Morgunblaðið - 03.03.1992, Side 36
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. MARZ 1992
56
Apple-skákmótið:
Islendingar heillum
horfnir í 1. umferð
__________Skák
Bragi Kristjánsson
APPLE-skákmótið, XV.
Reykjavíkurskákmótið, hófst í
skákheimili Taflfélags Reykja-
víkur í Faxafeni 12. Þátttak-
endur eru tólf, þar á meðal
stórmeistararnir Alexei Sírov
(Lettlandi), Vasilos Kotronias
(Grikklandi), Stuart Conquest
og James Plaskett (báðir Eng-
landi), Olivier Renet (Frakk-
Iandi) og okkar menn, Jóhann
Hjartarson, Margeir Péturs-
son, Helgi Ólafsson og Jón L.
Árnason. Alþjóðlegir meistar-
ar á stórmeistaratitilsveiðum
eru Hannes Hlífar Stefánsson,
Karl Þorsteins og Þröstur Þór-
hallsson. Keppnin á mótinu
ætti að geta orðið mjög
skemmtileg, því flestir erlendu
gestirnir eru þekktir fyrir að
tefla stíft til vinnings í hverri
skák. Fyrsta umferðin á
sunnudag var fjörug, en því
miður höfðu heilladísirnar
annað að gera en að sinna ís-
lensku keppendunum.
1. umferð:
Þröstur — Helgi, 'h-'h 20 leikir,
Kortonias — Jón L., 'h—'h 38
leikir, Conquest — Hannes Hlíf-
ar, 1-0 42 leikir, Plaskett — Jó-
hann, 1-0 34 leikir, Renet —
Karl, 1-0 33 leikir, Sírov — Mar-
geir, frestað til miðvikudags.
Jóhann kom aldrei góðu skipu-
lagi á stöðu sína gegn Plaskett
og mátti þola tap án mikillar
baráttu. Karl fékk góða stöðu í
byijun gegn Renet og Frakkinn
ákvað að fórna skiptamun til að
ná spili. Karli fataðist vörnin í
miklu tímahraki í stöðu, sem
óþarft var að tapa, þótt ekki
hefði hann vinningsmöguleika.
Hannes Hlífar hélt ró sinni, þótt
Conquest réðist á hann með mikl-
um látum. Fimm leikjum fyrir
tímamörkin lék Hannes illa af sér
í vinningsstöðu ogtapaði. Þröstur
og Helgi tefldu flókna byijun, en
sömdu jafntefli, áður en til mik-
illa átaka kom.
Kotronias og Jón L. tefldu
mikla fómarskák, sem lengi
fylgdi frægri skák Guðmundar
Siguijónssonar og Helga Ólafs-
sonar á alþjóðlega skákmótinu í
Neskaupstað 1984. Við skulum
nú sjá þessa skemmtilegu skák.
Hvítt: V. Kotronias
Svart: Jón L. Árnason
Sikileyjarvöm
1. e4 - c5, 2. Rf3 - d6, 3. d4
- cxd4, 4. Rxd4 - Rf6, 5. Rc3
- a6, 6. Be3 - e6, 7.g4!? -
(Grikkinn leggur hiklaust til at-
lögu, en rólegri skákmenn hefðu
t.d. íeikið hér 7. f4.)
7. - e5!? (Ekki stendur á hörðum
viðbrögðum hjá Jóni. Einnig kom
til greina að leika 7. - h6, t.d.
8. Hgl - b5, 9. a3 - Bb7, 10.
Bd3 - Rbd7, 11. h4 - e5, 12.
Rb3 - g6 o.s.frv.)
8. Rf5 - g6, 9. g5 - gxf5, 10.
exf5! (Eftir 10. gxf6 - f4, 11.
Bd2 - Be6 ásamt 7. - Rd7 stend-
ur svartur vel.)
10. - d5 (Svartur getur varla
leikið nokkru af viti eftir 10. -
Rg8, 11. Df3, þótt hann eigi
manni meira.)
11. gxf6 - (Önnur leið er hér
11. Df3 - d4, 12. 0-0-0 - Rbd7,
13. Bd2 - Dc7, 14. Bd3 - Rc5,
15. Bc4 - dxc3,16. Bxc3 - Rfe4,
17. Hhel - Rxc3, 18. Dxc3 -
Bg7, 19. f6 - 0-0, 20. Hxe5 -
Be6, 21. Bxe6 - Rxe6, 22. Dxc7
- Rxc7, 23. Hd7 - Hfe8, 24.
Hee7 - Hxe7, 25. fxe7 - Re6,
26. f4 - f5 með vinningsstöðu
fyrir svartan (Wdberg Novikov,
Kaupmannahöfn 1991).)
11. - d4, 12. Bc4 - Dc7 (Stað-
an er geysiflókin, en ekki lítur
vel út fyrir svartan að leika 12.
- Dxf6, 13. Rd5 - Dc6, 14.
Bxd4I? - Dxc4, 15. Rf6+ - Ke7,
16. Bxe5 með ýmsum hótunum,
m.a. 17. Dd6 mát. Svartur má
auðvitað ekki leika 12. - dcx3,
13. Bxf7+ - Kxf7, 14. Dcd8
o.s.frv. Helgi Ólafsson stakk á
sínum tíma upp á 12. - Bxf5!?,
13. Df3 - Dc8 o.s.frv.)
13. Dd3 - dxc3 (Eftir 13. -
Rd7, 14. Rd5 - Dc6, 15. Bxd4
- exd4, 16. De2+ - Kd8 17.
0-0-0 er aðstaða svarts ekki öf-
undsverð.)
14. 0-0-0 - Rc6, 15. Hhel -
cxb2+, 16. Kbl - Bb4, 17. Hgl
Hér bregður Grikkinn út af upp-
skrift Guðmundar Siguijónsson-
ar, en fegurðarverðlaunaskákin
við Helga Ólafsson á Neskaup-
stað 1984 tefldist þannig: 17. c3
- Ba3I, 18. Bf4 - Dd7I, 19. Bd5
- Dxd5I, 20. Dxd5 - Bxf5+, 21.
Hd3 - 0-0!, 22. Bh6 - Hfd8, 23.
Ilgl+ - Kh8, 24. Bg7+ - Kg8,
25. Bh6-i— Kh8, jafntefli.)
17. - Hf8, 18. f4 - exf4 (Hvað
annað?)
19. Bxf4?! (Ekki verður séð, að
svartur geti varist lengi eftir 19.
Bb6!? - Dxb6, 20. Hgel+ -
Re7, 21. fxe7 - Bxe7, 22. De4
- Df6, 23. Hd5 með hótununum
24. He5 eða 24. Hedl o.s.frv.)
19. - Dxf4, 20. Hgel+ - Bxel,
21. Hxel+ - Be6, 22. fxe6 -
Dd4 (Þar með sleppur svarti
kóngurinn yfir í jafnteflishöfn á
d-línunni.)
23. exf7++ - Kd8, 24. Dxd4+
- Rxd4, 25. Hdl - Kc7, 26.
Hxd4 - Had8, 27. Hg4 - Kd6!,
28. Hg5 - Hc8, 29. Bb3 - Hc5!,
30. Hg8 - Hcc8, 31. Hg7 - h6,
32. Kxb2 - Ke5, 33. Hg6 -
Kf5, 34. Hxh6 - Hh8, 35. Hxh8
- Hxh8, 36. Kc3 - Kxf6, 37.
Kb4 - b6, 38. Bc4 og keppendur
sömdu um jafntefli.
Þriðja umferð verður tefld í
kvöld kl. 17 í skákheimilinu í
Faxafeni 12 og þá tefla Conqu-
est — Kotonias, Þröstur — Jón
L., Sírov — Helgi, Plaskett —
Hannes Hlífar, Renet — Margeir,
Karl — Jóhann.
Sjálfsþjón-
usta Rétting-
ar og spraut-
unar hf.
NÝLEGA var opnað fyrirtækið
Réttingar og sprautun hf., Stór-
höfða 20, Reykjavík, sem býður
bílaeigendum nýja gerð af þjón-
ustu. Eigendum og umráða-
mönnum bíla gefst kostur á að-
stöðu til viðgerða á tjónabílum
og hverskonar málningarvinnu.
Boðið er upp á aðstöðu í full-
komnum réttingabekk með tilheyr-
andi búnaði, aðgang að handverk-
færum og mælibúnaði og einnig
sprautuklefa með öllum búnaði.
Starfsménn fyrirtækisins veita
ráðgjöf og aðstoð ef óskað er og
hjá fyrirtækinu starfar bifreiða-
smíðameistari sem tekur að sér að
mæla út og votta bíla vegna
nýskráningar.
Réttingar og sprautun hf. er
opið alla daga vikunnar frá kl.
8-22.
(Frcttatilkynning)
Pia Cramling stal senumii
á skákmótinu í Bern
Skák
Margeir Pétursson
ÞRJÁTÍU stórmeistarar og
fimmtíu alþjóðlegir meistarar í
hópi 270 keppenda var mun
meira en mótshaldarana í Bern
í Sviss óraði fyrir er þeir skipu-
lögðu mótið. 60% fjölgun kepp-
enda frá árinu áður olli því að
þröngt var setið í skáksalnum.
Straumur keppenda frá Austur-
Evrópu var skýringin á hinum
mikla fjölda keppenda og titil-
hafa. Baráttan um efsta sætið
var afar jöfn og spennandi. Sig-
urvegari varð Rússinn Andrei
Sokolov, sem tefldi til úrslita
við Karpov árið 1987 um áskor-
unarréttinn á heimsmeistarann.
Eins og oft á mótum í Sviss var
það banki sem stóð fyrir mótinu.
Schweizerische Kreditanstalt
(SKA) er nú að verða einn stærsti
styrkjandi skákmóta í heimi, á
hlut að fjölda móta á hveiju ári
bæði í Sviss og Þýskalandi. SKA
kom þó hvergi nálægt mótinu í
Bern, heldur var það Schweizer-
ische Volksbank sem hækkaði
verðlaunin frá árinu áður með
þessum frábæra árangin. Líklegt
má telja að mótið verði ennþá
sterkara að ári.
Rétt eins og hér á íslandi 1984
náði sænska stúlkan Pia Cramling
að stela senunni. Þá misst hún
flugið, en nú var hún í toppbarátt-
unni allt mótið og náði að deila
öðru sætinu og hlaut sinn síðasta
áfanga að stórmeistaratitli karla.
Hún er fyrsta vestræna konan sem
nær því marki.
Andrei Sokolov mátti þola
nokkur mögur ár í kjölfar
stórtaps fyrir Karpov í einvígi
1987. Hann var þó sá eini sem
vann bæði Kasparov og Karpov
í síðustu heimsbikarkeppni. Nú
náði hann sér á strik á stóru
opnu móti í Bern.
Ég fór fullrólega af stað á mót-
inu, eftir tvo sigra í upphafi gerði
ég þijú jafntefli í röð. Með góðum
endaspretti náði ég að deila öðru
sætinu. í lokin fékk ég þijá og
hálfan vinning úr fjórum skákum
gegn þremur Rússum og einum
Letta.
Úrslit:
1. Andrei Sokolov, Rússlandi Vh
v. af 9 mögulegum
2-12. Pia Cramling, Svíþjóð, Glenn
Flear, Englandi, Anatólí Vaiser,
Rússlandi, Boris Gulko, Banda-
ríkjunum, Paul Motwani, Skot-
landi, Edwin Kengis, Lettlandi,
Andrei Kharlov, Rússlandi, Mar-
geir Pétursson, Vlastimil Hort,
Þýskalandi, Daniel King, Englandi
og Ketevan Arakhamia, Georgíu
7 v.
13-25. Rosentalis og Kveinys, Lit-
háen, Gheorghiu, Rúmeníu, Barlov
og Vukanovic, Júgóslavíu, Ragos-
ín og íbragimov, Rússlandi, Csom,
Ungveijalandi, Wojtkiewicz, Pól-
landi, Shabalov, Lettlandi, Hebd-
en, Englandi, Barle, Slóveníu og
Hoffmann, Argentínu G'h v.
Á meðal þeirra sem hlutu 6
vinninga voru hinir kunnu stór-
meistarar Tukmakov og Gavrikov.
Þar sem sjö vinninga þurfti í verð-
launasæti fór mikill fjöldi öflugra
skákmanna tómhentur frá Bern.
Árangur skákmanna frá fyrrum
Sovétríkjunum hefur oft verið
betri á slíkum mótum. Virðist það
láta súmum þeirra betur að tefla
undir rauða fánanum.
Stigahæsti keppandinn á mót-
inu, Eduard Rosentalis frá Litháen
(2.585), hefur verið sigursæll á
opnum mótum síðustu tvö árin. I
fimmtu umferð vann Sokolov mik-
ilvægan sigur á honum með
svörtu. 1 þeirri skák beitti Sokolov
Aljekíns- vörn, sem var afar vin-
sæl á mótinu í Bern, ekki síst hjá
Rússunum. Hvort um nýja tísku-
sveiflu verður að ræða er of
snemmt að spá um, en á undan-
förnum árum hefur byijunin ekki
þótt fýsilegur kostur. Hvítt: Ros-
entalis, Lettlandi.
Svart: Sokolov, Rússlandi.
Aljekín-vörn
1. e4 - Rf6 2. e5 - Rd5 3. d4
— d6 4. Rf3 — dxe5 5. Rxe5 —
Rd7!?
Kastar rauðri dulu framan í
hvít, sem verður að fórna manni
til að halda frumkvæðinu. Það var
Bent Larsen sem fyrstur lék þess-
um leik gegn sjálfum Mikhail Tal,
í fimmtu skák þeirra í áskorenda-
einvígi árið 1965. Aldrei þessu
vant lagði Tal ekki í að fórna,
svaraði með hinum linkulega leik
6. Bc4, eftir 45 mínútna umhugs-
un, og tapaði skákinni. Síðan hef-
ur mikið vatn runnið til sjávar og
fórnin verið rannsökuð gaumgæfi-
lega.
6. Rxf7 - Kxf7 7. Dh5+ - Ke6
8. c4
Hér gæti hvítur leikið 8. Dg4+
eða 8. Dh3+ og þráskákað.
8. - R5f6 9. d5+ - Kd6 10. Df7
- Re5 11. Bf4 - c5 12. Rc3 - a6
13. 0-0-0?
Þekkt mistök sem hvíti urðu
einnig á í skákinni deFirmian-Roh-
de, Bandaríska meistaramótinu
1989. Hættulegasta framhald
hvíts í stöðunni hefur lengi verið
talið 13. b4! sem svartur svarar
líklega best með 13. — Db6 14.
bxc5+ — Dxc5 15. Hdl — g5! í
stað hins gamla 15. — Bf5 16.
Hd3! - Bxd3 17. De6+ - Kc7
18. Be5+ — Kd8 19. Bxd3 sem
finna má í fræðibókum.
13. - g6!
Sýnir strax fram á gallann við
langhrókunina. Svartur hótar
óþyrmilega 14. — Bh6.
14. Bxe5+ - Kxe5 15. d6 -
Bh6+ 16. Kc2 - De8 17. Hd5 -
Rxd5 18. Dxd5+ - Kf6 19. Bd3
Nú fyrst breytir Rosentalis út
af fyrrgreindri skák Bandaríkja-
mannanna, en það er um seinan.
Eftir 19. Re4+ — Kg7 stóð
deFirmian einnig uppi með tapað
tafl.
19. - exd6 20. Dxd6 - Kf7 21.
Re4 - Dc6 22. De5 - Hd8 og
hvítur gafst upp.
Eftir þennan ótrúlega auðvelda
sigur var Sokolov heppinn með
andstæðing í sjöttu umferð, sigr-
aði hinn stigalága króatíska stór-
meistara Ivan Nemet örugglega.
Hann gat síðan leyft sér að gera
þijú stutt jafntefli í síðustu um-
ferðunum. Keppinautarnir lögðu
ekki í að reyna að ná honum, því
tap hefði þýtt fall úr verðlauna-
sæti.
Olympíuskákmót í júní
Oiympíuskákmótið fer fram í
Manila á Filippseyjum frá 7-25.
júní í sumar. Aætlaður kostnaður
Skáksambands íslands af því að
senda sex manna lið á mótið ásamt
fararstjórum er 1,8 millj. króna.
Vegna allra breytinganna í
Austur-Evrópu eru yfirgnæfandi
líkur á því að mun lleiri sterkar
sveitir en áður verði með. Á síðasta
móti í Novi Sad í Júgóslavíu 1990
var íslenska liðinu raðað í áttunda
sæti í styrkleikaröðinni, en nú er
ljóst að a.m.k. fimm sveitir frá
Sovétríkjunum fyrrverandi verða
metnar hærri. Það eru Úkraína,
Hvíta-Rússland, Eistland, Lettland
og Litháen. Þjóðverjar verða einnig
metnir hærri, því stjórn
skáksambands þeirra hefur
ákveðið að taka Rússann
Alexander Khalifman inn i liðið,
en hann hefur í tvö ár verið
búsettur í Frankfurt. Var þetta
gert þrátt fyrir andstöðu
tækninefndar þýska sambandsins
og kurr í röðum þarlendra
meistara. íslendingar verða því í
hæsta lagi metnir með 14.
sterkasta liðið og það er ljóst að
aldrei hefur verið við jafn ramman
reip að draga. Æfingar eru hafnar.