Morgunblaðið - 14.05.1992, Qupperneq 2
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MAI 1992
Fæðingarheimilið:
Fæðingagangnr
á Landspítala
ÁRNI Gunnarsson, formaður stjórnamefndar Ríkisspítala, segir að í
samkomulagi um framtíð Fæðingarheimilisins í Reykjavík felist að
gengið verði frá sérstökum fæðingagangi innan Landspítalans. Þannig
verði konum áfram tryggður sá valkostur við fæðingar sem var á
Fæðingarheimilinu. Starfsfólki Landspítalans hefur enn ekki verið
kynnt samkomulagið en unnið er að tæknilegri úttekt og könnun á
kostnaði við breytinguna.
Ámi sagði að þarna væri fundin
lausn á þeim meginvanda, sem væri
að konur hefðu áfram valkost við
fæðingu. Hugmyndin sé að ganga
frá fæðingargangi innan Landspítal-
ans þar sem konur muni njóta sam-
bærilegrar þjónustu og á Fæðingar-
heimilinu. „Þetta er niðurstaða sem
allir sætta sig við,“ sagði Árni. „Það
sem að okkur snýr núna er tækni-
lega hliðin, það er með hvaða hætti
verði hægt að koma þessu við.“
Fæðingargangurinn verður í tengsl-
um við fæðingardeildina og bak-
tryggingu um að þar verði um að
ræða tæknilega fullkomin fæðingar-
deild.
„Við emm ekki búnir að sjá hver
kostnaðurinn verður,“ sagði Ámi.
„Við munum ná fram sparnaði með
því að leggja Fæðingarheimilið niður
en þar gætum við komið fyrir lang-
legudeild fyrir krabbameinssjúkl-
ínga.
Byssumaðurinn í Mávahlíð:
Krafist gæsluvarð-
halds yfir manninum
Rannsóknarlögregla ríkisins
gat í gær ekki yfirheyrt byssu-
manninn, sem víkingasveit lög-
reglunnar handtók i Mávahlíð í
árangurslausar tilraunir til að fá
hann til að tjá sig um málið í sam-
Morgunblaðið/bigurður Jónsson
Lokið við að steypa brúargólfið
Lokið var við að steypa gólf Ölfusárbrúar í gær en
þá var myndin hér að ofan tekin. Gert er ráð fyrir
að hleypa léttri umferð á brúna að nýju 20. maí og
opna hana fyrir allri umferð 25. maí. Steypuvinnan
við brúargólfíð tafðist um fimm daga vegna kulda
en næturfrost hefur verið undanfarna daga. Næstu
verkþættir við endurnýjun brúarinnar eru vinna við
gangbrautina, frágangur handriða og vinna við norð-
urenda brúarinnar sem breytist nokkuð.
Sig. Jóns.
Reykjavík í fyrrakvöld, vegna
annarlegs ástands hans. Sam-
kvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins voru gerðar þijár
hengi. Framburður þess sem fyrir KeflaVÍkurflUgfVÖllur:
skotinu varð er einnig óljós og --—-------
Drukknaði
í Sandgerði
Maðurinn sem drukknaði í Sand-
gerðishöfn hét Friðrik Olafsson og
var búsettur í Fífumóa 1 í Njarðvík.
Hann var 28 ára gamall, fæddur 25.
september 1963. Friðrik vann á
þungavinnuvélum hjá íslenskum að-
alverktökum á Keflavíkurflugvelli.
Hann var ókvæntur og bamlaus.
samhengislaus, samkvæmt upp-
lýsingum blaðsins. Hann lá á
sjúkrahúsi í gær en er ekki í lífs-
hættu en kúlan gekk inn um
vinstra munnvik hans og út úr
kinninni við eyrað.
RLR lagði í gærkvöldi fyrir saka-
dómara kröfu um gæsluvarðhald
yfír byssumanninum og verður af-
staða til hennar væntanlega tekin í
dag.
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins er enn margt óljóst um til-
drög málsins. Þó liggur fyrir að ein
ástæða þess að umsátrið, sem stóð
á þriðju ídukkustund, dróst á langinn
var sú að lögreglu gekk erfiðlega
að koma á beinu símasambandi við
manninn vegna tíðra hringinga í
hann utan úr bæ.
Starfsmannafélag tíl að
tryggja atvinnuöryggi
Vogum.
Starfsmenn varnariiðsins á Keflavíkurflugvelli stofnuðu starfs-
mannafélag á útifundi utan vallargirðingar, við aðalhlið varnarsvæð-
isins, eftir vinnutíma í gær. Á sjöunda hundrað manns hafa skráð sig
í félagið. Starfsmannahald varnarliðsins hafnaði beiðni um að halda
stofnfundinn í kvikmyndahúsi varnarliðsins.
V estmannaeyjar:
Læða heimsótti ljósmóður
Vestmannaeyjum.
SVÖRT læða leitaði skjóls hjá
Guðnýju Bjarnadóttur, Ijós-
móður í Eyjum, í vikunni og
gaut hjá henni fjórum myndar-
legum kettlingum.
Guðný hafði orðið vör við læð-
una kringum hús sitt í nokkra
daga en þegar hún var á leið til
vinnu einn morgun í vikunni stóð
kisa á tröppunum og vældi.
Glögg augu Ijósmóðurinnar sáu
að kisa var komin með léttasótt-
ina og hríðimar byijaðar. Brá
Guðný skjótt við, ræsti bónda
sinn og fann til kassa handa kisu,
en áður en hún komst í hann
fæddist fyrsti kettlingurinn á
stéttinni. Kisu var síðan komið í
kassann, eða fæðingarrúmið eins
og Guðný orðaði það, og færð inn
fyrir þar sem hún gaut þeim
þremur kettlingum sem á eftir
komu undir öruggu eftirliti Ijós-
móðurinnar.
Guðný sagðist engin deili vita
á kettinum en vonaðist til að
hafa uppi á eigandanum svo hún
gæti komið kisu og afkvæmum
hennar heim af fæðingardeildinni
sem fyrst. Grímur
Nýkjörinn formaður félagsins,
Ómar Jónsson flutti ávarp og sagði
meðal annars: „Það er álit þeirra
sem að fundinum standa að stofnun
starfsmannafélags sé nauðsynleg
til að vekja athygli og samstöðu
um hagsmuni þeirra sem hjá varn-
arliðinu starfa. Ekki síst með tilliti
til þeirra breytinga sem óhjákvæmi-
lega verða vegna niðurskurðar
Bandaríkjanna á framlögum til
vamarmála.
Varnarliðið hefur í gegnum árin
verið einn stærsti vinnuveitandinn
á Iandinu. Vera þess hér hefur kall-
að á fjölda starfsmanna, sem marg-
ir hafa sérhæft sig í störfum sem
ekki nýtast öðrum. Það er því ljóst
að aukinn samdráttur hjá varnarlið-
inu kallar á aðgerðir til aðlögunar
að hálfu varnarliðsins og íslenskra
stjómvalda. Meðal annars með því
að virða varnarsamninginn.
Stofnun starfsmannafélags snýst
fyrst og fremst um atvinnuöryggi.
Félagið mun ekki hafa bein af-
skipti af kjarasamningum en mun
sækjast eftir góðu samstarfi við öll
launþegafélög sem gæta hagsmuna
þeirra sem hjá vamarliðinu starfa."
Að sögn Friðþórs Eydals blaða-
fulltrúa hefur varnarliðið ekkert að
athuga við stofnun nýs starfs-
mannafélags, enda nokkur þegar
starfandi. En eðlilegt þyki að slík
starfsemi fari fram utan vinnutíma
og því hafí beiðni um að nota kvik-
myndahús vamarliðsmanna til
fundarhalda í vinnutíma verið hafn-
að.
E.G.
Félagsmálaráðuneytið:
Aukið eftirlit með
erlendu vinnuafli
SAMKVÆMT samningnum um evrópskt efnahagssvæði verður eftir-
lit með útlendingum sem koma til landsins aukið frá því sem verið
hefur og að sögn Berglindar Ásgeirsdóttur, ráðuneytisstjóra í félags-
málaráðuneytinu, er nú verið að móta tillögur um hvernig að þessu
verður staðið.
Allen Born í viðtali við Metal Bulletin:
Byggjmn álver á íslandi
Telur að eftirspurn eftir áli fari vaxandi á næstu árum
ALLEN Born, stjórnarformaður Amax, samsteypunnar sem á banda-
ríska álfyrirtækið Alumax, segir í samtali við tímaritið Metal Bullet-
in 16. apríl sl. að Atlantsálfyrirtækin þijú séu ákveðin í að byggja
álver á Islandi. Hann segist einnig telja að álmarkaðurinn sé á upp-
leið og eftirspurn eftir áli í heiminum muni fara vaxandi til 1995-96
sem nemi framleiðslu fimm nýrra álbræðslna.
um
„Við höfum lokið við áætlanir
byggingu 200 þúsund tonna
álverksmiðju á íslandi. Við munum
reisa hana þegar réttur tími gefst
ásamt tveimur evrópskum félög-
segir Allen Born. Þá segist
um,
hann í viðtalinu telja að efnahags-
aðstæður muni fara batnandi fram
á miðjan áratuginn og eftirspurn
eftir áli fara vaxandi, sérstaklega
vegna aukinnar álnotkunar í bíla-
iðnaði.
Allen Born segir að árið 1991
hafi verið áliðnaðinum erfitt og ál-
verð í heiminum sé enn lágt. Hins
vegar muni áliðnaðurinn fara að
rétta úr kútnum í kjölfar samdrátt-
ar sem gripið hafi veríð til í álfram-
leiðslu og telur auk þess að álfram-
boð frá Rússlandi muni fara minnk-
andi. Aðspurður neitar hann því að
enn sé haldið uppi þrýstingi á Amax
og aðra álframleiðendur um að
draga ennfrekar úr framleiðslu
sinm.
Berglind sagði að út frá hag-
skýrslum eigi framvegis að gefa
upplýsingar um fjölda útlendinga
sem koma til landsins og fyrsta
starf þeirra og eigi það ekki ein-
ungis við um borgara í aðildarlönd-
um EES-samningsins.
„Við höfum til dæmis ekki þurft
að fylgjast með Norðurlandabú-
um, en nú þurfum við að hafa
tölulegar upplýsingar um þá sem
aðra. Allir útlendingar sem nú
koma til landsins eru skráðir og
er þeim óheimilt að leita sér að
vinnu samkvæmt núgildandi regl-
um. Með EES-samningnum breyt-
ist þetta fyrir þá sem þar eiga
hlut að máli, en við erum að vinna
að „því að finna út hvernig því
verður best háttað. Við undir-
göngumst skyldur um að gefa
skýrslur um fjölda útlendinga, kyn
og starf, og um leið gerir þetta
okkur kleift að fylgjast með því
hvort það sé einhver röskun í ein-
stökum greinum eða svæðum. Við
erum raunverulegá að tala
aukið samstarf þeirra aðila sem
koma að málum útiendinga," sagði
hún.
-»-♦ ♦
Stéttir og ræktun:
ÖÍTtilboð
yfir áætlun
BORGARRÁÐ hefur samþykkt að
tillögu Innkaupastofnunar, að
taka 22,6 milljóna króna tilboði
lægstbjóðanda, Verksteypunnar
hf., í að steypa gangstéttir og
ræktun í borginni. Sex tilboð bár-
ust í verkið, öll yfir kostnaðar-
áætlun, sem var 22,1 milljón kr.
um
Næst lægsta boð áttu S.H. verk-
takar hf., en þeir buðu 26,9 millj.,
Víðir Guðmundsson 28,3 millj., Ás-
geir Þór Hjaltason 28,8 millj., Eð-
varð Árnason 31,8 millj. og Böðvar
Sigurðsson bauð 36,4 millj.