Morgunblaðið - 03.03.1992, Page 38
38
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. MARZ 1992
ATVIN N1BAUGL YSINGAR
Vistforeldrar óskast
Vistforeldrar óskast á Reykjavíkursvæðinu
fyrir 11 ára dreng.
Frekari upplýsingar gefur félagsmálastjóri
Hafnar í Hornafirði í síma 97-81222.
Reyðarfjarðarhreppur
Laus staða
Staða yfirhafnarvarðar við Reyðarfjarðarhöfn
er laus til umsóknar.
Staðan veitist frá 1. júní nk.
Umsóknarfrestur er til 31. mars nk. og skal
senda umsóknir til undirritaðs, sem veitir
allar nánari upplýsingar um starfið í síma
97-41245 eða á skrifstofu sveitarfélagsins,
Heiðarvegi 5, 730 Reyðarfirði.
ísakJ. Ólafsson,
sveitarstjóri.
Sölumaður
Fyrirtæki úti á landi óskar eftir sölumanni.
Æskilegt er að umsækjandi hafi áhuga/þekk-
ingu á bíla/skipavélum. Umsækjandi fær
góðar prósentur af sölu.
Upplýsingar sendist til auglýsingadeildar
Mbl. merktar: „D - 7494“.
Verkstjóri
Verkstjóri óskast að fiskvinnslu á Suðurnesj-
um. Þarf að vera með réttindi fyrir frystingu
og saltfisk.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir
10.3. merkt: „Verkstjóri - 14874“.
Skipulagsfræðingur
Samvinnunefnd um svæðisskipulag Dala- og
Austur-Barðastrandarsýslu óskar að ráða
starfsmann með sérmenntun í skipulags-
fræðum og starfsreynslu á því sviði. Sam-
vinnunefndin er skipuð tveimur fulltrúum frá
hverju 7 sveitarfélaga í Dalasýslu og tveimur
fulltrúum Reykhólahrepps. Formaður sam-
vinnunefndar er Snæbjörn Jónasson, skipað-
ur af skipulagsstjórn ríkisins.
Hlutverk starfsmannsins verður að vinna að
gerð tillögu að svæðisskipulagi fyrir ofan-
greint svæði og er áætlað að því verkefni
Ijúki eigi síðar en 1. júní 1994. Tillagan verð-
ur unnin í samræmi við skipulagsreglugerð
nr. 318/1985 og samkvæmt nánari fyrirmæl-
um samvinnunefndarinnar. Sérstök áhersla
verður lögð á atvinnumál, samgöngumál og
samstarf við verkefnisstjóra sem ráðnir hafa
verið í átaksverkefni á svæðinu.
Umsækandi þarf að geta hafið störf 1. júní
1992 og stefnt er að því að sá sem verður
ráðinn hafi búsetu á svæðinu á meðan unn-
ið er að verkefninu.
Umsóknum ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf skal skila til Skipulags ríkisins,
Laugavegi 166, 150 Reykjavík, fyrir 1. apríl
1992.
Nánari upplýsingar veitir: Guðrún Halla
Gunnarsdóttir, verkefnisstjóri hjá Skipulagi
ríkisins í síma 624100. Græn lína 996100.
RAÐAUa YSINGAR
f|j ÚTBOÐ
Forval - sundlaug í Árbæ
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h.
byggingadeildar borgarverlcfræðings, óskar
eftir umsóknum verktaka sem hefðu áhuga
á að taka þátt í lokuðu útboði vegna bygging-
ar sundlaugar í Árbæjarhverfi. Um er að
ræða fullbúið mannvirki með öllum helstu
tækjum og kerfum.
Forvalsgögn verða afhent á skrifstofu vorri,
Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík.
Forvalsgögnum skal skilað á sama stað eigi
síðar en þriðjudaginn 17. mars 1992,
kl. 16.00.
INÍMKAUPASTOPNUN reykjavikurborgar'
Frikirkjuvegi 3 Simi25800
BOBG
J
Uppboð
Síðustu forvöð að koma myndum inn á næsta
málverkauppboð Gallerí Borgar, sem haldið
verður sunnudaginn 8. mars nk., er í dag,
þriðjudaginn 3. mars.
Gallerí Borg v/Austurvöll, s. 24211
Opið virka daga frá kl. 14.00-18.00
FUNDIR - MANNFA GNAÐUR
|lfVlli|VIIVI|
Viðeyingafélagið
Aðalfundur Viðeyingafélagsins verður hald-
inn í húsi Slysavarnafélagsins, Grandagarði 14,
sunnudaginn 8. mars og hefst kl. 14.00.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
mmmm
HLJOÐMURINN 3EI
(r // íf / 'sÆó/z
Gítarkennsla
Frjálst gítarnám eftir þínu höfði fyrir fólk á
öllum aldri.
Nánari upplýsingar í síma 672688 (allan sól-
arhringinn). Leiðbeinandi Jóhannes Pétur
Davíðsson, gítarleikari. Ath.: Skráning á
bassanámskeiðin er hafin.
Nauðungaruppboð
þriðja og siðasta á eftirtöldum eignum:
Lindargötu 5, n.h., Sauðárkróki, þingl. eigandi Steindór Árnason, fer
fram á eigninni sjálfri fimmtudaginn 5. mars 1992, kl. 10.00.
Uppboðsbeiðendur eru Ingi H. Sigurðsson hdl. og Lögmenn Sel-
tjarnarnesi.
Reykjum, Hólahreppi, ibúðarhúsi, þingl. eigandi Ástvaldur Jóhannes-
son, fer fram á eigninni sjálfri fimmtudaginn 5. mars 1992, kl. 14.00.
Uppboðsbeiðendur eru Lögmenn Hamraborg 12, veðdeild Lands-
banka íslands og Lagastoð hf.
Sýslumaðurinn í Skagafjarðarsýslu.
Bæjarfógetinn á Sauðárkróki.
Garðbæingar
Huginn, FUS í Garðabæ, gengst fyrir fundi með bæjarfulltrúum Sjálf-
stæðisflokksins í dag, þriðjudaginn 3. mars, kl. 20.00 í Fjölbrautaskól-
anum í Garðabæ.
Ingimundur Sigurpálsson, bæjarstjóri, mun flytja framsögu og að
henni lokinni sitja bæjarfulltrúarnir fyrir svörum.
Huginn FUS.
Kjaramál - atvinnumál
Almennur fundur um kjara- og atvinnumál
verður haldinn fimmtudaginn 5. mars kl.
20.30 í húsakynnum Sjálfstæðisflokksins í
Kópavogi, Hamraborg 1. Ræðumenn verða
Einar Oddur Kristjánsson, Guðmundur J.
Guðmundsson og Gunnar Birgisson. Fund-
arstjóri verður Sigurrós Þorgrímsdóttir.
Fundurinn er öllum opinn og er fólk hvatt
til að mæta.
Sjálfstæðisfélagið í Kópavogi og Baldur.
H,‘ýj 1-'Jj&ýiz/. ... Hmi Mi .............
Laxveiði
Til sölu eru veiðileyfi í Svalbarðsá, Þistilfirði,
næsta sumar eða til fleiri ára gegn samkomu-
lagi.
Upplýsingar í síma 91 -35098, fax 91 -33316.
Jónas Þ. Sigurðsson.
Lutz Görner
les og túlkar
25 perlur þýskrar Ijóðagerðar frá Goethe til
Fried í dag, þriðjudaginn 3.3. 1992, kl. 20.30
í Norræna húsinu.
Allir velkomnir.
Goethe-lnstitute.
í Sóknarsalnum, Skipholti 50a.
Fundurinn hefst stundvíslega
kl. 20.00. Sýna þarf félagsskír-
teini frá 1991 við innganginn.
Sýnið félagi ykkar áhuga og
komið á aðalfundinn.
Ath.: Á aðalfundi verður hægt
að skrá sig á vetrarfagnað og
kaupa miða.
Vetrarfagnaður Ferða-
félagsins7. mars
I þetta sinn hefur verið valinn
samkomustaður sem er nýstár-
legur, þ.e. fjós og hlaða, að
bænum Efstalandi í Ölfusi.
Veislugestir fá fordrykk, glæsi-
legan veislumat, hlaðborð í Fjós-
inu, og svo verður dansað í Hlöð-
unni. Ógleymanleg skemmtiatr-
iði og er víða borið niður. Þetta
er skemmtun sem enginn ætti
að láta fram hjá sér fara. Pantið
miða á skrifstofunni. Verð kr.
3.600,- (matur og rúta innifalið).
Brottförfrá Mörkinni 6 stundvis-
lega kl. 18.00 á laugardaginn.
Ferðafélag íslands.
Lærið vélritun
Morgunámskeið er að hefjast.
Vélritunarskólinn, sími 28040.
□ EDDA 5992337 = 1
HELGAFELL 5992337 VI 2
□ FJÖLNIR 599203037 - 1 Atk.
Frl.
□ SINDRI 5992337 - 1
I.O.O.F. Rb. 4 = 141338 - Lh.
Ljósheimar
ísl. heilunarfélagið
Fyrri áfangi vetrarnámskeiðs
Ljósheima, fsl. heilunarfélags-
ins, verður endurtekinn helgarn-
ar 7.-8. og 28.-29. mars. f þess-
um fyrri áfanga verður m.a.
kennt um innri líkama mannsins,
áruna og orkustöðvarnar, um
sjálfsvernd og farið í grundvall-
aratriði hugleiðslutækni.
Skráning er hafin í simum
624464 og 674373. Skrifstofan
er opin á Hverfisgötu 105 alla
miðvikudaga frá kl. 14-15.30.
FERÐAFELAG
ÍSlANDS
ÖLDUGÖTU 3 & 11798 19533
Aðalfundur Ferðafélags
íslands
Aðalfundur félagsins verður
haldinn miðvikudaginn 4. mars
BIútivist
Hallveigarstíg 1, síml 14606
Myndakvöld 5. mars
kl. 20.30:
Sýndar verða frábærar myndir
frá sumarleyfisferð Útivistar sl..
sumar ui .'"L.LLgfjúfur. Kynn-
ir verður Ásta Þorleifsdóttir, far-
arstjóri. Kaffihlaðborð er innifal-
ið i aðgangseyri.
Um næstu helgi:
7.-8. mars. Skíðaganga um Hell-
isheiði. Gist í tjöldum!
Sjáumstl Útivist.
wmmmmmmmmmm
■■■■■■
nfíwfiit
m or.