Morgunblaðið - 29.03.1992, Page 52
BögglopóJtur
um dllt lond
PÖSTURQGSÍagl
MORGUNBLADW, ADALSTILETI 6, 101 REYKJAVÍK
SÍMI 601100, SÍMBIIÉF 691181. PÓSTIIÓLF 1555 / AKVREYRl: IIAFNARSTRÆTl 85
SUNNUDAGUR 29. MARZ 1992
VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR.
*
Ibúðarhús
brann á Þór-
pddsstöðum
ELDUR VARÐ laus í íbúðarhúsi
á bænum Þóroddsstöðum skammt
frá Sandgerði i fyrrinótt. Húsið
er tvílyft og urðu miklar skemmd-
ir á neðri hæð af eldi, reyk og
vatni, en eldur náði ekki til efri
hæðarijinar. Fjórir voru í húsinu
og voru allir komnir út þegar
slökkviliðið í Sandgerði kom á
vettvang.
Tilkynnt var um eldinn til lögregl-
unnar í Keflavík klukkan 4.51 í fyrri-
nótt og fór slökkviliðið í Sandgerði
á staðinn, en slökkviliðið í Keflavík
var einnig kallað út. Vel gekk að
slökkva eldinn og var slökkvistarfi
lokið klukkan sex. Talið er að eldur-
.inn hafi kviknað út frá feiti í potti.
----» ♦ ♦--
Breytingar í
Miklagarði:
Þorskhausar til Nígeríu
Morgunblaðið/Sverrir
Starfsmenn Sjófangs á Grandagarði voru í óðaönn að búa sig undir að þurrka þorskhausa þegar ljósmyndari átti þar leið um í góðviðrinu
vikunni. Þorskhausarnir verða sendir til Nígeríu, en þar þykir þessi matur hið mesta lostæti.
Tvö mál um skattameðferð kvóta komin til ríkisskattanefndar:
Dæmi að kvóti sé afskrifaður
að fullu við úreldingu skipa
Vöruúrval
minnkar og
verð lækkar
BREYTING verður á verslun Mik-
lagarðs við Holtaveg í Reykjavík
í næstu viku. Breytingin felst í
því að vörunúmerum verður
fækkað verulega, dregið verður
úr þjónustu og vöruverð lækkað.
Að sögn Björns Ingimarssonar
framkvæmdastjóra verður meira
vöruúrval og þjónusta í öðrum
verslunum fyrirtækisins, eins og
í Kaupstað í Mjódd, versluninni í
JL-húsinu og verslunum í
Garðabæ og Hafnarfirði.
Stórmarkaðarnir í hverfum höfuð-
borgarsvæðisins verða reknir undir
nafninu Kaupstaður. Vöruúrvalið
verður minna í Miklagarði við Sund
en Björn Ingimarsson sagði að vöru-
úrval yrði engu að síður mun meira
en í Bónus-verslununum.
Björn sagði að fyrirtækið hefði
undirbúið þessar breytingar með því
að leita eftir hagstæðari innkaupum
erlendis frá og hefði því markmiði
verið náð. Því væri ekki að leyna
að Mikligarður hefði ekki náð ailt
of hagstæðum innkaupum fram til
þessa.
RÍKISSKATTANEFND hefur nú
fengið til úrskurðar tvö mál um
skattameðferð fiskveiðikvóta.
Málflutningi í þessum málum lauk
nýlega en þar kom fram að dæmi
eru um að útgerðarmenn afskrifi
fastan kvóta skipa að fullu við
úreldingu þeirra. Annað málið
snýst síðan um hvernig beri að
afskrifa kvóta við kaup á honum.
Ríkisskattstjóri hefur haft það
sem meginreglu að Iangtímakvóta
beri að afskrifa á sama hátt og
skip, það er um 8% á ári. Útgerð-
armenn hafa afskrifað kvóta um
25% en einnig er dæmi um að
kvótinn sé afskrifaður um 50%
eða allur við kaup á honum.
Endurskoðunardeild ríkisskatt-
stjóra hefur unnið að samræm-
ingu þeirra mála sem skattstjórar
hafa tekið upp vegna kvótamála.
Garðar Valdimarsson ríkisskatt-
stjóri segir að hann vilji ekki tjá sig
um þau mál sem eru til meðferðar
hjá ríkisskattanefnd. Hinsvegar hafí
skattstjórar breytt framtölum út-
gerðarmanna þar sem skip með
kvóta hafi verið úreld og kvótinn
gjaldfærður um leið niður í núll.
„Almennt má segja að dæmi hafa
komið upp þar sem skip hefur verið
fært niður í reikningum fyrirtækisins
og afskrifað sem úrelt og kvóti þess
með, þótt hann hafi verið fluttur
yfír á annað skip,“ segir Garðar.
„Þessu erum við ekki sammála og
viljum fá úrskurð ríkisskattanefndar
um hvernig beri að færa kvótann í
reikningum við þessar aðstæður."
Garðar segir að embætti hans telji
ekki fært að gjaldfæra kvóta skips
niður á núllið við úreldingu þess þar
sem kvótinn sé eftir sem áður í eigu
viðkomandi útgerðar. „Nefna má
raunhæft dæmi þar sem skip með
kvóta var keypt á 50 milljónir króna
árið 1989,“ segir Garðar. „Kvóti
þessa skips var metinn á 35 milljón-
ir króna en skipið sjálft á 15 milljón-
ir. Arið eftir var skipið selt án kvót-
ans á 15 milljónir króna. Við söluna
var bókfært í reikningum að sölutap-
ið hefði numið 35 milljónum króna.
Hér er verið að gjaldfæra tap á
Hátíðleg athöfn í Ósló þegar Grá-
gás heillagrip Orators var skilað
Ósló. Frá Guómtindi I,öve, frétlnritara Morgunbladsins.
Grágás, heillagrip Orators, félags laganema við Háskóla fs-
lands, var skilað formlega á föstudag. Norskir laganemar hnupl-
uðu gripnum í heimsókn sinni til Islands í síðasta mánuði, en
létu loks undan þrýstingi og skiluðu honum formlega við hátíð-
Iega athöfn á Háskólatorginu í miðborg Óslóar. Tók Einar Bene-
diktsson sendiherra á móti hinni uppstoppuðu grágæs fyrir
hönd eigenda. Mun það vera alsiða meðal laganema að taka
ófrjálsri hendi minjagripi af þessu tagi er þeir sækja hverjir aðra
» heim.
Athöfnin hófst á slaginu þrjú
með lúðraþyt. Margmenni úr hópi
stúdenta var viðstatt er fulltrúar
laganema og lagadeildar gengu
inn á torgið ásamt sendiherra Is-
lands og sendiráðsritara.
Dag Herrem, formaður orðu-
' nefndar félags laganema, liélt
stutta ræðu þar sem hann þakk-
aði þann tíma sem gæsin gisti
grannlandið, og afhenti síðan
sendiherra Grágás.
Svo mjög var ákvörðunin um
að skila gæsinni umdeild, að tekið
var til þess bragðs að festa hana
við einn nefndarmanna með hand-
járnum „til að koma í veg fyrir
að öfgasinnum úr röðum nemenda
tækist að gera áformin að engu“,
eins og komist var að orði í ræð-
unni, enda hafi gæsin uppruna-
lega verið gjöf frá Norðmönnum.
Einar Benediktsson hélt einnig
stutta tölu þar sem hann tók fram
að þess misskilnings hefi gætt að
gæsin hefði farið sjálfviljug úr
heimahögum, en því færi víðs
fjarri. Hún hafi verið þvinguð, og
færð ólöglega úr landi.
Sendiherra fól þvínæst Grágás
í hendur Ólafi Sigurðssyni sendi-
ráðsritara með þeim ummælum
að honum væri án efa treystandi
fyrir gæsinni fyrsta spölinn, því
þar færi maður vestfirskur, eins
og íslendingurinn Leifur Eiríks-
son. Vöktu hin síðustu ummæli
é.
nokkurn urg meðal viðstaddra.
Við sama tækifæri var skilað
ýmsum fleiri munum er slæðst
höfðu með í farteski Norðmann-
anna. Var þar um að ræða gesta-
bók Orators og fundarhamar for-
manns þess, ásamt forláta vík-
ingahjálmi.
Á hausti komanda mun vera
von á fulltrúum frá Orator í heim-
sókn til kollega sinna í Noregi.
Aðspurður hvort hann hræddist
hefndaraðgerðir svaraði Dag
Herrem því játandi. Lukkudýr
þeirra væri stytta af hryssu nokk-
urri er gert hefur víðreist, en að
sjálfsögðu yrðu allar varúðarráð-
stafanir gerðar.
móti sölunni sem nemur meiru en
andvirði skipsins og slíkt teljum við
ekki hægt.“
Hvað varðar ágreiningsefnið um
hvernig beri að eignfæra keyptan
langtímakvóta í bókhaldi fyrirtækja
hafa endurskoðendur og ríkisskatt-
stjóri túlkað afskriftir á mismunandi
hátt. Reikningsskilanefnd endur-
skoðenda túlkar málið þannig að
afskrifa eigi kvótann um 25% á ári
þegar kvótinn er færður sér en 8%
þegar hann er færður með skipi.
Skattyfirvöld vilja að sömu reglur
séu og gildi um afskriftir skipa eða
8% á ári. Garðar segir að síðan séu
dæmi um 50% afskriftir og að við
kaup á bátum sem síðan er lagt séu
dæmi um að kvótinn sé afskrifaður
í heild um leið.
Ríkisskattanefnd hefur nú þessi
mál til úrskurðar og raunar munu
fleiri slík á leið til nefndarinnar.
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins mun ætlunin að hraða áliti
nefndarinnar í þessum málum og það
á að liggja fyrir í næsta mánuði.