Morgunblaðið - 14.05.1992, Page 36
36
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MAI 1992
ESAB
NY KYNSLOÐ
SUÐUTÆKJA
A10 Fyrir iðnað.
Sterk og fjölhæf Mig/Mag iðn-
aðarsuðutæki útfærð sam-
kvæmt þínum fyrirmælum.
Veldu útfærsluna sem best
hentar verksviði þínu:
- Hreyfanlegt þráðfærslubox
með eða án masturs.
- Öll þráðbox með "tacho"
stýringu á þráðfærslu og
/eða 4x4 þráðfærsludrif.
- Val um hefðbundið þráð-
færslubox eða alsjálfvirkt
sammögnunarþráðbox
með 50 forstillingarmögu-
leika.
- Þrepalaus eða 40 þrepa
spennustilling á spenni.
- 250- 630 Amp. tæki.
- Stýring með einum rofa
og stillimöguleikar frá
byssu.
- Gas- eða vatnskældar
suðubyssur.
- OK - þjónustan, sérbúið
þjónustuverkstæði fyrir
ESAB notendur.
GÓÐ ENDING.
Hver einstakur hlutur tækj-
anna fer í gegnum strangt
gæðapróf á framleiðslustigi.
Nýir ESAB fylgihlutir passa
ávallt í búnaðinn sem fyrir er.
Þetta eykur endingu og
heldur endursöluverði háu.
= HÉÐINN =
VERSLUN
SELJAVEGI 2 SÍMI 624260
Gádcm daginn!
Alþjóðadagur hjúkrunarfræðinga 12. maí:
Hvernig styðjum við aldr-
aða í því að vera heima?
eftir Ingibjörgu
Hjaltadóttur
Það er hveijum manni mikilvægt
að eiga sér heimili. Þó að hjúkrun-
ar- og vistheimili séu gerð eins
heimilisleg og hægt er, þá er það
óhjákvæmilega skerðing á einkalífi
og sjálfstæði að fara inn á stofn-
un. Það er ljóst, að hlutfallslega
mun öldruðum fjölga meira en
yngri aldurshópum næstu áratugi,
og mun það verða þjóðinni um
megn að sinna þeim inni á stofnun-
um í sama mæli og gert er í dag.
Það er því mikilvægt, að við styðj-
um aldraða í því að búa á heimilum
sínum sem lengst.
Við sem erum ung, teljum það
vera sjálfgefíð, að aldraðir vilji
vera sem lengst heima. Það á við
um marga, en alls ekki alla. Það
eru nefnilega margir aldraðir, sem
vilja fara inn á stofnanir löngu
áður en þess ætti að vera þörf.
Hvað veldur því að fólk, sem er
svo hresst að það getur farið allra
sinna ferða í bæinn í strætisvagni,
vill afsala sér frelsi og fara inn á
stofnun? Hvernig getur þetta stað-
ist? Jú, þetta er vegna þess
ástands, sem verið hefur í málefn-
um aldraðra undanfarna áratugi.
Það sem margir aldraðir óttast
mest, er að verða ósjálfbjarga og
börnum sínum byrði. Þeir vita sem
er, að í dag búa tæplega tvö hundr-
uð aldraðir í heimahúsum í Reykja-
vík við neyðarástand og bíða eftir
vistun á hjúkrunarheimili. Þetta
óöryggi um framtíðina auk ein-
manaleika veldur því, að margir
aldraðir vilja fara inn á stofnun,
áður en þeir raunverulega þurfa
heilsunnar vegna.
Hvað getum við gert til að snúa
þessari þróun við? Við þurfum að
stuðla að því, að aldraðir geti búið
heima fullvissir þess að ef þeir
þurfa aðstoð, þá fái þeir hana heim.
Ef heilsan bilar, þá fái þeir læknis-
hjálp og endurhæfingu og ef þeir
verða fyrir varanlegum heilsu-
bresti, þá komist þeir inn á hjúkr-
unarheimili með stuttum fyrirvara.
Þessi þrjú ofangreind atriði eru
grundvöllur þess, að aldraðir geti
búið heima við fullkomið öryggi. Á
hinum Norðurlöndunum er þessum
þörfum sinnt betur en hér og sýn-
ir það sig, að hlutfall aldraðra sem
dveljast á stofnunum þar er mun
lægra en hér eða 4-7%. Hins veg-
ar eru 10% 65 ára og eldri íslend-
inga vistaðir á stofnunum.
Heimaþjónusta og
heimahjúkrun
Heimahjúkrun og heimaþjón-
usta í Reykjavík er ekki rekin und-
ir sömu stjóm og er hverfaskipting
fyrir heimilishjálp jafnvel land-
fræðilega önnur en t.d. fyrir heilsu-
gæslustöðvar og heimahjúkrun.
Efling og sameining þessara þátta
er forsenda þess, að þjónusta við
aldraða í heimahúsum verði betri
og hagkvæmari. Reynslan af sam-
eiginlegum rekstri þessara þátta
erlendis, t.d. í Danmörku, er mjög
góð. Eins og ástandið er í dag eru
það oft þrír mismunandi aðilar sem
skipuleggja þjónustu sem veitt er
einum og sama einstaklingnum.
Hann fær heimilishjálp sem er
skipulögð af heimaþjónustunni í
Reykjavík. Síðan fær hann heima-
hjúkrun á daginn frá viðkomandi
heilsugæslustöð og heimahjúkrun
á kvöldi'n eða á nóttunni, sem veitt
er af heimahjúkrun í Heilsuvemd-
arstöðinni. Það gefur augaleið, að
þegar þrír mismunandi aðilar em
að skipuleggja þjónustu við sama
einstaklinginn að kerfið er orðið
þungt í vöfum og kostnaður mikill.
Endurhæfing
Þegar aldraðir verða veikir eða
fatlaðir er mikilvægt, að þeir fái
viðeigandi hjúkrun, læknishjálp og
endurhæfingu. Aldraðir geta nýtt
sér endurhæfingu eins og yngra
fólk, en það tekur oft lengri tíma
að ná árangri. Aldraðir þurfa sér-
hæfða hjúkrun, læknishjálp,
sjúkraþjálfun og iðjuþjálfun til að
sem bestur árangur náist. Þessa
þjónustu er alla að finna á öldmn-
ardeildum.
Öldmnardeildir veita sérhæfða
þjónustu fyrir aldraða sjúklinga,
sem leggjast inn á sjúkrahús. Þar
fer fram greining og meðferð sjúk-
dóma og einkenna, sem sérstak-
lega tengjast öldmn. Aldraðir
sjúklingar, sem ekki komast aftur
heim vegna fötlunar, sjúkdóma eða
em deyjandi, fá einnig umönnun á
öldmnardeildum. í allri meðferð
og hjúkmn er tekið tillit til þeirra
líkamlegu breytinga, sem verða á
einstaklingnum með hækkuðum
aldri.
Endurhæfing er stór þáttur í
starfseminni og stuðlar að því, að
hinn aldraði nái aftur bata, eða
nægilegri fæmi, til að hann komist
aftur heim. Öll starfsemi og hjúkr-
un á öldrunardeildum er miðuð við
að endurhæfa sjúklinginn á þann
hátt, sem best nýtist öldmðum.
Aldraðir em þar í fyrirrúmi og
aðstæður sniðnar að þeirra þörf-
um.
Á öldmnardeild Borgarspítalans
er unnið í teymi. í teyminu em
hjúkrunarfræðingar, læknar,
sjúkraþjálfari, iðjuþjálfari, sjúkra-
liði og félagsráðgjafi. Á teymis-
fundum, sem haldnir em í hverri
viku, er farið yfir þann árangur,
sem náðst hefur í meðferð sjúkl-
ingsins og síðan er skipulagt hvert
framhaldið verður. Teymið byijar
að skipuleggja heimferð sjúklings-
ins mörgum vikum áður en hann
hugsanlega getur útskrifast. Náin
samvinna er höfð við heimahjúkrun
og heimilishjálp til að skipuleggja
sem best heimferð þeirra sjúklinga,
sem þurfa á aðstoð að halda, þeg-
ar heim kemur. Einnig er haft
samráð við fjölskyldu sjúklingsins
og oft em haldnir fjölskyldufundir
áður en til heimferðar kemur.
Þannig hefur oft tekist að útskrifa
sjúklinga heim, sem þurft hafa
mikla aðstoð. Þeir hafa þá notið
þess að dvelja á eigin heimili
nokkrum árum lengur í stað þess
að verða hjúkmnarsjúklingar og
þurfa að dveljast á sjúkrahúsi.
Aldraðir sjúklingar eiga ekki
eins greiða leið til endurhæfíngar
og aðrir. Það hefur því oft verið
eini möguleiki þeirra til endurhæf-
ingar að komast inn á öldrunar-
deild. Það að aldraður einstakling-
ur þarf að bíða lengi eftir að kom-
ast í endurhæfingu, getur einmitt
leitt til þess að hann verði að hjúkr-
Unarsjúklingi og dvelji til æviloka
á sjúkrahúsi. Sérhæfð meðferð og
endurhæfing á öldrunardeild getur
því skipt sköpum um, hvort ein-
staklingurinn kemst heim aftur.
Skortur á hjúkrunar- og vist-
rými í Reykjavík og nágrenni hefur
staðið öldrunardeildum fyrir þrif-
um. Mikill hluti rúma á öldrunar-
deildum hefur verið nýttur fyrir
aldraða, sem beðið hafa eftir hjúkr-
unarheimilisrými. Á meðan hefur
verið langur biðlisti af öldruðum,
sem þurft hafa á þessum rúmum
að halda til endurhæfingar og
meðferðar. Öldmnardeildir háfa
því ekki getað sinnt fylliíega því
fjölþætta hlutverki, sem þeim er
ætlað. Aldraðir einstaklingar, sem
hafa fengið fulla meðferð og end-
urhæfingu, en era ekki færir um
að fara aftur á heimili sitt, hafa
sumir hveijir beðið í mörg ár eftir
því að komast á hjúkmnarheimili.
Við sem vinnum við hjúkmn aldr-
HÖGGDEYFAR - KUPLINGAR
SACHS
DISKAR
Eigum fyrirliggjandi Sachs
höggdeyfa, kúplingar og
kúplingsdiska í allar helstu
tegundir evrópskra og
japanskra fólks- og vörubíla.
Útvegum alla fáanlegar
kúplingar og höggdeyfa
með hraði.
Það borgar sig að
nota það besta.
Þeiœing Reynsla Þjónusta
FALKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8 SlMI 814670
Ingibjörg Hjaltadóttir
„Nauðsynlegt er að
leysa vanda þeirra, sem
nú búa við neyðar-
ástand heima og þeirra,
sem bíða á sjúkrahús-
unum, en eru of fatlaðir
til að geta verið heima.“
aðra höfum séð, hvemig vonar-
neistinn slokknar hjá þessu fólki
eftir endurtekin vonbrigði yfír því
að fá ekki næsta pláss sem losnaði.
Hjúkrunarheimili
Á sjúkrahúsunum í Reykjavík
eru nú tugir aldraðra, sem bíða
eftir plássi á hjúkrunarheimili. Þó
að starfsfólk sé allt af vilja gert
að sinna þessum sjúklingum, þá
getur það þó ekki veitt þeim heim-
ili. Sjúkradeildir geta ekki flokkast
undir það að vera heimilislegar,
en reynt er að hafa hjúkrunarheim-
ili hlýleg og herbergi rúmgóð svo
að vistmenn geti haft hjá sér per-
sónulega muni. Á sjúkradeildum
er hins vegar ekki pláss fýrir aðra
persónulega muni en þá, sem kom-
ast á náttborð viðkomandi. Margir
aldraðir hafa þó þurft að búa á
sjúkrahúsum mánuðum og sumir
ámm saman. Þeir hafa búið í
umhverfi, þar sem er erill og hraði
í stað heimilislegs andrúmslofts.
Undanfarin ár hefur orðið fram-
þróun í málefnum aldraðra, en við
emm ekki komin á leiðarenda. Það
er því mikilvægt, að þessi þróun
stöðvist ekki, heldur verði horft til
framtíðarinnar við skipulagningu
og uppbyggingu í öldrunarmálum.
Nauðsynlegt er að leysa vanda
þeirra, sem nú búa við neyðar-
ástand heima og þeirra, sem bíða
á sjúkrahúsunum, en eru of fatlað-
ir til að geta verið heima. Til þess
þurfum við fleiri hjúkranarrými í
Reykjavík. Samhliða verðum við
þó að styðja aldraða í því að vera
sem lengst á eigin heimilum. Það
gerum við með því að sameina og
auka heimahjúkrun og heimaþjón-
ustu og efla starfsemi öldrunar-
deilda.
Höfundur er hjúkrunar-
framkvæmdastjóri á Oldr-
unardeild Borgarspítalans.
VINKLAR A TRE
HVERGI LÆGRI VERÐ
Líl
inl
ÞÝZKIR GÆÐAVIN KLAR
OG KAMBSAUMUR
ÁVALLT FYRIRLIGGJANDI
EINKAUMBOÐ
88 Þ.ÞORGRÍMSSON & CO
Ármúla 29 - Reykjavík - sími 38640
en
OTRULEGT satt
OPNUNARTILBOÐ
gegn afhendingu
þessa miða
KAPUSAUVN,
Snorrabraut 56 hjó Herraríki,
Sími 624362