Morgunblaðið - 14.05.1992, Side 10
10
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 1992
MÁLAÐ Á P APPÍR
Myndlist
Bragi Ásgeirsson
_ Málarinn Haukur Dór Sturluson
heldur sér við efnið í list sinni og
glímir við myndflötinn af miklum
dug. Jafnframt heldur hann reglu-
lega sýningar bæði hér heima og
erlendis, auk þess að taka þátt í
hinum ýmsu samsýningum.
Þessa dagana og fram til 24.
maí hanga myndir hans uppi í sölum
Listasafns ASÍ við Grensásveg 16A.
Það er mikill fjöldi mynda á sýn-
ingunni án þess að um nokkurt of-
hlæði sé að ræða og þeim er vel
fyrir komið á veggjunum.
Að einu stóm málverki undan-
skildu, er blasir við gestinum er inn
er komið eru allar myndimar unnar
á gljúpan austurlenzkan pappír,
sem nefnist yfirleitt japanpappír á
fagmáli.
Fyrir þrem árum hélt Haukur
FASTEIGIUASALA
SuAurlandsbraut 10
Ábyrgð - Reyaala - Öryggi
Hilmar Valdimarsson.
SÍMAR: 687828 OG 687808
Vantar cignir á skrá.
Skoðum og
verðmetum samdægurs.
Einbýi
Alftanes
Vorum að fá í sölu glæsil. einbhús
v/Norðurtún. Húsið er 173 fm. Bílsk.
55 fm. 4 góð svefnherb. Vandaöar
innr. og gólfefni. Verð 14,3 millj.
Eignaskipti mögul.
LANGHOLTSVEGUR
Einbhús á einni hæð 124 fm. 43 fm
bílsk. Góður garöur. V. 10,5 m.
Radhús
HRAUNBÆR
Mjög gott parhús á einní haeö.
137 fm. Nytt parket. Bdskrótt-
ur. Skipti á góöri 3ja-4ra herb.
Ib. koma til greina.
GRASARIMI
Til sölu sórl. fallegt raöh. hœö og ris.
Innb. bllsk. V. 12,3 m. Áhv. 6,0 millj.
BREKKUBYGGÐ V.8.5M.
Vorum að fé I sölu raöhús á tveimur
hæöum, samt. 90 fm, auk bílsk.
4ra-6 herb.
HRÍSATEIGUR
Til sölu falleg 4ra herb. 80 fm íb. á
1. hæö í 4ra íb. húsi. Eign í mjög
góðu standi.
ENGIHJALLI
Til sölu 4ra herb. 107 fm íb. á 5. hæö
í lyftuh. Laus nú þegar.
LJÓSHEIMAR
Til sölu mjög góð 4ra herb. endaíb.
á 7. hæð. Parket á stofu. Skipti á
minni eign mögul.
NEÐSTALEITI
Til sölu stórgl. 4ra-5 herb. íb. 121 fm.
Parket á gólfum. Þvherb. innaf eldh.
Tvennar svalir. Stórkostl. útsýni.
Stæði í lokuðu bílahúsi.
ESKIHLÍÐ
Vorum aö fá í sölu góða 4ra-5 herb.
108 fm íb. á 3. hæð í fjölbhúsi.
ÁNALAND - 4RA
HERB. M. BÍLSKÚR
Vorum að fé i sölu stórgl. 108
fm íb. á 1. hæð mað bílsk.
Arinn i stofu. Parket. Suöursv.
3ja herb.
ÁLFTAMÝRI
Vorum að fá, í sölu góða 3ja herb.
endaíb. á 4. hæð. Suöursvalir. Áhv.
2,3 millj. húsnstjlán.
VESTURBERG
Til sölu mjög góð 3ja herb. 87 fm íb.
á 2. hæð.
HLÍÐARHJALLI
Vorum aö fá sí sölu glæsil. 3ja
herb. 85 fm fb. á 3. hæö. Stór-
ar suöursv. 25 fm bilsk. Áhv.
5,0 m. frá húsnstj.
GRUNDARGERÐI
Falleg 3ja herb. risfb. Sérinng. V. 4,2 m.
2ja herb.
HLÍÐARHJALLI
Glæsil. 2ja herb. 60 fm íb. á 1. hæö.
Stórar suðursvalir.
Hilmar Valdimarsson,
Sigmundur Böðvarsson hdl.,
Brynjar Fransson, hs. 39558.
Dór stóra sýningu að Kjarvalsstöð-
um og voru þar nokkrar svipaðar
myndir, sem ég vakti sérstaka at-
hygli á í listrýni minni. Þetta mun
þá hafa verið nokkuð nýtt hjá
gerandanum og nú hefur hann tek-
ið við sér af fullum krafti á þessu
sviði og árangurinn blasir við á
veggjum salarins.
I stuttu máli hefur Haukur Dór
aldrei komið fram með eins fjöl-
þætta sýningu, lit- og formlega
séð, og að þessu sinni, og jafnframt
gengur einhver persónulegur þráð-
ur í gegnum þær allar, sem er at-
hyglisvert fyrir þá sök hve margvís-
legar þær eru.
Sumar eru þannig grófar og
kröftugar og byggjast á mörgum
litum, aðrar harðar og nær einlitar
og loks myndir fíngerðra og líf-
rænna pensildrátta og strika, þar
sem áhersla er lögð á mýktina. En
það athyglisverða er, að jafnan
tekst Hauki Dór að töfra fram sam-
stæða heild og sprengir hvergi lit-
flötinn svo sem hann gerði iðulega
áður og sjá má eitt lítið dæmi um
í stóra málverkinu.
Jafnvel þó myndverkin sýnist
óhlutkennd í fyrstu, verður manni
fljótlega ljóst að listamaðurinn
gengur út frá einhveiju úr hlutver-
uleikanum í svo til hverri einustu
mynd og það er einmitt styrkur
hans. Myndverkin geta þannig ekki
talist abstrakt og þótt vinnubrögðin
séu oftar en ekki óformleg (inform-
el) þá getur þetta ekki kallast hrein
óformleg list né fullkomlega sjálf-
sprottin. En þau eru líkast til
blanda af þessu ásamt eðlislægu
sjónrænu snertiskyni. Þannig má
segja til áréttingar og aukins skiln-
ings, að sjónin snerti hlutina en
skynjunin flytji boðin á myndflöt-
inn.
í ýmsum myndanna skynjar
maður andlit eða dýr og jafnvel
hvorutveggja að baki formanna, en
það er nú einmitt galdur lista-
mannsins, að myndirnar virka ekki
sem felumyndir eins og hjá svo
mörgum er hafa tamið sér svipuð
vinnubrögð, heldur eru formin
hrein og klár og lifa sínu eigin lífi.
í öðrum myndum skynjar maður
greinilega áhrif frá landslagi og
þær hafa einhvem dularfullan svip
fortíðar og goðsjignaheims, þannig
að það leiðir hugann til Anselm
Kiefer.
Það er í senn heilbrigt og eðli-
legt að verða fyrir áhrifum og hér
Islensk orðtíðni
Bókmenntir
Ingi Bogi Bogason
Jörgen Pind, Friðrik Magnús-
son, Stefán Briem: fslensk orð-
tíðnibók
Það telst óneitanlega til tíðinda
þegar út kemur orðabók á íslensku.
Á undanfömum ámm hafa verið
unnin nokkur kærkomin orðabókar-
verkefni hér á landi, m.a. ensk-
íslenska orðabókin. Aðrar orðabæk-
ur bíða þess þó sárlega að verða
að veruleika. í alltof mörgum tilfell-
um eru íslensk-erlendar orðabækur,
sem á sínum tíma þóttu afbragð,
nú orðnar löngu úrelt hjálpargögn.
Um þessar mundir er því að vaxa
upp kynslóð af menntafólki sem fær
ekki að kynnast þeim sjálfsögðu
réttindum þjóða í kringum okkur
að læra erlend tungumál með hjálp
góðra orðabóka.
Orðabókin sem hér er til umfjöll-
unar á sér ákveðinn aðdraganda.
Árið 1985 samþykkti stjóm Orða-
bókar Háskólans að ráðist yrði í
orðtíðnikönnun þar sem þess yrði
freistað að gera orðtíðni í nútíðar-
máli rækileg skil. Árangur verksins
liggur nú fyrir í þessu 1.207 blaðs-
íðna verki, þéttprentuðu með smáu
letri.
í formála er drepið á sögu orðt-
íðnirannsókna á íslandi. Ársæll Sig-
urðsson birti niðurstöður orðtíðni-
könnunar sinnar í Menntamálum
árið 1940. Tilgangur rannsóknar
hans var kennslufræðilegur; hann
taldi það mikinn stuðning fyrir
kennara ef hægt væri að finna „fru-
morð“ málsins, „þótt ekki væri fleiri
en 500-1.000.“ Baldur Jónsson
prófessor var fyrstur hér á landi til
að kanna orðtíðni með aðstoð tölvu.
Viðfangsefni hans var Hreiðrið eft-
ir Ólaf Jóhann Sigurðsson. Fleiri
smærri orðtíðniverkefni eru nefnd
í formálanum sem ekki er ástæða
til að íjalla um hér.
Textinn, sem þessi rannsókn er
unnin úr, er fenginn úr 100 heimild-
um; 20 íslenskum skáldverkum, 20
þýddum skáldverkum, 20 ævi- og
endurminningasögum, 20 fræðslu-
textum og 20 bama- og unglinga-
bókum.
Þótt textinn væri til í tölvutæku
formi þurfti að vinna mikla hliðar-
vinnu svo að hafa mætti fræðilegt
gagn af honum. Mismunandi orð-
myndir sama orðs þurfti að sam-
ræma, taka þurfti afstöðu til þess
hvort skammstafanir skyldu lesnar
sem eitt orð eða fleiri, og yfirfara
þurfti vélræna greiningu textans í
orðflokka og beygingaratriði. (T.d.
getur tölva enn sem komið er ekki
greint sundur fóstra (kk. et. þf.)
og fóstra (kvk. et. nf.).
Hverjar eru svo helstu niðurstöð-
ur bókarinnar? Því er ekki auðvelt
að svara. Fer raunar eftir því hveiju
menn eru að leita að. Helstu við-
fangsefni einstakra kafla gefa þó
vísbendingar að þessu leyti. Ál-
gengustu flettiorð eru birt eftir
þessum atriðum: 1) Tíðniröð. 2)
Stafrófsröð. 3) Eftir orðflokkum.
4) í stafrófsröð eftir niðurlagi. Eitt
atriði er býsna athyglisvert og kem-
ur hugsanlega ýmsum á óvart. Les-
málsorð rannsóknarinnar vom sam-
tals rúmlega 500.000 talsins en 100
algengustu orðmyndirnar komu
fyrir um 300.000 sinnum. Með öðr-
um orðum: Hundrað algengustu
orðmyndirnar eru meira en helm-
ingur ritaðra orða í venjulegum
texta. (Sjá mynd).
Af þessu má álykta að daglegt
tungutak er ekki eins fijótt og
margbreytilegt og við vildum svo
gjarnan trúa. Við tölum meira og
minna í lítt umbreyttum klösum og
frösum.
í formála útskýra höfundar
ágætlega aðferðir könnunarinnar
og sögu viðlíka orðtíðnirannsókna
erlendis. Eitt lykilatriði vantar samt
að nefna í formálanum: Til hvers
er þessi bók gefin út? Hveijir hafa
not af henni? Svo nýtísku orðalag
sé notað: Er markhópurinn nógu
stór til að svo vegleg útgáfa sé
réttlætanleg? Það vefst ekki fyrir
þeim sem hér ritar að svara slíkum
spurningum fyrir sjálfan sig — né
heldur að fagna svo metnaðarfullu
Lyngberg - Hfj.
Vorum að fá í einkasölu nýlegt, fullbúið einbýli á einni
hæð í Setbergshverfi. Húsið skiptist í forstofu, stofu,
borðstofu, eldhús, 3 svefnherb., bílskúr o.fl. Samtals
153 fm. Áhvílandi húsnlán og húsbréf ca 7,8 millj.
Nánari upplýsingar hjá fasteignasölunni Ás,
Strandgötu 33, Hafnarfirði, sími 652790.
hefur Haukur Dór meðtekið þau á
mun persónulegri hátt, en t.d. áhrif-
in frá Francis Bacon fyrrum.
Kannski fyrir þá sök að í þeim
skynjar maður meiri upprunalega
sköpunargleði.
Það er alveg á hreinu, að þetta
er íjölþættasta og hrifríkasta sýn-
ing sem komið hefur frá Hauki Dór
til þessa, þótt hún sé minna alþjóð-
legur og staðlaður línudans, eins
og svo margur í núlistinni vill hafa
það á seinni tímum. Þá er þetta
fjörleg og fjölþætt sýning, sem
gaman er að skoða og undraði mig
hve verði myndanna er stillt í hóf
miðað við listrænt vægi og stærð
þeirra, en það er víst tímanna tákn.
500
400
Í
» 300
1
| 300
I
u- 100
"í io íoö 1.Ó0010.000 ioo!ooo
Fjðldi orömynda
Samband orðmynda og Iesmáls-
orða.
verki sem hér er orðið að veruleika.
Ekki er heldur verið að draga vís-
indalegt gildi bókarinnar í efa. Það
er ótvírætt. En þessi þankagangur
vaknar óvart í samhengi við aðrar
óútgefnar orðabækur sem þyrftu
líka að verða að veruleika. Ekki
verður undan því vikist að spyija
spurningar sem er að vísu ekki í
verkahring Orðabókar Háskólans
að svara: Hvenær eigum við von á
jafnveglegii þýsk-íslenskri, fransk-
íslenskri eða ítalsk-íslenskri orða-
bók handa ungu menntafólki? 1
heimi þar sem alþjóðleg samvinna
verður æ virkari er það lífsspurs-
mál lítillar þjóðar að eiga gott úr-
val af tungumálafólki. Og gott
tungumálafólk eignumst við ekki
nema m.a. með metnaði til að gefa
út góðar orðabækur. Hér er brýnt
úrlausnarverkefni fyrir bæði fræði-
menn, bókaútgáfufyrirtæki og
stjómvöld.
„Bugsy Malone“
og „Yerma“
Listdans
Ólafur Ólafsson
Nemendasýning.
Danshöfundar: Ástrós Gunn-
arsdóttir, Elín Helga Svein-
björnsdóttir, Helena Jónsdóttir,
Paco Morales, Sóley Jóhanns-
dóttir, Sveinbjörg Þórhallsdótt-
ir.
Tónlist: Ýmsir höfundar.
Sljórnandi: Sóley Jóhannsdótt-
ir.
Hótel ísland, apríl 1992.
Dansstúdíó Sóleyjar hélt vor-
sýningar sínar á Hótel íslandi
fyrir stuttu. Um var að ræða tvær
sýningar. Sú fyrri .var með yngri
nemendunum, en á kvöldsýning-
unni, þeirri sem hér er fjallað’um,
komu fram eldri nemendur og
framhaldsnemendur. Á sýningum
Dansstúdíós Sóleyjar hefur jafnan
verið eitthvert þema. Má þar t.d.
nefna nútímaútgáfu á Hnotu-
bijótnum og söguna um Mary
Poppins. Að þessu sinni er aðal-
þema sótt í söguna um Bugsy
Malone, sem Allan Parker gerði
ógleymanlega í kvikmynd fyrir
nokkrum árum. Lokaatriðið var
svo túlkun Paco Morales á sögu
Frederico Garcia Lorca um
Yermu.
Þegar nemendur koma fram,
eru jafnan gerðar aðrar kröfur til
frammistöðu þeirra en dansara,
sem lengra eru komnir. Samt má
segja, að látbragð hafi ráðið of
miklu á kostnað dansins. Vera
má, að leiðbeinendurnir hafi með
þessu viljað feta sig varlega
áfram, en ég hygg, að börnin
hefðu vel að skaðlausu mátt dansa
meira. „Bugsy Malone“ er söng-
leikur um alvörubófa og nætur-
klúbba á bannárunum í Banda-
ríkjunum. Það sem gerði kvik-
myndina fræga var meðal annars
það, að böm léku fullorðið fólk.
Fáránleikinn kom þá glögglega í
ljós og hetjurnar risu upp aftur
að kvöldi dags, eins og í ása-
trúnni. Lög Paul Williams eru
samin fyrir böm og henta því
mjög vel. Sama er að segja um
kóreógrafíu Gillian Gregory, en
áhrifa hennar gætir það greini-
lega í sýningunni, að hæpið er að
titla aðra sem danshöfunda, án
þess að geta hennar einnig. En
dansarnir hefðu mátt vera meiri
dans og minna látbragð. Það er
ekki ástæða til að nefna einstök
atriði, en þrátt fyrir galla, var
gaman að fylgjast með dönsurun-
um_ reyna sig.
Áhugaverðast var samt loka-
atriði sýningarinnar, þar sem
flamenco dans réði ríkjum. Þar
var stórkostlega blandað saman
dansi og frásögn í dansi. Dansinn
var persónuleg túlkun Paco Mora-
les á „Yermu“ og byggði á
strangri hefð hins spánska flam-
enco. Frammistaða dansaranna til
fyrirmyndar.. Þessi lokapunktur
sýningarinnar var í allt öðrum
gæðaflokki og til mikils sóma. Það
er vonandi að seinna gefist tæki-
færi til að sjá meira í þessum dúr.