Morgunblaðið - 14.05.1992, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 1992
51
Undarleg viðhorf
Frá Þorleifi Kr. Guðlaugssyni:
Richardt Ryel, ég efast um að
það beri nokkurn árangur að met-
ast á við þig um löngu liðna at-
burði. í næstsíðasta bréfi skrifar
þú ádeilubréf og sakar mig um ós-
ansögli, af misskilningi eða fljót-
færni, að ástæðulausu. Nú heldur
þú því fram að ég vilji reka þig í
eitthvert trúfélag. Ekki er hægt,
eftir því sem þú skrifar, annað en
ætla að þú sért fylgjandi einhverju
ti'úarsamfélagi. Hefí ég nú fengið
flókið svar við því, en því bjóst ég
1 Pennavinir
27 ÁRA GÖMUL japönsk kona vill
eignast pennavinkonur á hennar
aldri á íslandi. Áhugamál hennar
eru kvikmyndir. Heimilisfang henn-
ar er:
Sayuri Aratake
1139 0 Mamedo-Cho
Kouhoku-ku
Yokohama 222
Japan
leiðréttingar
Fjórir höfundar
| í FRÉTT í Morgunblaðinu um nið-
urstöður dómnefndar um kirkju-
byggingu á ísafirði í stað kirkjunn-
ar, sem brann, var skýrt frá þvi að
hópur undir stjórn Hróbjarts Hró-
bjartssonar arkitekts hefði orðið
É hlutskarpastur. Aðrir höfundar til-
lögunnar, sem hlaut verðlaun voru
Richard 0. Briem arkitekt, Sigríður
Sigþórsdóttir arkitekt og Sigurður
Björgúlfsson arkitekt. Jafnframt
féll niður hluti málsgreinar í niður-
lagi niðurstöðu dómnefndar, en þar
átti að standa eftirfarandi: „Endur-
gert Kristslíkneskið úr gömlu kirkj-
unni fær veigamikið hlutverk í nýju
kirkjunni. Sveigð þök byggingar-
innar minna á öldur úthafsinSj þar
sem hver báran rís af annarri. Utlit-
ið hæfir kirkju á ísafirði, þar sem
lífsbjörgin er sótt í sjóinn.“
Lína féll niður
g Vegna tæknilegra mistaka féll nið-
" ur ein lína í inngangi fréttar um
sjóflutninga varnarliðsins sem birt-
g ist á miðopnu blaðsins í fyrradag.
" Þar var greint frá tekjum Eimskips
uf flutningunum á síðasta samn-
Íingsári en út féll setning þar sem
sagði að heildartekjur félagsins af
sjóflutningunum á árinu hefðu
numið um 470 milljónum króna.
Leiðréttist þetta hér með.
ekki við, að þú myndir draga þig
niður í duftið og vera hreint ekki
neitt, trúa engu og hafa ekki nein
trúarleg viðhorf til lífsins. Þú virð-
ist veijast öllu sem gefur verulegar
upplýsingar um líf þitt. Ég spýr
því, hvers vegna ertu að skrifa og
segja aðra á villigötum? Það virðist
sem þú hermir uppá aðra það sem
þér líkar.
Þar sem þú tekur upp úr bókum
Lúthers trúfræðings fæ ég ekki
betur séð en að þú segir það í niðr-
andi tón um Martein Lúther án
þess að hirað um orðaval né skýr-
ingu. Nú, svo ertu farinn að hvetja
mig til að lesa Biblíuna, þá er nú
einhver trúarneisti hjá þér.
Þú hlýtur að sjá það, maður, að
Guð skapaði alla veröldina en ekki
bara heimsveldi Assýríu. Þú ruglar
hér og setur saman á annan hátt
en samræmist flestum rökum.
Heimurinn varð til eftir orði Guðs,
að því er skrifað hefur verið, en
erfiðara er að færa rök að því að
Guð sjálfur hafi ritað á blað, þá
væntanlega laufblað. Þú ruglar
saman sköpun heimsins og upphafi
ritningarinnar, Biblíunnar sem ekki
var fest í letur fyrr en jafnvel millj-
ónum ára síðar. Alltaf er Guð að
skapa, hann verður að hafa eitthvað
til að fullkomna ætlunarverk sitt
svo maður segi nú eitthvað í gamni
og alvöru. Ég vil nú samt árétta
það að ísland var ekki til þegar
sköpunin átti sér stað í upphafi til-
verunnar og eftir tilgátum grúskar-
anna í jarðsögunni var einhvern
tímann til land sem nefnt mun hafa
verið Atlantis, ef svo hefur verið,
en seint mun Iíklega sannað, þá
munu miklar líkur á því að ísland
hafi orðið til í þeim hamförum er
Atlantis sökk f sæ.
Biblían minnist ekki á ísland af
skiljanlegum ástæðum. Biblían var
ekki skrifuð af Guði sjálfum, heldur
spámönnum sögunnar. Þá var ekki
eins margt til að glepja hugann og
nú er og að mínum dómi mundu
menn sögu mannkyns ætt fram af
ætt og mun það hafa geymst í
hugum kynslóðanna sem heilög
minningabók. Síðar voru þær skráð-
ar og eru enn að finnast meitlaðar
á stein og annað sem letur og rún-
ir var hægt að festa á, nema Biblí-
an er til og hefur orð hennar varð-
veist á ýmsan hátt og eru þar mik-
il sannindi að finna, einkum í Nýja
testamentinu.
ÞORLEIFUR KR.
GUÐLAUGSSON,
Nökkvavogi 33, Reykjavík.
Freistarar
á hveiju
götuhorni
Frá Árna Helgasyni:
Það er undrunarefni hversu
margar hendur koma á loft þegar
koma á áfengi eða öðrum slíkum
eiturefnum nær manninum.
Hversu ötulir menn eru að leyfa
opnun kráa og bjórstofa, vínveit-
inga, vitandi það gífurlega tap
sálar og líkama fjölda manna og
fýrirtækja sem engar tölur eða
tölvur ná yfir. Aðeins að það fer
ekki framhjá neinúm að bölið sem
af þessum handauppréttingum
leiðir er óbætanlegt. Frakkar segja
að fleiri hafi misi t lífið af völdum
áfengis en begg,i heimsstyijald-
anna, og í bók Asgeirs Jakobsson-
ar, Kastað í flóam, bls. 154, seg-
ir: Brennivínið hefir orðið margri
útgerð að fjörtjóni. Og hvað þá
með einstaklinga. Ég held að í dag
megi fullyrða að áfengið og böl
þess snerti hvem einasta þegn
þjóðfélagsins í einhverri mynd. Og
nú þegar EES er framundan, verð-
ur þá ekki ein allsheijar brenni-
vínsvæðing allra verslana? Gott
væri að fá svar við þeirri spurn.
Það er talað um að hótelrekstur
geti ekki gengið nema með brenni-
vínssölu. En það er ekki talað um
hvað af þeirri sölu getur leitt.
Eigi leið þú oss í freistni, segir
í Faðirvorinu okkar. Og svo eru
freistarar á hveiju götuhorni.
Ósköp er erfitt að samræma þetta
guðsótta og góðum siðum. Undan-
farin ár hafa góð samtök og góð-
viljaðir menn ekki haft við að taka
á móti og hjálpa afvegaleiddu fólki
sem hefur orðið Bakkusi að bráð.
Það er óhugnanlega stór hópur.
Og enn er spurningin, hvemig
getur þetta haldið áfram? Hvenær
rumskum við svo að geta snúið
þessari öfugþróun við og tekið
undir með Einari Ben: Sjálfsköpuð
þján bæði þjóðar og manns skal
þurrkast úr lífsins bókum.
Góðtemplarareglan hefir á ann-
að hundrað ár verið í vökuliði
manndóms og heilbrigðra lífshátta.
En auðvaldið, gróðahyggjan sem
nú á meira rúm hjá þjóðinni, reyn-
ir að þagga rödd hennar niður.
Hvers vegna? Vilja menn ekki gró-
andi þjóðlíf? Við sem viljum heil-
brigðari lífshætti og höfum haldið
reglunni og starfi hennar við lýði
finnum svo vel hversu þama er
góður vettvangur í baráttu gegn
freistingum og fjörtjóni. Við finn-
um og vitum að ef þessi félags-
skapur er glæddur fækkar þeim
sem verða úti af völdum áfengis
og annarra nautna. Eftir því sem
við verðum fjölmennari er meiri
von um betri hag andlega og líkam-
lega og til mikils að vinna fýrir
hvern þjóðfélagsþegn. Hafið þið
athugað þetta sem standið utan
við? Þeir sem ekki eru með em á
móti, segir Kristur. Og það er
sannarlega satt. Megi fjöldinn taka
þetta til alvarlegrar athugunar.
Gleðilegt sumar, sumar án vímu,
sumar með sól í sinni og sál.
ÁRNI HELGASON,
Neskinn 2, Stykkishólmi
Ég þakka öllum, sem sýndu mér kœrleika
á 90 ára afmœli mínu.
Lifið heil.
Ástríður Einarsdóttir,
Hringbraut 53,
Reykjavík.
STEINAR WAAGE
SKOVERSLUN
Tilboð
Efni: Mjúkt
og gott skinn
Stærðir: 37-42
Litun brúnn og blár
Póstsendum samdægurs. 5% staðgreiðsluafsláttur.
Domus Medica, Egilsgötu 3, sími 18519 Kringlunni, Kringlunni 8-12, sími 689212
6 manna ELFA-DELCA uppþvottavélin
kostar aóeins 33.155,- stgr.
Tekur borðbúnað fyrir 6 - þurrkar, skammtar
sjálf þvottaefni. 7 kerfi. Getur staðið á borði,
má einnig byggja inn í skáp.
íslenskar leiðbeiningar.
Greiðslukjör.
r* |. • L
Einar Farestveit&Co.hf.
Borgartúni 28, símar: (91) 622900 og 622901 - Næg bilastæði
Almennur lífeyrissjóður VIB
starfar sem séreignarsjóður.
Framlög sjóðsfélaga eru
séreign hans og inneign erfist
við andlát.
Arsávöxuin umliam vei'öbölgu s.l. !í riián.
VÍB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ISLANDSBANKA HF.
Ármúla 13a, 108 Reykjavik. Simi 68 15 30.