Morgunblaðið - 14.05.1992, Page 33
Kvikmyndaklúbbur:
Aðaífundur
á laugardag
AÐALFUNDUR Kvikmynda-
ldúbbs Akureyrar verður haldinn
á laugardag kl. 17 í stofu C-02 í
Verkmenntaskólanum.
IClúbburinn hefur starfað í 2 ár
og hefur starfsemin gengið vel. í
vetur hefur klúbburinn sýnt 9 mynd-
ir á 22 sýningum og hafa þær verið
frá ýmsum löndum og af öllu tagi,
en nær allar voru þær sýndar á Kvik-
myndahátíð Listahátíðar í Reykjavík
eða á erlendum kvikmyndahátíðum
á síðasta ári.
Á næsta stafsári verður hluti
stjórnar klúbbsins fjarverandi við
nám eða störf og er því óskað eftir
áhugasömu fólki til starfa.
(Úr fréttatilkynningu)
-----» ♦ ♦----
Vordagarí
Sunnuhlíð
HINIR árlegu Vordagar hefjast
í verslunarmiðstöðinni Sunnuhlíð
í dag, fimintudag, og standa þeir
fram á laugardag, 16. maí.
Ýmislegt verður um að vera alla
dagana, konur á vegum Iðnþróun-
arfélags Akureyrar verða með sölu-
sýningu á hannyrðum, t.d. eyrna-
lokkum úr hrosshárum, útskorið tré
og fleira.
Hornaflokkur Tónmenntaskóla
Akureyrar leikur kl. 16 í dag,
fimmtudag, og á föstudag kl. 16.30
syngur Bergþór Pálsson við undir-
leik Jónasar Þóris. Trúðurinn
Skralli verður á sveimi eftir hádegi
á fimmtudag og föstudag og þá
verða ýmsar kynningar í gangi og
starfsmenn Kjötiðnaðarstöðvar
KEA munu grilla við verslunarmið-
stöðina bæði í dag og á morgun.
(Fréttatilkynning)
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Elín Kjartansdóttir við vef-
stól sinn.
Sýning á vefn-
aði í blóma-
skálanum Vín
SÝNINGU Elínar Kjartans-
dóttur vefara í blómaskálan-
um Vín í Eyjafjarðarsveit lýk-
ur á sunnudaginn, 17. maí.
Sýningin er opin frá kl. 12
til 22.
Elín lærði vefnað á námskeið-
um hjá Ólöfu Þórhallsdóttur á
Akureyri og Guðrúnu Vigfús-
dóttur á ísafirði og hefur síðan
þreifað sig áfram með aðstoð
bóka og annarra vefara. Vef-
stóllinn sem hún notar hefur
verið notaður í fjölskyldu henn-
ar í rúm 50 ár með hléum. Elín
hefur tekið þátt í tveimur sam-
sýningum á Akureyri með
félaginu Nytjalist og árið 1989
tók hún þátt í sýningu sem
haldin var í Svíþjóð á vegum
norrænna samvinnustarfs-
manna.
Á sýningunni í Vín eru m.a.
mottur sem ýmist eru unnar úr
leðri, mokkaskinnum, ull eða
hör.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Hafnarstræti endurbygggt
Miklar framkvæmdir standa nú yfir í Hafnarstræti, frá horni Kaup-
vangsstrætis, en verið er að endurbyggja götuna og verður henni
breytt á þann hátt, að gangstéttir austanmegin verða breikkaðar,
gatan sjálf verður mjókkuð og bílastæðum við hana fækkað. Gunnar
Jóhannesson deildarverkfræðingur hjá Akureyrarbæ sagði að nauð-
synlegt hefði verið að ráðast í endurbyggingu götunnar, vatns- og
frárennslislagnir hefðu verið ónýtar og burðarþoli götunnar var ábóta-
vant. Reiknað er með að vinnu við norðurhluta götunnar verði lokið
í kringum 17. júní næstkomandi og verður þá tekið til við suðurhlut-
ann. Jafnframt þessu verki verður um helgina boðið út verk við Ráð-
hústorg, en þar stendur einnig yfir endurbygging. Á síðasta sumri
var unnið við ytri hring torgsins og verður nú hafist handa við þann
innri, en hann verður hellulagður og gerðar þar tröppur. Áætlað er
að framkvæmdum við torgið verði lokið um mánaðamótin júní og júlí.
Bygging liásnæðis fyrir aldraða:
*
Akveðið í dag hvaða
tilboði verður tekið
REIKNAÐ er með að ákveðið verði hvaða tilboði verði tekið í bygg-
ingu tveggja fjölbýlishúsa fyrir aldraða á fundi framkvæmdanefndar
í dag.
Kostnaðaráætlun hljóðar upp á
483,1 milljón króna og bárust fimm
tilboð í verkið. Hagvirki hf. í Hafn-
arfirði bauð lægst, 398 milljónir eða
82,4% af kostnaðaráætlun. Tilboð
SS-Byggis á Akureyri, sem var
næst iægst, var 94,5% af kostnaðar-
áætlun, þá kom tilboð frá A. Finns-
sonar á Akureyri sem var 98,5% af
kostnaðaráætlun, en tvö tilboðanna
voru yfir áætluninni, frá Fjöln-
ismönnum á Akureyri, 100,3%, og
tilboð ístaks í Reykjavík sem var
upp á 494 milljónir króna, eða
102,3% af kostnaðaráætlun.
Aðalsteinn Óskarsson, formaður
framkvæmdanefndar, sagði að verið
væri að skoða tilboðin og ákvörðun
ætti að liggja fyrir eftir fund í dag
hvaða tilboði yrði tekið.
Nú er verið að gera götu heim
að húsunum, en hún hefur fengið
nafnið Lindarsíða. Bygging fjölbýl-
ishúsanna tveggja er langstærsta
verkefnið á þessu sviði á Akureyri
um þessar mundir, en í hvoru húsi
verða 35 íbúðir, þá verður byggður
tengigangur á milli húsanna og einn-
ig frá þeim og að þjónustukjarna sem
verður í kjallara Bjargs, húss Sjálfs-
bjargar.
Frá undirritun samningsins, f.v. Guðlaugur Guðlaugsson, sölustjóri
Olgerðarinnar, og Rúnar Antonsson, formaður knattspyrnudeildar
Þórs.
• •
Þór semur við Olgerðina
Knattspyrnudeild Þórs og
Olgerðin Egill Skallagrímsson
hf. hafa gert með sér sam-
starfs- og auglýsingasamning
sem gildir til eins árs.
Olíuóhappið við Strandgötu:
Um tvö tonn af olíu
hreinsuð úr fjörunni
Eitt stærsta mengunaróhappið sem orðið hefur á Akureyri
AÐ MESTU er búið að hreinsa upp svartolíuna sem fór í sjóinn 1
fyrradag þegar verið var að dæla henni um borð í togarann Víði EA.
í framhaldi af þessu óhappi, sem er eitt hið stærsta sem orðið hefur
á Akureyri, verður boðað til fundar með aðilum er slík mál varða
svo finna megi leiðir til að koma í veg fyrir óhöpp af þessu tagi.
um borð í skip og var um gasolíu
að ræða í bæði skiptin, sem fljót-
lega gufaði upp. Þá fór svartolía í
sjóinn í eitt skipti, en það óhapp
var mun umfangsminna en þetta.
Rúnar Antonsson, formaður
knattspyrnudeildar Þórs, sagði að
samningurinn væri mikilvægur
starfi deildarinnar og lýsti yfír
ánægju sinni með hann. „Það er
ánægjulegt að enn skuli vera til
fyrirtæki sem vilja styðja við bak-
ið á íþróttahreyfingunni í land-
inu,“ sagði Rúnar.
Fyrstu deildarlið Þórs mun leika
með auglýsingu fyrir Egils appels-
ín framan á keppnistreyjunum á
komandi keppnistímabili. Útibú
Ölgerðarinnar hf. á Akureyri flutti
fyrir skömmu í nýtt og betra hús-
næði á Hjalteyrargötu 2 og ætlar
sér stærri hlut á markaðnum og
munu Þórsarar taka þátt í því
starfi með fyrirtækinu.
. Guðmundur Sigurbjömsson
hafnarstjóri sagði að hreinsun fjör-
unnar við Strandgötu hefði gengið
vel. Togarinn lá við Oddeyrar-
bryggju og fór olían að mestu upp
í fjöruna við Strandgötu þar sem
hún náði yfír um 400 metra svæði.
Skemmtikvöld
á Fiðlaranum
SKEMMTIKVÖLD verður á Fiðlar-
anum annað kvöld. Boðið er upp á
drykk, ilmvatnskynningu, skemmt-
un, mat, tískusýningu og dans.
Skemmtunin hefst kl. 21 eftir ilm-
vatnskynningu frá Vömsölunni, með
því að Bergþór Pálsson söngvari
syngur nokkur lög við undirleik Jón-
asar Þóris og þá mun Þórhallur Sig-
urðsson, Laddi bregða sér í ýmis
gervi. Jónas Þórir leikur við borð-
haldið, en síðan verður kvenfatasýn-
ing frá tískuverslunini Habro og
Ynju. Hljómsveitin Namm og Júlíus
Guðmundsson leika fyrir dansi á eft-
ir.
Um tvö tonn af olíu voru hreinsuð
úr fjörunni.
Rúmlega 20 manns tóku þátt í
hreinsuninni, hafnarstarfsmenn,
slökkviliðsmenn, starfsmenn bæjar-
ins, Samhetja og Olís og sagði
Guðmundur að menn ættu heiður
skilinn fyrir vasklega framgöngu.
Verið er að taka saman kostnað
við hreinsunina og sagði Guðmund-
ur að útgerðarfélag skipsins, Sam:
heiji, væri ábyrgt fyrir óhappinu. í
kjöífarið verður boðað til fundar
með starfsmönnum olíufélaganna,
hafnarinnar og útgerðaraðila þar
sem farið verður yfir þessi mál og
reynt að finna leiðir til að koma í
veg fyrir að slíkt hendi aftur. Ekki
er, að sögn Guðmundar, nákvæm-
lega vitað hvað olli óhappinu í fyrra-
dag.
Þetta óhapp er eitt hið stærsta
sem orðið hefur á Akureyri, einu
sinni áður hefur svipað magn olíu
farið í sjóinn, það var við Krossanes
og í það skipti var um mun minna
svæði að ræða er olían var á en
nú. Á síðasta ári urðu tvö mengun-
aróhöpp er verið var að dæla olíu
Rætur
og vængir
l-ll
Vönduð heildarútgáfa á ræðum og ritverkum Þórarins
Björnssonar, skólameistara, er að koma út í tveim
bindum og ber nafnið: Rætur og vængir l-ll.
Stúdentum frá MA hefur verið sent boð um áskrift á
sérstökum tilboðskjörum kr. 5.900 auk sendingar-
kostnaðar. Þeir, sem njóta vilja, eru beðnir að svara
tilboðinu strax.
Þeir, sem ekki hafa fengið tilboðið, þeir, sem erlendis
búa, eða aðrir, sem áhuga hafa á að gerast áskrifend-
ur, geta enn notið tilboðskjara ef þeir senda inn pönt-
un fyrir 25. maí.
Pöntun sendist til útgefenda:
Stúdentar MA 1962,
pósthólf 53,
__________________602 Akureyri.