Morgunblaðið - 03.03.1992, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. MARZ 1992
41
Agnes á hálum ís
eftír Gunnar
Þorsteinsson
Agnes Bragadóttir hefur reist sér
óbrotgjarnan minnisvarða um
starfshætti sína. Hún er enn í víga-
móð og bítur í skjaldarrendur og
velur, eins og fyrri daginn, að veifa
fremur röngu tré en öngu. Agnes
hefur orðið ber að því að fara með
ósannsögli, róg og níð í opinberum
fjölmiðli, en ekki hvarflar að henni
að biðjast afsökunar eða með nein-
um hætti að leiðrétta mistök sín,
öllu heldur bætir hún í. Hún heldur
áfram með stóryrðaflaum sinn og
reynir með afar neyðarlegum hætti
að bera í bætifláka fyrir sig. Þeir
sem lesa skrif hennar sjá strax að
hér er á ferðinni rökþrota mann-
eskja að reyna að klóra sig út úr
vömm sinni. .
Bænakonan Agnes
Agnes talar í grein sinni afar
fjálglega um samfélag sitt við guð
og hvemig hún stundar trú sína
ýmist í felum eða á skíðum í Blá-
fjöllum á milli þess sem hún mund-
ar haugsuguna í fjölmiðlum. Jafn-
framt nefnir hún „guðsómynd“ þá
sem við í Krossinum tilbiðjum. Mér
er engin launung á því að sá Guð
sem ég trúi á heitir Jesús og er
Kristur sonur lifandi Guðs. Ég tel
að sé mál til komið að Agnes upp-
lýsi fyrir alþjóð hvað sá „óskil-
greindi“ guð heitir sem hún tilbiður.
Enn heggur Agnes í sama kné-
mnn og vísar til „bölbæna“ okkar
Krossara á ný, vitandi að hún er
ekki að segja satt. Við höfum aldr-
ei beðið nokkrum manni bölbæna
og það mun ekki verða gert með
neinum hætti. Þessi aðferð Agnes-
ar, að endurtaka sömu lygina aftur
og aftur, var notuð með góðum
árangri í Þýskalandi nasismans og
Helgarpósturinn sálugi var fulltrúi
þessara vinnubragða hérlendis með-
an hann var og hét, en nú eiga
þessi vinnubrögð þvi miður fulltrúa
í Agnesi og hennar líkum.
Agnes og Pressan
Agnes bar á mig skondnar sögur
úr gamalli Pressu, sem sögð var í
léttu gríni og byggir málatilbúning
sinn að hluta á henni. En það er
að sjá sem Pressan hafi enn frek-
ari ítök í henni og það kemur í ljós
þegar hún reynir að afsaka gerðir
sínar. Hún heldur því fram að rabb-
bálkurinn í Lesbók sé þeirrar nátt-
úm að þar þurfí hún ekki „að vera
jafn bundin við staðreyndirnar hver,
hvar, hvenær, hvernig, hvers vegna,
og ég alla jafnan er sem fréttamað-
ur“. Svo mörg voru þau orð. Hún
vill halda því fram að það sé „eðlis-
munur“ á skrifum í umræddan
raddbálk og öðru efni blaðsins. Enn
á ný er það skortur á skýrri hugsun
og dómgreind sem gerir Agnesi líf-
ið leitt. Það er engin dálkur í Morg-
unblaðinu þar sem mönnum er
heimilt að fara með fleipur, rang-
hermi, ósannsögli, mannorðsmeið-
ingar og fleira af þeim toga sem
hún stundar, en þann dálk er aftur
á móti að finna í Pressunni og er
hann kyrfilega merktur. Sá dálkur
gengur undir heitinu „Gula Press-
an“. Ég verð að minna Agnesi á
að hún er að skrifa í Morgunblaðið,
að minnsta kosti enn sem komið
er, en ekki Pressuna.
Mega lesendur Morgunblaðsins
e.t.v. eiga von á því, að þegar þú
missir stjórn á þér og kýst að þjóna
eðli þínu og lágkúran tekur þig sín-
um sterkum glímutökum á ný, að
þau skrif verði prentuð í gulu?
Fordómar Agnesar
Skrif Agnesar lýsa fádæma for-
dómum. Hún notar upphrópanir og
innantóm gífuryrði, talar um kredd-
ur, ofstæki og annað í þeim dúr.
Hún klykkir út í skrifum sínum
með því að segjast hafa „frelsi til
að hafa skoðanir ' á skoðunum
Krossins manna“. Hún segir jafn-
framt:..mín skoðun er svo óum-
Gunnar Þorsteinsson
ræðilega umburðarlyndari en skoð-
un Krossins manna.“ Er að undra
að maður spyiji sjálfan sig hvort
blessuð konan hafi verið að leggja
sér til munns leðurblöku? Hvílíkur
hroki og sjálfhælni. Fílabeinsturn
fréttamennskunnar hefur leikið
Agnesi grátt.
Agnes, þú hefur fullkomið frelsi
til að hafa skoðanir á okkar skoðun-
um. En vandi þinn er sá að þú þekk-
ir ekki okkar skoðanir og nánast
allt sem þú hefur fest á blað í því
samhengi er fleipur og það sem
verra er þú vilt ekki kynna þér
málið! Þú talar um okkar afstöðu
til Guðs og ýmiss þess sem okkur
er heilagt af fullkomnu virðingar-
leysi við sannleikann. Þú segist
hafa vegið boðskap minn og fundið
léttvægan. Agnes, þú ert ekki að
segja satt.
Þú vilt ekki koma á samkomu
og leita þér hjálpar, en ég ráðlegg
þér að grafa upp Biblíu, koma ró á
hugann, lesa Jóhannesarguðspjall
og biðja síðan Guð um að hjálpa
þér. Það gerði ég þegar ég var að
sökkva í það forað sem þú ert í.
Eina svar Agnesar
Agnes segir að svar hennar við
vörn minni verði eina svarið henn-
ar. Það er skynsamleg ákvörðun
hjá henni. Ég hefði ráðlagt henni
að hætta mun fyrr. Með skrifum
sínum er hún búin að afhjúpa sig
sem stéttlera og það sem ég gjarn-
an kalla hjákonu sannleikans. Það
er að segja að hún ber sannleiks-
elsku í bijósti á stundum, svona
þegar það hentar henni. Hún er
búin að afhjúpa ótrúlegan hroka,
sem lýsir sér í því að hún ber ekki
til baka eða biðst afsökunar á
ósannindum, en heldur áfram fúk-
yrðaflaumi um málefni sem hún
hefur ekki lágmarksþekkingu á. Ef
þessi skortur á siðgæði væri bundin
við Agnesi eina væri betur komið
en raunin er á. Því miður rekumst
við á þetta „Helgarpóstshugarfar"
of víða í íslenskum fjölmiðlaheimi
í dag.
Agnes, þegar þú ert búin að lesa
Jóhannesarguðspjall, þá er bara að
demba sér í boðorðin. Eitt þeirra
er: „Þú skalt ekki bera ljúgvitni
gegn náunga þínum ...“
Höfundur er forstöðumaður
Krossins íKópavogi.
0
TÓNLEIKAR
- gul tónleikaröð -
í Háskólabíói fimmtudaginn 5. mars, kl. 20.00
EFNISSKRÁ:
vonEinem: Capriccio
Páll P. Pálsson: Klarinettukonsert
Mendelssohn: Sinfónía nr. 4
EINLEIKARI: Sigurður I. Snorrason
HLJÓMSVEITARSTJÓRI: Páll P. Pálsson
Miðasala á tónleikana fer fram alla virka daga
frá kl. 9-17 á skrifstofu hljómsveitarinnar,
Háskólabíói v/Hagatorg og við innganginn
við upphaf tónleikanna.
r r
SIMOmUOMSVEimiÆDS
Háskólabíói við Hagatorg.
Sími 622255
BYGGINGAVORU
Tl LBOÐ
ANAÐARINS
P
Ú
P
Ú
s
Verð áður
▲ KrossviðurYP 9/122x244 1.200
▲ Gipsplata 13/120x300 1.305
▲ Hleðslugier, m2 10.700
▲ Parket Eik Natur, m2 3.655
▲ Bílskúrshurðaropnari 30.507
▲ Parketmoppa 40 cm 2.118
VERSLANIR
SKIPTIBORÐ 410 CH
Tilboð Verð áður Tilboð
1.056 Kapalkefli 2.814 2.274
1.174 Regngalli 66°N 6.121 5.203
9.416 ▲ Kaffibrúsi, stál 3.371 2.734
3.216 * BYKO trésög 489 394
25.930 * Múrblanda 30 kg 703 598
1.758 ASSA skrá 4.089 3.350
öl
dl
Quo
GRÆNT NUMER
nHBHBnmHM ■ I,
BYKÖ
w
SJSHeHSfflj. JpMBBXBIMtt
HAFNARFIRÐI
s. 5 44 1 1
BREIDDINNI
s. 6 4 i'ianBnB
HRINGBRAUT
S. 8 2 94 04 mm B