Morgunblaðið - 03.03.1992, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. MARZ 1992
Jr
Happó og happa-
þrenna í sjálfsala
Vandræði vegna mismunandi peningaseðla
HAPPDRÆTTI Háskóla íslands hefur í undirbúningi að selja happó-
miða í sjálfsölum innan þriggja mánaða og þá verður unnt að kaupa
miða i skyndihappdrættinu, happaþrennunni, í sjálfsölum innan eins
mánaðar. Ragnar Ingimarsson forstjóri happdrættisins sagði að nokk-
ur vandkvæði hefðu komið upp vegna lélegrar prentunar íslenskra
peningaseðla en happdrættið teidi sig hafa fundið lausn á þeim málum.
„Það kom í ljós að íslensku seðl-
arnir eru svo illa prentaðir að það
er engu lagi líkt en við teljum okk-
ur vera búna að finna í hvetju það
liggur þannig að það komi ekki að
sök. Ég veit að olíufélögin hafa
einnig átt í vandræðum vegna þessa
í sjálfsölum sínum," sagði Ragnar.
Sjálfsalarnir eiga að taka bæði
við seðlum og mynt. Tvær gerðir
verða settar upp, stærri sjálfsalar
af bandarískri gerð fyrir happó og
minni af austurrískri gerð fyrir
happaþrennu.
Stefán Stefánsson aðalféhirðir
Þrír ráð-
herrará
landinu
SJÖ ráðherrar af tíu verða
í útlöndum um miðja vikuna
í tengslum við þing Norður-
landaráðs í Helsinki. Eftir
verða Halldór Blöndal land-
búnaðar og samgönguráð-
herra, sem mun jafnframt
fara með öll ráðuneyti Sjálf-
stæðisflokksins þar á meðal
forsætisráðuneytið, Jón
Baldvin Hannibalsson utan-
ríkisráðherra og Jóhanna
Sigurðardóttir félagsmála-
ráðherra.
Davíð Oddsson forsætisráð-
herra, Eiður Guðnason um-
hverfísráðherra, Ólafur G.
Einarsson menntamálaráð-
herra og Sighvatur Björgvins-
son heilbrigðisráðherra fóru á
þing Norðurlandaráðs sl. laug-
ardag. í dag fara Friðrik Sop-
husson fjármálaráðherra, Jón
Sigurðsson viðskipta- og iðn-
aðarráðherra og Þorsteinn
Pálsson sjávarútvegs-, dóms-
og kirkjumálaráðherra á þing-
ið.
Reglulegur ríkisstjómar-
fundur fellur niður í dag af
þessum sökum. En von er á
einhveijum ráðherranna aftur
á fímmtudag og er gert ráð
fyrir ríkisstjómarfundi á
föstudag.
Seðlabankans sagði að annar blær
væri á fyrstu prentuninni frá 1980
af eitt hundrað króna seðlum en á
síðari tíma prentunum. Prentsmiðj-
an Bradbury & Wilkinson prentaði
fyrstu eitt hundrað, eitt þúsund og
fímm þúsund króna seðlana. Prent-
smiðjan De la me keypti síðan
Bradbury & Wilkinson og yfirtók
rekstur hennar. Ef til vill mætti
rekja þennan blæbrigðamun til þess
að De la rue notaði annars konar
pappír. Mjög nákvæmir skynjarar í
sjálfsölum virtust vera viðkvæmir
fyrir þessum blæbrigðamun. Ætla
mætti að þegar fyrsta prentunin
rynni sitt skeið yrðu þessi vand-
kvæði úr sögunni. Stefán kvaðst
hafa heyrt að hið sama ætti einnig
við um sjálfsala olíufélaganna.
Sprengidagur í dag
Morgunblaðið/Sverrir
íslendingar borðuðu ókjör af ijómabollum í gær, á bolladaginn. í dag er það svo sprengidagurinn og
má búast við því að flestir landsmenn borði saltkjöt og baunir í tilefni dagsins. Mikið var að gera í
matvörubúðum í gær og var þessi mynd tekin í Versluninni Nóatúni við Laugaveg þegar Biynhildur Ólafs-
dóttir var að afgreiða Harald Siguijónsson.
Bráðabirgðasamkomulag um sameiningu Borgarspítala og Landakots:
Kostnaður er áætlaður
435 milljónir króna í ár
Þegar hafinn undirbúningur að flutningi bráðaþjónustunnar
SAMEININGARNEFND Borgarspítala og Landakotsspítala hefur
gert með sér bráðabirgðasamkomulag um sameiningu þessara
stofnana. Gert er ráð fyrir að kostnaður við sameininguna í ár
nemi samtals 435 milljónum króna, þar af 200 milljónum króna í
almennan rekstrarkostnað og 110 milljónum króna til fram-
kvæmda. Af þessari upphæð munu um 165 milljónir koma úr 500
milljón króna varasjóði heilbrigðisráðherra.
Á blaðamannafundi í gær, þar andi húsnæði Borgarspitala verði
sem samkomulag þetta var kynnt
kom m.a. fram að áfram er unnið
að samkomulagi um ýmis álitamál
svo sem fjárskuldbindingar,
starfsmannaréttindi og eignar-
halds- og rekstrarform. Hinsvegar
er gert ráð fyrir að þegar verði
hafíst handa við vinnu til undir-
búnings flutningi á bráðaþjónustu
Landakotsspítala til Borgarspítala
og jafnvel Ríkisspítalanna.
Gert er ráð fyrir að í núverandi
húsnæði Landakots verði boðin
ýmis valþjónusta eins og t.d. bækl-
unarlækningar, auk öldrunar-
lækninga og hjúkrunar en í núver-
megináhersla á bráða- og slysa-
þjónustu auk almennrar þjónustu
sem hentugra þykir að reka í því
húsnæðr.
Heilbrigðis- og fjármálaráð-
herra munu beita sér fyrir því að
veitt verði fé af fjárlögum 1992
umfram fjárlagatölur spítalanna
tveggja að upphæð 435 milljónir
króna. Skiptist þessi upphæð
þannig að 50 milljónir fara í al-
mennan rekstur á vegum þeirra,
110 milljónir fara til framkvæmda,
75 milljónir í rekstur hjúkrunar-
deildar fyrir aldraða en þar verði
fjölgað um 50 rúm frá því sem
nú er og 200 milljónir króna fara
í almennan rekstrarkostnað vegna
bráðavaktaflutningsins af Landa-
koti enda er stefnt að því að þeim
flutningi verði lokið fyrri hluta
ársins. Þorkell Helgason aðstoðar-
maður heilbrigðisráðherra segir
að svo geti farið að hluti af bráða-
þjónustunni muni flytjast til Rík-
isspítalanna og fari svo muni þeir
fá hlut af þessum 200 milljónum
kr.
Eftir er að kynna St. Jósefs-
systrum þetta samkomulag en fyr-
ir liggur að af sameiningu þessara
tveggja spítala verður ekki nema
með samþykki þeirra.
Árni Sigfússon formaður stjóm-
ar Sjúkrastofnana Reykjavíkur-
borgar segir að stjómin hafí sam-
þykkt þetta samkomulag og hann
sé vongóður um að þetta skili til-
ætluðum árangri, það er uppbygg-
ingu á einu sjúkrahúsi úr þessum
tveimur stofnunum.
Höskuldur ÁMafsson formaður
stjómar Landakots segir að stjóm-
in sé mjög ánægð með þetta sam-
komulag og telji að með því sé
lagður grunnur að öflugra og skil-
virkara sjúkrahúsi sem geti boðið
fjölþreytta þjónustu.
Á blaðamannafundinum kom
fram að næstu skref í málinu eru
m.a. ítarleg úttekt á hagkvæmni
sameiningar en sameiningar-
nefndin telur sig hafa undir hönd-
um gögn sem sýni sparnað upp á
nokkur hundmð milljónir króna á
ári með sameiningu. Þá liggur
fyrir að með sameiningu verður
hægt að endurráða mun fleira af
starfsfólki Landakots en ella.
Fingralangir norskir laganem-
ar hnupluðu Grágás frá Orator
GRÁGÁS, tákn og merki Orators félags laganema allt frá ár-
inu 1956, ásamt gestabók, fundastjórahjálmi og fundahamri
félagsins, var hnupiað þegar laganemar gerðu sér glaðan dag
á árshátíð Orators á Hótel íslandi 16. febrúar sl. Þar voru að
verki nokkrir norskir laganemar sem hingað komu á norræna
laganemaviku á vegum Orators en þeir sendu skeyti eftir að
til Noregs var komið þar sem þeir tilkynntu að þeir hefðu
Grágás, sem er uppstoppuð grágæs, í sinni vörslu. Algéngt er
að evrópskir laganemar hnupli hlutum þegar þeir sækja laga-
nemasamkomur í öðrum löndum en formaður Orators segir
að með þessu hafi hins vegar verið farið út yfir öll grín- og
gamanmörk.
Gunnar Thoroddsen, formaður
Orators, segir að Grágás hafí að
venju verið stillt upp við hliðina
á ræðupúltinu á árshátíðinni sem
að Jaessu sinni var haldin á Hót-
el Islandi. „Á öllum fundum sem
Orator stendur fyrir er Grágás
stillt upp og er venja að ávarpa
hana með orðunum „Háæruverð-
uga grágás,“ áður en ræður eru
haldnar. Þetta hefur verið siður
í mörg ár og sýnir hve mikillar
virðingar hún nýtur meðal laga-
nema,“ segir Gunnar.
Hann segir að stuldur gæsar-
innar sé því mun alvarlegra mál
en þegar öðrum hlutum hafi ver-
ið hnuplað. „Það hefur áður gerst
að hlutir hafí horfíð þegar laga-
nemar annarra landa hafa sótt
okkur heim en þetta hvarf er
hins vegar óafsakanlegt. Þó að
þetta sé siður eða ósiður, eins
og ég kýs að kalla hann, meðal
laganema í sumum Evrópulönd-
um réttlætir það ekki hvarf
Grágásar," segir Gunnar.
Hann segir að stjóm Orators
hafí haft samband við norsku
laganemana sem að hnuplinu
stóðu, þeim hafí verið gerð grein
fyrir að íslenskum laganemum
fínnist þetta ekki fyndið og hann
segist telja fullvíst að Grágás
verði skilað innan tíðar.
Samkvæmt upplýsingum
Jónas Guðmundsson, formaður
Orators á árunum 1985-1986,
vottar Grágás virðingu sína.
Morgunblaðsins varðveita laga-
nemar í nágrannalöndum okkar
stolna muni í læstum hirslum
þaðan sem verður að hnupla
þeim aftur vilji eigendurnir end-
urheimta þá. Heimildir Morgun-
blaðsins herma jafnframt að til-
raunir til að ná Grágás hafi áður
verið gerðar en hennar hafí jafn-
an verið gætt sérstaklega vel
þegar erlenda gesti beri að garði.
Ráðist á konu
á sextugsaldri
við innheimtu
RÁÐIST var á konu á sextugs-
aldri á Langholtsvegi í gær-
kvöldi og stolið af henni tösku.
Konan var við innheimtustörf
fyrir tímarit þegar hún varð
fyrir árásinni og var hún með
talsverða fjármuni í töskunni.
Seint I gærkvöldi hafði lög-
reglan handtekið þrjá pilta
grunaða um ránið.
Konan tilkynnti lögreglunni um
rán'ð á ellefta tímanum í gær-
kvöldi. Sagði hún að þrír unglings-
piltar, á aldrinum 15-17 ára, hefðu
ráðist á sig og rifið af sér tösk-
una. Konan varð ekki fyrir neinum
meiðslum en mun hafa brugðið
mjög við árásina.
Skömmu síðar handtók lögregl-
an þijá pilta í húsi í Efstasundi
grunaða um verknaðinn. Piltarnir
voru fluttir til yfírheyrslu á lög-
reglustöðina en játningar þeirra
lágu ekki fyrir þegar blaðið fór í
prentun.