Morgunblaðið - 14.05.1992, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 1992
Ótti um að hægt verði að flytja inn tollfrjálsar landbúnaðarvörur í EES:
Innflutningsbann jafn-
gildir hæstu tollmúrum
- seg’ir skrifstofustj óri viðskiptaskrifstofu
ÁKVÆÐI í samningnum um
evrópskt efnahagssvæði hafa
ekki hamlandi áhrif á möguleika
íslendinga til að leggja verðjöfn-
unargjald á unnar landbúnaðar-
afurðir sem eru á frívörulista
samningsins en hingað til hefur
verið óheimilt að flytja til lands-
ins, að sögn Gunnars Snorra
Gunnarssonar, skristofustjóra
viðskiptaskrifstofu utanríkis-
ráðuneytisins.
í íslenskri þýðingu á bókun við
EES-samninginn kemur fram að
hvað ísland varðar eigi samnings-
grein um fijáls vöruviðskipti ekki
við um ijómaís og annan ís til
manneldis, og framleiðsluvörur sem
séu að mestu leyti úr feiti og vatni
með meira en 15% af smjöri .eða
annari mjólkurfitu miðað við þyngd.
Undir þetta fellur til dæmis
Smjörvi, Létt og laggott og Klípa.
Þá er einnig tekið fram að hvað
ísland varði skuli hámark verðjöfn-
unarfjárhæða við innflutning ekki
gilda um ísland vegna afurða í
ýmsum tollnúmerum, sem eiga m.a.
við um jógúrt með ávöxtum eða
bragðefnum, smjörlíki sem inni-
heldur 10-15% af mjólkurfítu,
súkkulaði, maltkjarna, pastavörur
sem innihalda meira en 20% af
pylsum, hlutum af dýrum eða blóði,
sultu og sósur. Loks segir að gjöld
sem lögð eru á við innflutning skuli
þó aldrei vera hærri en það sem
Island lagði á innflutning frá samn-
ingsaðilum árið 1991.
Á upplýsingafundi Félags kúa-
bænda á Suðurlandi sl. mánudag
var þessi málsgrein túlkuð af ýms-
um þannig, að verið væri að opna
fyrir tollfijálsan innflutning á land-
búnaðarvörur, sem engin verðjöfn-
unargjöld hafí verið lögð á árið
1991 þar sem innflutningur á þeim
hafi verið bannaður. En Gunnar
Snorri Gunnarsson sagði að inn-
flutningsbann jafngilti himinháum
tollum og því ætti þessi málsgrein
ekki um þær vörur sem bannað
hefur verið að flytja til landsins.
Þá ætti hún heldur ekki við um
niðurgreidd hráefni í íslenska fram-
leiðslu; ef ríkið hætti þeim niður-
greiðslum væri hægt að leggja jöfn-
unargjöld á samsvarandi innflutt
hráefni. Hins vegar væri ekki ætl-
ast til þess að ný verðjöfnunargjöld
yrðu lögð á vörur sem hingað til
hefðu Verið fluttar til landsins án
slíkra gjalda, til dæmis pizzur.
Gunnar Snorri sagði að á þeim
samningafundi, sem gengið var frá
endanlegum samningstexta á, hefði
því verið lýst yfír af íslands hálfu,
að þessum ákvæðum yrði beitt
þannig að bæði yrði eldri innflutn-
ingsgjöldum beitt auk þess sem
sett yrðu á ný eftir þörfum.
-----» ♦ ♦
Aðalstræti -
saga byggðar
Sýning í Geysishúsinu
SYNING á byggingasögu elstu
götunnar í Reykjavík, Aðalstrætís,
verður opnuð í Aðalstræti 2 (Geys-
ishúsinu) föstudaginn 15. maí. Er
hún á vegum Arbæjarsafns og
Borgarskipulags _ Reykjavíkur,
segir í frétt frá Árbæjarsafni.
Fjallað er um tímabilið allt frá
landnámi Ingólfs Amarsonar til vorra
daga. Sýndur verður langeldur sem
fannst við uppgröft að Aðalstræti 18,
auk þess sem sagan er rakin með
teikningum, ljósmyndum og gömlum
kortum af Reykjavík. Einnig verða á
sýningunni líkön af Reykjavík fyrri
tíma.
Einnig verður á þessari sýningu
hægt að sjá teikningar af fyrirhug-
aðri endurgerð húsa Innréttinganna
í Aðalstræti auk annarra áætlana um
uppbyggingu og fegrun þessa sögu-
lega svæðis.
Morgunblaðið/Sverrir
Á myndinni eru f.v. Inga Bjarnason, Anna S. Einarsdóttir og
Margrét Ákadóttir.
August Strindberg:
80 ára ártíð - Dagskrá
í Norræna húsinu
ÞESS verður minnst í Norræna húsinu fimmtudaginn 14. maí kl.
20.30 að þann dag eru 80 ár liðin frá því að eitt höfuðskáld Norð-
urlanda, leikskáldið og rithöfundurinn August Strindberg, lést.
Hann fæddist 22. janúar 1840 og andaðist árið 1912.
Dagskráin verður tvískipt, fyrir-
lestur og umræður og fluttur verð-
ur leikþáttur. Jón Viðar Jónsson
heldur fyrirlestur sem hann nefnir:
Strindberg á íslandi. Þar fjallar
hann um sýningar reykvísku leik-
húsanna á Ieikritum Strindbergs
frá því að Leikfélag Reykjavíkur
sýndi Fröken Julie árið 1924, fyrst
verka hans. Jón Viðar lýsir einnig
meginstraumum í evrópskri Strind-
berg-túlkun og leitar í ljósi þessa
svara við þeirri spumingu hvers
vegna Strindberg hafi gengið svo
illa að festa rætur á íslensku leik-
sviði, sem raun ber vitni. Að lokn-
um fyrirlestrinum verða umræður
og taka þátt í þeim Hlín Agnars-
dóttir leikstjóri, Thor Vilhjálmsson
rithöfundur og Sjöfn Kristjánsdótt-
ir handritavörður og svarað verður
fyrirspumum úr sal.
Eftir kaffihlé verður fluttur leik-
þáttur, Hin sterkari, sem Strind-
berg samdi árið 1888. Það eru leik-
konumar Anna S. Einarsdóttir og
Margrét Ákadóttir sem eru í hlut-
verkum frú X og frú Y og leiksvið-
ið er horn í kaffihúsi. Leikstjóri er
Inga Bjarnason. Þessi Ieikþáttur
var fluttur af Alþýðuleikhúsinu í
Hlaðvarpanum við mikla aðsókn
fyrir nokkrum árum.
Aðgangur er ókeypis.
Vinnumálaskrifstofa
félagsmálaráðuneytisins:
3.700 inanns atvinnu-
vinnulausir að með-
altali í aprílmánuði
RÖSKLEGA 80 þúsund atvinnu-
leysisdagar voru skráðir á landinu
öllu í aprílmánuði, samkvæmt
upplýsingum vinnumálaskrifstofu
félagsmálaráðuneytisins. Sam-
svarar það því að 3.700 manns
hafi verið atvinnulausir allan mán-
uðinn að meðaltali, eða 2,9%
vinnufærra manna í landinu. Er
þetta 0,1% minna atvinnuleysi en
í marsmánuði. Atvinnuástandið er
svipað á höfuðborgarsvæðinu en
hefur minnkað um 0,1% á lands-
byggðinni.
A höfuðborgarsvæðinu voru rúm-
lega 1.900 atvinnulausir í aprílmán-
uði. Samsvarar það 2,6% atvinnu-
leysi sem er nákvæmlega sama hlut-
fall og í marsmánuði, samkvæmt
upplýsingum Óskars Hallgrímssonar
forstöðumanns vinnumálaskrifstofu
félagsmálaráðuneytisins. Á lands-
byggðinni voru hátt í 1.800 manns
atvinulausir í apríl, 3,4% vinnufærra
manna, en í mars var hlutfall atvinn-
ulausra 3,5%. Atvinnuleysi á lands-
byggðinni og landinu öllu minnkaði
því um 0,1% á milli mánaða.
í janúar voru 1.200 manns atvinn-
ulausir á höfuðborgarsvæðinu og
hefur því fjölgað um 700 á þremur
mánuðum. Á sama tíma hefur at-
vinnulausum á landsbyggðinni fækk-
að um tæplega 1.000.
í apríl á síðasta ári voru 1.750
manns atvinnulausir að meðaltali
sem er 1,4% vinnufærra manna í
Iandinu, þar af 720 á höfuðborgar-
svæðinu. Á þeim tólf mánuðum sem
síðan eru liðnir hefur þeim fjölgað
um tæplega 2.000 sem ganga um
atvinnulausir. Atvinnuleysið hefur
rúmlega tvöfaldast. Aukningin ,er
mest á höfuðborgarsvæðinu. Þar
hefur atvinnulausum Qölgað um
1.200 eða rúmlega 160%.
Skráðir atvinnuleysisdagar í
Reykjavík hafa haldist svipaðir að
undanfömu, að sögn Gunnars Helga-
sonar forstöðumanns Ráðningaskrif-
stofu Reykjavíkurborgar. í fyrradag
voru 1.338 skráðir atvinnulausir
samanborið við 550 sama dag á síð-
asta ári. 784 karlar eru skráðir at-
vinnulausir og 554 konur. Atvinnu-
leysisdögum hefur heldur fækkað í
Reykjavík á undanfömum vikum.
Hámarki náði skráningin 20. mars
er 1.472 vom atvinnulausir.
Frá fundi kúabænda á Laugalandi í Holtum.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson.
Landbúnaðarvörur á Evrópska efnahagssvæðinu:
Opnað fyrir tollalausan inn-
flutning með nýju ákvæði
Er í nýjustu íslensku þýðingunni en ekki í enska textanum frá 15. nóv 1991
Selfossi.
ÍSLENSKI textinn í EES-samkomuIaginu, sem snertir sérákvæði
um verðjöfnun á innfluttum landbúnaðarvörum, er breyttur frá
þeim texta sem Framleiðsluráði landbúnaðarins var kynntur 15.
nóvember 1991. Viðbótin hljóðar svo: „Gjöld sem lögð eru á við
innflutning til landsins skulu þó aldrei vera hærri en það sem Is-
land leggur á innflutning frá samningsaðilum árið 1991.“ Þetta
kom meðal annars fram í máli Halldórs Gunnarssonar á fundi
kúabænda á Laugalandi í Holtum 12. maí þar sem fjallað var um
álit sjömannanefndar um hagræðingu í mjólkurframleiðslu.
Halldór Gunnarsson sem á sæti
í framleiðsluráði sagði að þessi við-
bót hefði komið í ljós fyrir nokkrum
dögum á fundi í ráðinu. Þetta
ákvæði hefði ekki verið inni í text-
anum á ensku sem sendur var
framleiðsluráði 15. nóvember 1991
og allir töldu að væri fyrirvari ís-
lands varðandi innflutning Iand-
búnaðarvara.
Að sögn Halldórs hefur verið
spurst fyrir um þessa viðbót í land-
búnaðarráðuneytinu en engin svör
fengist. Hann sagði að búið væri
að skrifa undir samninginn og
festa þetta atriði inni og það væri
alveg ófært að samþykkja hann
eins og hann væri. Yrði það gert
væri opnað fyrir tollalausan inn-
flutning á landbúnaðarvörum frá
EES-löndunum. „Það er hrikalegt
að landbunaðarráðuneytið vissi
ekki um þessa viðbót og ekki land-
búnaðarráðherra," sagði Halldór.
Hann sagði að deildarstjóri land-
búnaðarráðuneytisins sem situr
framleiðsluráðsfundi að ráðuneytið
vissi ekki um það hvenær
samningnum hafí verið breytt. „Og
þó að landbúnaðarráðherra vitni í
aðra ráðherra og fullyrði að það
sé hægt að setja á verðjöfnunar-
gjöld þá er ekki hægt að tala þann-
ig því samningurinn er alveg ljós.
Það minnsta sem hægt er að gera
er að fá þessa bókun skýrða frá
Brussel," sagði Halldór.
Þessi atriði skipta máli núna því
ef þessi innflutningur verður leyfð-
ur með þesum hætti þá horfumst
við í augu við allt aðrar forsend-
ur.“ Hann benti á að um væri að
ræða brot á búvörusamningnum,
hann tæki til alþjóðasamninga en
EES- samningurinn væri það ekki.
í máli Ásmundar Stefánssonar
forseta ASÍ sem sæti á í sjömanna-
nefnd og hafði framsögu á fundin-
um á Laugalandi kom fram að
hann vissi ekki hvemig viðbótar-
textinn væri til kominn í EES-
samningnum.
„Þetta er reiðarslag fyrir okkur,
kollvarpar öllum ákvæðum búvöru-
samnings og er brot á honum ef
þetta er raunveruleiki," sagði Há-
kon Sigurgrímsson framkvæmda-
stjóri Stéttarsambands bænda um
viðbótarákvæðið sem Halldór fjall-
aði um.
Sig. Jóns.