Morgunblaðið - 11.04.1992, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. APRÍL 1992
39
Morgunblaðið/Gunnar Hallsson
Standandi við neyðarsímann: Gunnar Júl. Egilsson hafnarvörður,
Sveinbjörn Björnsson svæðisumsjónarmaður Pósts og síma, Magnús
Olafs Hansson slysavarnamaður og Ólafur Kristjánsson hafnarstjóri.
Bolungarvík:
Neyðarsími við höfnina
Bolungarvík.
VIÐ höfnina hér í Bolungarvík á
svo nefndum Grundargarði hef-
ur verið tekinn í notkun neyðar-
sími sem hægt er að grípa til ef
slys eða óhöpp verða og hjálpar
er þörf. Við Grundargarð fer
fram löndun allra stærri fiski-
skipa og þar er einnig talsvert
um útskipanir, þannig að oft er
talsvert athafnalíf á Grundar-
garði.
Það var að frumkvæði slysa-
varnafólks í Bolungarvík sem þess-
um síma var komið fyrir. Síminn
er staðsettur á áberandi stað lokað-
ur inn í skærrauðan kassa. Til að
nota símann þarf að brjóta gler á
kassanum, opna lúgu framan á
honum, og um leið og tólið er tekið
af símanum fer í gang sírena og
blikkljós á hafnarsvæðinu og sam-
band næst við sjúkrahús staðarins,
en þar er sólarhringsvakt og þaðan
er kallað á lækni og sjúkrabíl.
Öll vinna við uppsetningu þessa
boðkerfis var unnin í sjálfboðavinnu
og má nefna að Sveinbjörn Björns-
son svæðisumsjónarmaður Pósts og
síma gaf alla sína vinnu við upp-
setriingu búnaðarins, þá gaf Finn-
bogi Bernódusson vélsmiður hér í
bæ alla vinnu og efni í kassann
utan um símann og undirstöður
undir ljós og sírenur. Félagar í
björgunarsveit Ernis unnu að lagn-
ingu kapla. Tæknibúnaðurinn var
fenginn frá Rafögn í Reykjavík.
Við höfnina í Bolungarvík eru
tvær aðrar bryggjur og er áætlað
að koma upp samskonar búnaði
einnig við þær bryggjur.
- Gunnar.
NYAR VÖRUR
FRÁ
ARA
TÍSKUVERSLUN • KRINGLUNNI 8-12 • Sl'MI 33300
Einvígið um Reykjavíkur-
meistaratitilinn í járnum
Eina ferðina enn í vetur mæðir
mjög á Olafi Ásgrímssyni, sem
verið hefur skákstjóri á flestum
stærstu mótum hérlendis síðustu
ár. Aukakeppni þurfti á síðasta
íslandsmóti, Haustmóti Taflfélags
Reykjavíkur og nú síðast á Reykja-
víkurmótinu. Afar erfitt hefur verið
að finna tíma til að tefla þetta ein-
vígi, bæði vegna taflmennsku
keppendanna í öðrum mótum og
annarra skákviðburða.
Guðmundur Gíslason
hraðskákineistari íslands
Isfirðingurinn Guðmundur Gísla-
son hefur teflt mikið á höfuðborg-
arsvæðinu í vetur og náð eftirtekt-
arverðum árangri. Nýjasti sigur
hans var á hraðskákmóti íslands
um síðustu helgi, þar skaut hann
mörgum sterkum hraðskákmönn-
um ref fyrir rass:
1. Guðmundur Gíslason 14 v. af
18 möguleguni
2. Jónas P. Erlingsson 13*/2 v.
3. Þrðstur Þórhallsson 13 v.
4. Helgi Áss Grétarsson 11 Vi v.
5. -8. Jón G. Viðarsson, Þórleifur
Karlsson, Arnar Þorsteinsson og
Gylfi Þórhailsson 11 v.
9.-12. Ingvar Ásmundsson, Unn-
steinn Sigurjónsson, Bragi Hall-
dórsson og Ríkharður Sveinsson
10'Á v.
Skákmót 40 ára og eldri
Nýbreytni í starfsemi Taflfélags
Reykjavíkur er að halda mót fyrir
skákmenn 40 ára og eldri. Tefldar
eru sjö umferðir eftir Monrad-kerfi
aðeins ein umferð á viku. Ekki er
hægt að segja annað en að þessi
tilraun hafi farið vel af stað, marg-
ir skákmenn sem ekki hafa sést á
mótum um nokkurt skeið mættu
til leiks. Eftir þijár umferðir var
Jón Þorvaldsson eini keppandinn
sem unnið hafði allar sínar skákir.
Jóhann Örn Siguijónsson var annar
með 2'A v.
Kópavogur í fyrstu deild
Taflfélag Kópavogs átti bæði 25
ára afmæli í vetur og flutti í eigið
húsnæði. Bæjaryfirvöld þar þurfa
ekki að sjá eftir öflugum stuðningi
við félagið í húsnæðismálum þess.
TK sigraði I annarrar deildar
keppni Skáksambands íslands
1991-2 með miklum yfirburðum
og tryggði sér sæti í fyrstu deild
næsta vetur.
Urslit í nokk'rum mótum á veg-
um Taflfélags Kópavogs að undan-
förnu urðu þessi:
Skákþing Kópavogs 1992:
1. Haraldur Baldursson 4 v. af 5
mögulegum
2. -3. Hlíðar Þór Hreinsson 3 v.
2.-3. Haraldur Haraldsson með 3
v.
Hraðskákmót Kópavogs:
1. Haraldur Baldursson 13 ‘/2 v. af
17 mögulegum.
2. Sigutjón Haraldsson 13‘/2 v.
3. Hlíðar Þór Hreinsson I2V2 v.
Haraldur sigraði Siguijón í ein-
vígi, 1 */t— ‘/2.
Atskákmót Kópavogs 1992:
1. Matthías Kjeld 5'/2 af 7.
2. -3. Hlíðar Þór Hreinsson 5 v.
2.-3. Eggeit ísólfsson 5 v.
Firmakeppni Taflfélags Kópa-
vogs:
1. Prentstofa G. Ben (Gunnar Öm
Haraldsson) 6 v. af 7 mögulegum
2. Ora hf. (Eggert ísólfsson) 5V2 v.
3. Línuhönnun (Björn Víkingur
Þórðarson) 4 ‘/2 v.
BandaUg Ultntkra ikin
*
LANDSBJÓRG
Skák
Margeir Pétursson
ERFIÐLEGA gengur að skera
úr um það hver verði skákmeist-
ari Reykjavíkur 1992. Þeir Sæv-
ar Bjarnason, alþjóðlegur meist-
ari, og Sigurður Daði Sigfússon
urðu jafnir og efstir á Skákþingi
Reykjavíkur sem lauk í febrúar
og háðu siðan fjögurra skáka
einvígi um titilinn. Því lauk með
jafntefli 2-2, eftir harða baráttu
og hófst þá bráðabani. Sá er
fyrr vinnur skák hlýtur Reykja-
víkurmeistaratitilinn. Þeirri
fyrstu lauk með jafntefli og sú
næsta fór í bið og verður ekki
tefld áfram fyrr en á þriðjudag.
Keppinautarnir hafa dijúgan
tíma til að rannsaka biðstöðuna
sem lítur þannig út:
Svart: Sævar Bjarnason
Hvítt: Sig. Daði Sigfússon
Svartur á leik, en sem sjá má
hefur hann meira rými, en á erfitt
með að fínna leið fyrir biskupa sína
til að taka þátt í sókn. Staðan verð-
ur því að metast í járnum eins og
reyndar einvígið sjálft.