Morgunblaðið - 29.03.1992, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 29.03.1992, Blaðsíða 23
23 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. MARZ 1992 Fergie ein á báti og átskáfuð ár konungsfjölskyldunni „South York“ í höfuðið á ættaróðal- inu í Dallas — hallærislegt í hæsta máta. Hún var löt að sinna opinber- um störfum sem eru fastir liðir í lífi konungsfjölskyldunnar. Hún stakk af í dýra skíðaferð í miðju Persaflóastríði og sníkti ókeypis ferðalpg hjá fyrirtækjum út á tjtil- inn. Alltaf var hún borin saman við svilkonu sínu. Díana var alls staðar dýrkuð — tíguleg, iðjusöm, tág- grönn og fyrirmyndarmóðir. Það kom þess vegna ekki á óvart þegar fréttirnar af skilnaðinum bárust að almenningsálitið var alfarið á móti Fergie. Fréttirnar birtust fyrst í blaðinu Daily Mail sem tilkynnti að lög- fræðingar drottningarinnar hefðu tekið þátt í umræðum um skilnað- armál. „The Palace" — Höllin, eins og allt í kringum konungsfjölskyld- una er kallað, vildi halda málinu leyndu þangað til eftir kosningar í apríl, en neyddist til þess að stað- festa fréttirnar. Höllin hélt blaðamannafund þar sem fjölmiðlafulltrúi drottningar tilkynnti að Fergie hefði ráðið al- mannatengslafyrirtæki til þess að „leka“ fréttinni í blöðin. Hertoga- ynjan hefði aldrei verið titli sínu og starfi vaxin. Drottningin var sögð ævareið yfir því að kosninga- baráttan skyldi hafa verið trufluð á þennan hátt, og að stúlkukindin skyldi hafa farið svona illa með uppáhaldsson hennar. Slík gagnrýni af hálfu konungs- fjölskyldunnar á sér ekki hliðstæðu. „Hnífarnir eru á lofti í Höllinni", voru flennifyrirsagnir dagblaðanna næsta dag. Bretar eru mjög gefnir fyrir að halda með lítilmagnanum, og brátt fór andrúmsloftið að breyt- ast. Fergie var allt í einu einangr- uð, einstæð móðir sem stóð varnar- laus gegn valdi og vegsemd bresku konungsfjölskyldunnar. Ritstjóri Daily Mail, Sir David English, neitaði alfarið að fréttirnar um skilnaðinn hefðu komið frá Fergie sjálfri. Höllin þurfti að biðj- ast afsökunar. Greinar birtust þar sem fram kom hversu lítinn stuðn- ing og handleiðslu hún hafði fengið frá fjölskyldu eiginmannsins, er hún reyndi að valda því hlutverki sem giftingin lagði henni á herðar. Minnst var á hversu leiðinleg mann- gerð Andrés væri. Þótt hann hefði getið sér orð sem glaumgosi á piparsveinaárunum voru aðal- áhugamál hans myndbönd og golf. Sem liðsforingi í sjóhernum var hann oft fjarverandi og skildi Fergie eftir eina með tvær litlar dætur, tengdafjölskyldu sem var illa við hana og fjölmiðlalið sem elti hana hvert sem hún fór og gagnrýndi hana á hinn illkvittnasta hátt hvað sem hún reyndi að þókn- ast því. Margir greinarhöfundar spurðu: „A kóngafólk yfirleitt að giftast alþýðufólki sem ekki hefur alist upp við þær kröfur sem gerð- ar eru til kóngafólks. Þetta væri ástæðan, fyllyrtu margir, fyrir því að hjónabönd Margrétar og Snowdowns lávarðar, og Önnu prinsessu og Marks Phillips, höfðu flosnað upp. Hjónaband Andrésar og Fergie hafði víst gengið illa í marga mán- uði. Slúðrið magnaðist; öskur og rifrildi hefðu oft heyrst úr íbúð hjónanna í Kensington Palace; Fergie hefði elt Andrés út á gang, bölvandi og ragnandi; á meðan „ljósmyndahneykslið" stóð sem hæst gréti hún sig í svefn á hverri nóttu. Myndin sem dregin var upp var af mjög einmana, taugaveiklaðri konu. Nú snýst umræðan um það hvernig konungsfjölskyldan sem fór svona illa með hana getur keypt þögn hennar. Henni hafa verið boðnar, að sagt er, fimm milljónir punda af bresku blaði fyrir ævisögu sína, og tvær milljónir punda frá bandarisku útgáfufyrirtæki. Frásagnir hennar gætu verið nokkuð litríkar. Blaðamenn telja nokkuð víst að hún hafi staðið í einhvers konar ástarsambandi við Steve Wyatt. En verri gróusögur ganga nú um krár Fleet Street. Eugenie, yngsta prinsessan, á að vera dóttir Wyatts. Fergie þarf að fara í fóstureyðingu af því hún gengur með barn Wyatts undir belti — þess vegna hefur Andrés heimtað skilnað. Andrés mun nú snúa sér aftur að Koo Stark, fyrr- verandi klámstjörnu, sem er hin eina sanna ást hans. Fergie hefur aldrei jafnað sig eftir sambandið við Paddy McNally, kappaksturs- manninn sem hún var í sambúð með áður en hún giftist Andrési. En hver hinn raunverulegi sann- leikur er veit enginn. Upp hefur komið önnur hlið á málinu, sem er í raun og veru miklu alvarlegra fyrir breskt lýðveldi en einhverjar uppákomur konungsfjölskyldunn- ar; grunur leikur á að breska leyni- þjónustan hafi „lekið“ fréttinni um skilnaðinn, en hún hefur allar upp- lýsingar um Fergie, eins og aðra í konungsfjölskyldunni. Það sem átti að vaka fyrir leyni- þjónustunni var að beina athyglinni frá hinu slæma efnahagsástandi í landinu til að auðvelda íhalds- flokknum að halda völdum í land- - inu. Umtalið um Fergie og Andrés hefur leitt huga almennings frá efnahagsástandinu í heila viku. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem breska leyniþjónustan er talin hafa beitt lymskubrögðum til þess að Verkamannaflokkurinn nái ekki völdum — hún reyndi það einnig 1974. En nú er sjálf drottningin sögð mjög óánægð með ástandið og hásettir menn í leyniþjónustunni munu nú ef til vill þurfa að svara óþægilegum spurningum frá þjóð- höfðingjanum sjálfum. Hagræðing í framhaldsskólum: Þrír skólar verði sam- einaðir í einn NEFND uin hagræðingu í fram- haldsskólum telur koma til greina að sameina Stýrimanna- skólann í Reykjavík, Vélskóla íslands og Fiskvinnsluskólann í einn skóla, Sjávarútvegsskóla. í skýrslu nefndarinnar er einn- ig talið koma til greina að sam- eina framhaldsskólann og Stý- rimannaskólann í Vestmanna- eyjum. Af öðrum tillögum nefndarinnar í kafla um sameiningu og samstarf skóla má nefna náið samstarf milli framhaldsskólanna á Húsavík og Laugum um innritun nemenda og námsframboð en í þessum skólum eru samtals um 230 nemendur. Forsvarsmenn skólans hafa þegar gert tillögur um slíkt samstarf. Lagt er til að kannaðir verði möguleikar á því að fella skólast- a.rf sem nú fer fram á Eiðum og í Húsmæðraskólanum á Hallorms- stað undir Menntaskólann á Egils- stöðum. Stungið er upp á að kom- ið verði á skipulögðu samstarfi milli Flensborgarskóla, Iðnskólans í Hafnarfriði, Fjölbrautarskólans í Garðabæ og Menntaskólans í Kópavogi um innritun og náms- framboð sem taki bæði til bóknáms og verknáms. Talið er koma til greina að flytja almennt nám sem nú fer fram í Tækniskóla íslands til undirbún- ings sérnámi við skólann frá skól- anum til almennra skóla. Ennfrem- ur að nám í hússtjórnarskólum verði fellt inn í almenna framhalds- skóla og samstarf verði eflt milli almennra framhaldsskóla og sér- skóla og þannig leitast við að opna fieiri námsleiðir að loknu skil- greindu námi í framhaldsskóla. Nefnd um tillögur að hagræð- ingu í framhaldsskólum var skipuð af menntamálaráðherra 15. janúar 1992. Hún skilað nefndaráliti fyrr í þessum mánuði. Gunnar Eyjólfsson endurkjörinn skátahöfðingi AÐALFUNDUR Bandalags ís- lenskra skáta var haldinn þann 21. mars sl. Fundurinn var vel sóttur af fulltrúum skátafélag- anna um land allt. Á fundinum var stjórnaskipulagi BIS breytt all verulega og var m.a. kjörin ein sjö manna stjórn BÍS í stað framkvæmdarstjórnar og aðal- sljórnar. Gunnar Eyjólfsson var endur- kjörinn skátahöfðingi til næstu þriggja ára. Ásamt honum voru kjörin í stjórn: sem aðstoðarskáta- höfðingjar Kristín Bjarnadóttir og Páll Zophaníasson, Ásta Ágústs- dóttir ritari, Guðjón Ríkharðsson gjaldkeri og Hafdís Óladóttir og Ölafur Ásgeirsson sem meðstjórn- endur. Mikillar bjartsýni gætti á fund- inum og er- greinilegt að skáta- hreyfingin er í sókn á 80 ára af- mælisári. Landsmót bjöllukóra á Selfossi um helgina Selfossi. LANDSMÓT bjöllukóra verð- ur á Selfossi um helgina. Kór- arnir eru frá Selfossi, úr Garðinuni, frá Hellissandi og frá Reykjavík. Kórarnir munu æfa saman og halda síðan tónleika á sunnudag, 29. mars, kl. 14 í Selfosskirkju. Sig. Jóns. Sérstak tiiboð nú fyrir fermingarnar á þessu frábæra setti. Mjög vandað, stillanlegt tölvuborð á aðeins kr. 13.000.- Fullkominn skrifstofustóll í hæsta gæðaflokki kr. 19.600.- Gamla Kompaníiö / Kristján Siggeirsson Hesthálsi 2 - 4 • 110 Reykjavík • Sími 91- 6721 10 • Fax 91- 671688 SSBlillÍ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.