Morgunblaðið - 14.05.1992, Blaðsíða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 1992
Nemendur Bændaskólans á Hvanneyri.
Morgunblaðið/Diðrik Jóhannsson
HVANNEYRI
Vantaði ekki í kennslustund báða veturna
Við slit Bændaskólans á Hvann-
eyri kom fram í ræðu skólastj-
óra Sveins Hallgrímssonar að skólinn
gerði æ meiri kröfur til nemenda,
þeir aftur kvörtuðu undan miklu
námsefni en samt voru meðalein-
kunnir óvenju háar við brottfararpróf
í þetta sinn. Nemendur sóttu kennslu
mjög vel og hlutu 17 þeirra 10 í eink-
un fyrir ástundun.
Í skólaslitaræðu sinni gerði skóla-
stjóri m.a. að umræðuefni, að skólinn
hefði í mörg ár fengið naumt
skammtað fé til viðhalds húsakynna
skólans. Nú er svo komið að það
verður að setja þak á „Nýja“ skóla-
húsið, 30 árum eftir byggingu þess
með steyptu flötu þaki. Ibúðarhús-
næði skorti einnig á staðnum.
Af 42 nemendum sem höfðu lokið
prófum hlutu 2 ágætiseinkunn, 22,
1. og 15, 2. einkunn. Hæstu meðal-
einkunn að þessu sinni hlaut Lárus
Pétursson, Káranesi í Kjós 9,2. Að
venju gáfu margir aðilar verðlaun til
þeirra, sem hæstu einkunnir hlutu.
Lárus hlaut verðlaun fyrir hæstu ein-
kunn á búfræðiprófí og í verknámi.
Hilda Pálmadóttir fyrir árangur í
rekstrarsviði, í hrossarækt og ferða-
þjónustu, Kristín Hermannsdóttir
verðlaun fyrir árangur á sviði naut-
griparæktar og verknán ásamt Lár-
usi og Helga Lilja Pálsdóttir fyrir
ullariðn. Steingrímur Kristinsson
skaraði fram úr á sviði sauðfjárrækt-
ar, einnig hlaut hann sérstaka viður-
kenningu fyrir að hafa ekki vantað
í eina einustu kennslustund báða
veturna.
Landbúnaðarráðherra, Halldór
Blöndal, flutti ávarp og afhenti
Mævu Friðrúnu Sólmundsdóttur
verðlaun fyrir árangur í skógrækt.
Hilda Pálmadóttir ávarpaði samkom-
una f.h. nýútskrifaðra búfræðinga.
D.J.
FLUGLEIDIR
Ifklúbburinn KEILIR
tilkynna eftiifarandi:
laugardaginn 16. og
sunnudaginn 17. maí nk.
verður leikinn 36 holu höggleikur
með og án forgjafar
á Hvaleyrarvellinum.
Glæsilegar feróir
frá FLUGLEIDUM
eru í verólaun.
AUKAVERDLAUN fyrir að fara holu í höggi á 17 braut
er ferð fyrir tvo með Flugleiðum til Orlando.
FLUGLEIDIR
Ræst verður út frá kl. 8.00. Skráning
verður i síma 53560 föstudaginn
15. maítol kl. 21.00. Mótið er stigamót.
Kappleikjanefnd.
Morgunblaðið/Sturla Páll Sturluson
Hluti af nemendum Popplingaskóla Ingu Jónasar á Suðureyri
með popplingahúfur á höfði á lokadegi skólans.
UPPLYFTING
Skólaslit í popplinga
skóla Ingn Jónasar
að voru kátir krakkar sem
tóku á móti fréttaritara þeg-
ar að hann leit inn í síðasta
kennslutímann í Popplingaskóla
Ingu Jónasar á Suðureyri.
Að sögn Ingibjargar Jónasar-
dóttur popplingaskólastjóra fékk
hún hugmyndina að stofnun skól-
ans í vetur sem leið þegar að
umræðan um Suðureyri við Súg-
andafjörð var sern neikvæðust hjá
stjómvöldum. „Ég neita að gefast
upp fyrir illu umtali og ákvað því
að gera eitthvað jákvætt og
skemmtilegt í hita leiksins og
auglýsti opnun skólans. Ég fékk
strax fimmtán nemendur sem
hafa sýnt mikinn áhuga og hafa
mætt vel í vetur. Þar sem ég hef
ekki yfir hljómsveit að ráða þá
hef ég lagt meira upp úr leik í
kringum danslögin sem við flytj-
um. Þá hefur eiginmaðurinn minn,
Guðmundur A. Elíasson spilað
undir á harmonikku í nokkrum
laganna. Einnig höfum við horft
á spólur frá rokklingaskóla Báru
og Birgis og reynt að læra af
þeim frábæra árangri sem þau
hafa náð þar í sínu starfi".
Ingibjörg segist vera ánægð
eftir veturinn og vonast til að
krakkarnir hafi haft bæði gagn
og gaman að.
- Sturla Páll.
Morgunblaðir/-pþ
Mömmurnar meö afkvæmi sín í miðdegismætingnnni.
FÉLAGSMÁL
Mömmumiðdegi
Um miðdegið á miðvikudögum
hafa 8 til 12 mömmur mætt í
sal Kristniboðssambandsins við Háa-
leitisbraut með bömin sín. Hefur
þessi tími hentað sumum frekar held-
ur en mömmumorgnar, sem eru í
safnaðarheimilum nokkurra kirkna.
Eru flestar mæðumar með böm, sem
em nýfædd og upp að skólaaldri.
Þó er það ekki skilyrði að eiga börn
til að mæta þarna.
Forsvarsmæðumar fyrir þessu
starfi, þær Arna Ingólfsdóttir og
Valdís Jónsdóttir, sögðu, að megin-
markmiðið með þessu mömmumið-
degi væri að hittast til að spjalla
saman, auk þess sem þær hefðu
stund með krökkunum, þar sem
sungið væri með þeim og sagðar
sögur.
Þetta starf byijaði nú eftir áramót-
in, og væri það opið hveijum, sem
vildi koma, ekki síður feðrum, sem
þó væru ákaflega latir við að láta
sjá sig.
COSPER