Morgunblaðið - 14.05.1992, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MAI 1992
27
Ítalía:
Forsetakjönð hófst
með handalögmálum
Róm. Reuter.
TIL slagsmála kom á ítalska
þinginu í gær þegar þingmenn
söfnuðust saman til að kjósa
landinu nýjan forseta. Hófst upp-
ákoman með háværum deilum
um kosningafyrirkomulagið, sem
er mjög flókið, en lauk með því,
að menn létu hnefana semja sátt
sín í milium eða þar til þeim var
stíað sundur. Líklega verður það
ekki ljóst fyrr en aðra nótt hver
tekur við af Francesco Cossiga,
fráfarandi Ítalíuforseta.
af meiri röggsemi en ítalir eiga að
venjast. Hefur hann komið upp um
mútuþægni og alls konar spillingu
ýmissa frammámanna og hafa þrír
stærstu flokkarnir orðið þar verst
úti, kristilegir demókratar, sósíal-
istar og kommúnistarnir fyrrver-
andi. Vegna þessa er di Pietro orð-
inn að nokkurs konar þjóðhetju á
ítalíu eins og móðir hans öldruð
hefur fundið fyrir því í litla þorpið
hennar liggur stríður straumur af
fólki, sem kemur til að lýsa yfir
stuðningi við son hennar.
Reuter
Starfsmenn ítalska þingsins eru hér að færa burt einn þingmann
nýnasista en átökin hófust þegar þeir kölluðu þingmenn kristilegra
demókrata þjófa.
Evrópubandalagið:
Framkvæmdastj órnin sam-
þykkti skilyrtan orkuskatt
Strassborg. Reuter.
Framkvæmdastjórn Evrópubandalagsins, EB, samþykkti í gær
að mæla með því við ríkissljórnir aðildarlandanna, að lagður verði
á orkuskattur í því skyni að draga úr mengun og gróðurhúsaáhrif-
unum svokölluðu. Sá fyrirvari er þó hafður á, að skatturinn komi
ekki til framkvæmda fyrr en önnur iðnríki taka hann upp einnig.
„Þjófar, þjófar," æptu þingmenn
Italska sósíalsambandsins, sem er
nýfasistaflokkur með Alessöndru,
barnabarn Mussolinis innanborðs,
að þingmönnum Kristilega demó-
krataflokksins og sökuðu þá um
hafa breytt samsetningu kjör-
mannasamkundunnar. Kom síðán
til handalögmála og breytti engu
um þótt þingforsetinn, Oscar Luigi
Scalfaro, hrópaði hvað eftir annað,
að lögmál frumskógarins ættu ekki
við á Ítalíuþingi. Eftir um fímm
mínútur komu starfsmenn þingsins
á vettvang og skildu áflogaseggina.
Sá eða sú, sem verður kjörin
níundi forseti Ítalíu, tekur við á
erfiðum tíma en ítalskur almenning-
ur er búinn að fá sig fullsaddan á
spillingunni, sem ríkir í stjórnmál-
um landsins. Að undanförnu hefur
hvert spillingarmálið öðru meira
komið fram í dagsljósið og krafan
um allsheijarhreinsun í kerfinu
verður æ háværari.
Það er aðgerðin „Hreinar hend-
ur“ og það, sem hún hefur leitt í
ljós, sem valdið hefur miklu um
reiði almennings, en saksóknarinn
Antonio di Pietro hefur stýrt henni
Sumar ríkisstjórnir EB-ríkjanna
eru andvígar orkuskatti en þær
þurfa ekki að hafa af honum mikl-
ar áhyggjur í bráð. Litlar líkur eru
á, að slíkur skattur verði tekinn
upp í helstu samkeppnisríkjum
bandalagsins og George Bush, for-
seti Bandaríkjanna, er ekki einu
sinni til viðræðu um að hækka
orkuverð, sem er þó lágt þar í landi.
Samþykkt framkvæmdastjórnar-
innar er samt nokkur ögrun við
stjórnvöld í Bandaríkjunum, Japan
og öðrum iðnríkjum.
Talsmenn EB segjast vissir um,
að einhvers konar orkuskattur
verði að lokum tekinn upp í Banda-
ríkjunum en samkvæmt áætlunum
EB á að taka hann upp á nokkrum
árum þar til hann nemi 10 dollurum
á hvert olíufat. Verðið á olíu af
Brent-svæðinu í Norðursjó er nú
tæpir 20 dollarar fatið.
Auk orkuskattsins mælir fram-
kvæmdastjórnin með víðtækum
orkusparnaðaraðgerðum og vill, að
ávallt verði miðað við, að notendur
orkunnar greiði sjálfir fyrir hana
að fullu. Er til dæmis lagt til, að
íbúðir og aðrar byggingar verði
ekki seld eða leigð nema jafnframt
fylgi vottorð um orkukostnað hús-
næðisins og hvatt er til betra eftir-
lits með bifreiðum og mengun frá
þeim. Er stefnt að því, að með
þessu verði unnt að minnkað út-
blástur koltvísýrings um 80 milljón-
ir tonna árlega.
Finnar kyrr-
setja rússn-
eskar byssur
FINNSK stjórnvöld hafa stöðv-
að flutning á 60.000 rússnesk-
um skammbyssum frá Rúss-
landi sem átti að flytja um
Finnlandi til Englands. Finnsk-
ur embættismaður sagði að
skort hefði upplýsingar um
hvaðan byssurnar kæmu og
hvert þær ættu að fara.
Hungur í
Mozambique
RÍKISSTJÓRN Afríkuríkisins
Mozambique hefur Ieitað ásjár
vestrænna ríkja um víðtæka
matvælaaðstoð til að bjarga
meira en þremur milljónum
manna frá hungurdauða vegna
þurrka í landinu. Nýlegar kann-
anir SÞ og ríkisstjórnar lands-
ins sýna að uppskera í mið- og
suðurhluta landsins hefur ger-
samlega brugðist.
Vasatölva
sem sendir
símbréf
APPLE-tölvufyrirtækið kynnir
innan tíðar tölvu sem getur les-
ið handskrift notendans, sent
símbréf og skiptst á upplýsing-
um við aðrar tölvur. Tölvan
hefur verið skírð Newton og
vegur hún ekki nema 0,4 kg
og kemst fyrir í buxnavasa. I
henni er lítill skjár og notendur
geta handskrifað upplýsingar á
hann sem tölvan les inn í minni.
Newton mun kosta um 42.000
ÍSK þegar hann kemur á mark-
að snemma á næsta ári.
■Vímrinr
Amerísku „Sealy“ rúmin eru alveg ómótstæðileg. Þau eru hönnuð í samróði við færustu
beinasérfræðinga Bandaríkjanna. Tvær þykkar dýnur, undir- og yfirdýna, sem fjaðra saman
og nó þannig að gefa þér góðan nætursvefn ón bakverkja að morgni. 5—15 ára ábyrgð.
Höfum einnig rúmgafla, náttborð og rúmföt í miklu úrvali.
Marco,
Langholtsvegi 111, sími 680690.
Opið alla virka daga frá kl. 10-18.
Laugardaga frá kl. 10-14.