Morgunblaðið - 03.03.1992, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPn AIVINNULÍF ÞRIÐJUDAGUR 3. MARZ 1992
35
Stjórnun
Marinó G. Njálsson
Sveigjanleg fyrirtæki —
öðruvísi stjórnunartækni
Morgunbladið/KGA
BOKHALD “■ Kristjana Grímsdóttir (t.v.) og Ásta Ólöf Jóns-
dóttir í Fjárráði hf. aðstoða við bókhald og framtöl.
Bókhald
Aðstoð við bókhald
og framtöl
FYRIRTÆKIÐ Fjárráð hf. var stofnað fyrir nokkru og býður ein-
staklingum með atvinnurekstur aðstoð við bókhald, s.s. uppgjör á
staðgreiðslu, tryggingargjöldum, virðisaukaskatti og fleiru. Að fyrir-
tækinu standa Kristjana Grímsdóttir viðskiptafræðingur, Svavar
Kristinsson og Sveinn Guðmundsson.
í Bandaríkjunum hefur undanf-
arin ár verið að þróast ný stjórnun-
artækni, sem líkja má við dansara
á sviði. Fyrst mynda þeir fallegt
blóm á sviðinu, þá leystist allt upp
í smá ringulreið og stuttu seinna
er búin til önnur falleg mynd á
sviðinu. Hjá fyrirtækjum er þetta
þannig, að fyrst sameinast allir í
fyrirtækinu um eitthvert eitt verk-
efni, síðan fer hver í sitt horn og
vinnur að sínum sérverkefnum og
seinna er fólk komið í annað hóp-
verkefni.
Lögð er áhersla á sveigjanleika
hvers starfsmanns og starfssviðs
hans. Þetta fyrirkomulag gengur
þvert gegn kerfinu, til að sinna
þörfum viðskiptavinarins betur og
gera fyrirtækið samkeppnishæfara.
Það byggir á því, að hver starfsmað-
ur hefur meiri yfirsýn yfír starfsfer-
il sinn og leiðir til að bæta hann, í
staðinn fyrir að treysta á leiðsögn
yfirmanns. Þetta þýðir að starfsfólk
yfirgefur stöður sínar tímabundið
til að sinna öðrum verkefnum innan
fyrirtækisins. Þetta þýðir ekki
myndun samráðshópa, sem bara
ræða um lausnir og koma með til-
lögur, heldur framkvæma einnig.
Skipulagt með tölvu
Svona sveigjanlegt fyrirtæki í
fullri mynd er ekki til enn þá, en
mjög mörg fyrirtæki hafa tekið upp
þessa stjórnunarhætti að nokkru
eða jafnvel miklu leyti. Má þar
nefna Apple-tölvufyrirtækið, Cy-
press Semiconductor, Levi Strauss
og Xerox. Cypress, sem framleiðir
tölvuörgjörva, hefur meira að segja
þróað tölvukerfi, þar sem fylgjast
má með ferðalögum 1.500 starfs-
manna fyrirtækisins milli mismun-
andi starfssviða, hópa og verkefna.
Með svona tölvukerfi er hægt að
sjá undir eins hvort viðkomandi
starfsmaður getur tekið þátt í
ákveðnu verkefni, hver menntun
hans er og hæfni og hvar hann er
innan fyrirtækisins. Einnig er hægt
að fylgjast með framgangi hvers
verks og hvernig hveijum einstakl-
ingi gengur.
Innan flestra fyrirtækja er þegar
einhvers konar hópamyndun. Þessir
hópar byggja oft á vinskap einstakl-
inga eða valdatengslum. Stundum
er það einfaldlega, að einstakir
starfsmenn fara óhefðbundnar leið-
ir innan fyrirtækisins til að koma
verki í framkvæmd, möppudýrum
til mikillar armæðu. Þetta er ekkert
nýtt. Það sem er nýtt, er að fyrir-
tæki eru farin að átta sig á mikil-
vægi þessara hópa og gefa þeim
Athyglisvert þykir, að í desember
síðastliðnum var ekki einu sinni lít-
il verðbólga í Danmörku, heldur
verðhjöðnun því að þá lækkaði verð-
lag um 0,3%. Það er met í Evrópu-
bandalagsríkjunum 12 og meðal
OECD-ríkjanna 24 voru það aðeins
Japan og Kanada, sem gerðu bet-
ur, en þar hjaðnaði verðlag um
0,5%.
Ef litið er á allt síðasta ár voru
Danir fremstir, jafnt innan EB og
OECD, með 2,4% verðbólgu en
meðaltalið í OECD-ríkjunum var
6%.
Ilelstu keppinautar Danmerkur
að þessu lorfi voru Nýja-Sjáland
með 2,6% verðbólgu; Frakkland
meira frelsi og það fjármagn sem
þeir þurfa.ep
Skapandi og frumleg
vinnubrögð
Sveigjanlegt fyrirtæki nær í
styrk sinn til óhefðbundnu aðferð-
anna. Það opnar fyrir skapandi og
frumleg vinnubrögð, scun oft fyrir-
finnast bara hjá litlum framsækn-
um fyrirtækjum. Með þessu samein-
ar fyrirtækið sínar þarfír, þ.e. nýj-
ungar og framfarir, við það sem
starfsfólkið sækist eftir, þ.e. tæki-
færið til að nota heilann og bæta
hæfni sína. Hinn sígildi fyrirtækja-
pýramídi verkar í öfuga átt. Þegar
fólk veit að fyrirmæli eða minnis-
blað koma að ofan með kröfu um
að eitthvað sé gert öðruvísi en það
vill, er hætta á því að fólk missi
viljann til að hafa frumkvæði og
bíði bara eftir að ný fyrirmæli ber-
ist.
Margir ráðamenn bandarískra
fyrirtækja halda því fram að það
að gefa tauminn lausan á þennan
hátt sé besta leiðin til að auka sam-
keppnishæfni þarlendra fyrirtækja,
betra en nokkur gæðaþjálfun. Eg
held að það eigi einnig við um ís-
lensk fyrirtæki. Að virkja á réttan
máta þá auðlind, sem felst í starfs-
fólki sínu, er hveiju fyrirtæki lífs-
nauðsynlegt, sérstaklega á sam-
dráttartímum.
Ekki án áhættu
Þessir stjórnunarhættir bjóða
upp á ýmsar hættur. Ef enginn lít-
ur eftir með starfsmanni, hvað kem-
ur í veg fyrir að hann taki ranga
stefnu? Hver ákveður hver fari í
hvern vinnuhóp og hve lengi? Hver
á að dæma um frammistöðu þess
sem er stöðugt að færa sig á milli
vinnuhópa? Hvað verður um starfs-
frama, þegar ekki er nein augljós
leið upp á við?
Fyrst er það að segja, að það
hentar ekki öllum fyrirtækjum að
taka upp starfshætti sveigjanlegs
fyrirtækis. Fyrir fyrirtæki á róleg-
um, hægt vaxandi markaði með litla
óvissu um framtíðina, er réttast að
halda sig við gamla pýramídakerfið.
Slík stigskipting var búin til fyrir
stöðugt markaðsumhverfi, en fyrir-
tækjum, sem búa við það, fer stöð-
ugt fækkandi. Á móti þurfa mörg
fyrirtæki að búa við markaðsum-
hverfi, sem tekur stöðugum breyt-
ingum og taka þarf tillit til breyttra
aðstæðna liggur við á hveijum degi.
Hvernig lítur sveigjanlegt
fyrirtæki út?
Enginn veit það fyrir víst hvern-
með 3%; Luxemborg 3,1%; Ástralía
og Belgía 3,2%; Japan og Austur-
ríki 3,3%; Noregur 3,4% og Þýska-
land 3,5%.
Ef litið er á hinn endann hjá
OECD-ríkjunum eru Tyrkir mestu
syndaselirnir með 66% verðbólgu,
Grikkir með 18,9% og Portúgalir
með 11,4% en að öðru leyti er ekk-
ert OECD-ríki með tveggja stafa
veðbólgu.
Til jafnaðar hefur verðbólgan
minnkað meira í EB-ríkjum en
OECD-ríkjum. Frá 1979 til 1988
var EB-verðbólgan 8,6% að meðal-
tali en 5,1% 1991. í OECD hefur
hún minnkað um hálft prósent, úr
7,5% í 6%.
ig sveigjanlegt fyrirtæki lítur út,
en það hefur ekki hindrað menn í
að koma með alls konar skilgrein-
ingar. Einn líkir því við netkerfi,
þar sem framkvæmdastjórinn er við
stjórnborðið, sífellt að samræma
aðgerðir starfsmanna, birgja, við-
skiptavina og samstarfsaðila. Ann-
ar líkir því við Mödibusarhring, án
upphafs, endis, topps eða botns. Sá
þriðji líkir því við körfuboltalið, sí-
fellt á hreyfíngu, allir leikmenn
hafa almenna þekkingu og geta
leikið í öllum stöðum og stöðugt
verið að bregðast við mótleik and-
stæðingsins. Það er sama hvað við
köllum þetta, allt hefur eitt atriði
sameiginlegt: Flæði.
Flest sveigjanleg fyrirtæki halda
gömlu hefðunum í markaðsmálum,
sölunni og framleiðslunni, en hvetja
starfsmenn sína líka til að sýna
frumkvæði og mynda starfshópa,
sem bijóta upp hefðirnar. í stað
þess að treysta eingöngu á stjórnun
ofan frá eru starfsmenn hvattir til
að koma með sínar hugmyndir um
skipulag deilda sinna og hvernig
slá má keppinautunum við.
Öflug hópstjórnun
Svona fyrirkomulag krefst mikils
eftirlits. Hvernig getum við tryggt
að allir starfsmenn séu yfír höfuð
að vinna. Hvernig breytist launa-
kerfið eða stöðuhækkanir? Fyrirlið-
ar vinnuhópa þurfa að læra öfluga
hópstjóm og skipulagningu. Fyrstu
tveir, þrír dagarnir þurfa að fara í
að ákveða hvernig á að takast á
við viðfangsefnið, kanna tengsl þess
við önnur viðfangsefni fyrirtækisins
og fínna rétt fólk í hópinn. Eftir
það er fyrst hægt að hefjast handa.
Góð verkstjórnun og skipulag eru
mikilvægari í svona fyrirtæki, en
víðast annars staðar.
Sveigjanleg fyrirtæki em opin
fyrir utanaðkomandi hugmyndum.
Þau sjá hagræðið í því að ráða fólk
með ferskar hugmyndir til sér-
stakra verkefna. Eða tengjast öðr-
um fyrirtækjum með samstarfi,
samruna, fyrirtækjaneti eða á ann-
an máta. Mestu máli skiptir að við-
urkenna að ekki er öll þekking fyr-
ir hendi innan dyra og fá viðskipta-
leyndarmál eru svo heilög að ekki
sé hægt að fara í samstarf með
öðmm. Fyrir mörg fyrirtæki er
þetta leiðin út á stærri markað.
Tækifærið til að vaxa og dafna.
Höfundur ermeð verkfræðigráðu
í aðgerðarannsóknum frá Stan-
ford-háskóla.
SPECK
Lensi-, slor-, skolp-,
sjó-, vatns- og
holræsa-dælur.
Útvegum einnig dælu-
sett meö raf-, Bensín-
og Diesel vélum.
Vesturgötu 16 - Simar 14680-132»
Að sögn Kristjönu er ætlunin að
ná sem mestri hagræðingu og tíma-
sparnaði fyrir viðskiptavini fyrir-
tækisins. Kristjana sagði að þessi
þjónusta kæmi sér sérstaklega vel
fyrir þá í-ekstraraðila sem störfuðu
einir eða væru með lítil fyrirtæki.
Fjárráð hf. býður einnig almenna
framtalsaðstoð fyrir einstaklinga,
bæði við erlend og innlend framtöl,
við gerð rekstrar- og fjárhagsáætl-
ana og aðstoð við skráningu rekst-
urs hjá skattyfírvöldum.
J-
Vinsælu hitalökin knmin aftnr
Fást aðeins hjá okkur.
Ný stórglæsileg dúkasending var að koma
Póstsendum um land allt.
Vefnaöarvöruverslunin
á horni Njálsgötu og Klapparstígs, sími 16088.
r
SIEMENS
Kœlí - oafrvstitœki ímiklu úrvati!
Lítið inn til okkar og skoðið vönduð
vestur-þýsk heimilistœki!
Hjá SIEMENS eru gœöi, ending og
fallegt útlit ávallt sett á oddinn!
SMITH&NORLAND
NÓATÚNI 4 • SlMI 28300
Danmörk
Sáralítil verðbólga
Segja má, að verðbólgan í Danmörku sé nú týnd og tröllum gefin,
að minnsta kosti ef miðað er við síðara misseri 1991. Þá settu Dan-
ir Evrópubandalagsmet í lítilli verðbólgu, sem mældist aðeins 0,8%
miðað við heilt ár.