Morgunblaðið - 03.03.1992, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 03.03.1992, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. MARZ 1992 53 Aróður gegn bændastéttinni Frá Guðjóni Ólafssyni: Eg set hér á blað hugleiðingar mínar um hvernig linnulaus áróður á bændastéttina gegnum árin, varð til að upp úr sauð hjá nokkrum fund- armanna á fundi sem haldinn var í Miðgarði í Skagafirði, þar sem Jón Baldvin Hannibalsson kynnti GATT- samninginn. Virðist það hafa vakið menn til umhugsunar um hvað væri að gerast. Ég hef verið að hugsa um þetta frá öðru sjónarhorni. Óvissa er mikil hjá bændum, nýgerð- ur búvörusamningur er ósamþykktur af Alþingi og enginn virðist vita hvenær hann verður samþykktur. Búvörusamningnum fylgir 33% skerðing, síðan kemur GATT-samn- ingurinn sem enginn virðist vita fyr- ir víst hvernig niðurstaðan verður á, önnur en sú að honum fylgir líka skerðing. Það er því ekki undarlegt þó bændur séu uggandi um framtíð sína. Ég hef stundað búskap í 28 ár, og allan þann tíma hafa kratar og fleiri aðilar, rekið svo linnulausan áróður gegn bændastéttinni að mér hefur oft ofboðið. Við svona óvissu- ástand brýst út margra ára gremja í garð þeirra sem áróðurinn hafa stundað. Ég hef oft hugsað um til- ganginn þegar ég horfi á sjónvarpið á kvöldin og sé og heyri talað um hungur víða um heim, svo les ég í blöðunum að íslenskum bændum er líkt við glæpasamtök. í vikublaðinu Pressunni 9. janúar sl. las ég grein með yfirskriftinni „Mál er að ofbeld- inu linni“ þar kemur orðið landbún- aðarmafía að minnsta kosti tvisvar fram. Mafía, eru það ekki mestu glæpasamtök heims? Svona skrif hleypa einungis illu blóði í fólk og það er ansi hart að vera líkt við mafíu og ræningja vegna þess að maður velur sér það lífsstarf að framleiða landbúnaðarafurðir í svelt- andi heimi. Svona skítkast eins og kemur fram í þessari grein í Pressunni og víðar þjónar engum tilgangi, en ger- ir þá sem það skrifa aumkunar- verða. Fyrir nokkru síðan var ég á fundi á Hvammstanga, þar sem bændur sem við höfum kosið til að gegna trúnaðarstörfum fyrir okkar samtök og þeirra starfsmenn út- skýrðu Dunkel-tilboðið fyrir bænd- um. Skömmu síðar var ég á fundi í Miðgarði þar sem utanríkisráðherra, formaður Alþýðuflokksins þess flokks sem hefur rekið hvað harð- asta gagnrýni og áróður á bænda- stéttina, túlkar sama mál á allt ann- an veg en fulltrúar bændasamtak- anna gerðu. Þetta gerði mig fyrst hálf ráðvilltan, síðan vaknaði sú spurning, hveiju á maður að trúa? Auðvitað trúir maður þeim mönn- um sem maður hefur valið til trúnað- arstarfa fyrir sig, frekar en utanrík- isráðherra sem oft hefur gagnrýnt bændur óvægilega og af lítilli sann- girni. Sú gagnrýni og heift í garð utanríkisráðherra er fram kom á fundinum í Miðgarði, finnst mér vera afleiðing af óvæginni gagnrýni á landbúnaðinn. Það má vera umhugsunarefni að rauði þráðurinn gegnum alla þessa fundi með bændum er „við trúum þér ekki, Jón Baldvin". Þegar heil stétt í þjóðfélaginu vantreystir utan- ríkisráðherra sínum svo mikið, ráð- herra sem fer með einhvern við- kvæmasta málafiokk í stjórninni, er eitthvað mikið að. Svona afleiðingar getur áratuga neikvæður áróður haft. Ég virði það við utanríkisráðherra að hann óskaði eftir því við fjölmiðla- menn á fundinum í Miðgarði, að þeir birtu ekkert úr ræðum þriggja fundarmanna en samt er einni þeirra hampað manna á milli og í blöðum? Hver er tilgangurinn? GUÐJÓN ÓLAFSSON V aldasteinsstöðum Strandasýslu Betur má ef duga skal Frá Benedikt Sigurðssyni: I ágústmánuði árið 1914 átti sér stað sögulegur atburður. Snaggara- legur náungi og þaulvanur skipu- leggjari, Allan S. Brown að nafni, sýndi áræðni í verki og barði að dyrum Jóseph G. Prance, virts en lítið þekkts klæðskera og ávarpaði hann með eftirfarandi orðum: Mig langar að ræða við þig um stofnun bræðrafélags manna sem m.a. styddu hvern annan ef veikindi bæri að höndum. Prance bauð Brown að ganga í bæinn og ræða málin. Þar með var isinn brotinn og samtal þeirra varð upphafið að einni stærstu þjónustu- hreyfingu heims, Kiwanis Intemati- onal. Kiwanishreyfingin var síðan stofnuð með formlegum hætti í Detroit í Michigan-fylki í Bandaríkj- unum, 21. janúar 1915. Nafn hreyfingarinnar er fengið úr indíánamáli. I upphaflegri mynd var það „Nun — Kee — Wan — is“ sem talið er næst þýða: Við njótum okkar, við látum í okkur heyra. Það hafa Kiwanismenn svo sann- arlega gert; hreyfíng þeirra hefur vaxið jafnt og þétt og hana er nú að finna víða um heim. Arið 1964 var fyréti Kiwanis- klúbburinn stofnaður á íslandi, nú eru þeir orðnir 43 talsins með um 1.300 félaga. Þá hafa um 460 kon- ur sameinast í sama tilgangi og karlarnir um allt land undir nafninu Sinawik. Kiwanis er nánar tiltekið alþjóð- leg þjónustuhreyfing einstaklinga sem hafa á huga á því að taka virk- an þátt í að bæta samfélagið. Fijálst samstarf þeirra gerir þeim kleift að vinna að þjóðlegum umbót- um í mannúðarskyni. Má þar sem dæmi nefna: Aðstoð við ungt fólk eða aldrað, náttúravernd, þróun félagslegrar aðstöðu og eflingu vin- áttu og skilnings þjóða á milli. Kiwanishreyfingin er fyrst og fremst þjónustuhreyfing sem setur manngildið ofar öðru og lætur and- leg og mannleg verðmæti skipa æðri sess en þau sem eru af verald- legum toga spunnin. í þessu ljósi hefur Kiwanis leitast við að tileinka sér hina gullvægu setningu úr heilagri ritningu: Það sem þér viljið að aðrir menn gjöri VELVAKANDI -LYKLAVESKI LYKLAVESKI fannst fyrir utan Þinghólsstræti 46 í Kópavogi fyrir nokkru. Upplýsingar í síma 642250. PEYSA ÞRIGGJA ára stelpa tapaði lopa- peysunni sinni á leið frá Torfu- felli að barnaheimilinu Ösp fyrir skömmu. Finnandi er vinsam- legast beðinn að hringja í Ólöfu í síma 674071. inu frá því ég var barn en nú les séra Bolli Gústafsson þá svo hratt að ómögulegt er að fylgj- ast með. Passíusálmarnir eru mjög djúpt umhugsunarefni fyr- ir okkur öll enda eftir okkar merkasta sálmaskáld. Þessi upplestur er hinn lélegasti sem ég hef heyrt síðustu 10 árin. Eg hef haft mikið álit á séra Bolla og treysti því að hann taki þetta til athugunar og sjái til þess að það sem eftir er af sál- munum verði ekki lesið svona hratt. OF HRAÐUR UPPLESTUR Elísabet Hansen: ÉG VAR alin upp við það að lésa Passíusálmana með útvarp- PERLUFESTI PERLUFESTI, sem er gamall ættargripur, tapaðist föstudag- inn 21. febrúar i vesturbæ. Finnandi er vinsamlegast beðinn að hringja í Ásu í vinnusíma 622120. yður, skuluð þér og þeim gjöra. Víða um heim hafa Kiwanisfélag- ar siglt undir flaggi þessu og unnið ötult starf. Á íslandi hefur róður þeirra birst í hinum ýmsu myndum. Þau verk- efni sem Kiwanis hefur hleypt af stokkunum eru mýmörg og spanna fjölmörg svið þjóðlífsins. Hér eru engin tök á því að gera þeim fullnægjandi skil en þess má geta, að fyrir skömmu opnaði Rauði krossinn fyrir skömmu svokallað grænt númer (99-66-22) sem gerir börnum og unglingum kleift að hringja fyrir sama verð, óháð bú- setu þeirra og styrkti kiwnisklúb- burinn Katla auglýsingu á neyðar- þjónustu þessari sem birst hefur í öllum dagblöðum. Þá er rett að nefna eitt stærsta verkefni Kiwanis fyrr og síðar, sem ber heitið K-Iykillinn. Um er að ræða sautján ára verkefni sem hingað til hefur verið unnið í þágu geðsjúkra á íslandi og flestir kann- ast við. Af framansögðu má sjá að starf- semi Kiwanis er æði fjölbreytileg en neyðin hvarkvæm og aðstoð biýn. Tökum höndum saman og leit- umst við að bæta og fegra mannlíf- ið því þar býr hinn sanni þjóðarauð- ur. Dyr Kiwanis standa öllum opnar sem vilja leggja hönd á plóginn. félagi í Kiwanisklúbbnum Kötlu. BENEDIKT SIGURÐSSON Ægissíða 96 Reykjavík. BREYTTU AHYGGJUM í UPPBYGGJANDI ORKU! NÁMSKEIÐ: MARKVISS ÁHRIFARÍK MÁLFLUTNINGUR FUNDARSTJÓRN r hársnyrtistofa, Ármúla 17a, 2. hæð, sími 32790. Ragnheiður Guðjohnsen, hárgreiðslumeistari. Opið alla virka daga frá 08-18.00. Opið á laugardögum frá 09-16.00 A V Við afhendingu þessarar úrklippu er veittur 20% afsláttur. Gildirtil l.apríl. J r Skrifstofutækninám Fyrir aðeins kr. 5.000 * Námið er sniðið að þörfum vinnumarkaðarins. Þú lærir að færa bókhald og nota tölvu við lausn algengra verkefna á nútíma skrifstofu, dl dæmis ritvinnslu, áæltanagerð og tölvubókhald. * Verðið miðast við skuldabréf til tveggja ára Tölvuskóli íslands Sími: 67 14 66, opiö lil kl. 22 • Vandaöar útihuröir úr furu, oregon pine og mahóní tilbúnar til uppsetningar. Þeim fylgir karmur, lamir, skrá, húnar og þéttilistar. • Viö sérsmíöum einnig huröir og glugga eftir þínum óskum. Gerum föst tilboö í alla smíöi. • Góðir greiðsluskilmálar. Áratuga reynsla í hurða- og gluggasmíði. 1 viö Reykjanesbraut í Hafnarfirði - Símar 54444 og 654444
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.