Morgunblaðið - 29.03.1992, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. MARZ 1992
11
Leyfið okkur að bjarga
börnunum
„Auðvitað beijast allir foreldrar
gegn því að láta börnin frá sér, en
gefast svo upp, þegar þau eru farin
að haga sér nógu illa. Það hefur
reynst afar erfitt að dæma foreldra
óhæfa samkvæmt íslenskum barna-
verndarvenjum.
Það kann að hljóma kaldrana-
legt, en kerfið verður að vera til-
búið til að taka börn úr mann-
skemmandi kringumstæðum, gegn
vilja foreldra, áður en þau eru búin
að líða óbætanlegan skaða. Þegar
loks á að gera það, hamast ijölmiðl-
ar og skamma Barnaverndarnefnd
•fyrir grimmd, á sama tíma og við
skömmum hana fyrir linkind," segir
Halla.
„Það er geysilega mikilvægt að
meðferð hefjist fljott, að þess.i börn
séu ekki komin yfir 9-10 ára, seinna
er varla hægt að bjarga þeim,“ seg-
ir Páll. „11-12 ára eru þau orðin
svo forhert og agalaus, að þau eru
búin að taka völdin á heimilinu, jafn-
vel mæðurnar eru hræddar við þau,“
skýtur Sólveig inn í.
„Grimmd barna er ekki eins ógn-
andi þegar þau eru lítil eins og þeg-
ar þau eru orðin 11-12 ára,“ segir
Páll. „Miklu auðveldara er að vinna
með 9 ára barn en ungling," segir
Sólveig.
Stórvirkra aðgerða er þörf
— Hvað er til ráða?
„I fyrsta lagi þurfum við meðferiÞ
arheimili fyrir Ibörn undir 9 ára. í
öðru lagi heimili fyrir eldri börn sem
eru svo iila farin þegar þau koma
hingað, að enginn þolir að hafa
þau. Þegar engir foreldrar eða
fósturheimili finnast, verða að koma
til önnur úrræði. Þörf er á langtíma-
vistun fyrir 11-16 ára börn,“ segir
Páll,
„Ég sé ekki marga þá kappa sem
ég þekki fara inn á venjulegt fóstur-
heimili," segir Sólveig. „Það væri
strax betra, ef við hefðum íbúð fyr-
ir móður eða fjöiskyldu og fagfólk
gæti aðstoðað foreldra við að ráða
við börnin.“ „Svona trufluð börn
verða að fara í fóstur til menntaðs
fólks sem kann að taka leiðbeining-
um frá fagfólki," segir Páll. „Það
þarf einstaka persónuleika til að
ráða við svona börn. Fólk sem tæki
það að sér, ætti að fá fullt kaup
fyrir eitt barn. Og samfélagið á að
sjá þeim fyrir stöðugum leiðbeining-
um og aðstoð."
Og Páll kemur með hetjusögu frá
Svíþjóð: „Kona tók að sér að sjá
um vegalaus börn fyrir barnavernd-
arráð Stokkhólmsborgar. Þetta var
mjög sterk kona sem bjó uppi í sveit.
Ahrifin sem hún varð fyrir, styrktu
hana tii meiri og meiri dáða. Og
hún fór að klifra upp samfélagsstig-
ann. Menntaði sig á þessu sviði. Fór
að vinna hjá Félagsmálastofnun, þar
sem hún sá um að útvega heimili
fyrir þessi börn. Hún endaði sem
borgarstjóri!"
„En þetta var líka óvenju sterk
kona með sérstaka hæfileika og í
sérstæðum aðstæðum," segir Páll
brosandi. Og við förum að ræða um
allar íslensku sveitakonurnar sem
hafa fórnað sér í gegnum árin. Tek-
ið við óprúttnum Reykjavíkurstrák-
um og tekist að snúa þeim til mann-
vænlegs þroska. En aðstæður eru
líka að breytast í íslenskri sveit.
Nú hafa fá sveitaheimili aðstæður
til að taka á móti svona trufluðum
börnum.
„Mjög ólíklegt að eitt meðferðar-
heimili fyrir 6-7 börn dugi til, þörf-
in er miklu meiri,“ segir Sólveig,
„tíu ný tilfelli (10-12 ára börn)
hafa komið inn á borð til mín frá
áramótum." „Og þörfin stóreykst
ár frá ári,“ segir Halla. „Nú eru
sagt að vegalausu börnin séu á milli
20-30, en miklu fleiri eru næstum
því eins illa stödd. Átakanlegast er
að sjá börn vel af guði gerð, búa
við þannig aðstæður að allt fer í
voða.“
Hættuleg börn
— Hafið þið haft til meðferðar
þessi svonefndu vígabörn?
„Ég hef haft börn til meðferðar
sem eru beinlínis hættuleg sjálfum
sér og umhverfi sínu,“ segir Halla.
„Tvö slík börn bíða eftir plássi á
legudeild. Kannski fá þau pláss í
haust, þegar deildin opnar aftur en
enginn veit hvað gerist þangað til.“
„Mikið er horft á kynferðislega
misnotaðar stúlkur, en við þekkjum
líka drengi sem hafa verið misnot-
aðir,“ segir Sólveig. „Þessir drengir
beita ekki ofbeldi, en eru sjúklega
fastir í kynferðislegu rugli og reyna
að misnota önnur börn. Ef ekkert
verður róttækt að gert, þá erum við
komin með fullorðna gerendur eftir
5-6 ár.“
— Hvað með langtímaúrlausnir?
„Vandinn er hjá fjárveitingavald-
inu,“ segir Sólveig. „Allir eru komn-
ir með mál upp í háls og við erum
að lenda í þeim aðsþæðum að kenna
hvor öðrum um. Á meðan veltast
börnin um í kerfinu. Mjúku málin
mæta afgangi hjá stjórnvöldum. Ég
vil heldur skila börnunum mínum
þeim arfi að skulda peninga, en hér
gangi lausir margir hættulegir
vandræðamenn." „Við skulum vona,
að dropinn haldi áfram að klappa
steininn og holi hann að lokum,“
segir Páll:“
HJÁLPAÐU MÉR!
RAUÐAKROSSHÚSIÐ, ATHYARF FYRIR VEGALAUS UNGMENNI
„ÞETTA er hvítt hús með svörtu þaki, annað hús frá horni
Skothúsvegar að Tjarnargötu 35,“ sagði Hans Henttinen,
forstöðumaður Rauðakrosshússins. „Auðvelt að rata hingað
fyrir vegalaus börn. En áhyggjuefni hvað mörg þeirra vita
ekki af okkur.“ bætir hann við.
Og ég geng inn í eldra hús, með
rósettur í lofti og hvítmálaðar staf-
hurðir. Heimilislegt. Hlýlegt and-
rúmsloft. Enda sækja þeir hingað,
aftur og aftur, utangarðsunglingarn-
ir sem eiga hvergi höfði sínu að halla.
„Hér er búið að vera mjög anna-
samt frá áramótum,“ segir Hans.
„Síminn ekki stoppað og oft svo fullt
hús, að verið er að kafsigla okkur.
Nú eru komin 2.200 símtöl frá ára-
mótum. í fyrra voru þau 4.500 allt
árið. Og hjá okkur skiptir ekki máli
af hverju börn og unglingar eru vega-
laus. Við tökum á móti þeim öllum,
burtséð frá hvert vandamálið er,“
segir Hans.
— Hvernig viðtökur fá þau?
„Við bytjum á að setjast niður
með þeim í rólegheitum til að finna
út af hveiju þau leita hingað. í fram-
haldi er haft samband við fjölskyldu
eða aðra sem tengjast málinu. Með
öðrum orðum má segja að við reynum
að finna hentugasta aðilann til að
sinna hveiju einstöku tilfelli."
Pú hefur aðgang a6 ofckur
allan sólarhringinn
Graent timanúm«r
99 66 22
ft
RAUÐAKROSSHÚSID
Tjamargotu 35.101 Reyúavík
Plastkortið sem mörg börn og
unglingar ganga með upp á vas-
ann.
Börn í varnarstöðu
— Eru þau á varðbergi?
„Það er mjög einstaklingsbundið.
Sum veigra sér við að leita aðstoðar
utan fjölskyldu, finnst þau vera að
SJÁ NÆSTU SÍÐU
I
JAPONSK
GÆÐ\
DCX500
Verð með plötuspilara.. ...kr. 56.890stgr.
Verð án plötuspilara ....kr.49.990,- stgr.
Umboðsmi
REYKJAVÍK: Heimilistæki hf., Sætúni 8, Frístund-Kringlan,
Kringlunni, Rafbúð Sambandsins, Holtagörðum,
Kaupstaður í Mjódd.
AKRANES: Skagaradíó. BORGARNES: Kaupfélag Borg-
firðinga. ÍSAFJÖRÐUR: Póllinn hf. SAUÐÁRKRÓKUR: Raf-
sjá. OLAFSFJÖRÐUR: Valberg. AKUREYRI: Radíónaust.
HÚSAVÍK: KÞ. Smiðjan. VESTMANNAEYJAR: Brimnes.
SELFOSS: Kf. Árnesinga. KEFLAVÍK: Radíókjallarinn.
Gunnar Ásgeirsson hf.
Borgartúni 24
Sími 626080. Fax. 629980.
—
—
Útvarp:
FM/LW/MW
24 stöðva minni
(12 á FM)
Magnari:
120 watta (2x60W)
5-banda tónjafnari
Rafdrifin
hækkun/lækkun
Segulband:
Tvöfalt
kassettutæki
Hraðupptaka
Dolby B
Samtengd afspilun
Geislaspilari:
Minni fyrir allt að
16 lög
Fyrir báðar stærðir
af geisladiskum
Lagaleitun
Endurtekning
Spólar inn í lög
Fjarstýring:
Mjög fullkomin,16
aðgerðir.
Hátalarar:
80 wött
3-way
Booster