Morgunblaðið - 03.03.1992, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. MARZ 1992
Hörð átök
í Moldavíu
ÞRÍR menn létu lífið í skotbar-
daga er lögreglu og vopnuðum
sveitum rússneskumælandi
manna laust saman í í bænum
Dubossary í Moldavíu í gær.
Dubossary er í héraðinu Dnestr
en rússneskumælandi íbúar þess
hafa lýst því yfir að það sé sjálf-
stætt lýðveldi. Að sögn moldav-
íska innanríkisráðuneytisins var
forsprakki sveita rússneskumæi-
andi meðal hinna fallinna. Stjórn-
völd í Moldavíu, sem stefna að
nánari tengslum þessa fyrrum
Sovétlýðveldis við Rúmeníu,
neita að samþykka sjálfstæði
Dnestr.
Rætt um
framtíð Zaire
Mobutu Sese Seko, forseti
Zaire, hefur ákveðið að ráðstefn-
an um pólitíska framtíð ríkisins
muni bráðlega koma saman á
ný. Útvarpið í höfuðborginni
Kinshasa skýrði ,frá þessu á laug-
ardag og forseti ráðstefnunnar
staðfesti það í samtali við belg-
íska ríkisútvarpið í gær. Hann
sagði Mobutu hafa skýrt sér frá
þessu um helgina en tók fram
að engin dagsetning hefði verið
ákveðin. Nguza Karl-i-Bond, for-
sætisráðherra Zaire, frestaði ráð-
stefnunni í janúar en markmið
hennar er að finna lausn á stjóm-
skipan ríkisins.
Deilt um
Kaliningrad
Vítalí Tjúrkín, talsmaður rúss-
neska utanríkisráðuneytisins,
gagnrýndi harðlega á blaða-
mannafundi í gær ummæli Sta-
sys Lozoraitis, sendiherra Lithá-
ens í Bandaríkjunum, þess efnis
að héraðið Kaliningrad kynni dag
einn að tilheyra Litháén á ný.
Kaliningrad, sem er staðsett á
milli Litháen og Póllands, hefur
allt frá miðöldum oftsinnis verið
hluti af Litháen en varð síðar
hluti af Austur-Prússlandi og
fékk þá heitið Köningsberg. Hér-
aðið hefur verið hluti af Rúss-
landi síðan eftir stríð en Lozorait-
is sagði í samtali við litháenskt
dagblað að það kynni dag einn
að falla undir stjórn Litháa á ný.
Tjsúrkín sagði ummæli af þessu
dagi vera með öllu óásættanleg
og í raun ögrandi.
Líbýumenn
ræða framsal
Muammar Gadaffi Líbýuleið-
togi sagðist í gær ekki hafa neitt
umboð til að framselja mennina
tvo sem grunaðir eru um að hafa
komið fyrir sprengju í þotu Pan
Am-flugfélagsins sem fórst yfír
Lockerbie í Skotlandi árið 1988.
Allar ákvarðanir þar að lútandi
yrði Þjóðarráð Líbýu að taka og
gæti það tekið allt að þijá mán-
uði, sagði Gadaffi í ræðu við setn-
ingarathöfn ráðsins sem var út-
varpað. Öryggisráð Sameinuðu
þjóðanna hefur krafist þess að
mennirnir verði framseldir og
bað Gadaffí ráðið að taka þá
kröfu til athugunar.
Mikið fjölmenni var á fundi Bush forseta í Savannah í Georgíu í gær en forkosningar verða þar og
sex öðrum ríkjum í dag.
Tyrkir fella
kúrdíska
skæruliða
Ankara. Reuter.
TYRKNESKAR orrustuþotur
gerðu loftárás á stöðvar skæru-
liða kúrdískra verkamanna-
flokksins í gær, annan daginn
í röð.
Suleyman Demirel, forsætisráð-
herra Tyrklands, sagði að tilgang-
ur loftárásanna væri að draga víg-
tpnnurnar úr skæruliðunum og
hindra árásir af þeirra hálfu.
Þjálfunarstöðvarnar sem árásir
voru gerðar á eru á Cudi-ljallinu
í Tyrklandi og Hakurk-svæðinu
innan írösku landamæranna. Emb-
ættismenn vörðust nánari fregna
af árásunum en sögðu þó að skær-
uliðar hefðu orðið fyrir mannfalli.
Forkosningar í Bandaríkjunum:
George Bush gefur kjósend-
um fyrirheit um „nýja byijun“
Hjá demókrötum stendur baráttan milli Tsongas og Clintons
Washington. Reuter.
FORKOSNINGAR verða í sjö sumum þeirra. Á fundi í Georgíu ir sér vonir um góða útkomu í
ríkjum Bandaríkjanna í dag og í gær lofaði Bush kjósendum ríkinu. Allir fimm frambjóðend-
takast þeir George Bush forseti „nýrri byrjun" yrði hann endur- ur demókrata taka þátt í kosn-
og Pat Buchanan á öðru sinni í kjörinn forseti en Buchanan ger- ingunum og virðist slagurinn
Utanríkisráðherra Portúgals:
EES-samningnr verður
undirritaður fyrir páska
Brussel, frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
JOAO De Deus Rogado Salvador Pinheiro, utanríkisráðherra Portúg-
als, sagði við blaðamenn í Brussel í gær að hann teldi víst að samn-
ingurinn um Evrópska efnahagssvæðið (EES) yrði undirritaður fyr-
ir páska. Frans Andriessen, einn framkvæmdastjóra Evrópubanda-
lagsins (EB), sagðist telja góðar líkur á því að álit Evrópudómstóls-
ins á breyttum dómstólakafla í EES-samningnum liggi fyrir í byrjun
apríl. Á fundi utanríkisráðherra EB sem haldinn var í Brussel í gær
var jafnframt fjallað um tillögur framkvæmdastjórnarinnar um
næstu fimm ára fjárhagsáætlun EB.
Frans Andriessen gerði ráðherr- þykir ástæða til að ætla að hún
unum grem fyrir niðurstöðum
samningaviðræðna EB við Fríversl-
unarbandalag Evrópu (EFTA) um
Evrópska efnahagssvæðið. Sam-
kvæmt heimildum í Brussel tóku
ráðherrarnir vel í skýrslu Andriess-
ens og létu svo um mælt að aðildar-
ríki EB hygðust ekkert aðhafast
sem spillt gæti farsælum lyktum
samninganna þegar Evrópudóm-
stóllinn leitar álits þeirra á næstu
dögum. Á föstudag sendi fram-
kvæmdastjórnin formlegt erindi til
Evrópudómstólsins þess efnis að
hann gæfi að nýju umsögn um þann
kafla samningsins sem fjallar um
dómstóla og eftirlitsstofnanir en í
desember höfnuðu dómarar við
dómstólinn þeim hluta samnings-
draganna. Reiknað hefur verið með
því að umsögn dómstólsins liggi
fyrir innan sex til átta vikna en nú
verði tilbúin í byrjun apríl. Joao
De Deus Pinheiro utanríkisráðherra
Portúgals, sem situr í forsæti í ráð-
herraráði EB um þessar mundir,
sagðist telja að samningurinn um
EES yrði undirritaður á fundi utan-
ríkisráðherra EB í byrjun apríl.
Utanríkisráðherrar EB ræddu í
gær í fyrsta sinn tillögur fram-
kvæmdastjórnarinnar um næstu
fímm ára fjárhagsáætlun EB fyrir
árin 1993 og 1997. í tillögunum
er gert ráð fyrir mikilli útgjalda-
aukningu til að framkvæma ákvarð-
anir leiðtoga EB í Maastricht í des-
ember. Reiknað er með því að árleg
útgjöld bandalagsins hækki um 30%
á fimm ára tímabili og hámarks
hlutdeild EB í þjóðartekjum aðildar-
ríkjanna verði að sama skapi hækk-
uð. Rúmlega helmingur nýju út-
gjaldanna er til jöfnunar á efna-
hagslegum og félagslegum kring-
umstæðum íbúa bandalagsins. Það
eni fyrst og fremst ríkin í suður-
hluta bandalagsins sem njóta góðs
af auknum félagslegum áherslum í
uppbyggingarsjoðum EB en sér-
stakt tillit verður þó tekið til svæða
sem búa við einhæft atvinnulíf. í
því efni er sérstaklega rætt um físk-
veiðar og vinnslu. Gert er ráð fyrir
að bandalagið muni í framtíðinni
leggja byggðarlögum sem reiða sig
mjög á útgerð og fiskvinnslu til fjár-
magn til þess að renna fleiri stoðum
undir atvinnulífið. Stefnt er að því
að afgreiða fjárhagsáætlunina fyrir
lok þess árs.
aðallega standa á milli þeirra
Paul Tsongas og Bill Clintons.
Kosið verður í Colorado, Georgíu,
Idaho, Maryland, Minnesota, Utah
og Washington-ríki en ekki alls stað-
ar hjá báðum flokkunum, repúblik-
unum og demókrötum, og sums stað-
ar er um að ræða lið í flóknara kosn-
ingaferli. Á fjölmennum kosninga-
fundi í Savannah í Georgíu í gær
lofaði Bush „glæsilegri, nýrri byij-
un“ yrði hann endurkjörinn í haust
en Buchanan, mótframbjóðandi
hans, hefur rekið mjög harðan áróð-
ur gegn honum í ríkinu. Hefur hann
sakað Bush og stjórn hans um að
hampa klámi sem list og að draga
taum minnihlutahópa og hann segir
Bush hafa svikið kjósendur sína með
skattahækkunum. Vonast Buchanan
til, að sagan frá New. Hampshire
endurtaki sig en þá fékk hann 37%
atkvæða repúblikana.
Búist er við, að Bill Clinton, ríkis-
stjóri í Arkansas, sigri auðveldlega
í forkosningum demókrata í Georgíu
en í Washington, Maiyland og Col-
orado hafði Paul Tsongas forystuna
samkvæmt skoðanakönnunum. Hjá
demókrötum virðist nú slagurinn-
standa milli þessara tveggja manna
og hafa þeir verið að gerast illskeytt-
ari hvor í annars garð. í gær reyndu
þeir þó að lægja nokkuð öldurnar
og sögðu, að baráttan stæði ekki á
milli þeirra, heldur þeirra og Bush.
Eftir viku er „Stóri þriðjudagur",
sem svo er kallaður, en þá verður
kosið í 15 ríkjum.
Búrma:
Hermenn myrða
hundruð múslima
Dakka. Reuter.
BÚRMANSKIR hermenn myrtu a.m.k. 200 múslima í Arakan-hérað-
inu í vesturhluta Búrma í síðustu viku, að sögn flóttamanna sem
komu þaðan til Bangladesh í gær. Þeir skýrðu frá hrottalegum of-
beldisverkum.
Þægilegt að vinna með
1 Vid höfðum hug ú að kaupa launaforrit sem væri öruggt, einfalt í nolkun, luust við
flóknar samantektir og sérútprentanir og ódýrt að sama skapi. Mérflnnst mjög
þœgilegt að vinna með ERASTUS. Það tekur innan við 10 mínútur að ganga frá
«33 prentun launaseðla, lífeyrissjóðsgreiðslum, stéttarfélagsgreiðslum og skatti.
s Launamiðaútprentun íárslokgerist með einniskipun. Einfaldara verðurþað ekki.
Ö p|ft Kolbeinn Pétursson Hábergi hf Skeifunni 5a
Luunuforritíð ERASTUS ‘EinfaídCtjja þctgilt.gra
^ ______ M.Flóvent Sími: 91-688933 og 985-30347
Þessu til viðbótar segja flótta-
mennirnir að ekki færri en 500
manns hafi særst í aðgerðum stjórn-
arhermanna sem haldið hafa uppi
aðgerðum gegn múslimum í Búrma.
„Þeir ætla að reka alla á brott, skilja
eftir sig sviðna jörð,“ sagði einn flótt-
amannanna, en hann sagði að her-
BRUÐKAUPSVEISLUR
Perlan á Öskjuhlíð
PERLAN
sími 620200
menn stjórnarinnar í Rangoon hefði
kveikt í rúmlega 3.000 húsum mú-
slima í Arakan-héraðinu í síðustu
viku.
Um 8.000 búrmanskir múslimir
flýðu til Bangladesh um helgina og
eru heildarfjöldi þeirra orðinn um
145.000 frá því stjórnarherinn hóf
aðgerðir sínar í vesturhluta Búrma.
Þessu til viðbótar sagði U Tiha,
einn af leiðtogum búddamúnka, að
herforingjastjórnin í Búrma hefði
látið taka um 100 múnka af lífi í
fyrra og sætu um 1.000 múnkar í
fangelsum stjórnarinnar.