Morgunblaðið - 14.05.1992, Side 25
ÚnGHH^
einnota,
S22S22W
_ 454 gr.
U.PRINCE
SÚH33LAÐ1'
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MAI 1992
Morgunblaðið/Þorkell
Rússar í bílakaupum
Skipvetjar á rússneska verksmiðjuskipinu Rembrandt
hafa verið duglegir við bílakaup þá viku sem skipið
hefur legið við bryggju í Hafnarfjarðarhöfn. Alls náðu
þeir að kaupa tæplega 30 gamla Lödu-bíla þann tíma
sem þeir dvöldu hérlendis en skipið var að losa 115
tonn af fiskmjöii í Hafnarfirði. Einn af bílunum sem
rússnesku sjómennirnir keyptu og borguðu fyrir 500
dollara reyndist hafa verið tekinn óftjálsri hendi. Eig-
andi bílsins fór að svipast um eftir honum og fann
hann á hafnarbakkanum þar sem skip Rússanna lá.
Þegar rússnesku sjómönnunum varð ljóst að einn
þeirra hafði keypt stolinn bíl fyrir 2A af hýru sinni
fyrir margra vikna langan túr, settust þrír þeirra upp
í bíl hjá rannsóknarlögreglunni og síðan var farið í
langan bíltúr um Hafnarfjörð. Sá bíltúr bar þann
árangur að bíll sem þjófarnir höfðu verið á fannst
utan við hús eitt í bænum og inni í húsinu fundust,
að sögn lögreglu, tveir mjög undrandi menn, sem
Rússarnir báru kenns! á sem bílasalana. Þeir játuðu
verknaðinn og lofuðu að endurgreiða Rússunum 500
dalina. Hingað til lands kom skipið frá ströndum Afríku
þar sem rússneskir togarar lestuðu afla um borð.
Skipið sigldi úr. höfninni í gærkvöldi áleiðis til
Murmansk.
Sigurður E. Guðmundsson forstjóri Húsnæðisstofnunar:
HAGKAUP
- allt í einni ferd
TILBOÐ
VIKUNNAR
GRI
^urr
Rg
pr
Full heimild til að styðjast við
gjaldskrá Lögniamiafélagsins
SIGURÐUR E. Guðmundsson, forsljóri Húsnæðisstofnunar ríkisins,
segir að stofnunin hafi haft fulla heimild til að styðjast við gjaldskrá
Lögmannafélags Islands í innheimtumálum vegna lána í vanskilum, en
eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær telur Gaukur Jörundsson,
umboðsmaður Alþingis, stofnunina ekki hafa lagalega heimild til þess.
Sigurður segir að áður en innheimta vanskilaiána færðist. frá lögfræð-
ingadeild Landsbanka íslands til Húsnæðisstofnunar hefði verið ieitað
álits Lagastofnunar Háskóla íslands á því hvaða gjaldtökuheimildir
stofnunin hefði, og niðurstaðan verið sú að full heimiid væri tii þess
að leggja gjaldskrá Lögmannaféiags íslands til grundvailar greiðslu
á innheimtukostnaði.
Sigurður sagði í samtali við Morg-
unblaðið að þar sem álit umboðs-
manns Alþingis stangaðist á við
umrætt álit Lagastofnunar Háskól-
ans yrði þetta mál kannað til hlýtar
af hálfu Húsnæðisstofnunar. Hann
sagði að félagsmálaráðuneytið hefði
að sínu mati tekið undir álit Laga-
stofnunar Háskólans, en Húsnæðis-
stofnun hefði leitað eftir viðhorfum
ráðuneytisins til þess hvaða gjald-
tökuheimildir stofnunin hefði.
„Við vildum hafa þetta á hreinu,
og því fannst okkur réttast að leita
til þeirra aðila sem við töldum að
hefðu langmest um þetta að segja.
Þegar þessir aðilar báðir tjáðu sig á
þennan máta þóttumst við vissir í
okkar sök. Þetta álit umboðsmanns
Alþingis kemur okkur því gjörsam-
lega á óvart, og okkur finnst þetta
ekki endilega standast í öllum atrið-
um, og því nauðsyn að kanna það
nánar. Þetta snertir auðvitað miklu
fleiri en okkur, því við vorum síðast-
ir allra að taka upp þessa starfs-
hætti, og Lögmannafélagið sjálft
aldrei gert formlegar athugasemdir
við það að lögmenn hjá hinu opin-
bera notuðu gjaldskrána í þágu
þeirra stofnana sem þeir starfa hjá,“
sagði hann.
Aðspurður sagði Sigurður að það
væri af og frá að Húsnæðisstofnun
hefði nýtt gjaldskrá Lögmannfélags-
ins til hlýtar, og þar að auki væri
stofnunin með sama vanskilakostnað
fyrir alla. Aður hefðu þeir borgað
Björn Guðnason bygg-
ingameistari látinn
BJÖRN Guðnason bygginga-
meistari og framkvæmdastjóri
Byggingafélagsins Hlyns hf. Iést
á Sjúkrahúsi Sauðárkróks síðast-
liðinn mánudag.
Björn fæddist að Nöf í Hofsósi
27. apríl 1929, en fluttist til Sauðár-
króks og stundaði þar iðn sína.
Björn gegndi ýmsum trúnaðar-
störfum fyrir Sauðárkrókskaup-
stað, samtök iðnaðarmanna á Sauð-
árkróki og átti um skeið sæti í
bæjarstjórn Sauðárkróks fyrir
Sjálfstæðisflokkinn. Hann var einn
af stofnendum Byggingafélagsins
Hlyns hf. og var framkvæmdastjóri
fyrirtækisins til dauðadags.
Eftirlifandi eiginkona Björns er
Margrét Guðvinsdóttir og áttu þau
ijögur börn.
minnst í kostnað sem búsettir voru
á Akureyri eða í Reykjavík, því þar
hefði ekki verið um að ræða kostnað
vegna dagpeninga, fæðis og ferða
fyrir lögmennina, en þeir sem búsett-
ir voru á dreifbýlinu hefðu þurft að
greiða þennan kostnað. „Þetta fannst
okkur kolómögulegt þar sem við
værum ríkisstofnun sem starfaði á
landsgrundvelli og vildum við að all-
ir sætu við sama borð. Þess vegna
tókum við upp jöfnunargjald. Svo
virðist sem umboðsmaður Alþingis
sé andvígur þessu og vilji að horfið
verði aftur til fyrra horfs. Það værum
við mjög óhressir með ef af yrði.“
Björn Guðnason
Heimsókn
kirkju-
leiðtoga
frá Afríku
FJÓRIR kirkjuleiðtogar frá
Afríku heimsækja ísland
dagana 13.-17. maí á vegum
Utanríkisnefndar þjóðkirkj-
unnar. Afríkumennirnir
munu kynna sér starf kirkju
og safnaða, hitta presta og
safnaðarfólk að máli og einn-
ig kynna sér félagslega þjón-
ustu.
A föstudag, 15. maí, verður,
af þessu tilefni, efnt til sam-
kirkjulegrar guðsþjónustu í
Dómkirkjunni. I guðsþjón-
ustunni predika þau Churchill
Gabe, sem er aðalritari kirkjur-
áðsins í Botswana, en hann til-
heyrir kirkju meþódista og
Eunice Sowasi sem er aðalrit-
ari kirkjuráðsins í Swasilandi
en hún er kaþólsk. í guðsþjón-
ustunni verða fluttir afrískir
trúarsöngvar ásamt íslenskum
sálmum.
Guðþjónustan hefst kl. 20.30
og er öllum opin og er hér um
að ræða gott tækifæri til að
kynnast viðhorfum og kring-
umstæðum í Afríku.
(Fréttatilkynning)