Morgunblaðið - 03.03.1992, Síða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPn/AIVINNULÍF ÞRIÐJUDAGUR 3. MARZ 1992
—
Fræðsla
HREINGERNINGAR
FYRIRTÆKJA
Reglulegar hreingeraingar eru nauðsynlegar öllum
fyrirtækjum og stofhunum.
SECURITAS h/f, hefur á annan áratug rekið
ræstingardeild sem tekur að sér hreingemingar
fyrir fyrirtæki og stofnanir á stór-
reykjavíkursvæðinu.
Reglulegar hreingemingar eru eðlilegur hluti af
rekstri vel rekinna fyrirtækja og stofnana. Þær bæta
ímynd og auka vellíðan viðskiptavina og
starfsmanna.
Hreingemingar saman standa m.a. af
teppahreinsun, gólfbónleysingu og -bónun,
innréttinga- og húsgagnahreinsun og gluggaþvotti.
Hreingemingar em nauðsynlegar viðhaldi allra
húsa.
Ræstingardeildin býður nú fram þjónustu sína á
sviði hreingeminga í fyrirtækinu þínu. Þjónusta
sem örugglega skilar árangri.
Við gerum þér tilboð án skuldbindinga!
RÆSTIN GARDEILD
sími 687600
Námskeið
hjá Ferda-
málaskóla
*
Islands
FERÐAMÁLASKÓLI íslands,
Menntaskólanum í Kópavogi,
efnir til námskeiðs um stefnu-
markandi áætlanagerð, fram-
kvæmd og eftirlit í ferðaþjónustu
dagana 9-11. mars nk. Fyrirles-
ari verður Caroline A. Cooper,
CHA, R.D. sem er leiðbeinandi
og forstjóri ferðamáladeildar við
bandarískan háskóla, Johnson &
Wales University, Rhode Island.
I fyrri hluta námskeiðsins verður
markaðsstaða landsins á alþjóðleg-
um ferðaþjónustumarkaði skoðuð
og fjallað um samkeppnisstefnu og
áætlanir, markhópa og skilgrein-
ingu markaðsstefnu, segir_ í frétt
frá Ferðamálaskólanum. í síðari
hluta námskeiðsins verður fjallað
um framkvæmd áætlunar og eftir-
lit með því að við það sé staðið sem
lofað er, þ.e. fyrsta flokks þjónustu.
Jafnframt verður fjallað um mikil-
vægi þjónustu t.d. menningarlega
þætti, val og þjálfun á starfsfólki,
valddreifingu, þekkingu á við-
skiptavinum, kosti góðrar þjónustu
o.fl.
Námskeiðið fer fram á ensku og
er ætlað fólki í ferðaþjónustu og
öðrum þeim sem áhuga hafa á ferð-
amálum. Það stendur frá kl. 10.00
til 16.00 alla dagana á Holiday Inn
hótelinu í Reykjavík.
Caroline A. Cooper veitir for-
stöðu deild hótel-, veitinga- og ferð-
amálastjórnunar við Johnson &
Wales University sem er ein sín
stærsta sinnar tegundar í veröld-
inni.
HÁSKÓLI ÍSLANDS
Endurmenntunarstofnun
STEFNUMÓTUN FYRIRTÆKJA
6. mars kl. 9.00-17.00
Efni: Fjallað verður um markmið og gagnsemi
af skipulegri vinnu við mótun skýrrar framtíð-
arstefnu fyrirtækja. Farið verður í aðferðir og
vinnuferli við stefnumótun. Tekið verður fyrir
hvernig fyrirtæki geta skoðað rekstrarum-
hverfi sitt og innri rekstur á kerfisbundinn
hátt, m.a. með það að markmiði að virkja sem
best styrkleika til að nýta tækifæri framtíðar.
Einnig verður fjallað um markmiðasetningu,
hvernig hrinda skuli stefnu í framkvæmd, teng-
ingu við árangur, hvernig tryggja megi sem
best að árangursmarkmiðum sé náð.
Leiðbeinendur: Gísli S. Arason, rekstrarráð-
gjafi hjá Stuðli hf. og lektor við viðskiptadeild
Háskóla íslands og Jóhann Magnússon,
rekstrarráðgjafi hjá Stuðli hf.
Námskeiðið er öllum opið.
Skráning í síma 694940,
en nánari upplýsingar hjá Endurmenntunar-
stof nun f símum 694923,694924 og 694925.
PAPPIRSLA US VIÐSKIPTI
NÚTÍMA VERKLAG í VIÐSKIPTUM
Námskeiðið mun kynna
pappírslaus viðskipti og hvernig
þau munu hafa áhrif á starfsemi
fyrirtækja með tilliti til hag-
kvæmni, öryggis og lagalegra
atriða. Farið verður í nokkur
dæmi um notkunarmöguleika og
skýrt frá þeirri reynslu, sem komin er á pappírs-
laus viðskipti á íslandi. Einnig erfariðyfir hvern-
ig skal hefjast handa og hvað þarf til.
Uppbygging námskeiðsins:
1. hfuti: Hugtökin EDI, SMT, Edifact.
Skilgreining á því hvað teljast pappírslaus við-
skipti og hvað ekki. Lagaleg atriði. Öryggismál.
Helstu aðilar hér innanlands. Sýning mynd-
bands.
2. hluti: Dæmi um notkunarmöguleika, sparn-
að, kostnað og fleira. Hórlendis og erlendis.
Tollur, banki, inn/útflytjandi. Skjalagerð vegna
sjávarvöruútflutnings. HvenæráSMT ekki við.
3. hluti: Staðan hér á landi. Hvernig á að byrja?
Hverjlr geta hjálpað? Hvað þarf til? Hvað
þarf að varast? Sýning myndbands.
Námskeiðið er ætlað stjórnendum í fyrirtækjum
og stofnunum, sem fara með fjármál, markaðs-
mál, innflutning og útflutning.
Leiðbeinendur:
Ágúst Valgeirsson, flugmálastjórn.
Guðmundur Hannesson, IBM.
Óskar B. Hauksson, Iðntæknistofnun.
Þorvarður Kári Ólafsson, Iðntæknistofnun.
Tími:
9. mars kl. 9.00 til 17.00 í Ánanaustum 15.
Sýórnunarmag Islands
Ánanaustum 15, sími 621066.
KYNNINGARIT — AUK hf.-Auglýsingastofa Kristínar hef-
ur gefið út kynningarrit um starfsemi sína í tilefni 25 ára afmælis
stofunnar. I ritinu er greint frá ýmsum verkefnum fyrirtækisins á
sviði grafískrar hönnunar og markaðssetningar. Þá eru í því fjölmörg
sýnishorn af auglýsingum, umbúðum, bókum og margvíslegu kynning-
arefni sem AUK hefur unnið fyrir viðskiptavini sína. Kynningarritinu
fylgir blað með spurningum um starfsemi AUK sem lesandinn er beð-
inn að svara og setja í póst. Er þetta liður í því verkefni auglýsinga-
stofunnar að komast að því með markvissari hætti en áður hvað núver-
andi og verðandi viðskipti vanhagar um svo unnt'sé að laga þjón-
ustuna að óskum þeirra og þörfum, segir í frétt frá stofunni.
Fyrirtæki
Endurskipulagning
og eigandaskipti
hjá Asíaco hf.
OLLUM starfsmönnum umboðs- og heildsölufyrirtækisins Asíaco
hf. var sagt upp störfum frá og með síðustu mánaðamótum og
er það liður í endurskipulagningu fyrirtækisins. Þannig er gert
ráð fyrir að starfsfólkið verði að einhverju leyti endurráðið. Þá
hefur Gunnar Óskarsson, forstjóri og annar aðaleigandinn, sagt
upp starfi sínu jafnframt því sem hann hefur sagt sig úr stjórn
fyrirtækisins. í hans stað hefur Páll Þorgeirsson tekið sæti í stjórn-
inni sem stjórnarformaður.
Páll tekur við stjórnarfor-
mennsku af Eyjólfi Brynjólfssyni,
meðeiganda Gunnars í fyrirtækinu
og hefur lagt drög að því að kaupa
fyrirtækið, samkvæmt upplýsing-
um Morgunblaðsins.
Erfiðleikar hafa verið í rekstri
Asíaco að undanförnu sem m.a.
má rekja til samdráttar og rekstr-
arerfiðleika hjá sjávarútvegsfyrir-
tækjum. Þannig hefur sala veiðar-
færa og annarra útgerðarvara far-
ið minnkandi svo og útflutningur
á ferskum fiski en Asíaco er um-
svifamikill aðili á þessum sviðum.
í kjölfarið hefur fyrirtækið misst
umboð fyrir rekstrarvörur og veið-
í ÚRVALI FYRIR:
• Verktaka____________
• Fiskeldi____________
• Skip/báta___________
• Frystihús___________
• Sumarhús____________
• Sundlaugar__________
• Skolpkerfi _________
• Skrúógaróa__________
• Áhaldaleigur
O.fl.o.fl.
Ráðgjöf - Sala - Þjónusta !
Einkaumboð á (slandi:
Skútuvogur 12A - 0 812530
arfæri m.a. umboð fyrir Tork
hreinlætisvörur.
Noregur
Mikið tap
á rekstri
hjá DnB
Den norske Bank tapaði um
47 milljörðum ÍSK. á síðasta
ári. Kemur þetta fram í ný-
birtum reikningum hans og
er staðan nú þannig, að verði
ekki umskipti til hins betra í
norsku efnahagslífi á þessu
ári er hætt við, að allt hlut-
afé einstaklinga í bankanum
tapist. Það þýðir, að þá verða
allir stóru bankarnir í Noregi
komnir í ríkiseigu.
Búist er við, að mikið tap
verði á Den norske Bank eða
DnB á þessu ári einnig og lifni
ekki yfir efnahagsmálunum eru
engar horfur á, að skilvísi lán-
takenda batni mikið. Banka-
kreppunni í Noregi er sem sagt
ekki lokið þótt ríkið hafi lagt
illa stöddum bönkum til um 150
milljarða ÍSK. á síðasta ári.
Den norske Bank er síðasti
stóri viðskiptabankinn í Noregi,
sem einstaklingar eiga hlut í.
Ríkið hefur tekið alveg upp á
sína arma Christiania Bank og
Kreditkasse og Fokus Bank í
Þrándheimi. Síðar á árinu
stefnir DnB að hlutfjárútboði á
einkamarkaðinum og ef vel
tekst til fer hlutfjáreign ein-
staklinga og félaga þá í 43%.