Morgunblaðið - 14.05.1992, Blaðsíða 20
I
20
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MAI 1992
Merkjasalan 15. og 16. maí:
Vinnum saman —
Verndum hjartað
eftir Ingibjörgii
Ólafsdóttur
Landssamtök hjartasjúklinga eru
enn á ferð og er það í þriðja sinn
sem farið er með rauða hjartapijón-
inn út til að leita stuðnings lands-
manna. Og ávallt er það sami til-
gangurinn, nefnilega sá að sfana
i
fé til styrktar hjartaskurðlækning-
um á Landspítalanum og endur-
þjálfun hjartasjúklinga, með öðrum
orðum, koma þessum sjúklingum
til heilsu og starfa út í lífið aftur.
Flestir í þessum umrædda hópi
eru konur og karlar á besta aldri
og eru því dýrmæt sínum nánustu
og þjóðinni allri, fólk með fulla
starfsorku, þegar sjúkdómurinn
knýr dyra. Það er sorgleg staðreynd
að í okkar síversnandi og nánast
sveltandi heilbrigðiskerfi skuli það
vera almenningurí landinu sem leita
þarf til; fara beint ofan í vasa þeirra
sem hafa meira en nóg með að sjá
sér og sínum farborða.
Aðdragandi, aðgerð og endur-
þjálfun, þetta þrennt er hvert kapít-
uli út af fyrir sig. Á undanförnum
árum hef ég kynnst mörgu af þessu
hugrakka fólki og séð blik augria
þeirra kvikna á ný og kraftinn og
lífsorkuna bijótast fram aftur.
Allir þeir peningar sem komið
hafa inn, fýrst og fremst fyrir sölu
á rauða hjartapijóninum og einnig
sölu á happdrættismiðum á sl.
hausti, hafa farið til að kaupa á
tækjum á endurþjálfunarstöðina á
Ingibjörg Ólafsdóttir
„Verkefnin eru næg
framundan. Það þarf
að styrkja aðstöðu
deildanna úti á landi.
Þá á ég við deildir
hjartasjúklinga sem
stofnaðar hafa verið í
kaupstöðum víða.“
Reykjalundi og HL:stöðina í
Reykjavík og víðar. Ágóðinn af
happdrættissölunni á sl. hausti fór
til kaupa á ómsjártæki fyrir hjarta-
deild Landspítalans. Það tók vissan
tíma að panta tækið, fá það af-
greitt og tækið komst í notkun um
áramótin og var mikill ávinningur.
En verkefnin eru næg framundan.
Það þarf að styrkja aðstöðu deild-
anna úti á landi. Þá á ég við deild-
ir hjartasjúklinga sem stofnaðar
hafa verið í kaupstöðum víða.
Áframhaldandi þjálfyn og hreyfíng
er hjartasjúklingum lífsnauðsynleg
og skiptir öllu.
Landssamtök hjartasjúklinga
fóru vel af stað, en mikið starf er
framundan um ókomin ár.
Höfundur er lýúkrunarfræðingur
á Reykjalundi.
auto
motor
Hið virta þýska bílatímarit AUTO MOTOR UND SPORT hefur
verið með MAZDA 323 í langtímaprófun síðastliðin 2 ár. Nú
nýlega hafði honum verið ekið 100.000 kílómetra og reyndist
hann hafa lægstan rekstrar- og viðhaldskostnað allra þeirra bíla,
sem tímaritið hefur tekið í slíka prófun. Ennfremur var haft
samband við fjölda eigenda og luku þeir einróma lofi á bílinn,
einn sagði m.a.:
„Ánægðari getur maður ekki verið!“
Við bjóðum MAZDA 323 í 4 misstórum útgáfum, sem hafa
gjörólíkt yfirbragð, útlit og eiginleika. Þær eru allar með
vökvastýri og ríkulegum staðalbúnaði. Hægt er að velja um 4
mismunandi vélar, sem eru með bensíninnspýtingu og
mengunarvörn, sjálfskiptingu eða handskiptingu og flestar gerðir
fást nú með ALDRIFI.
MAZDA 323 kostar frá 885 þúsund krónum.
(3 dyra hlaðbakur LXi, staðgreiðsiuverð með ryðvöm og skráningu.)
MAZDA endist lengur!
útiUft
GLÆSIBÆ, SÍMI 812922
Glæsilegur
golffatnaður
fyrir dömur og herra
R/ESIR HF
SKÚLAGÖTU 59, REYKJAVÍK S.61 95 50
Þú svalar lestraiþörf dagsins