Morgunblaðið - 14.05.1992, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 1992
17
Áskorun til al-
þingismanna
Blaðinu hefur borist eftirfar-
andi frá fjórum námsmannasam-
tökum:
Námsmenn skora á alþingismenn
að taka til endurskoðunar það frum-
varp sem nú liggur fyrir um Lána-
sjóð íslenskra námsmanna. Þrátt
fyrir að búið sé að gera á frumvarp-
inu breytingar er enn að fínna í því
ákvæði sem ekki er hægt að sætta
sig við. Það mun vera stefna allra
þeirra flokka sem nú eiga fulltrúa
á Alþingi að á íslandi sé jafnrétti
til náms. Lánasjóður íslenskra
námsmanna er hornsteinn þeirrar
stefnu. Þess vegna hljóta alþingis-
menn að standa vörð um sjóðinn
sem félagslegt jöfnunartæki en
skoða hann ekki sem peningastofn-
un sem verði að skila hagnaði.
Námsmenn minna á að hin sanna
arðsemi menntunar sést ekki í árs-
reikningum Lánasjóðs íslenskra
námsmanna heldur skilar sér beint
út í þjóðfélagið því til eflingar.
Námsmenn vilja benda háttvitum
alþingismönnum á eftirtalin ákvæði
sem er að finna í frumvarpinu:
1. Settir verði allt að 3% raun-
vextir á námslán.
Með því að samþykkja þetta
frumvarp eru þingmenn að sam-
þykkja að settir verði 3% raunvext-
ir á námslán. Þó svo að sú ríkis-
stjórn sem nú situr hafi ákveðið að
fyrst um sinn verði vextirnir 1% þá
breytir það því ekki að í frumvarp-
inu er heimild fyrir allt að 3% vöxt-
um. Eftir að frumvarpið hefur verið
samþykkt ræður hinn almenni þing-
maður minnstu um það hvort svo
háir vextir verði lagðir á, slíkt er
alfarið ákvörðun ríkisstjórnar á
hvetjum tíma. Þetta ættu alþingis-
menn að hafa í huga þegar gengið
verður til atkvæða um frumvarpið.
2. Endurgreiðslur verði 5% fyrstu
fímm árin, en 7% af heildartekjum
eftir það og hefjist tveimur árum
eftir að námi lýkur ístað þriggja nú.
Það hlutfall sem hér er rætt um
er of hátt. í dag greiðir fólk 3,75%
af tekjum uns það hefur greitt upp
lán sitt. 7% heildartekna er u.þ.b.
Pétur Þ. Óskarsson Ingibjörg Jónsdóttir Ólafur Þórðarson Almar Eiríksson
10% ráðstöfunartekna og það sér
hver maður að slík greiðslubyrði
er of há. Námsmenn vilja benda
sérstaklega á þau áhrif sem slík
greiðslubyrði myndi hafa á mögu-
leika fólks til að komast inn í hús-
bréfakerfið og fá þar greiðslumat.
3. Eftirágreiðsla lána.
Námsmönnum þykir með alger-
um ólíkindum að frumvarpið skuli
vera komið svo langt sem raun ber
vitni með þessa hugmynd innan-
borðs. Helstu rök sem færð hafa
verið fyrir þessari breytingu er að
á síðasta ári hafi sjóðurinn varið
um 55 milljónum króna í svokölluð
ofgreidd lán. Það vandamál er þess-
ari hugmynd ætlað að leysa. Sam-
kvæmt upplýsingum frá Lánasjóði
íslenskra námsmanna voru um 90%
þeirra sem fengu slík lán hjá sjóðn-
um búin að gera hreint fyrir sínum
dyrum um áramótin. Reikna má
með að þær 8 milljónir sem þá voru
eftir komi inn nokkrum mánuðum
síðar. Það er því alveg ljóst að hér
er ekki um eiginlegt vandamál að
ræða hjá sjóðnum. Fyrir þessari
breytingu eru engin rök. Hún hefur
hins vegar í för með sér geysilegt
óhagræði fyrir námsmenn þar sem
lánin væru greidd út eftir að önn
lýkur í stað þess að fólk fái mánað-
arlegar greiðslur eins og eðlilegt
er. Fólk er því neytt til að leita á
náðir banka og annarra peninga-
stofnana með þeim vöxtum sem þar
tíðkast.
Það er von og trú námsmanna
að alþingismenn taki þessar athug-
asemdir til íhugunar. Aðild að sam-
starfsnefnd námsmannahreyfing-
anna eiga Stúdentaráð HÍ með um
5.200 umbjóðendur, Bandalag ís-
lenskra sérskólanema með um
3.500 umbjóðendur, Iðnnemasam-
band íslands með um 3.500 umbjóð-
endur og Samband íslenskra náms-
manna erlendis með um 3.000 um-
bjóðendur.
15.200 námsmenn telja sig eiga
nokkurn hlut að máli varðandi skip-
an löggjafarsamkundunnar. Við
höfum bent á augljósa galla sem
er að finna í frumvarpinu. Við för-
um fram á að alþingismenn lagfæri
þessa galla áður en teknar verði
ákvarðanir sem hafa áhrif á iíf
þúsunda námsmanna hérlendis sem
erlendis.
F.h. SHÍ _
Pétur Þ. Óskarsson formaður
F.h. BÍSN
Almar Eiríksson formaður
F.h. SÍNE
Ingibjörg Jónsdóttir frkvst.
F.h. INSI
Ólafur Þórðarson formaður.
■ Á PÚLSINUM fimmtudaginn
14. maí verður RÚREK-djass en
þá leikur Finnsk/íslenski kvart-
ettinn. Kvartettinn skipa: Jukka
Perko saxafónleikari, Pekka
Sarmanto bassaleikari Egill B.
Hreinsson píanóleikari og Einar
Valur Scheving trommuleikari.
Kvartettinn leikur bæði fínnska og
íslenska tónlist auk þekktra jass-
verka. Tónleikamir hefjast kl. 22.00
oer standa til kl. 01.00.
fyrir dömur og herra
ÚTJLÍF
ip Dictaphone
A Pitney Bowes Cómpany
Gæðatæki til hljóðupptöku,
afspilunar og afritunar.
Falleg hönnun. Vandaðar upptökur.
m»": V*
Xv°'
Umboð á íslandl:
OTTO B. ARNAR HF.
Skipholti 33 -105 Reykjavik
Símar 624631 / 624699
bllöffnciöcnl
Opið alla daga frá kl. 9-22. Sími 689070.
Stórar klippu ,
sterkar og kröftug
- Hentugar á trjágrein
1.790-
GOTT VERÐ
Minni greinaklippur
- Hentugar til
margskonar
verka.
Grasklippur, þægileg
tegund, - má snúa eftir
halla (veltiblað)