Henning Henn- ingsson náði forystu fyrir Hauka úr tveimur vítaskotum 8 sekúndum fyrir leikslok en Tim Harvey jafnaði á lokasekúndunni. Harvey tróð með tilþrifum undir lok fyrri framlengingar og kom Snæ- felli f 110:112. Fékk vítaskot að auki en hitti ekki og ívar nældi sér í þijú vítaskot og hitti úr fyrsta og þriðja. Snæfellingum tókst með góðri vörn, ákveðnum leik og örlítilli heppni að ná tökum á seinni fram- lengingunni og unnu verðskuldað. Ivar Ásgrímsson, Jón Örn Guð- mundsson, Henning Henningsson ásamt John Rhodes voru einna best- ir hjá Haukum en sá síðastnefndi átti í mesta basli með Harvey, sem komst mjög vel frá þessum leik. Bárður Eyþórsson var einnig góður. Stelán Stefánsson skrifar Botnbaráttan í Borgarnesi TheódórKr. Þórðarson skrifarfrá Borgamesi Þetta var sigur liðsheildarinnar og áhorfenda sem voru okkar sjötti leikmaður, sagði Birgir Mika- elsson þjálfari og leikmaður Skalla- gríms eftir nauman sigur gegn Þór. Þórsarar höfðu yf- irhöndina lengst af og slógu Skalla- grím út af laginu í fyrri hálfleik. Heimamenn gerðu þá aðeins 22 stig gegn 35 stigum Akureyringa. í seinni hálfleik komu Skallgrímsmenn rnjög ákveðnir til leiks og á lokamínútun- um komust þeir yfir og náðu að tryggja sér mikilvægan sigur. Þjálfari Þórs, Brad Casey, var óánægður með frammistöðu dómar- anna, sérstaklega á lokamínútunum. „Þeir dæmdu greinilega ítrekað Skallagrimi í vil og það réði miklu um úrslitin. Við vorum raunar mjög slakir í síðari hálfleik en þáttur dóm- aranna vóg þungt,“ sagði hann. Stórleikur Hurst dugði ekki Glæsilegur leikur Joe Hurst fyrir Grindavík dugði ekki gegn KR. Þetta var annar leikur liðanna á fimm dögum og í annað sinn vann KR. Bikar- leikinn vann KR 78:73 en í gær léku liðin í deildinni og nú vann KR 77:74. Lokamínúturnar voru æsispenn- andi. Liðin skiptust á að leiða og þegar tvær mínútur voru eftir var Grindavík 74:71 yfir. Margar sóknir fóru forgörðum hjá gestunum og Skúli Unnar Sveinsson skrifar Einar Falur Joe Hurst átti stórleik í liði Grindvíkinga. Hér smeygir hann sér framhjá Hermanni Haukssyni og Guðni Ólafur Guðnason fylgist ráðvilltur með. hinum megin misnotuðu KR-ingar mörg bónusskot. Það var ekki fyrr en tvær sekúndur voru eftir að Guðni skoraði úr tveimur bónusskotum og tryggði sigurinn. Joe Hurst átti stórgóðan leik, skor- aði mikið, tók 12 fráköst og varði nokkur skot meistaralega. Guðmund- ur og Pálmar áttu báðir ágæta spretti. Hjá KR voru Guðni og Baer dijúg- ir, sérstaklega í síðari hálfleik. Áxel var að vanda duglegur og Lárus átti góða kafla. A-RIÐILL Fj. leikja u T Stig Stig UMFN 22 19 3 2091: 1780 38 KR 22 15 7 1992: 1816 30 UMFT 22 14 8 2040: 1957 28 SNÆFELL 22 5 17 1761: 2075 10 SKALLAGRÍM- UR 22 4 18 1779: 2156 8 B-RIÐILL Fj.leikja U T Stig Stig ÍBK 22 19 3 2130: 1835 38 VALUR 22 13 9 2046: 1956 26 UMFG 22 9 13 1916: 1817 18 HAUKAR 21 9 12 1957: 2042 18 ÞÓR 21 2 19 1757:2035 4 Idag Handknattleikur 1. deild karla: Vestm.: ÍBV-Grótta...........kl. 20 Víkin: Víkingur-Haukar....kl. 20 1. deild kvenna: Höllin: Ármann - ÍBV......kl. 20 Valsheimili: Valur-ÍBK..kl. 19.15 2. deild karla: Húsavík: Völsungur - ÍH..kl. 20 Körfuknattleikur 1. deild karla: Akranes: ÍA-KFR..............kl. 20 Digranes: UBK-Víkveiji...kl. 20 HANDBOLTI Sýndi hnefann Guðjón Guðmundsson, aðstoðar- maður Guðmundar Guðmundssonar þjálfara Víkings, liafði samband við blaðið og vildi koma á framfæri hvað hann sagði þegar hann sýndi þjálfara Störnunnar hnefa í leik liðanna á miðvikudaginn. „Ég sagði við Eyjólf [Bragason að ef þeir vildu slást þá gætu þeir fengið slagsmál. Um leið sýndi ég honum hnefann. Mér fannst Stjörnu- menn mjög grófir og dómararnir höfðu engin tök á leiknum. Auðvitað á maður ekki að gera svona, allra síst þegar maður hefur verið þetta lengi í handboltanum,“ sagði Guðjón. v " Tindastóll - Valur 103:78 íþróttahúsið á Sauðárkróki, Gangiir leiksins: 2:5, 4:13, 12:24, 20:24, 26:28, 38:30, 46:33, 52:40, 60:49, 70:57, 86:67, 96:71, 103:78. Stig Tindastóls: Haraldur Leifsson 35, Valur Ingimundarson 22, Ivan Jonas 22, Pétur Guðmundsson 14, Einar Einarsson 6, Björn Sigtryggsson 4. Stig Vals: Franc Booker 25, Símon Ólafs- son 16, Magnús Matthiasson 10, Tómas Holton 7, Svali Björgvinsson 7, Ari Gunn- arsson 5, Ragnar Jónsson 4, Gunnar Þor- steinsson 2, Lárus Pálsson 2. Dómarar: Kristinn Óskarsson og Leifur Garðarsson. Dæmdu ágætlega. Áhorfendur: Um 550. KR - Grindavík 77:74 íþróttahúsið Seltjarnamesi. Gangur leiksins: 0:2, 3:6, 19:17, 31:24, 31:32, 40:38, 49:40, 53:43, 61:52, 66:66, 71:74, 77:75. Stig KR: Guðni Ó. Guðnason 19, Jon Baer 14, Lárus Árnason 13, Axel Nikulásson 10, Hermann Hauksson 9, Óskar Kristjánsson 5, Páll Kolbeinsson 5, Sigurður Jónsson 2. Stig UMFG: Joe Hurst 31, Guðmundur Bragason 16, Pálmar Sigurðsson 11, Marel Guðlaugsson 4, Rúnar Ámason 4, Pétur Guðmundsson 4, Ingi K. Ingason 2, Hjálm- ar Hallgrímsson 2. Áhorfendur: Um 150. Dómarar: Kristinn Albertsson og Kristján Möller. Ágætir en sá siðamefndi dálítið smámunasamur á köflum. ÍBK-UMFN 81:84 íþróttahúsið í Keflavík. Gangur leiksins: 0:5, 2:7, 11:7, 11:15, 20:22, 37:30,42:39, 48:45, 56:56, 61:58, 63:71^ 72:76, 78:79, 80:79, 81:81,81:84. Stig IBK: Jón Kr. Gíslason 21, Jonathan Bow 16, Albert Óskarsson 14, Kristinn Friðriksson 9, Hjörtur Harðarson 8, Nökkvi M. Jónsson 7, Guðjón Skúlason 6. Stig UMFN: Rondey Robinson 21, Sturla Örlygsson 21, Teitur Örlygsson 16, ísak Tómasson 13, Friðrik Ragnarsson 8, Krist- inn Einarsson 8. Áhorfendur: Um 900. Dómarar: Jón Otti Ólafsson og Helgi Bragason. Skallagr. - Þór 73:71 íþróttamiðstöðin Borgamesi. Gangur leiksins: 2:0, 8:14, 16:20, 18:30, 22:35, 28:37, 36:47, 50:51, 69:69, 73:71. Stig Skallagríms: Maxim Kropatsjev 17, Hafsteinn Þórisson 17, Birgir MikaelsáSÍM* 14, Þórður Helgason 10, Skúli Skúlason 7, Elvar Þórólfsson 3, Þórður Jónsson 3, Bjarki Þorsteinsson 2. Stig Þórs: Guðmundur Bjömsson 21, Joe Harge 18, Konráð óskarsson 12, Björn Sveinsson 10, Jóhann Sigurðsson 6, Högni Friðriksson 4. Áhorfendur: 428. Dómarar: Brynjar Þór Þorsteinsson og Einar Þór Skarphéðinsson. Sæmilegir Haukar-Snæf ell 122:125 íþróttahúsið Strandgötu, Gangur leiksins: 2:0, 15:12, 15:22, 29:34, 42:44, 56:58, 64:60, 69:69, 83:83, 98:91, 98:98,100:100,107:104,112:112,117:121, 122:125. Stig Hauka: John Rhodes 31, ívar Ásgríms- son 26, Henning Henningsson 23, Jón Öm Guðmundsson 11, Jón Amar Ingvarsson 10, Tryggvi Jónsson 8, Pétur Ingvarsson 7, Reynir Kristjánsson 4, Bragi Magnússon 2. Stig Snæfells: Bárður Eyþórsson 35, Tim Harvey 82, Sæþór Þorbergsson 16, Rúnar Guðjónsson 14, Jón Bjami Jónatansson 10, Hreinn Þorkelsson 9, Hjörleifur Sigurþórs- son 6, Alexander Helgason 4. Dómarar: Bergur Steingrímsson og Víg- lundurSverrisson höfðu sáralítil tök á leikn- um. Áhorfendur: 70.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.