Morgunblaðið - 29.03.1992, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. MARZ 1992
Féll ekki í kramið
hjá bresku
konungsfjölskyldunni
Birna Helgadóttir
skrifar fró London
„I guðanna bænum, yðar
hátign, viljið þér tala þau
til.“ Þannig hljóðaði fyrir-
sögn breska blaðsins Daily
Mirror núna í vikunni.
Fólkið sem Bretadrottning
átti að taka í lurginn á var að
sjálfsögðu hjónakornin Andrés
og Sara, en í forsíðugreininni stóð
að fyrst, hún væri á annað borð að
þessu gæti hún alveg eins talað við hin
vandræðabörnin í fjölskyldunni í leiðinni; Mar-
grét systir og dóttirin Anna báðar fráskildar; hjónaband Karls og
Diönu í rústum að sagt er; yngsti sonurinn Játvarður gengur alls
ekki út, þótt hann sé efnilegasti piparsveinn Bretlands. Getur verið
að drengurinn sé hommi?
onungshöllin
Buckingham
Palace er sem
sagt orðin að
hálfgerðu vand-
æðaheimili, og
má segja að þessi síðasta vika hafi
verið hið mesta kvalræði fyrir fjöl-
skylduna.
Bretar eru stoltir af kóngafólki
sínu, en þeir gera líka þá lágmarks-
kröfu að í staðinn fyrir þær milljón-
ir af almannafé sem það fær á ári
hveiju, sýni það gott fordæmi. Og
fjölmiðlarnir hafa ekki verið feimn-
ir við að minna kóngafólkið óþægi-
lega á þetta.
Hvað fordæmi snertir hefur Sara,
hertogaynjan af Jórvík, lengi valdið
breskum almenningi miklum von-
brigðum. Erlendis eru menn víst
hrifnir af því hversu „hress“ og
blátt áfram hún er — en það sama
er ekki hægt að segja um breska
skattborgara sem þurfa að halda
henni uppi.
Upphaf óvinsælda „Fergie" má
rekja til þess þegar hún yfirgaf
dóttur sína nokkurra vikna gamla
til þess að fara í ferðalag með
Andrési. Síðan skrifaði hún nokkrar
barnabækur um litlu þyrluna
Budgie. Agóðinn átti að renna til
góðgerðarstarfsemi, en síðan kom
í Ijós að hertogaynjan hafði hirt
alla peningana sjálf. Hvert hneyksl-
ið rak annað. Faðir hennar, Ronnie
Ferguson, var fastagestur „nudd-
stofu“ í gleðikvennahverfi Lundúna.
Systir hennar stóð í mjög vand-
ræðalegum hjónaskilnaði. Það sem
fyllti svo mælinn var „ljósmynda-
hneykslið" fræga, þar sem myndir
af Fergie og olíufurstanum Steve
Wyatt fundust á glámbekk í tómri
íbúð.
Ofan á allt þetta var „Fergie fitu-
bolla“, eins og hún var kölluð í fjöl-
miðlum, talin eyðslusöm, gráðug,
ósmekkleg í klæðaburði og hreint
út sagt ruddaleg. Húsið sem hjónin
létu byggja í Berkshire var kallað
FramtíÖin blasti við brúðhjónunum á brúðkaupsdaginn.
Ódýr og spennandi sumarfargjöld með SAS
Haföu samband viö söluskrifstofu SAS
eða feröaskrifstofuna þína.
/M/JMS
SAS á íslandi - valfrelsi í flugi!
Laugavegi 172 Sími 62 22 11
SUMARLEYFISFARGJÖLD SAS 15. apríl - 30. september 1992 Reykjavík - Kaupmannahöfn .20.900.-
Reykjavfk - Gautaborg .20.900.-
Reykjavík - Osló .20.900.-
Reykjavík - Stokkhólmur .24.900,-
Reykjavík - Helsinki .24.900.-
Reykjavík - Hamborg .24.900.-
Lðgmarksdvöl 7 dagar, hámarksdvöl 1 mánuður. Barnaafsláttur er 20%. Tll sölu fram að 1. mai 1992. 1250 kr. Innlendur flugvallarskattur er ekkl Innifallnn í uppgefnu veröl
auk 600 kr. á fargjald tll Kaupmannahafnar.
YDDA F42.30 / SÍA