Morgunblaðið - 03.03.1992, Page 32
32
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. MARZ 1992
Rúmum 107 milljónum varið til gatnagerðar:
Mestu framkvæmdirnar við
Ráðhústorg’ og Hafnarstræti
GENGIÐ hefur verið frá framkvæmdaáætlun vegna gatnagerð-
ar á vegum Akureyrarbæjar, en hún verður afgreidd á fundi
bæjarstjórnar í dag, þriðjudag. Á þessu ári verður varið rúmum
107,3 milljónum króna í gatnagerð á vegum bæjarins. Til nýbygg-
ingar gatna verður varið 37,1 milljón, 35,8 milljónum vegna
endurbyggingar gatna, 13,8 milljónum vegna malbikunar, 10,5
milljónum í ýmis verk, 8 milljónir fara í malbikun gangstétta og
2 milljónir vegna umferðarmála.
Hvað nýbyggingu gatna varðar
fer stærstur hluti í holræsafram-
kvæmdir, eða 23 milljónir króna,
þá fara 7,7 milljónir í veg við
Viðjulund, er tengist Súluvegi og
3,2 milljónir í götu að útivistar-
svæðinu við Kjamaskóg. Aðkoma
verður gerð að Breiðholti sem
áætlað er að kosti um 2,2 milljón-
ir og þá verður unnið við nýja 50
metra götu, Lindarhlíð, fyrir tæpa
eina milljón króna.
Töluvert verður unnið í Miðbæ
Akureyrar í sumar, annars vegar
verður lokið við framkvæmdir á
Ráðhústorgi sem áætlað er að
kosti um 11,3 milljónir króna og
hins vegar verða um 300 metrar
í Hafnarstræti endurbyggðir, eða
svæðið frá homi Bautans inn að
Hótel Óðali og er gert ráð fyrir
að sú framkvæmd kosti tæpar 20
milljónir króna. Þá verður unnið
við vega að kirkjugarði fyrir 2,3
milljónir og breytingar á Brekku-
götu er áætlaðar fyrir tæpar 1,3
milljónir króna. Loks verða lagðar
lagnir í Krossanesbraut fyrir um
1,1 milljón króna.
Þær götu sem malbikaðar verða
í ár eru Búðarfjara, Duggufjara,
Merkigil og Þórunnarstræti og
áætlað að til malbikunar verði
varið tæpum 14 milljónum króna.
Þá verða malbikaðar gangstéttir,
samtals um 8 þúsund fermetrar
og er gert ráð fyrir að nota 8
milljónir króna til þeirra fram-
kvæmda, en enn hefur ekki verið
ákveðið hvaða gangstéttir verða
malbikaðar.
í ýmis verk er áætlað að veija
10,5 milljónum króna og fer um
helmingur þeirrar upphæðar, eða
5 milljónir í gangstíga, þá verður
gerður kantsteinn við Glerár-
kirkju, bílastæði við Aðalstræti
verða malbikuð og unnið verður
við girðingar og kanta auk þess
sem um 4,2 milljónir falla undir
liðinn ýmis ósundurliðuð verk.
Undir liðinn umferðarmál er
áætlað að veija tveimur milljónum
króna og fer helmingurinn af þeirri
upphæð til að opna útsýnissvæði
fyrir gangandi og hjólandi fólk við
Þingvallastræti, þá verður gert
útskot fyrir Strætisvagna Akur-
eyrar við Hörgárbraut við Glerá
og hraðahindrun verður gerð á
Skarðshlíð við Ásbyrgi.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Pálína krýnd Ungfrú Norðurland
Pálína Sigrún Halldórsdóttir var kjörin Ungfrú Norðurland í Fegurðar-
samkeppni Norðurlands sem fram fór í Sjallanum á Akureyri á föstu-
dagskvöld. Pálína var einnig valin besta ljósmyndafyrirsætan úr hópi
tólf stúlkna sem þátt tóku í keppninni. Pálína er frá Tjörnesi í Suður-
Þingeyjarsýslu og stundar hún nám við félagsfræðibraut Menntaskól-
ans á Ákureyri, en hún lýkur stúdentsprófi í vor. Hennar helstu áhuga-
mál eru hestamennska, blak, ferðalög og kvikmyndir og stefnir hún
að því að fara í Bændaskólann á Hólum næsta haust og að því loknu
framhaldsnám við háskóla.
Menningar- og listviðburð-
ir á Norðurlandi í marz
MENOR, Menningarsamtök
Norðlendinga, hafa tekið saman
eftirfarandi lista yfir menning-
ar- og listviðburði á Norðurlandi
í marsmánuði.
Tónleikar
Þriðjudagur 3. mars:
— Kvöldvaka í Akureyrarkirkju.
Kirkjuvika 1.-8. mars. Ávarp Jón
Kristinsson. Helgistund sr. Birgir
Snæbjörnsson. Ræða sr. Pétur Sig-
urgeirsson fyrrverandi biskup Is-
lands. Kór Akureyrarkirkju, stjórn-
andi Björn Steinar Sólbergsson.
Einsöngur Margrét Bóasdóttir.
Strengjakvai-tett kennara úr Tón-
listarskólanum á Akureyri. — Gry-
fjan í Verkmenntaskólanum á Ak-
ureyri kl. 20.00. Samstarf Lista-
daga 24. febrúar til 5. mars Mennt-
askólinn á Akureyri og Opin vika
3.-5. mars Verkmenntaskólinn á
Akureyri. Sykunnolarnir. í sal Tón-
listarskólans á Akureyri kl. 20.30.
Blandaðir tónleikar nemenda á efri
stigum.
Fimmtudagur 5. mars:
— Safnaðarheimiii Akureyrar-
kirkju kl. 15.00-17.00. Kirkjuvika
1.-8. mars. Opið hús fyrir aldraða.
Ólöf Leifsdóttir iðjuþjálfi ræðir um
þjálfun. Jón Viðar Guðlaugsson
slær á létta strengi. Kór Akur-
eyrarkirkju syngur íslensk lög.
Stjórnandi Bjöm Steinar Sólbergs-
son. — Safnaðarheimili Akureyrar-
kirkju kl. 19.45. Kirkjuvika 1.-8.
mars. Kvöldvaka fyrir unga fólkið:
Lúðrasveit Akureyrar, stjórnandi
Atli Guðlaugsson. Gítarnemar úr
Hljómskólanum á Akureyri. Kór
Menntaskólans á Akureyri, stjóm-
andi Hólmfríður Benediktsdóttir.
Æskulýðsfélag Akureyrarkirkju. —
Hljómsveitin Kredit. Freyvangs-
leikhúsið flytur atriði úr söngleikn-
um Jesus Christ Superstar. Hjálp-
arsveit skáta, Skátafélagið Klakk-
ur og unglingar úr félagsmiðstöðv-
um Akureyrar aðstoða. Eftir kvöld-
vökuna verður útigrillveisla.
Föstudagur 6. mars:
— Höfðaborg Hofsósi kl. 21.00.
Söngskemmtun: Rökkurkórinn,
stjómandi Sveinn Árnason. Píanó
Rögnvaldur Valbergsson. Kvenna-
kór Siglufjarðar, stjórnandi Elías
Þorvaldsson.
Laugardagur 7. mars:
— Akureyrarkirkja kl. 12.00.
Kirkjuvika 1.-8. mars. Hádegistón-
leikar — ritningarlestrar. Björn
Steinar Sólbergsson flytur orgel-
verk eftir Duruflé og Alain. Léttur
hádegisverður á eftir.
Tónleikahátíð á Blönduósi:
Félagsheimlið Blönduósi kl.
14.30. Sameiginlegir tónleikar
gmnnskóla og tónlistarskóla úr
Vestur- og Austur-Húnavatns-
sýslu, Skagafjarðarsýslu, Siglufirði
og alls staðar þar á milli.
— Miðgarður í Skagafirði kl.
21.00: Heimskvöld, söngskemmt-
un, einsöngur, kórsöngur, grín og
kaffiveitingar. Karlakórinn Heimir,
stjórnandi Stefán Gíslason. Hljóð-
færaleikararnir Tom Higgerson,
Jaqueline Simm, Eileen Silcocks og
Jennifer Spears leika.
Sunnudagur 8. mars:
— Akureyrarkirkja kl. 14.00.
Kirkjuvika 1.-8. mars. Hátíðar-
messa. Prédikun sr. Bolli Gústavs-
son vígslubiskup. Kór Akureyrar-
kirkju. Stjómandi og organisti
Bjöm Steinar Sólbergsson.
Fimmtudagur 12. mars:
— Safnaðarheimili Akureyrar-
kirkju kl. 20.30. Tónlistarfélag
Akureyrar. Píanótríó. Laufey Sig-
urðardóttir, fiðla, Richard Talkow-
sky, selló, Kristinn Orn Kristinsson,
píanó. Verk eftir Mozart, Brahms,
Haydn.
Föstudagur 13. mars:
— Fjölbrautaskóli Norðurlands
vestra á Sauðárkróki, síðdegis.
Háskólakórinn á sínu 20. starfsári,
kynning í tali og tónum. Stjórn-
andi: Ferenc Utassy.
Félagsheimilið Blönduósi kl.
20.30. Háskólakórinn, stjórnandi
Ferenc Utassy. íslensk og erlend
tuttugustu aldar tónlist.
— Miðgarður í Skagafirði kl.
21.00. Aðalkonsert Rökkurkórsins,
stjórnandi Sveinn Árnason. Ein-
söngur Jóhann Már Jóhannsson
tenór. Píanó Rögnvaldur Valbergs-
son.
Laugardagur 14. mars:
— Félagsheimilið Hvamms-
tanga, síðdegis kl. 20.30. Háskóla-
kórinn, stjómandi Ferenc Utassy.
íslensk og erlend tuttugustu aldar
tónlist.
Miðvikudagur 18. mars:
— í sal Tónlistarskólans á Akur-
eyri kl. 20.00. Blásaradeiidartón-
leikar.
Laugardagur 21. mars:
— Félagsheimilið Hvammstanga
kl. 15.00. Tónlistarfélag V-Hún-
vetninga. Blásarakvintett Reykja-
víkur.
Sunnudagur 22. mars:
— Á sal Tónlistarskól^ns á Akur-
eyri kl. 17.00. Þórunn Guðmunds-
dóttir, sópran. David Knowls,
píanó.
Laugardagur 28. mars:
— Akureyrarkirkja kl. 17.00.
Tónlistarfélag Akureyrar. Reykja-
víkurkvartettinn: Rut Ingólfsdóttir,
fiðla, Sbignew Dubik, fiðla, Guð-
mundur Kristmundsson, lágfiðla,
Inga Rós Ingólfsdóttir, selló. Verk
eftir Jón Leifs, Mozart og Dvorák.
Sunnudagur 29. mars:
— Hrafnagilsskóla í Eyjafjarðar-
sveit, síðdegis. Blásarar af öllu
Norðurlandi halda tónleika eftir vel
heppnaða námskeiðshelgi!
Laugardagur 4. apríl:
— Akureyrarkiija kl. 12.00.
Hádegistónleikar — ritningarlestr-
ar. Björn Steinar Sólbergsson leik-
ur orgelverk eftir Bach og Liszt.
Léttur hádegisverður á eftir í Safn-
aðarheimilinu.
Þriðjudagur 31. mars:
— (Staðsetning og tímasetning
auglýst síðaij. Einir tónleikar á
Akureyri og aðrir á Norðurlandi
vestra. Kammerhljómsveit Akur-
eyrar. Stjórnandi Örn Óskarsson.
Píanó Richard Simm og Tom Higg-
erson. Einleikur á fiðlu Sigrún
Eðvaldsdóttir. Verk eftir Aron Cop-
land, Saint-Saens, Mendelsohn.
Sunnudagur 5. apríl:
— (Staðsetning og tímasetning
auglýst síðar.) Kammerhljómsveit
Akureyrar. Stjórnandi Örn Óskars-
son. Píanó Richard Simm og Tom
Higgerson. Einleikur á fiðlu Sigrún
Eðvaldsdóttir. Verk eftir Aron Cop-
land, Saint-Saéns og Mendelsohn.
Leikhús
Leikfélag Akureyrar:
— Tjútt og tregi eftir Valgeir
Skagfjörð. Föstudaginn 6. mars kl.
20.30. Laugardaginn 7. mars kl.
20.30. Lokasýning. — íslands-
klukkan eftir Halldór Laxness.
Föstudagur 27. mars kl. 20.30,
fnimsýning. Laugardagur 28. mars
kl. 20.30. Sunnudagur 29. mars
kl. 20.30.
Freyvangsleikhúsið:
— Félagsheimilið Freyvangur í
Eyjafjarðarsveit. Söngleikurinn
Jesus Christ Superstar eftir
Andrew Loyd Webber og Tim Rice.
Leikstjóri Kolbrún Halldórsdóttir.
Söngstjóri Þórdís Karlsdóttir. Tón-
listarstjóri Jón Ólafsson. Föstudag-
ur 13. mars kl. 20.30, frumsýning.
Sunnudagur 15. mars kl. 20.30.
Fimmtudagur 19. mars kl. 20.30.
Föstudagur 20. mars kl. 20.30.
Laugardagur 21. mars kl. 20.30.
Aðrar dagsetningar ákveðnar síð-
ar.
Leikfélag Húsavíkur:
— Samkomuhúsið Húsavík.
Gaukshreiðrið eftir Dale Wasser-
man.
Leikklúbburinn Saga:
— Dynheimar Akureyri. Tíu litlir
negrastrákar eftir Agöthu Christie.
Leikfélag Dalvíkur:
— Ungó, Dalvík. Rjúkandi ráð
eftir Jónas og Jón Múla Árnasyni
og Stefán Jónsson. Leikstjóri Sig-
urgeir Scheving. Hljómsveitin
DES. Þriðjudagur 3. mars kl.
21.00. Föstudagur 6. mars kl.
21.00. Laugardagur 7. mars kl.
21.00. Þriðjudagur 10. mars kl.
21.00. Aðrar dagsetningar ákveðn-
ar síðar.
Leikdeild Ungmennafélags
Skriðuhrepps:
— Melum, Hörgárdal. Bör Bör-
son. Fimmtudagur 5. mars kl.
20.30. Föstudagur 6. mars kl.
20.30. Sunnudagur 8. mars kl.
20.30.
Leikklúbbur Skagastrandar:
— Fellsborg á Skagaströnd.
Kardimommubærinn eftir Thor-
björn Egner. Leikstjóri Árni Blan-
don.
Leikhópur Fjölbrautaskóla
Norðurlands-vestra:
Opnir daga 4.-7. mars. Þrír ein-
þáttungar „Menn, menn, menn,“
eftir Melkorku Thelmu Ólafsdóttur,
Sindra Freyson og Bergljótu Am-
alds. Leikstjóri Andrés Sigurvins-
son. Miðvikudagur 4. mars.
LOCOS, leikfélag VMH:
— Gryfjan, Verkmenntaskólinn
á Akureyri. Vorið kallar, eftir
Franz Wedekind. Leikstjóri Valgeir
Skagfjörð.Laugardagur 7. mars kl.
20.30, Frumsýning.
Kvikmyndir
Kvikmyndaklúbbur Akur-
eyrar:
Söngleikurinn Rocky Horror
Picture Show. — Borgarbíó sunnu-
daginn 8. mars kl. 17.00 og mánu-
daginn 9. mars kl. 19.00. Miðviku-
daginn 11. mare kl. 17.00.
Opin vika 3.-5. mars í Verk-
menntaskólanum á Akureyri:
Rocky Horror Picture Show,
fimmtudaginn 5. mars. — Borgar-
bíó kl. 15.00.
Myndlistarsýningar
— Blómaskálinn Vín í Eyjafjarðar-
sveit. Iðunn Ágústsdóttir sýnir
pastelmyndir til 8. mars á opnunar-
tíma blómaskálans.
Fyrirlestrar
Miðvikudagur (öskudagur) 4.
mars:
— Safnaðarheimili Akureyrar-
kirkju kl. 10-12. Kirkjuvika 1.-8.
mars. Mömmumorgnar. Morgun-
stund fyrir mömmur og pabba með
yngri börnin sem ekki eru í ösku-
dagsliði.
— Möðruvallakirkja kl. 19.30.
Listadagar 24. febrúar til 5. mars.
Menntaskólinn á Akureyri. Magnús
Skarphéðinsson ræðir um spírit-
isma o.fl.
Föstudagur 6. mars:
— Safnaðarheimili Akureyrar-
kirkju kl. 20.30. Kirkjuvika 1.-8.
mars. Einar Gylfi Jónsson forstöðu-
maður Unglingaheimilis ríkisins.