Morgunblaðið - 03.03.1992, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 03.03.1992, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. MARZ 1992 SKREFÍ S ANN GIRNISÁTT eftir Kristínu Á. * Olafsdóttur Lítið skref í sanngirnisátt var stigið á síðasta fundi borgarráðs. Sanngirnin snýr að tekjulágum elli- og örorkulífeyrisþegum sem búa í eigin húsnæði. Borgarráð ákvað að hækka dulítið tekjumörk- in sem miðað er við þegar fast- eignaskattur er felldur niður eða lækkaður hjá ofangreindum hóp- um. Fyrir borgarstjómarkosningar 1990 lýstu fulltrúar Nýs vettvangs því yfir að þeir vildu að fasteigna- skattar elli- og örorkulífeyrisþega yrðu lækkaðir. Tilgangurinn var auðvitað sá að auðvelda fólki að búa áfram á eigin heimili, þótt tekjur hefðu rýmað vegna vinnu- loka eða skertrar vinnugetu. Fyrir rúmu ári lögðum við fram tillögur um að hækka verulega viðmiðun- artekjumörk, svo mun fleiri en þeir sem búa við allra lægstu tekj- ur fengju niðurfellingu eða lækkun á skattinum. Þessar tillögur okkar vom kolfelldar, fengu einungis atkvæði Nýs vettvangs. Viðmiðunartekjur fyrir fasteignaskatt Um síðustu áramót gerðum við aðra tilraun. Fulltrúi okkar í fram- talsnefnd borgarinnar lagði fram breytingartillögu sem gekk tals- vert skemur en tilraun okkar árinu áður. Vonin var sú að hægt væri að fá fólk til þess að tosa viðmið- unartekjumar eitthvað upp, þótt ekki væri gengið eins langt og við teljum sanngjarnt, m.a. í ljósi þess sem tíðkast hjá nágrannasveitar- félögum okkar sem hlífa miklu tekjuhærri lífeyrisþegum við þess- um gjöldum. Meirihluti framtals- nefndar vildi ekki fallast á breyt- ingartillöguna og hélt sig við þær viðmiðunarreglur sem gilt hafa um árabil. Borgarráð tók hins vegar afstöðu með því að fara bil beggja. Þessi litli áfangasigur veldur því að nú sleppa lífeyrisþegar við fast- eignaskattinn ef þeir hafa haft 585.000 kr. eða minna í heildar- tekjur árið 1991. Viðmiðun meiri- hluta framtalsnefndar var tæplega 519.000 kr. Fyrir hjón er upphæð- in 820.000. Viðmiðunartekjur fyrir þá sem fá 80% eða 50% afslátt hækka á bilinu 65.000-95.000 kr. „Mál standa því þannig, að ellilífeyrisþegar og öryrkjar sem treysta sér til þess að nota al- mennar sundlaugar Reykjavíkurborgar fá þar ókeypis aðgang, eins og verið hefur um árabil, en sé fólk það illa statt líkamlega að það kemst ekki í sund nema í sérútbúnar laug- ar eins og Grensáslaug- ina, verður það að borga.“ frá því sem meirihluti framtals- nefndarinnar lagði til. Gjald í Grensáslaugina Borgarráð á enn óafgreidda til- lögu sem ég lagði fram fýrir nokkru og er ætlað að afnema ósanngimi í garð öryrkja og gam- als fólks sem sækir sundlaug Grensásdeildar Borgarspítalans. Hér er um að ræða fólk sem ekki treystir sér til þess að nota al- mennar sundlaugar borgarinnar vegna líkamlegrar hömlunar. Með tilvísun frá lækni er því heimilað að njóta þeirra aðstæðna sem Grensáslaugin býður upp á, en hún er sérstaklega útbúin fyrir end- urhæfingarsjúklinga Grensás- deildar. Þeir sem sækja laugina utan úr bæ hafa til skamms tíma gert það endurgjaldslaust. í kjölfar niðurskurðar ríkisstjómarinnar á fé til heilbrigðisþjónustunnar brá svo við að ákveðið var að taka 100 króna gjald fyrir hverja sundlaug- arferð eftir 18 fyrstu skiptin. Mál standa því þannig, að ellilífeyris- þegar og öryrkjar sem treysta sér til þess að nota almennar sund- laugar Reykjavíkurborgar fá ókeypis aðgang, eins og verið hef- ur um árabil, en sé fólk það illa statt líkamlega að það kemst ekki í sund nema í sérútbúnar laugar eins og Grensáslaugina, verður það að borga. Varla getur þetta talist sanngimi. Reykjavíkurborg getur beitt sér fyrir því að gjaldið í Grensáslaug- EIN MEÐ OLLU E-8001 Einstaklega fjölhæf æfinga- samstæða með þrekstiga að auki. Einföld í notkun, fyrir- ferðarlítil, engar plötu- eða víraskiptingar, þyngdir allt að 90 kg. Æfingar fyrir allan líkamann. Verð kr. 75.000.- Stgr. kr. 69.750.- A lú er tímabært að g 1 ghrista af sér slenið, M m sumarið nálgast með sundlaugar- og stranda- feröum. Hvernig væri að láta sjálfan sig ganga fyrir, taka upp gott mataræði og reglulegar æfingar. Ótrúlega fjölhæfur, fyrir- ferðarlítill og ódýr pressu- bekkur frá Weider. Býðst nú ásamt 46 kg. lyft- ingarsetti og ísiensku æf- ingakerfi með yfir 30 líkamsmótandi æfingum. Verð kr. 38.500.- Stgr. kr. 35.420.- l3;IJH!ll.1*hM Hundruð ánægðra kaupenda geta vottað um frábæra eiginleika þessa þrekhjóls. Nú með tölvu- og púlsmæli. Verð kr. 25.500.- Stgr. kr. 23.970.- Ath. 20% stgr. afsl. til el I i lifey risþega kr. 20.400.- Nýr og endurbættur þrekstigi með tölvumæli. Frábært æfingatæki fyrir mjaðmir, fótleggi og kálfa. Eykur brennslu og úthald. Verð kr. 21.000.- Stgr. kr. 19.950.- Léttur og góður æfinga- fatnaöur frá Gilda Marx og Russell Athletic. Ath. Nýr prótein- og tækja- bæklingur. Hringið og við sendum endurgjaldsiaust. ii HREYSTI -frixkandi verslun- SKEIFUNNI 19- SÍMI 681717- FAX 813064 Sporfver . Glerórgötu 28 ■ Akureyri S: 96-11445 Kristín Á. Ólafsdóttir ina verði afnumið með því að lækka verðið á vatninu sem laugin kaupir frá Hitaveitu Reykjavíkur. Þar skortir nefnilega sanngirni, því Grensáslaugin nýtur ekki sömu kjara og sundlaugar borgarinnar og nágrannasveitarfélaganna. Þessar laugar greiða 30% af al- mennum taxta fyrir hitaveituvat- nið, en Grensáslaugin fullan taxta, þann sama og þú og ég greiðum fyrir heimilisnotin. Þannig greiddi laugin frá ársbyijun 1990 fram í febrúarbyijun í ár tæplega 2,5 milljón krónur fyrir vatn Hitavei- tunnar. Þessi vatnskaup hefðu kostað tæpar 750 þúsund krónur á þeim kjörum sem almennu sund- laugamar njóta. í ársbyijun 1990 var ákveðið að sundlaug Sjálfs- bjargar í Hátúni fengi heita vatnið á 30% kjörunum eins og sveitarfé- lagalaugarnar, svo rökin fyrir því að annað eigi að gilda fyrir Grens- áslaugina eru vandfundin. Ég leyfi mér að vona að borgar- fulltrúar allir sjái sanngirni í þessu máli og samþykki því tillögu mína um að lækka vatnsverðið til Grens- áslaugarinnar þannig að hún sitji við sama borð og hinar laugamar sem versla við Hitaveitu Reykja- víkur. Með því móti ætti að.afnem- ast það óréttlæti að láta einmitt heilsuveilustu gamalmennin og öryrkjana borga fyrir þá heilsubót sem sundið er. Höfundur er borgarfulltrúi Nýs vettvangs. _______________Brids____________________ Umsjón Arnór Ragnarsson Bridsfélag Hafnarfjarðar Mánudaginn 17. febrúar hófst Butl- er-keppni með þátttöku 20 para. Eftir fyrsta kvöldið er staðan þessi: Guðbrandur Sigurbergss. - Kristófer Magnúss. 65 GuðlaugurSveinsson-MagnúsSverrisson 59 Ingvarlngvarsson-KrisjánHauksson 40 FriðþjófurEinarsson-ÞórarinnSófusson 37 Hjá byijendum hófst einnig 12 para Mitchell-tvímenningur: N-S-úrslit: Bryndís Eysteinsdóttir - Atli Hjartarson 97 Þóra Ásgeirsdóttir — Þórunn Ólafsdóttir 88 Auður Bjamadóttir - Soffía Gísladóttir 85 A-V-úrslit: Hjördís Siguijónsdóttir - Maria Guðnadóttir 95 AmarJónsson-EysteinnEinarsson 92 Sigrún Amórsdóttir - Bjöm Höskuldsson 91 Skagfirðingar spila í Skipholti 70 Bridsdeild Skagfirðinga er að flytja sig um set og var sagt í þættinum sl. sunnudag að þeir myndu spila í Há- túni 12 í kvöld. Þetta er ekki rétt. Spilamennskan verður í Skipholti 70 Iðnaðarmannahúsinu og hefst spila- mennskan kl. 19.30. Bridsdeild Itangæinga Staðan í aðalsveitakeppriinni eftir 6 umferðir: Daníel Halldórsson 117 Eiríkur Helgason 114 Björn Árnason 107 Rafn Kristjánsson Halldór Gúnnarsson 103 102
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.