Morgunblaðið - 11.04.1992, Page 1

Morgunblaðið - 11.04.1992, Page 1
64 SIÐUR B/LESBOK STOFNAÐ 1913 86. tbl. 80. árg. LAUGARDAGUR 11. APRÍL 1992 Prentsmiðja Morgunblaðsins Rússland: Jeltsín vinnur mikil- vægan sigur á þingi Moskvu. Reuter. BORIS Jeltsín, forseti Rússlands, vann mikinn sigur í gær þegar nýr sambandssáttmáli, sem bindur Rússland og sjálfstjórnarlýð- veldin saman I eitt ríki, var samþykktur nær einróma. Hafði ver- ið búist við, að andstæðingar hans á þingi, kommúnistar og þjóð- ernissinnar, myndu nota þetta mikilvæga mál til að koma höggi á forsetann en þeir voru búnir að greiða sáttmálanum atkvæði áður en þeir áttuðu sig. Eru stuðningsmenn Jeltsíns mjög sigur- vissir og hóta að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um umbótastefn- una reynist þess þörf. Rúslan Khasb- úlatov, forseti rússneska þings- ins og stuðnings- maður Jeltsíns, lagði sambands- sáttmálann fram til samþykktar í mikilli skyndingu . , , og flaug hann í Jetsln gegn með 848 atkvæðum gegn 10. Þegar atkvæðagreiðslan var afstaðin áttuðu andstæðingar Jeltsíns sig á því, að gullið tæki- færi til að hafa í hótunum við for- setann, hafði gengið þeim úr greipum. Risu þá sumir þeirra upp til mótmæla en fengu engu um breytt. Með samningnum á að vera tryggt, að Rússlands bíði ekki sömu örlög og Sovétríkjanna, að leysast upp, og samþykkt hans var með nokkrum hætti sú trausts- yfirlýsing, sem Míkhaíl Gorbatsjov fékk ekki. Til að draga mesta broddinn úr gagnrýni andstæðinga sinna samþykkti Jeltsín að segja af sér forsætisráðherraembættinu, sem hann gegnir líka ásamt því að vera varnarmálaráðherra, en þó ekki fyrr en seinna, þegar efna- hagsumbótunum hefur verið hrundið í framkvæmd. Þá gerðu stuðningsmenn hans kommúnist- um og þjóðernissinnum það ljóst, að reyndu þeir að hindra störf forsetans og stjórnarinnar yrði farið fram á, að þingið yrði leyst upp og boðað til þjóðaratkvæða- greiðslu 12. júní nk. Þáyrðu Rússa beðnir að velja á milli Jeltsíns og samsteypustjórnar kommúnista og þjóðernissinna og einnig spurð- ir álits á nýjum drögum að stjórnarskrá þar sem gert er ráð fyrir valdamiklu forsetaembætti að bandarískri fyrirmynd. Það var sáttatónn í máli Jeltsíns á þingi í gær en það fór ekki á milli mála, að hann stefnir að því að styrkja völd forsetaembættis- ins,'ekki veikja þau. Þá tilkynnti hann einnig, að verulegar breyt- ingar á ríkisstjórninni væru ekki fyrir dyrum. Reuter Nokkrir af forystumönnum breska Ihaldsflokksins fagna sigi-i eftir að úrslit þingkosninganna í Bret- landi voru kunn í gær. Þeir eru, talið frá vinstri: Chris Patten, formaður flokksins, John Major forsæt- isráðherra og kona hans, Norma, John Wakeham orkumálaráðherra og Douglas Hurd utanríkisráð- herra. A spjöldunum stendur: „JM er forsætisráðherra". Breski Ihaldsflokkurinn vinnur sigur í þingkosningunum: Aukið valfrelsi og stéttlaust þjóðfélag markmið Majors Búist við að Kinnock segi af sér - Breyt- ingar á ríkisstjórn íhaldsmanna í aðsigi , Lundúnum. Frá Ásgeiri Sverrissyni, blaðatnanni Morgtinblaðsins. IHALDSFLOKKURINN breski, undir sljórn Johns Majors for- sætisráðherra, vann sigur í þing- kosningunum á fimmtudag og hlaut hreinan meirihluta á þingi. Aldrei áður í nútímastjórnmála- sögu Breta hefur það gerst að sami flokkur sé við völd fjögur kjörtimabil í röð en meirihluti Ihaldsflokksins á þingi, 21 þing- sæti, hefur ekki verið minni frá því í tíð Winstons Churchills árið 1951. Verkamannaflokkurinn jók fylgi sitt á landsvísu miðað við kosningarnar 1987 en flokk- urinn náði ekki að vinna sigra í nægilega mörgum einmennings- kjördæmum til að koma í veg fyrir áframhaldandi stjórn íhaldsmanna. Sprenging í Lundúnum Lundúnum. Reuter. TALIÐ var að þrír menn hefðu beðið bana og tugir manna orðið fyrir meiðslum er öflug sprengja sprakk í miðborg Lundúna í gærkvöldi. Maður með írskan hreim hafði varað við sprengjutilræðinu og tals- menn lögreglunnar töldu að írski lýðveldisherinn (IRA) hefði verið að verki til að mótmæla úrslitum þingkosninganna á Bretlandi. Gerry Adams, forseti Sinn Fein, stjórnmálaarms IRA, tapaði þing- sæti í Belfast á Norður-írlandi. Talsmenn lögreglunnar sögðu að sprengjan hefði sprungið í fjár- málahverfinu í miðborg Lundúna. Starfsmaður Reuter-fréttastof- unnar, sem var að vinna í hverf- inu, sagði að margar byggingar hefðu orðið fyrir skémmdum. Talsmaður lögreglunnar sagði Keuter Lögreglumaður gengur um götu í miðborg Lundúna eftir sprengju- tilræði í gærkvöldi. Gatan er þakin rusli eftir tilræðið eins og sjá má. að bifreið hefði sprungið við bygg- ingu Lloyd’s-tryggingafélagsins í miðborginni. Sjúkrabílstjóri sagði að 50 manns hið minnsta hefðu orðið fyrir meiðslum í sprengingunni. Byggingar hefðu skemmst í allt að 500 metra fjarlægð. Flokksbræður Johns Majors fögnuðu ákaft þessum óvænta sigri en forsætisráðherrann lagði áherslu á málefnin í sigurræðu sinni og ítrekaði að ekki stæði til að einka- væða heilbrjgðisþjónustuna hér í Bretlandi. íhaldsflokkurinn vildi koma á stéttlausu þjóðfélagi: „Ég heiti ykkur því að þetta tækifæri munum við ekki misnota." Talið var í gærkvöldi að afsögn Neils Kinnocks, leiðtoga Verkamanna- flokksins, væri yfii'vofandi og breyt- inga á ríkisstjórn Johns Majors er sömuleiðis að vænta. Undanfarnar fjórar vikur höfðu skoðanakannanir bent til þess að Verkamannaflokkurinn hefði for- skot á íhaldsmenn og að Neil Kinnock, leiðtogi flokksins, yrði næsti forsætisráðlierra Bretlands þótt flokkur hans fengi tæpast þingmeirihluta. Kannanir sem voru birtar daginn fyrir kjördag sýndu hins vegar snarpa fylgisaukningu íhaldsmanna. Kannanir sem gerðar voru á kjörstað staðfestu þessa þró- un en á óvart kom að íhaldsflokkur- inn skyldi hljóta svo öruggan meiri- hluta á þingi sem raun ber vitni. Flokkurinn fékk 336 menn kjörna en fylgi hans á landsvísu reyndist 42% og er það lítil sem engin breyt- ing frá 1987. Verkamannaflokkur- inn hlaut 271 mann kjörinn, bætti við sig 42 þingsætum frá 1987 og fékk 34,5% fylgi á landsvísu, samanborið við.rúm 30% árið 1987. Fylgisaukning Fijálslyndum dem- ókrötum til handa, sem fram hafði komið í skoðanakönnunum, reynd- ist ekki eiga við rök að styðjast. Flokkurinn missti fylgi líkt og gerð- ist 1987 og fékk 20 menn kjörna en bandalag fijálslyndra og jafnað- armanna hafði 22 menn á þingi eftir síðustu kosningar. Þjóðernis- sinnar í Skotlandi fengu 3 menn, velskir þjóðernlssinnar 4 og flokkar á Norður-írlandi 17. John Major forsætisráðherra lýsti í stuttu ávarpi, sem hann flutti í Downingstræti 10 hér í Lundúnum, hugmyndafræði og baráttumálum íhaldsflokksins á þann veg að val- frelsi einstaklingsins og myndun hins stéttlausa þjóðfélags bæri þar hæst. „Að þessu munum við stefna og ég heiti ykkur því að við munum ekki misnota þetta tækifæri," sagði forsætisráðherrann, sem nú hefur hlotið umboð þjóðarinnar til að stjórna Bretlandi næstu fimm árin. Þess er vænst að skýrt verði frá breytingum á stjórn Majors jafnvel í dag, laugardag. Því er spáð að miklar breytingar verði gerðar og líklegt þykir að vegur Michaels Heseltines umhverfisráðherra vaxi en hann var helsti keppinautur Majors um leiðtogaembættið. Er jafnvel talið að Heseltine verði næsti fjármálaráðherra Bretlands. Úrslitin eru talin mikið áfall fyr- ir Verkamannaflokkinn og leiðtoga hans, Neil Kinnock. í yfirlýsingu sem birt var í höfuðstöðvum Verka- mannaflokksins í Lundúnum síð- degis í gær sagði Kinnock að hann hygðist nú gera samstarfsmönnum sínum grein fyrir hvernig hann myndi bregðast við ósigrinum á fimmtudag. Onnur yfirlýsing ýrði birt á mánudag. Var þetta túlkað á þann veg að Kinnock hygðist segja af sér leiðtogaembættinu. Sjá fréttir á bls. 26-27 og miðopnu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.