Morgunblaðið - 03.03.1992, Side 21

Morgunblaðið - 03.03.1992, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. MARZ 1992 21 Rabb um rann- sóknir og kvennafræði HÁDEGISRABB í Háskóla íslands á vegum Rannsóknastofu í kvenn- afræðum verður miðvikudaginn 4. mars. Þá mun Guðrún Olafsdóttir, dós- ent kynna ýmislegt sem er á döfinni í kvennafræðum hér og erlendis og ræða um alþjóðlegt samstarf á þessu sviði. Fundurinn verður í Odda, stofu 202, kl. 12-13. Hr. Smith sendir ekki skipin í land eftir Vilhjálm Jónsson í lögum nr. 34, 1991, er mjög fortakslaust ákvæði um að þeir lög- aðilar einir, sem að öllu leyti eru í íslenskri eign megi stunda fískveiðar í fískveiðilandhelgi íslands. Um þetta hafa nú orðið nokkrar umræður. Komið hefur fram sú skoðun að ef hlutafélag, sem er að hluta erlend eign, keypti hlutafé í útgerðarfélagi myndi útgerðarfélaginu vera óheim- ilt að veiða í fiskveiðilandhelgi ís- lands og það því missa kvóta sinn. Aðrir halda því fram að þessi túlkun laganna leiði til óskynsamlegrar nið- urstöðu, og beri því að skýra lögin á aðra lund. Þar á meðal er Óskar Magnússon lögmaður og stjórnar- formaður Olíuverslunar Islands hf. (Olís). Þetta kemur fram í grein hans í Morgunblaðinu sl. laugardag, sem ber heitið „Hr. Smith sendir skipin í land“. Til stuðnings skoðun sinni tekur hann það dæmi að hann kaupi hluta- bréf í Olíufélaginu hf. (Esso) fyrir 100 þúsund krónur og selji það síðan bandarískum vini sínum, hr. Smith. Með þessu sé Olíufélagið hf. komið í eigu útlendinga. Hr. Smith geti neitað að selja bréfín hvað sem í boði er. Við þetta falli veiðiréttur útgerðarfyrirtækja sem Olíufélagið hf. á í niður og hr. Smith sé þannig farinn að stjórna fískveiðum við ís- land. Þetta tiltekna dæmi fær ekki stað- ist vegna þess að samkvæmt sam- þykktum Olíufélagsins hf. er ekki heimilt að selja hlutabréf í félaginu til útlendinga nema með samþykki stjórnar Olíufélagsins hf. Stjórn fé- lagsins verður því að taka um það ákvörðun hvort hr. Smith fær að kaupa hlutabréfin af Óskari. Sam- þykki hún það er það í raun stjórn félagsins en ekki hr. Smith sem send- ir skipin í land. Þetta ákvæði í samþykktum Olíu- félagsins hf. um bann við sölu til útlendinga er áreiðanlega í sam- þykktum mjög fárra íslenskra hluta- félaga. Þess vegna var ekki von til þess að Óskari Magnússyni væri um það kunnugt. Hinsvegar sýnir það hvernig hlutafélög geta varið sig fyrir erlendri eignaraðild, ef til þess er vilji hjá stjórn félagsins. Það er því ekki á valdi Óskars Magnússonar eða hr. Smith að breyta eignaraðild Olíufélagsins hf. þannig að það verði ekki áfram eina alíslenska olíufélag- ið. Iíöfundur er hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi forstjóri Olíufélagsins hf. HJALPARSTARFIÐ HELDUR ÁFRAM Gíróseölar í bönkum og sparisióöum Vilhjálmur Jónsson HJALPARSTOFNUN KIRKJUNNAR ------— Marstilboð til stofnana og fyrirtœkja--- „Við tökum ekkert fyrir... ...að koma og taka gluggatjöldin niður eða setja þau upp.“ AFGASRULLUR fyrir bilaverkstæöi Olíufélagið hf 603300 Glímunni við gluggatjöldin er lokið. Við komum til þín, tökum þau niður, förum með þau og hreinsum þau. Svo strekkjum við þau og jöfnum falda með nýrri tölvutækni þannig að síddin verði nákvæm. Svo pökkum við þeim inn í plast, ökum þeim til þín og setjum þau upp. Gluggatjöldin verða slétt og falleg því að engin aukabrot koma í þau - hvorki í hreinsun né flutningi. Þú greiðir aðeins fyrir hreinsunina - ekki fyrir aðra þjónustu. FONN Skeifunni 11 Sfmi: 812220 Ókeypis þjónusta - ómæld þægindi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.