Morgunblaðið - 03.03.1992, Side 44
44
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. MARZ 1992
t
Maðurinn minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
EINAR GEIR GUÐMUNDSSON
múrari,
Grandavegi 47,
lést 19. febrúar. Jarðarförin hefur farið fram.
Fyrir hönd vandamanna,
Marta Sæmundsdóttir.
t
Mágkona mín og föðursystir okkar,
GUÐRÍÐUR EGILSDÓTTIR,
lést að morgni sunnudagsins 1. mars.
Margrét Briem,
Ólafur Egilsson,
Kristján Egilsson.
t
Faðir minn,
HARALDUR GUNNLAUGSSON
frá Siglufirði,
lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð, Kópavogi, sunnudaginn
1. mars.
Fyrir hönd systkina minna og annarra vandamanna,
Herdís Haraldsdóttir.
t
Eiginkona mín og móðir okkar,
HULDA MARÍA KARLSDÓTTIR,
Suðurgötu 15-17,
áður til heimilis á Blikabraut 9,
Keflavík,
lést í Landspítalanum að kvöldi 1. mars. Jarðarförin auglýst síðar.
Bjarni Guðmundsson,
Karl G. Sævar,
Ingveldur Bjarnadóttir,
Friða Bjarnadóttir,
Guðbjörn Bjarnason.
t
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
HANSÍNA SIGURÐARDÓTTIR,
Háaleitisbraut 54,
lést í Landspítalanum laugardaginn 29. febrúar.
Magnús Magnússon,
Rebekka Magnúsdóttir, Alexander Olbrich,
Kristján Magnússon
og barnabörn.
t
Hjartkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir og afi,
ROLAND BRUNO GARY,
1527 Thorndyke Ave. West.,
98199 Seattle Wash,
lést í sjúkrahúsi í Seattle þann
23. febrúar.
Minningarathöfn hefur farið fram.
Guðrún Ágústa Stefánsdóttir Gary,
Anthony Thor Gary, Lynette Gary,
Stefán Eric Gary,
Patricia Ann Fox, Beau Fox
og barnabörn.
t
Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengda-
móðir, amma og langamma,
ELÍN SIGURBERGSDÓTTIR,
Spóahólum 16,
Reykjavik,
andaðist í Landspítalanum 1. mars.
Jarðarförin fer fram frá Fossvogskirkju
þriðjudaginn 17. mars kl. 13.30.
Sigurbergur Hansson,
Valdfs Hansdóttir,
Þorsteinn Hansson,
Óskar Hansson,
Elfs Hansson,
Hans A. Þorsteinsson,
Kolbrún Kjartansdóttir,
Sveinjón I. Ragnarsson,
Halla Hjálmarsdóttir,
Fanney Pálsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Minning:
Jón Guðjóns-
son, skipsijóri
Fæddur 15. september 1912
Dáinn 25. febrúar 1992
Þeim fækkar nú bátaskipstjórun-
um sem á árunum 1940-1960 stóðu
í skýlinu uppi á stýrishúsi og horfðu
eftir síldartorfunum. Einn þessara
manna kveðjum við í dag.
Jón Guðjónsson fæddist 15. sept-
ember 1912 í Hafnarnesi við Fá-
skrúðsfjörð. Jón fór ungur til sjós
og rúmlega tvítugur var hann orð-
inn skipstjóri á mb. Einari frá Akur-
eyri sem gerður var út frá Siglu-
firði. Það var mikil gæfa fyrir mig
sem þessar línur skrifa, að byrja í
skipsrúmi hjá Jóni er ég var 17
ára. En þá var hann með mb. Snar-
fara, 26 lesta bát frá Siglufirði.
Einnig var mb. Villi, 22 tonna bát-
ur, með sömu nót. Það voru mikil
síldarsumur ’42 og ’43 og stutt að
sækja síldina og vökur miklar. Það
var mikill afli sem við náðum á
þessa litlu báta. Við vorum með
allra aflahæstu bátum af þessari
stærð og var Jón oftast í fremstu
röð síldarskipstjóra. Haustið 1943
varð Jón þátttakandi í útgerð með
þeim Sigurði Baldvinssyni og Anton
Benjamínssyni og gerðu þeir út frá
Ólafsfírði. Var það mb. Njáll, 56
tonna bátur. Á Njáli vorum við til
1948 en þá létu þeir félagar byggja
bát í Danmörku, mb. Stíganda, síð-
ar létu þeir byggja m_b. Gunnólf og
var Jón með báta frá Ólafsfírði fram
undir 70 ára aldur. Síðar leysti Jón
af sem skipstjóri og stýrimaður.
Margt kemur upp í hugann frá
árunum sem ég var með Jóni. Jón
var mikill aflamaður hvort sem var
á línu-, troll- eða síldveiðum. Jón
fór oft sínar eigin leiðir eftir físki.
Hann tók sig oft út úr flotanum
ef ekki sást síld og stímaði frá skip-
unum, en Jón var ekki búinn að
fara langt þegar hann var búinn
að fínna síld. Ég held að það sé
rétt að Jón hafi fyrstu bátaskip-
stjóra togað á Kolbeinseyjargrunn-
um, en það var vorið 1947 að við
fórum þangað á mb. Njáli. Við náð-
um ekki góðum árangri þá en Jón
fór árið eftir og fékk þá góðan afla.
í þá daga voru bátar ekki með rad-
ar eða lórantæki því erfítt að stað-
setja sig. Og þarna náði Jón miklum
afla. Jón var mikill skipstjórnar-
maður. Mér er minnisstætt er við
vorum að koma til Siglufjarðar í
norðaustan hríðarbyl, ekki sást út
fyrir borðstokkinn fyrir hríð og roki,
þá var enginn radar né lórantæki,
en Jón vissi námkvæmlega hvar
hann var staddur, hann þekkti sjó-
lagið og sneri stýrinu þannig að
ekki kom skvetta inn fyrir.
t
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
OKTAVÍA ÓLAFSDÓTTIR THORARENSEN,
Lönguhlíð 3,
er látin.
Útförin fer fram miðvikudaginn 4. mars kl. 13.30 frá Fossvogs-
kirkju.
Fyrir hönd vandamanna,
Albert Finnbogason,
Gunnar Kr. Finnbogason.
t
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, systir, amma og langamma,
KRISTÍN JÓNASDÓTTIR,
dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri,
áðurtil heimilis á Brekkugötu 45,
lést fimmtudaginn 27. febrúar.
Jarðarförin er ákveðin miðvikudaginn 4. mars kl. 13.30 frá Akur-
eyrarkirkju.
Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á dvalarheimilið Hlíð.
Jóna G. Steinmarsdóttir, Gunnar Benediktsson,
Jóhanna I. Steinmarsdóttir, Helgi Á. Alfreðsson,
María Steinmarsdóttir, Rögnvaldur B. Ólafsson,
Þorsteinn Jónasson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og lang-
afi,
STEFÁN PÉTURSSON
frá Bót,
til heimilisá Dalbraut 21,
Reykjavik,
andaðist í sjúkrahúsinu Sólvangi í Hafnarfirði að morgni sunnu-
dagsins 1. mars.
Laufey Valdimarsdóttir Snævarr,
Birna H. Stefánsdóttir, Jón Bergsteinsson,
Pétur Stefánsson, Hlff Samúelsdóttir,
Stefanía V. Stefánsdóttir, Skúli G. Johnsen,
Gunnsteinn Stefánsson, Helga Snæbjörnsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Móðir okkar og tengdamóðir,
HALLDÓRA MAGNÚSDÓTTIR,
Sólvallagötu 53,
sem lést 23. febrúar, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í dag,
þriðjudaginn 3. mars. Athöfnin hefst kl. 13.30.
Magnús Þórðarson,
Ragnheiður Þórðardóttir, Magnús Hjálmarsson,
Guðrún Þórðardóttir, Einar Þorláksson.
Það var eins og lægi alltaf vel á
Jóni þegar veðrið var sem verst.
Jón var mikill félagi okkar strák-
anna ef ekki Var veiðiveður á síld-
inni. Hvort sem við vorum vestur
við Skaga eða austur við Langanes
þá kom Jón fram í iúkar og spurði:
„Á ekkert að fara í land, strákar?“
Var þá drifið í að yfirhala nótina
og farið á öðrum bátnum í land og
var Jón þá alltaf með. Margir voru
í skipsrúmi árum saman hjá Jóni.
Jón kvæntist systur minni, Báru
Arngrímsdóttur, í desember 1940,
þau eignuðust 8 börn sem öll eru
uppkomin. Má nærri geta hið mikla
starf hjá Báru að sjá um uppeldi
bamanna þegar Jón var oftast á
sjónum.
Ég vil færa þeim hjónunum inni-
legt þakklæti mitt fyrir það athvarf
sem ég hafði á heimili þeirra á
Siglufirði þegar landlegur voru.
Þau bjuggu á Siglufírði til ársins
1963 að þau fluttu til Ólafsfjarðar
og 1984 fluttu þau til Reykjavíkur.
Bára lést fyrir tveimur árum.
Að leiðarlokum vil ég þakka fyr-
ir öll samveruárin á sjónum. Ég og
konan mín þökkum allar samveru-
stundirnar á heimili þeii-ra. Við
sendum börnum og tengdabörnum
innilegar samúðarkveðjur.
Beggi.
Ég man eftir þessum ljúfa og
góða manni frá því ég var tólf ára,
þegar hann flutti til Ólafsfjarðar
með fjölskyldu sína frá Siglufírði.
Þá kynntist ég Hugrúnu dóttur
hans sem var jafnaldra mín, ég man
hvað mér þótti hann hæglátur og
rólegur með alian krakkahópinn í
kringum sig. Hann sat yfírleitt í
sama stólnum á holinu á Kirkjuvegi
3, með pípuna sína í hendi og hlust-
aði á útvarp. Það var sama hvað
gekk á í kringum hann, það virtist
ekkert hagga þessum rólega manni.
Það var gaman að fara í Kleifar-
hornið með Jóni á bílnum hans. Þá
leyfði hann okkur að stýra, við stóð-
um aftur í, hann sá um allt nema
stýrið og við héldum að við værum
mjög góðir ökumenn.
Hann fór oft í siglingar og þá
fékk maður alls konar góðgæti sem
var ekki eins algengt og nú, og oft
voru keypt á tvíburana föt sem
freistandi var að fá lánuð svo að
við vinkonurnar gátum verið eins
klæddar. Jón var alveg sérstaklega
barngóður. Ég tók vel eftir því þeg-
ar ég var sjálf búin að eignast böm
og við hittumst í afmælum hjá
Hugrúnu, hvað börn hændust að
honum og sérstaklega veit ég að
Margrét á eftir að sakna afa Jóns,
eins og hún kallaði hann alltaf, því
hann var eini afinn sem hún átti
eftir.
Hún er mér sérstaklega minnis-
stæð hógværðin í honum þegar við
hittumst í síðasta afmæli hjá Hug-
rúnu og hann kallaði á mig og seg-
ir við mig: „Hvernig er það Lauga
mín, hefur þú ekki stækkað heldur
mikið síðan ég sá þig síðast?" (Þá
meinti hann náttúrlega á þverveg-
inn.)
Hugrún mín, mig langar með
þessum fáu línum að votta þér inni-
lega samúð mína svo og öllum að-
standendum Jóns Guðjónssonar.
Hvíli hann í friði.
Lauga.