Morgunblaðið - 14.05.1992, Blaðsíða 1
72 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
108. tbl. 80. árg. FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 1992 Prentsmiðja Morgnnblaðsins
Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna;
Leggst gegn fríð-
argæslu í Bosníu
Segir starfsemi SÞ í Króatíu í hættu
Sameinuðu þjóðunum, Sar^jevo. Reuter.
Þingmönnum hitnar í hamsi
ítalska þingið kom saman í gær til að kjósa nýjan forseta í stað Francescos Cossiga, sem sagði af sér
embættinu. Þingfundurinn hófst með háværum deilum um fyrirkomulag kjörsins, sem þykir mjög flók-
ið. Þingmönnunum hitnaði svo í hamsi að til handalögmála kom, eins og sjá má á myndinni. Urslita
í kjörinu er ekki að vænta fyrr en aðfaranótt laugardags.
Sjá „Forsetakjörið hófst..." á bls. 27.
Þing Ukraínu býður Rússum birginn:
Sj álfstæðisyfirlýsing
Krímarþings ómerkt
Kravtsjúk segir hana skapa hættu á stríði við Rússland
BOUTROS Boutros-Ghali,
f rainkvæmdastjóri Sameinuðu
þjóðanna, hafnaði í gær hug-
Þriðji heimurinn:
Fimmtung-
ur íbúanna
vannærður
Genf. Reuter.
AÐ MINNSTA kosti 900 milljón-
ir manna eru vannærðar í
heiminum, þar af 500 milljónir
alvarlega, að því er fram kemur
í skýrslu sem gefin var út í gær.
í skýrslunni segir að hartnær
13 milljónir barna undir fimm ára
aldri deyi á ári hveiju, beint eða
óbeint af völdum vannæringar eða
sýkingar. „Loforð hafa verið gefín
um að ekkert barn skuli svelta.
Ekki hefur verið staðið við þessi
loforð," segir í skýrslunni.
Þar kemur jafnframt fram að
nógu mikið sé framleitt af matvæl-
um í heiminum þrátt fyrir mikla
mannfjölgun. „Fátæku ríkin, sem
eru ekki sjálfum sér nóg um mat-
væli, hafa hins vegar ekki nægan
erlendan gjaldeyri til að kaupa
mat á heimsmarkaði.“
Skýrslan var gerð á vegum Al-
þjóða heilbrigðismálastofnunár-
innar (WHO) og Matvæla- og land-
búnaðarstofnunarinnar (FAO).
myndum um að senda friðar-
gæslusveitir til Bosníu-
Herzegovínu og sagði að friðar-
gæsla samtakanna í Króatiu
væri í hættu.
„Ástandið í Bosníu-Herzego-
vínu er hörmulegt og hættulegt,"
sagði í skýrslu sem Boutros-Ghali
lagði fyrir öryggisráð Sameinuðu
þjóðanna. Hann bætti við að jafn-
vel neyðaraðstoð við íbúa Bosníu
hefði stöðvast vegna „óagaðra og
ölvaðra hermanna“ í landinu.
Friðargæsiusveitir Sameinuðu
þjóðanna, sem annast eftirlit í
Króatíu, eru með höfuðstöðvar í
Sarajevo, höfuðborg Bosníu, og
Boutros-Ghali lagði til að allir liðs-
menn þeirra yrðu fluttir þaðan.
Hann kvaðst þegar hafa gefið yfir-
manni sveitanna fyrirmæli um að
fækka þeim verulega.
Framkvæmdastjórinn komst
ennfremur að þeirri niðurstöðu að
starfsemi friðargæslusveitanna í
Króatíu væri í hættu þar sem ótt-
ast væri að bardagar myndu breið-
ast út á eftirlitssvæði þeirra.
Serbar lýstu í fyrradag yfír ein-
hliða vopnahléi í Bosníu til að
gefa Evrópubandalaginu færi á
að koma á viðræðum að nýju milli
leiðtoga Serba, Króata og múslíma
í landinu. Vopnahléið tók gildi í
gær og allt var með kyrrum kjör-
um í Sarajevo, nema hvað leyni-
skyttur hleyptu nokkrum sinnum
af byssum í morgunsárið. Átök
blossuðu hins vegar upp á nokkr-
um stöðum í norðurhluta landsins,
að sögn fréttastofunnar Tanjug.
Kíev. Reuter.
ÞING Ukraínu ómerkti í gær
sjálfstæðisyfirlýsingu þingsins á
Krím frá því í síðustu viku. Lík-
legt er talið að þessi ákvörðun
verki sem olía á eldinn í deilum
Rússa og Ukraínumanna. Leoníd
Kravtsjúk, forseti Ukraínu, sagði
að sjálfstæðisyfirlýsingin hefði
skaþað hættu á stríði við Rúss-
land.
Úkraínska þingið samþykkti með
340 atkvæðum gegn sex að ógilda
yfirlýsingu Krímarþings um sjálf-
stæði landsins og viðskilnað við
Úkraínu sem taka átti gildi að lok-
inni þjóðaratkvæðagreiðslu.
Úkraínsku þingmennirnir gáfu
Krímarþingi viku til að afturkalla
yfirlýsinguna. Þeir veittu einnig
Kravtsjúk forseta umboð til að gera
ráðstafanir til að tryggja að úkra-
ínska stjórnarskráin yrði höfð í
heiðri á Krím. Hann getur til að
mynda sent þangað nefnd tilsjónar-
manna til höfuðs þarlendum yfír-
völdum.
Kravtsjúk sagði er hann ávarpaði
þingið að sjálfstæðisyfirlýsingin
hefði skapað hættu á blóðsúthell-
ingum á Krím. „Við erum að ræða
um svæði, sem gæti orðið að víg-
velli tveggja mikilla hervelda —
Úkraínu og Rússlands," sagði hann.
Nokkrir atkvæðamiklir embætt-
ismenn í Rússlandi hafa sagt að
rússnesk stjórnvöld hafí rétt til að
endurheimta Krímskaga, sem var
„gefínn“ Úkraínu árið 1954 til að
minnast sambandsins við Rússland
í þijár aldir. Margir Rússar telja
að „gjöfin“ hafi verið óheimil sam-
kvæmt stjórnarskránni. Á Krím búa
2,5 milljónir manna, þar af 60%
Rússar. Svartahafsflotinn, sem
Úkraínumenn og Rússar hafa hvor-
irtveggju gert tilkall til, er með
höfuðstöðvar á Krímskaga.
Reuter
I vígi kapítalismans
Míkhaíl Gorbatsjov, fyrrverandi forseti Sovétríkjanna, heimsótti í gær
verðbréfamarkaðinn i New York, eitt af höfuðvígjum kapítalismans
í heiminum. Ronald Reagan, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, var í för
með honum og hundruð fjármálamanna klöppuðu þeim lof í lófa er
þeir birtust. A myndinni virða þeir dýrðina fyrir sér ásamt William
Donaldson, stjórnarformanni markaðarins.
Etna:
Eldmessa stöðvar
hraunstrauminn
Rótn. The Daily Telegrapli.
ÍBÚAR í þorpinu Zafferana, sem er við rætur eldfjallsins Etnu
á Sikiley, sáu eldflóðið steypast í átt til sín en þegar fyrstu
taumarnir náðu fótstalli styttunnar af heilögum Alfio, verndar-
dýrlingi þorpsins, stöðvaðist það skyndilega. „Kraftaverk" segja
íbúarnir og ekki það fyrsta því eftir mikla eldmessu á föstudag-
inn langa dagaði aðra hraunelfi uppi rétt við þorpsmörkin.
Þorpsbúarnir efast ekki um,
að það hafi verið fyrir guðlega
forsjón, að þeir sluppu við send-
inguna frá „henni“ eða „kölska“
eins, og þeir kalla Etnu en það
var gamall maður í þorpinu, sem
tefldi heilögum Alfio gegn hraun-
breiðunni. Á föstudaginn langa
var einnig beðið til dýrlingsins
með sama árangri.
Italskir jarðfræðingar og vís-
indamenn heyja sína baráttu
gegn eldinum úr Etnu með öðrum
og veraldlegri vopnum, jarðýtum,
sprengiefni og vatni. Svo vill til,
að hraunstraumurinn rennur eftir
lokuðum göngum efst en kemur
síðan fram neðar í hlíðunum og
oft þar sem engan varir. Þessum
göngum er reynt að loka, fyrst
með því að kæla þau með vatni,
sem steypt er úr flugvélum, og
svo með öflugum sprengjum. Er
vonast til, að sprengingarnar
bijóti úr gangaveggjunum og loki
um leið fyrir rennslið.