Morgunblaðið - 03.03.1992, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. MARZ 1992
39
BRÆÐRABYLTA
Steppað til signrs
í mannlegum samskiptum verða þeir bræður, Morse og Morten-
sen, báðir undir.
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Stjörnubíó:
Bræður munu beijast - „The
Indian Runner".
Leikstjórn og handrit Sean
Penn. Tónlist Jack Nitzche. Að-
alleikendur David Morse, Viggo
Mortensen, Valeria Golino,
Patricia Arquette, Charles
Bronson, Sandy Dennis, Dennis
Hopper. Bandarísk. Westmont
1991.
Er þau tíðindi spurðust. um
heimsbyggðina að Sean Penn —
sem þá var orðinn frægari sem
slagsmálahundur og Madonnumaki
en listamaður — væri sestur í leik-
stjórastólinn, stýrandi eigin hand-
riti, hafa margir hugsað sem svo;
strákurinn er náttúrlega að hressa
uppá ímyndina. Og frumraunin var
þessi persónulega mynd sem byggð
er á rokkaranum Highway Patrol-
man sem Bruce Springsteen söng
á árum áður.
Það er erfitt að teygja svo á
stuttum texta, þó hann sé hnitmið-
aður og bragðmikill, að hann end-
ist i langa kvikmynd. Og hún líður
fyrir það, svipað og Red-Headed
Stranger, sem Willie Nelson byggði
á sinni góðu plötu. Textinn skapar
þokkalegan bakgrunn en það kem-
ur ljóslega fram í þessari rÖsklega
tveggja tíma mynd, þegar fylla á
uppí rammann, að Penn er ekkert
skáld á borð við Springsteen, né
Nelson, ef útí þá sálma er farið.
Söguhetjumar eru bræður tveir
sem ólust upp i dreifbýli Nebraska-
fylkis uns leiðir skildu um hríð. Sá
eldri (Morse) tók við búinu en litli
bróðir (Mortensen) hélt á vígvöllinn
í Víetnam. Myndin hefst þegar
Morse er tekinn við fógetastörfum
eftir að býlið fór á hausinn og
Mortensen kemur heim úr stríðinu.
Strax kemur í ljós að hve ólíkir
þeir eru. Morse er geðprýðið upp-
málað og fjölskyldufaðir en Mort-
ensen geðtruflaður ofstopamaður
haldinn ólæknandi sjálfseyðingar-
hvöt. Ekki svo að skilja að honum
sé alls varnað og enginn þekkir
betur kosti hans undir skelinni en
bróðir hans sem reynir allt hvað
hann getur til að bjarga honum frá
glötun.
Penn tekst best upp við að
stjórna sínum áhugaverða leik-
hópi, enda eru flestar persónurnar
eftirminnilegar. Bræðumir eru í
traustum höndum lítt þekktra leik-
ara — þó Morse sé búinn að vera
lengi að — og gömlu brýnin Bron-
son, Dennis og Hopper skila góðu
dagsverki. Og ekki má gleyma
Golino, því síður Arquette, sem
leikur fyrmm blómabam og stelur
senunni oftar en ekki sem léttrugl-
uð sambýliskona Mortensens. Tón-
list Nitzches er góð, líkt og lög
gera ráð fyrir — þó hún minni
full mikið á frábærar lagasmíðar
Ry Cooders. Hann notar vinsæl lög
frá tímabilinu með listamönnum
einsog Creedence Clearwater Re-
viaval og Janis Joplin og gerir það
smekklega. En minnisstæðust eru
augnablik og smáatriði, líkt og
óborganlegt atriði þegar Morse
ræðir við „skrýtnu konuna í bæn-
um“, á meðan hann þrífur bílinn
sinn, firringin á bamum og spenn-
an í kringum hinn hamslausa litla
bróður. En þess á milli koma löng,
löng atriði sem þjóna litlum tilgangi
öðrum en þreyta áhorfandann,
t.a.m. bílbruninn, undanfari hans
og eftirhreytur. Og til að gera illt
verra notar Penn gjarnan hægar
tökur („slow motion“), sem allir
voru búnir að fá sig fullsadda af
þegar á sögútíma myndarinnar, sjö-
unda áratugnum. Þær ljá myndinni
að vísu ljóðrænt, en þreytulegt yfir-
bragð. Þá reynir handritshöf-
undurinn/leikstjórinn mikið til þess
að sveipa söguþráð og samskipti
bræðranna nokkurri dulúð, vísar
m.a. til frumbyggjanna og reynir
að fanga gagmýni Springsteens á
ofbeldið og rótleysið í bandarísku
þjóðfélagi. Þetta fer vissulega fyrir
ofan garð og neðan. Þó verður
spennandi að fylgjast með áfram-
haldi Penns á þessu sviði, hann
hefur neistann.
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Af lífl og sál („Stepping Out“).
Sýnd í Háskólabíói. Leikstjóri:
Lewis Gilbert Aðalhlutverk:
Liza Minelli, Julie Walters, Bill
Irwin, Ellen Greene og Shelley
Winters.
I dansmyndinni Af lífi og sál
leikur Liza Minelli dansara á
Broadway sem má muna sinn fífil
fegri en kennir nú allskonar fólki
sporin á kvöldnámskeiðum. Hún
fær tækifæri til að troða upp með
nemendum sínum á góðgerðar-
skemmtun og hefst strangur und-
irbúningur sem miðar að því að
standa sig á sýningunni. Að gera
sitt besta er að sigra í þeSsum hópi.
Reyndar fær Minelli bestu atrið-
in enda stjama myndarinnar en
hin mislita danshjörð sem hún
kennir er dálítið skemmtileg að því
leyti að í henni er almúgafólk úr
öllum greinum þjóðfélagsins og á
öllum aldri, m.a. húsmóðir, hjúkka,
búðareigandi, kúguð eiginkona og
jafnvel óþolandi millafrú, sem
breska gamanleikkonan Julie
Walters leikur. Hugmyndin í hand-
ritinu er að dansinn og félags-
andinn fái fólkið, sem hefur sínar
áhyggjur af lífínu, til að opna sig
og sigrast á vandamálum sínum.
En úivinnslan er ekki góð.
Myndin er með öllu laus við frum-
leika og einkennist af væmni og
klisjum og ódýrri tilfmningasemi
sem slæmur leikurinn gerir enn
meira áberandi. Melódramað í
kringum persónurnar og persónu-
gerðimar sjálfar er lítt spennandi,
hver hefur sína sögu að segja en
engin kveikir minnsta áhuga. Það
er helst að Walters, af því hún er
svo lunkin gamanleikkona, fái
mann til að brosa að hreinlætisæð-
inu í sér og aðfínnsluseminni.
Minelli sjálf fær tvö dansatriði
sem minna á foma frægð hennar
en annars er hún ekki til stórræð-
anna. Það liggur ákveðin einlægni
að baki en myndin höfðar varla
nema til þröngs hóps Minelli-aðdá-
enda.
ÁRNAÐ HEILLA
Ijósm. Nýja myndastofan.
HJÓNABAND. 1. febrúar vom
gefin saman í hjónaband í Árbæjar-
kirkju, af sr. Guðmundi Þorsteins-
syni, María Karlsdóttir og Ámi E.
Helgason. Heimili þeirra er í Stiga-
hlíð 10, Reykjavík.
Mynd/Ljómyn<iarinn-J6hannes Long
HJÓNABAND. 8. febrúar vom
gefin saman í hjónaband í Lága-
fellskirkju af séra Jóni Þorsteins-
syniílelena Jónsdóttir og Hallgrím-
ur Óskarsson. Heimili þeirra er á
Bjargartanga 17, 270 Mosfellsbæ.
Ljósm. Nýja myndastofan.
HJÓNABAND. 28. desember vom
gefin saman í hjónaband, í Nes-
kirkju, af sr. Guðmundi Óskari Ól-
afssyni, Kristjana Daníelsdóttir og
Sæmundur Þórarinsson. Heimili
þeirra er í Lúxemborg.
Mynd/Ljómyndarinn-Jóhannes Long
HJÓNABAND. 15. febrúar vom
gefin saman í hjónaband í Dóm-
kirkjunni af séra Þóri Stephensen,
Ástrós Sverrisdóttir og Sigfús
Bjarnason. Heimili þerra er á Ás-
vallagötu 79, 101 Reykjavík.
ryiKM
STÍFT FITUBRENNSLU-NÁMSKEIÐ
SEM SKILAR ÁRANGRI
SIMAR 689868 og 689842
HEFST7.MARS
• Fitumæling og vigtun.
• Fyrirlestrar um megrun
og mataræði.
• Þjálfun og hreyfing
5 sinnum i viku.
• Viðurkenningarskjal í lok
námskeiðsins með skráðum
árangri. Sú sem missir flest kíló
fær frítt mánaðarkort hjá Jónínu
og Ágústu.
Eina varanlega leiðin að lækkaðri líkams-
þyngd eraukin hreyfing og rétt mataræði.
Við hjálpum þérað brenna fitu og kennum
hvernig á að halda henni frá fyrir fullt og
allt. Okkar metnaður er þinn árangur.
Kennsla einnig í Grafarvogi
NÝTT: FRAMHALDSNÁMSKEiÐ
fyrir þær sem eru lengra komnar.
LÁTIÐ SKRÁ YKKUR STRAX
TAKMARKAÐUR FJÖLDI KEMST AÐ
Opið f dag
kl. 13-17
NiNU li ÁGÚSTU
Skeifan7.106 Reykjavik, S. 689868
GOTT FÓLK/SlA