Morgunblaðið - 03.03.1992, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. MARZ 1992
25
Við opnun sýningar Reykjavíkurborgar í Gallerí Borg þar sem tillögur borgarinnar um framkvæmdir
við Aðalstræti eru m.a. til sýnis.
Reykjavík heldur upp á að hundr-
að þúsund íbúar eru í borginni
Reykjavíkurborg hélt síðastliðinn laugardag upp á að 100 þúsund
íbúar eru nú búsettir í höfuðborginni. Haldin var hátíð í miðbæ
Reykjvíkur í tilefni dagsins auk þess sem íbúum, sem verða 100
ára eða eldri í ár, var boðið í kaffiboð í Ilöfða.
Hátíðardagsskráin hófst á há-
degi með hlaupárshlaupi yfír
brýrnar í Elliðaárdal og tóku um
500 manns þátt í hlaupinu. Sýning
um upphaf bæjarmyndunnar í
Reykjavík var opnuð í Gallerí Borg
en þar eru einnig til sýnis innrétt-
ingar Skúla Magnússonar sem og
tillögur Reykjavíkurborgar um
framkvæmdir við Aðalstræti. Því
næst var skemmtiganga með sög-
ulegu ívafi um miðborgina. A
Lækjartorgi var svo dagskrá þar
sem Markús Öm Antonsson borg-
arstjóri ávarpaði Reykvíkinga og
hljómsveit Gunnars Þórðarsonar
lék Reykjavíkurlög auk annarra
atriða.
Borgarstjóri báuð þeim Reyk-
víkingum, sem verða hundrað ára
eða eldri á þessu ári, til kaffisam-
sætis í Höfða. Hátíðinni lauk að
kvöldi laugardags með flugelda-
sjningu frá Öskjuhlíð. Að sögn
Ólafs Jónssonar, upplýsingafull-
trúa Reykjavíkurborgar, gengu
hátíðarhöldin vel enda var blíð-
skaparveður þennan hlaupársdag.
STARFSÞJÁLFUN fatlaðra er
skóli rekinn af Öryrkjabanda-
lagi íslands og félagsmálaráðu-
neytinu. Skólinn er til húsa í
Hátúni lOa.
í starfsþjálfuninni er stundað
hefðbundið nám líkt og í öðrum
framhaldsskólum. Á hverri önn er
námið brotið upp með svokölluðum
tyllidögum þar sem nemendur gera
sér ýmislegt til upplyftingar. Þessir
dagar verða 4.-6. mars. Þá hafa
Smári sagði að í haust hefðu 4
rækjustöðvar á staðnum farið fram
á niðurfellingu skulda við bæjarsjóð
en fengið það svar að slíkt væri
einungis mögulegt ef um heildar-
lausn væri að ræða á vanda rækju-
vinnslunnar. Bæjarstjórn vildi ekki
taka á einstökum málum. í lok jan-
úar hefði svo Niðursuðuverksmiðjan
hf. farið fram á niðurfellingu skulda
og 50 milljón króna ábyrgð en því
hefði ekki enn verið svarað.
Aðalástæðuna fyrir frávísuninni
nú sagði Smári vera þá að ákvörð-
unin væri fordæmisgefandi fyrir
önnur fyrirtæki í sömu stöðu. Önn-
ur ástæða væri sú að í einkarekstri
væri óheilbrigt að hægt væri að
leita til hins opinbera ef illa gengi
og enn hefði verið litið til þess að
sveitarfélagið vildi ekki sitja uppi
með mikinn atvinnurekstur eins og
sveitarfélög víða um landið. Að lok-
um sagði hann að lánardrottnar
fyrirtækja ættu ekki að geta treyst
því að sveitarfélögin hlypu undir
bagga með fyrirtækjum í vandræð-
nemendur ákveðið að opna útvarps-
stöðina Örbylgjuna, FM 105,9. Með
þessu útvarpi ætla nemendur m.a.
að kynna starfsemi sem fer fram í
húsakynnum Öryrkjabandalags ís-
lands og Sjálfsbjargar í bland við
annan fróðleik, tónlist og léttmeti.
Útsendingar hefjast á öskudaginn,
4. mars, klukkan 10.00 og verður
útvarpað þessa þijá daga fram á
kvöld.
um. Peningar væru heldur ekki til
fyrir hlutafjárbeiðininni.
Reynt hefur verið að gera frjáls-
an skuldaskilasamning við skuldu-
nauta fyrirtækisins en ekki tekist.
Jónas Ingi Ketilsson hagfræðingur
sagðist búast við að farið yrði með
fyrirtækið fyrir skiptarétt á ísafirði
í dag. Þar yrði óskað eftir að látið
yrði reyna á nauðasamning án
beiðni um gjaldþrot. Menn væru
bjartsýnir á að það tækist. Nauða-
samningurinn mun felast í því að
boðnar verða um 30% af kröfum
en 70% þeirra falli niður.
----------------
Hljómtækj-
um og skinn-
húfum stolið
TÆKJUM fyrir um 300 þúsund
krónur var stolið úr sýningar-
glugga verslunarinnar Radíó-
bæjar við Ármúla um helgina.
Höttum og húfum fyrir um 80
þúsund var stolið í innbroti í búð
við Laugaveg.
Glugginn í Radíóbæ var brotinn
og úr honum tekið meðal annars
tvö sjónvarpstæki, tvö myndbands-
tæki, 1 hljómtækjasamstæða, sjón-
varpsdyrasími og fleira sem sam-
tals er metið á um 300 þúsund krón-
ur.
Úr hattabúðinni við Laugaveg 4
var stolið rauðri húfu úr refa-
skinnu, 2 minkaskinnhúfum og
handskjóli úr refaskini. Útsöluverð
er um 82 þúsund krónur.
Unnið er að rannsókn þessara
mála.
Morgunblaðið/Þorkell
Mikill fjöldi fólks var saman kominn á Lækjartorgi á laugardag til
að taka þátt í hátíðarhöldum Reykjavíkurborgar.
(Fréttatilkynning)
irmu
Útvarpsstöðin Örbylgj-
an sendir út í þrjá daga
Niðursuðuverksmiðjan hf. á ísafirði:
Bjartsýnn á að nauða-
samningar takist
- segir Jónas Ingi Ketilsson hagfræðingur
Morgunblaðið/RAX
Friðrik Þór fær styrk
Ólafur G. Einarsson menntamálaráðherra afhenti Friðriki Þór Frið-
rikssyni kvikmyndagerðannanni sex milljóna króna styrk síðastlið-
inn laugardag, í hófi sem haldið var í Ráðherrabústaðnum, til að
kynna mynd sína, Börn náttúrunnar, í Bandaríkjunum. Friðrik
segir þennan styrk koma sér vel þar sem kostnaður við kynningu
myndarinnar fyrir afhendingu Óskarsverðlaunanna sé mjög mikill.
Afliending verðlaunanna fer fram í Los Angeles þann 30. mars
næstkomandi.
Bæjarstjórnin á ísafirði vísaði frá erindi forsvarsmanna Niðursuðu-
verksmiðjunnar á ísafirði um 15 milljón króna hlutafjárframlag og
niðurfellingu 70% skulda fyrirtæksins við bæjarsjóð, á fundi sínum
á laugardag. Smári Haraldsson bæjarstjóri segir að ástæðan sé fyrst
og fremst sú að niðurstaðan sé fordæmisgefandi fyrir önnur fyrir-
tæki í sömu aðstöðu. Jónas Ingi Ketilsson hagfræðingur hefur unnið
að málinu og er bjartsýnn á að fallist verði á nauðasamninga í skipta-
rétti. Fyrirtækið hefur átt við mikla fjárhagsörðugleika að etja og
hefur verið í greiðslustöðvun sl. 4 mánuði.
40-90% AFSLÁTTUR 1
V E
.LT A AÐ
uEísiP