Morgunblaðið - 03.03.1992, Page 33
33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. MARZ 1992
Skýrsla íslandsdeildar Evrópuráðsþingsins:
Menn hafi frelsi til að
vera utan stéttarfélaga
- segir Björn
Bjarnason
„Hér á landi gera æ fleiri sér
grein fyrir því, að þeir geta leitað
réttar síns annars staðar en fyrir
íslenskum dómstólum og stjórnar-
stofnunum, ef þeir telja á sér brot-
ið. Athyglin á eftir að beinast í
enn ríkara mæli að réttindum sem
felast í ýmsum alþjóðasamþykkt-
um. Eftirlitsstofnanir á grund-
velli slíkra samþykkta eiga eftir
að láta meira að sér kveða hér
eins og annars staðar. Alþingi og
stjórnvöld almennt verða að vera
undir þetta búin,“ sagði Björn
Bjarnason (S-Rv), formaður Is-
landsdeildar Evrópuráðsþingsins,
þegar hann gerði grein fyrir
skýrslu deildarinnar.
Höfuðstjórn Evrópuráðsþingsins
skiptist í þrennt; ráðherranefnd,
Evrópuráðsþing og aðalskrifstofu.
En auk þessara aðalstofnana hefur
verið komið á fót sérstökum stofnun-
um eða nefndum til að fylgja eftir
einstökum sáttmálum sem gerðir
hafa verið innan vébanda Evrópur-
áðsins. Björn Bjarnason nefndi
nokkra þessara sáttmála og stofn-
ana.
Fyrir Mannréttindadómstólnum
er nú eitt mál er snertir Island og
varðar það gildi 108. greinar al-
mennra hegningarlaga. Fyrir mann-
réttindanefndinni bíða að minnsta
kosti tvö mál frá íslandi afgreiðslu,
annars vegar vegna laga frá 1989
um atvinnuréttindi leigubílstjóra og
hins vegar vegna skattamála Þýsk-
íslenska verslunarfélagsins.
Brotlegir við
félagsmálasáttmála?
íslendingar eru aðilar að Félags-
málasáttmála Evrópu. Á grundvelli
sáttmálans starfar sérfræðinga-
nefnd. Björn Bjarnason vakti at-
hygli á því að sérfræðingarnir hefðu
gert athugasemd við að Island full-
nægði ekki kröfum samkvæmt 5.
grein sáttmálans sem kveður á um
frelsi verkafólks og vinnuveitenda
til að stofna stéttarfélög. Sérfræð-
inganefndin lítur þannig á, að í þess-
ari grein felist jafnframt frelsi til
að standa utan við stéttarfélög, þótt
bein ákvæði séu ekki um það í henni.
Þessi túlkun sérfræðinganna leiðir
til þess, að hún telur hvers kyns
lagaákvæði eða ákvæði í kjarasamn-
ingum um skylduaðild að stéttarfé-
lögum bijóta í bága við 5. greinina.
Telja sérfræðingarnir að ákvæði í
íslenskum lögum gangi þvert á anda
5. greinarinnar og benda þeir á 1.
grein laganna um atvinnuleysis-
tryggingasjóð og lög nr. 77/1989
um leigubifreiðar, þar sem bílstjórar
eru skyldaðir til að vera í stéttarfé-
lagi.
Björn Bjarnason sagði fulltrúa
íslands í embættismannanefnd um
félagsmálasáttmátann hafa mót-
mælt þessari túlkun sérfræðinga-
nefndarinnar. Björn sagði ekki víst
á þessu stigi hvaða stefnu þetta mál
tæki á vettvangi ráðherranefndar-
innar. En ljóst væri þó, að ef það
yrði almenn niðurstaða þar, að ís-
land fullnægi ekki ákvæðum félags-
málasáttmálans, yrði óskað eftir því
við íslensk stjórnvöld að þau endur-
skoði löggjöf sem bryti í bága við
sáttmálann.
Formaður íslandsdeildar Evrópu-
ráðsþingsins sagði að á Evrópuráðs-
þinginu í september síðastliðnum
hefði verið samþykkt tillaga til ráð-
herranefndarinnar um félagsmála-
sáttmálann og framkvæmd hans.
Þar væri m.a. lagt til að í 5. grein
hans væru öll tvímæli tekin af um
að menn hefðu einnig frelsi til að
standa utan stéttarfélaga. Þetta -
væri .enn aðeins tillaga þingsins en
hún gæfi vísbendingu um það ann-
ars vegar að talið væri nauðsynlegt
að taka af skarið um þetta vafa-
atriði, og hitt hins vegar að breyting-
in tæki af allan vafa um að íslensk
löggjöf væri ekki í samræmi við
skuldbindingar samkvæmt félags-
máiasáttmálanum.
Björn Bjarnason sagði þingmenn
verða að hyggja að því við lagasetn-
ingu að hún stangist ekki á við hina
mikilvægu sáttmála Evrópuráðs-
ins.„„Hér á landi gera æ fleiri sér
grein fyrir því, að þeir geta leitað
réttar síns annars staðar en fyrir
íslenskum dómstólum og stjórnar-
stofnunum, ef þeir telja á sér brotið.
Athyglin á eftir að beinast í enn rík-
ara mæli að réttindum sem felast í
ýmsum alþjóðasamþykktum. Eftir-
litsstofnanir á grundvelli slíkra sam-
þykkta eiga eftir að láta meira að
sér kveða hér eins og annars stað-
ar. Alþingi og stjórnvöld almennt
verða að vera undir þetta búin.“
Karl Steinar Guðnason hvetur til sagnfræðirannsókna:
Margt skuggalegt við sam-
band við einræðisríki í austri
KARL Steinar Guðnason (A-Rn), formaður íslandsdeildar Norður-
Atlantshafsþingsins, gerði í fyrri viku grein fyrir skýrslu um starf
og samskipti þingmanna við Atlantshafsþingið og Atlantshafsbandalag-
ið, NATO. Þingmenn í þingmannasamtökum bandalagsins ræða nú
nauðsyn þess að „skoða sögulegar heimilir og þátt fylgifiska kommún-
ismans í tilraunum til að veikja Atlantshafsbandalagið og varnir Vest-
urlanda," sagði Karl Steinar.
í síðustu viku var fjölmörgum
skýrslum dreift um starf alþingis-
manna í ýmsum alþjóðanefndum.
Um hádegisbilið síðastliðinn fimmtu-
dag gerði Björn Bjarnason (S-Rv),
formaður Islandsdeildar Evrópur-
áðsþingsins, grein fyrir skýrslu um
43. þing þess.
Til Evrópuráðsins var stofnað eft-
ir síðari heimsstyrjöldina. Með virð-
ingu fyrir lögum og rétti, vernd
mannréttinda, lýðræðislegra stjórn-
arhátta og félagslegra réttinda
skyldi lagður grunnur að friðsam-
legu samstarfi Evrópuþjóða.
Stuttar þingfréttir:
Bókatiðindi
í gær var dreift til þingmanna
bókinni Samningur um Evrópska
efnahagsvæðið, EES. (Enskur texti).
Útgefandi er utanríkisráðuneytið,
viðskiptaskrifstofa. Bókin er óbund-
in; í kiljuformi með bláum spjöldum,
alls 103 bláðsíður.
Margir þingmenn hafa beðið með
eftirvæntingu eftir þessu lesefni.
Valgerður Sverrisdóttir (F-Ne) lét
þó í ljós í samtali við Morgunblaðið
nokkrar áhyggur af því þetta rit
gæti reynst þingmönnum þungt í
skauti. Háskalegt væri að sofna við
lestur þessarar bókar í rúminu ,því
þetta rit væri ekki léttvægt.
Karl Steinar Guðnason (A-Rn)
fór almennum orðum um starf og
sögu Norður-Atlantshafsþingsins en
síðar vék hann að því að þingið yrði
líkt og NATO að bregðast við þeim
breytingum sem orðið hefðu á al-
þjóðavettvangi, þótt ekki væru leng-
ur þörf á því að veijast óvini í austri,
hinum kommúnísku aðildarríkjum
Varsjárbandalagsins undir forystu
Sovétríkjanna. Karl Steinar sagði að
nokkuð hefði borið á því að Frakkar
og reyndar fleiri hefðu viljað bijóta
samtökin upp og stofna sérstakt
varnarbandalag Evrópuríkja og þá
án samfylgdar Bandaríkjanna. í
umræðum og atkvæðagreiðslum um
tillögur hefðu íslensku fulltrúarnir
lýst sig andvíga þessum sjónarmiðum
og lagt þunga áherslu á að Bandarík-
in og Evrópa hefðu sem víðtækasta
og nánasta samvinnu á sviði vamar-
mála.
Karl Steinar Guðnason taldi
ástæðu — nú þegar kommúnisminn
væri hruninn — til að minna á að
hér á landi hefði verið sterk hreyfíng
sem varið hefði Sovétríkin og skipu-
lag þeirra í einu og öllu: „Það var
sama hvað á gekk þar eystra. ís-
lenskir kommúnistar vörðu Sovétrík-
in og gerðir þeirra. Þeir sem aðhyllt-
ust vestræna samvinnu og Atlands-
hafsbandalagið voru úthrópaðir,
beittir rógi, illmælgi og meira að
segja sakaðir um landráð." Formaður
íslandsdeildar Norður-Atlantshafs-
þingsins sagði þessu til viðbótar m.a:
„Það eru ótrúlega fá ár síðan því var
haldið fram bæði í Þjóðviljanum og
af aðstandendum hans að allt mis-
jafnt sem fréttist væru lygar og
óhróður. Nú er öllum ljóst að fylgj-
endum Atlantshafsbandalagsins
höfðu rétt fyrir sér. Nú þegar hul-
unni er svipt af, og þegar leyniskýrsl-
ur að austan eru opnaðar, hefur kom-
ið berlega í ljós, og reyndar staðfest
það sem áður var sagt, að Noregur
var í verulegri hættu fyrir innrás
Sovétríkjanna og helstu bandamenn
okkar íslendinga töldu mjög áþreif-
anlega hættu á að Sovétríkin réðust
á ísland í því skyni að færa víglín-
una nær Bandaríkjunum." Formaður
íslandsdeildar Norður-Atlantshafs-
þingsins sagði viðstöddum þing-
mönnum: „Heimildir segja einnig að
óttast var að flokksmenn Sósíalista-
flokksins, sameiningarflokks Alþýðu
sem síðar var kallaður Alþýðubanda-
lag, kæmu þessum hugsanlega inn-
rásarher til aðstoðar." Karl Steinar
hvatti menn til sagnfræðirannsókna:
„Eg hygg að jiegar grannt verður
skoðað komi ýmislegt skuggalegt í
ljós er varðar tengsl einstaklinga og
flokks við einræðisríkin í austri.
Nokkrir heiðarlegir íslendingar hafa
t.d. upplýst hvernig austur-þýska
leyniþjónustan, Stasi, reyndi að fá
þá til að njósna um félaga sína.
Ástæða er til að rannsaka hvort allt
hafí verið upplýst. Hvort allir þeir
er voru styrkþegar í Austur-Þýska-
landi eða þeir sem títt voru gistivinir
kommúnistanna hafí greint frá því
er þá varðaði í þessum efnum.“
Það var engin þröng þingmanna
í fundarsal er Karl Steinar flutti sína
átölu. Bæði var það að margir þing-
manna voru að neyta hádegisvei'ðar
og margir voru að undirbúa ræður
sínar fyrir utandagskrárumræðu sem
hefjast skyldi stuttu síðar. Voru því
fáir til andsvara og engir þeirra þing-
manna sem sem dvalið eða numið
höfðu í hinum svonefndu sósíalísku
eða kommúnísku alþýðulýðveldum.
En viðstadddur alþýðubandalags-
maður, Kristinn H. Gunnarsson
(Ab-Vf), sagði Karl Steinar hafa
haldið mjög sérstæða ræðu; vegið
með grófum hætti að þingmönnum
í öðrum flokkum og nefnt Alþýðu-
bandalagið og dregið undir sama
hatt og það sem hann hefði verið að
gagnrýna.
Hvanneyri:
Gæðaskinn hjá loð-
dvrabændum á sam-
eiginlegri sýningu
Hvanntúni í Andakíl.
I FYRSTA sinn sýndu loðdýraræktarfélög á Suðurlandi og Vestur-
landi sameiginlega refa- og minnkaskinn á Hvanneyri á dögunum.
Bændur af hvenu svæði kepptu um verðlaun um bestu búntin.
Alls bárust 70 minnkaskinn og
40 refaskinn í 36 búntum frá 12
framleiðendum, í hveiju búnti eru
3 skinn sem framleiðandi velur
saman í samkeppnina. Sýningin
bar þess glöggt merki að loðdýra-
bændum hefur fækkað mjög en
það kemur ekki niður á gæðum
skinnanna, þau eru betri en áður
hefur sést á sýningum hér á landi.
Dómarar voru Siguijón B. Jónsson,
Helgi Eggertsson og Bjarni
Stefánsson. Bjarni leiðbeinir bænd-
um á Vesturlandi í loðdýrarækt
og sá hann um framkvæmd sýn-
ingarinnar. Loðdýraræktarfélögin
stóðu að sýningunni og sagði
Bjarni í ávarpi sínu að sýning sem
þessi væri mikilvægur hlekkur í
ræktunarstarfinu og í félagslegu
tilliti.
Búi Vífilsson, Krókum, hlaut
bikar fyrir besta búntið á Vestur-
landi í minnkaskinnum fyrir pa-
stelafbrigði, 169 stig, og annan
bikar fyrir besta búntið af ref, 183
stig. I samkeppni Sunnlendinga
áttu Þorbjörn Sigurðsson, Ásgerði
og Björgvin Sveinsson, Torfustöð-
um bestu minnkabúntin, hlutu 171
stig. Bikara fyrir besta refaskinnið
og besta refabúntið hlaut hinsveg-
ar Þorkell Gunnarsson, Stærri-Bæ.
- D.J.
Verðlaunahafar sem viðstaddir voru:
F.v. Eyþór Arnórsson, Búi Vífilsson,
Guðni Indriðason, Þorbjörn Sigurðsson,
Björgvin Sigurðsson og Þorkell Gunnars-
son.
Verðlaunaskinn
af Vesturlandi.