Morgunblaðið - 03.03.1992, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 03.03.1992, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. MARZ 1992 Búið að veiða 450 þús. tonn af loðnu Heistu veiðisvæðin eru nú þrjú UM 393 þúsund tonn af loðnu höfðu í gærmorgun veiðst frá áramótum. Þar af voru um 380 þúsund tonn komin á land sam- kvæmt upplýsingum Félags íslenskra fiskimjölsframleiðenda og tæp 15 þúsund enn um borð í skipunum. A allri vertíðinni hafa veiðst tæp 450 þúsund tonn. Skipin landa í ýmsum höfn- um, þar sem þróarrými opnast, og fjögur sigldu til Færeyja. Helstu veiðisvæðin eru þijú. Þeir sem ianda fyrir austan eru út af Hornafirði, Vestmannaeyja- bátamir halda sig mest fyrir aust- an Eyjar og síðan eru nokkrir bátar á veiðisvæðinu á Faxaflóa og Breiðafírði. Aðalgangan er tal- in vera fyrir austan en skipstjór- arnir sem eru að veiðum fyrir vest- an land láta vel af veiðinni þar. Togarar hafa orðið varir við loðnu á Vestfjarðamiðum og hafa sjómenn talið að þar væri komin hin dularfulla vestanganga. Fór rannsóknaskipið Árni Friðriksson yfir svæðið frá Halamiðum að VEÐUR Kópanesgrunni en fann lítið. ' Börkur NK var að veiðum vest- an við Hornafjörð eftir hádegið í gær þegar Morgunblaðið hafði samband við skipstjórann. Börkur var þá að fylla sig eftir sex tíma á veiðisvæðinu og bauð nærstöddu skipi afganginn. Börkur ber um 1.270 tonn. Gott veður var á svæð- inu í gær og sagði skipstjórinn á Berki að það væri fyrsti almenni- legi dagurinn í langan tíma. Sagð- ist hann verða var við töluvert af loðnu þarna og skipin fylltu sig nokkum veginn jafnóðum og þau kæmust á veiðisvæðið. Morgunblaðið/I»orkell Á myndinni eru frá vinstri Theódóra Jónsdóttir, Halldóra Jónsdóttir, Jón Sveinbjörrí Steinþórsson, Ásgeir Pálsson, Óskar Bjartmars og Jón Þorsteinssón. Fyrir aftan þau standa borgarstjórahjónin, Stein- unn Ármannsdóttir og Markús Örn Antonsson. Reykvíkingnm 100 ára og eldri boðið í kaffi í Höfða BORGARSTJÓRI, Markús Örn Antonsson, og eiginkona hans, ÍDAGki 12.00 Heimild: Vefiurstofa ísiands (Byggt á veðurepá kl. 16.1S f gær) VEÐURHORFUR I DAG, 29. FEBRUAR YFIRLIT: Milli Labrador og Suður-Græntands er víðáttumikil 947 mb djúp lægð sem þokast heldur austur og grynnist. 1.008 mb hæð er yfir norðaustur strönd Græniands. Skammt suðaustan af Nýfundnalandi er að myndast lægð sem mun hreyfast hratt austur og síðan norðaustur. SPÁ: Sunnan og suðaustan áu. Skúrir sunnan og vestanlands en úrkomu- laust er norðan og norðvestanlands. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á MIÐVIKUDAG: Sunnan átt, sumsstaðar stinningskaldi sunn- anlands en hægari annarsstaðar. Smáél eða slydda sunnan og vestan- lands en úrkomulaust að mestu annarsstaðar. Hiti um frostmark sunn- antil á landinu en vægt frost í öðrum landshlutum. HORFUR Á FIMMTUDAG: Fremur hæg sunnan og suðvestan án. Smá- él sunnantil á landinu en bjartviðri víða annarsstaðar, nema á Vestur- landi, þar verður skýjað. Frost 3 til 5 stig. Svarsimi Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600. Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað r r r f r r r r Rigning * r * * r r * r Slydda * * * * * * * * Snjókoma Alskýjað V V V Skúrir Slydduél Él Sunnan, 4 vindstig. Vindörin sýnir vindstefnu og fjaðrimar vindstyrk, heil fjööur er 2 vindstig.^ 10° Hitastig V Súld = Þoka stig-. J? FÆRÐ A VEGUM: Greiðfært er á vegum í nágrenni Reykjavikur og einnig um Suðurnes. Sama er að segja um Hellisheiði og Þrengsli. Vegir á Suðurlandi eru flestir þokkalega færir og fært með suðurströndinni austur á Austfírði. Vegir í Borgarfirði, á Snæfellsnesi, i Dölum og vestur í Reykhólasveit eru færir og jeppafært á Bröttubrekku. Fært er orðið á milli Bíldudals og Brjánslækjar og á milli Þingeyrar og ísafjarðar og þaðan til Bolungar- víkur og Súðavíkur. Ófært er um Isafjarðardjúp og Steingrimsfjarðar- heiðí. Frá Drangsnesí er fært suður Strandirnar. Holtavörðuheiði er fær og einnig flestir vegir é Norðurlandi, svo sem til Sigfufjarðar og Akur- eyrar. Fært er frá Akureyri til Ólafsfjaröar og einnig austur um Þingeyjar- sýslur. Á Austurlandi eru flestir vegir greiðfærir. Víða er mikil hálka á vegum. Vegagerðin VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma Akureyri Reykjavik hitl veður +1 skýjað 1 alskýjað Bergen 3 rígningésið. aiat Helsinki 3 þokumóða Kaupmannahöfn vantar Narssarssuaq 1 slydda Nuuk 6 alskýjað Ósfó 6 jjokumóða Stokkhólmur 10 þokumóða Þórshöfn vantar Algarve 14 þokumóða Amsterdam vantar Barcelona 13 þokumóða Berlín 11 rigning Chicago 1 heiðskírt Feneyjar 6 alskýjað Frsnkfurt 8 rigning Glasgow 6 rigning Hamborg 7 skýjað London 7 skýjað LosAngeles 14 rigning Luxemborg 8 skýjað Madrid 11 alskýjað Maiaga 14 súld Maliorca 16 alskýjaö Montreal þokumóða NewYork 4 alskýjað Orlando 13 heiðskfrt Parfe 10 léttskýjað Madeira 16 skýjað Róm 13 þokumóða Vfn 12 mlstur Washington 5 léttskýjað Winnipeg +8 léttskýjað Steinunn Ármannsdóttir, buðu þeim Reykvíkingum sem verða 100 ára eða eldri á þessu ári í kaffiboð í Höfða síðastliðinn laugardag í tilefni af því að um þessar mundir eru íbúar höfuð- borgarinnar orðnir 100 þúsund. Sex manns á þessum aldri komu í boðið. Markús Örn Antonsson borgarstjóri bauð gestina velkomna og sagði að því miður hefðu ekki allir séð sér fært að þiggja boðið en á annan tug manns hefur nú náð þessum háa aldri í Reykjavík. Sagði hann m.a. að þetta boð væri virðingarvottur við eldri kynslóðir. Jón Sveinbjörn Steinþórsson var einn gestanna í Höfða. Hann fædd- ist í Önundarfirði 22. ágúst árið 1892 og verður því 100 ára á ár- inu. „Eftir fermingu fór ég á sjóinn . og var þá búinn að bíða eftir því í nokkurn tíma að geta byrjað sjó- mennsku. Ég var á sjónum í 30 ár og svo vann ég hjá Eimskip eftir það,“ sagði Jón. Hann býr nú hjá dóttur sinni, Sesselju, í Reykjavík. „Ég get ekki lýst því hversu gott það er að búa hjá henni en hugurinn veit það.“ Jón sagðist hafa átt góða ævi en auðvitað hefði hann átt erfitt á stundum. „Erfiðleikarnir styrkja mann bara,“ sagði Jón. Jón Þorsteinsson fæddist 20. des- ember árið 1892 og hefur búið í Reykjavík síðan 1918 og nú býr hann einn. „Ég var vörubílstjóri í 60 ár án slysa. Einnig vann ég hjá Vegagerð ríkisins í 30 ár og ég var í fullri vinnu þangað til ég varð áttræður," sagði Jón. Hann sagðist vera við góða heilsu nema hvað heyrnin væri -farin að gefa sig. „Ég er einnig trúaður maður og trúi því að ég hafi verið leiddur í gegnum ævina. Ég trúi því að það sé Guðs vilji að ég er vel hraustur," sagði Jón að lokum. Nýr framkvæmda- stjóri Kísiliðjunnar STJÓRN Kísiliðjunnar hf. í Mý- vatnssveit hefur ráðið nýjan framkvæmdastjóra Kisiliðjunn- ar. Tii starfsins var ráðinn Frið- rik Sigurðsson, sjávarlíffræðing- ur. Friðrik var valinn úr hópi 54 umsækjenda um starfið. Friðrik tekur við stöðu framkvæmda- stjóra af Róbert B. Agnarssyni sem gegnt hefur stöðunni frá 1. júní 1985. Friðrik Sigurðsson var fram- kvæmdastjóri Landssambands fisk- eidis- og hafbeitarstöðva (LFH) frá desember 1986 til júní 1990 og var þá á sama tíma ritstjóri Eldisfrétta. Frá júní 1990 .til febrúar 1991 var Friðrik framkvæmdastjóri fyrir Friðrik Sigurðsson íslenski hesturinn á sýningn í Kaliforníu Bobby í Dallas ríður íslenskum hesti SEX íslenskir knapar og jafnmargir hestar munu taka þátt í al- þjóðlegri hestasýningu sem fram fer í Los Angeles í Kaliforníu dagana 11. til 14. mars nk. Leikarinn Patrick Duffy, sem íslend- ingar þekkja sem Bobby í Dallas, mun ríða íslenskum hesti á sýningunni. Fyrirhugað er að auglýsa íslensk hross á sýningunni með aukinn útflutning til Bandaríkjanna í huga. Fram til þessa hefur íslenski hesturinn einkum verið vinsæll í Evrópu. Trausti Þór Guðmundsson tamningamaður segist telja að út- fiutningur til Bandaríkjanna gæti aukist verulega ef íslenski hestur- inn yrði auglýstur þar á svipaðan hátt og gert var í Evrópu á sínum tíma. „Að vísu er það dálítið ofariega í huga Bandaríkjamanna að ís- lenski hesturinn sé sætur en við viljum vega þyngra en það og verð- um því að gera þeim grein fyrir hvað íslenski hesturinn getur gert annað en að vera sætur,“ segir Trausti Þór. Að sögn Trausta Þórs er söluverð 80% þeirra hrossa sem seld eru úr landi á bilinu 120 til 150 þúsund krónur. þrotabú íslands- iax hf. Frá febrú- ar 1991 hefur Friðrik verið framkvæmda- stjóri ísnó hf. Á sama tíma hefur Friðrik gegnt ýmsum stjórnar- og trúnaðarstörf- uin sem tengjast fiskeldi. Friðrik Sigurðsson er kvæntur Margréti Eydal félagsráðgjafa og eiga þau tvö börn. Friðrik tekur við sem fram- kvæmdastjóri Kísiliðjunnar 1. maí nk.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.