Morgunblaðið - 03.03.1992, Page 45

Morgunblaðið - 03.03.1992, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. MARZ 1992 45 Minning: ÞorvaldurB. Gísla son, yfirvélstjóri Fæddur 30. júlí 1954 Dáinn 22. febrúar 1992 Ég var stödd í Danmörku þegar mér bárust þær hörmulegu fréttir að mágur minn, hann Valdi eins og hann var kallaður, hefði dáið af slysförum. Það er erfitt að sætta sig við þegar mönnum í blóma iífsins er kippt í burtu svo sviplega. En við verðum að trúa að það sé einhver tilgangur með því. Valdi var sonur Sjafnar Helga- dóttur og Gísla S.B. Jónssonar frá Reykjavík. Hann var elstur 6 systk- ina og eini bróðirinn. Systur hans voru Benedikta Helga, býr í Banda- ríkjunum, Svanhvít, býr á Saurbæ í Dalasýslu, Sigrún Soffía, býr í Noregi, Þóra, býr í Bandaríkjunum og Berglind, býr í foreldrahúsum. Valdi byrjaði til sjós 15 ára gam- all, þá með föðurbróður sínum á björgunarskipinu Goðanum og stundaði mest sjóinn og lengst af sem vélstjóri. 1973 kom hann fyrst til Horna- fjarðar og kynntist eiginkonu sinni, Sigurborgu Þórarinsdóttur, sumar- ið 1975. Þau giftu sig 23. nóvem- ber 1979 og bjuggu hér á Höfn að tveim árum undanskildum, sem þau áttu heimil í Reykjavík, 1982- 1983. Þau eignuðust tvo syni, Gísla Borgfjörð, f. 12. ágúst 1977 og Ásbjörn, f. 29. ágúst 1981. Einn son átti Valdi áður, Hallmar Frey, f. 30. maí 1976. Valdi bar umhyggju fyrir sínum, hann átti það til að hringja utan af sjó til að minna á tíma hjá tann- lækni fyrir drengina. Svo hugurinn hefur ekki alltaf verið langt að heiman þó svo að dagarnir væru margir á sjónum. Alltaf var hann boðinn og búinn ef leitað var til hans og reyndist hann tengdafor- eldrum sínum sem góður sonur. Bið ég góðan Guð að styrkja elsku systur mína og drengina, for- eldra, systur, tengdaforeldra og aðra aðstandendur í þeirra miklu sorg. Veit honum, Drottinn, þína eilífu hvíld og lát þitt eilífa ljós lýsa honum. (Sálmur.) Elma Þórarinsdóttir. í dimmum skugga af löngu liðnum vetri mitt Ijóð til þín var árum saman gi'afið. Svo ungur varstu, er hvarfstu út á hafið, hugljúfur, glæstur, öllum drengjum betri. Og því varð allt svo hljótt við helfregn þína sem hefði klökkur gígjustrengur brostið. Og enn ég veit margt hjarta, harmi lostið, sem hugsar til þín alla daga sína. (Tómas Guðmundsson) Dauðinn gerir ekki boð á undan sér. Þau sannmæli upplifðum við skipsfélagar Þorvaldar Borgfjörð Gíslasonar laugardaginn 22. febr- úar síðastliðinn. Dagurinn hafði verið eins og flestir dagar á sjó fram til þessa. Það var létt yfir mann- skapnum og Valdi var kátur og reifur eins og við hinir. Hann hafði stundað sjóinn um árabil og lengst af á Haukafellinu. Hann var ósér- hlífinn en þó sérlega gætinn, jafnt við hefðbundin sjómannsstörf sem önnur störf og ávallt var hjálpsem- in skammt undan þar sem hann var. En vegir almættisins eru órannsakanlegir. Að kvöldi hafði dagurinn sem leið svo ljúflega áfram breyst í harmleik. Góður skipsfélagi var numinn brott í slysi. Það var samhent áhöfn sem tók á móti nýju skipi fyrir einu og hálfu ári og um borð hefur alltaf ríkt góður vinnu- og félagsandi. Á skipi eins og okkar starfar áhöfnin sem einn maður og þar gilda önnur lög- mál en á mörgum öðrum vinnustöð- um. Því er slíkum hópi mikill feng- ur í jafn góðum sjómanni og félaga og Valdi var. Hann var úrræðagóð- ur og samviskusamur við þau störf sem hann sinnti og reyndist sam- starfsmönnum sínum ávallt vel. Um leið og áhöfnin á Ilaukafell- inu þakkar Valda samfylgdina sendum við eiginkonu hans, Sigur- borgu Þórarinsdóttur, börnum og öðrum aðstandendum samúðar- kveðjur og vonum að minningin um góðan dreng megi styrkja þau á erfiðum tímum. Skipshöfnin á Haukafelli SF 111. Kveðjuorð: Sveinn Jónsson Fæddur 3. júní 1918 Dáinn 27. desember 1991 Vinur okkar Sveinn Jónsson er látinn. Eftir langt sjúkdómastríð lést Sveinn 27. desember sl. Með Sveini Jónssyni er fallinn í valinn einn af mestu drengskapar- mönnum, sem við hjón höfum kynnst. Sveinn var af traustum al- þýðustofnum, en ekki verða ættir hans raktar hér. Leiðir okkar Sveins og konu hans, Kristínar Ingvarsdóttur, lágu saman fyrir mörgum áratugum. Þá höfðu þau hjón nýlega orðið fyrir miklu umferðarslysi og lágu á sjúkrahúsi. Engu að síður var útlit- ið bjart og horft djarft til framtíð- ar. Vinátta okkar þróaðist með ár- unum og hefur aldrei borið skugga á. Sveinn Jónsson var óvenjulegur maður um margt. Hann var mikill atorkumaður og gekk að hveiju því starfi, sem hann sinnti af festu og alúð. Hann naut hvarvetna trausts og virðingar samstarfsmanna sinna. Undir fasmiklu yfirborði var öllum ljóst, að leyndust djúpar til- finningar og velvild til samferða- fólksins. Sveinn mátti aldrei neitt aumt sjá án þess að reyna að veita lið. Margir eru þeir sem munu minn- ast velgjörða Sveins Jónssonar í sinn garð þegar í móti blés. Okkur er einkar minnisstætt að þegar við vorum erlendis, stundum langtím- um saman, veittu Sveinn Jónsson og Kristín kona hans börnum okkar skjól og ómetanlegt liðsinni. Fyrir það hefur aldrei verið goldið og vart þakkað, enda ómögulegt að þakka með verðugum hætti slíka vinahjálp. Þess má geta, að einn sona okkar var skírður í höfuðið á Sveini. Með þessum línum færum við kveðjur og þakklæti fyrir órjúfandi vináttu um áratugaskeið við Svein Jónsson og hans ágætu konu, ekki aðeins frá okkur hjónum, heldur einnig frá börnum okkar öllum. Skarð er nú fyrir skildi. Sveinn Jónsson átti við langvarandi veik- indi að stríða, en bar þau með ein- stakri karlmennsku, svo sem allt það mótlæti, sem hann varð fyrir í lífinu. Sár harmur er nú kveðinn að eftirlifandi eiginkonu Sveins, börnum hans og barnabörnum svo og öðrum ættingjum og vinum. Við Sigríður þökkum Sveini Jóns- syni og hans ágætu konu fyrir langa og óbrotgjarna vináttu. Guð blessi minningu góðs drengs. Sigríður og Björn Ónundarson. Blömastofa Friöjinm Suðurlandsbraut 10 108 Reykjavík. Sfmi 31099 Opið oll kvöld tll kl. 22,- einnlg um helgar. Skreytingar við öil tilefni. Gjafavörur. Minningar- og afmælisgreinar Það eru eindregin tilmæli rit- stjóra Morgunblaðsins til þeirra, sem rita minningar- og afmælis- greinar í blaðið, að reynt verði að forðast enduríekningar eins og kostur er, þegar tvær eða fleiri greinar eru skrifaðar um sama einstakling. Þá verða aðeins leyfð- ar stuttar tilvitnanir í áður birt ljóð inni í textanum. Almennt verður ekki birtur lengri texti en sem svarar einni blaðsíðu eða fimm dálkum í blaðinu ásamt mynd um hvern einstakling. Ef meira mál berst verður það látið bíða næsta eða næstu daga. Hafsteinn S. Halldórs- son - Kveðjuorð Það var mikið áfall fyrir okkur þegar við fréttum að Hafsteinn Smári Halldórsson, Haffi vinur okkar og gamall skólafélagi, væri dáinn. í hugann hrönnuðust upp gamlar minningar um samverustundir okkar í Reykjanesskóla við Djúp vetui'inn 1984-85 þegar við vorum saman í 8. bekk aðeins 14 ára gömul. Mannskapurinn í Reykjanesskóla var fámennur hópur krakka á aldrin- um 13-16 ára. Lífið brosti við okk- ur, flest vorum við áhyggjulaus um framtíðina, hugsuðum vart um hana öði-uvísi en bjarta. Þá hefði enginn getað fengið okkur til að trúa því að áður en sjö ár væru liðin, áður en við værum orðin 22 ára, yrðu þrír félagar okkar horfnir yfir móð- una miklu. Förum við þar að tala um Haffa, Gunna og Eyjó. Það er erfitt að sjá á eftir Haffa, eins yndislegur strákur og hann var. Sambandið við hann hafði slitnað síðustu árin, en hann gleymdist aldr- ei. Það er einmitt þess vegna sem þetta er svona sárt, að vita það að nú getutn við aldrei hist aftur. Nú er ekki lengur hægt að taka upp sím- tólið og hringja í hann né hugsa um hvað hann sé að gera. Nú vitum við að við komum ekki til með að hitta hann næst þegar hópurinn hittist, því við vitum að hann er farinn. Nú er engin von. Við viljum ljúka þessurn orðum með erindi úr hinu fallega ljóði Kristj- áns frá Djúpalæk, rússnesku vöggu- lagi: Byrgðu fyrir blökkum skugga bjöitu augun þín. Eg skal þerra tár þíns trega, tendra falinn eld, svo við getum santan, vinur, syrgt og glaðst í kveld." Þreyttir hvílast, þögla nóttin þaggar dagsins hvein, felur brátt í faðmi sínum fagureygan svein, eins og hljóður engill friðar yfir jöiðu fer. Sof þú væran vinur, ég skal vaka yfir þér. „Loks er dagsins önn á enda, úti biitan dvín. Hjördís Einarsdóttir, Lind Björk Ólíifsdóttir. Systir okkar, + KRISTÍN GUÐNADÓTTIR, Furugerði 1, Reykjavik, verður jarðsungin frá Fossvogskapellu miðvikudaginn 4. mars kl. 15.00. Ingibjörg Guðnadóttir, Ebbi Jens Guðnason, Kristján Guðnason. + Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JÓHANIMA A. EYJÓLFSDÓTTIR, Njálsgötu 65, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík í dag, þriðjudaginn 3. mars, kl. 15.00. Þeim, sem vilja minnast hennar, er vinsamlegast bent á Thor- valdsensfélagið eða aðrar líknarstofnanir. Ragnheiður Ágústsdóttir, Kristín Þ. Ágústsdóttir, Sigurður Örn Einarsson, barnabörn og barnabarnabörn. Hugheilar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og jarðarför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, GESTS JÓHANNESSONAR. Sérstakar þakkir til starfsfólks á B-deild dvalarheimilinu Hlíð fyrir alúð og umönnun. Guð blessi ykkur öll. Bára Gestsdóttir, Ragna Gestsdóttir, Davið Kristjánsson, Tryggvi Gestsson, Guðbjörg Þórisdóttir, Sigurður Gestsson, Kristín Halldórsdóttir, barnabörn og fjölskyldur þeirra. + Okkar innilegustu þakkir fyrir þá samúð og hlýhug sem okkur var sýndur við fráfall og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður og ömmu, ÞÓRUNNAR GUÐJÓNSDÓTTUR frá Hnífsdal. Guðbjörg Guðmundsdóttir, Sigríður Benediktsdóttir, Þóra Benediktsdóttir, Óskar Benediktsson, Guðjón Benedíktsson, Jón Ásgeirsson, Þórir Haraldsson, Jón Pálsson, Ármann Eydal, Jónatan Arnórsson, Rannveig Bjarnadóttir, Sigrún Jónsdóttir, Edda Andrésdóttir, Margrét Sigurðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.