Morgunblaðið - 13.08.1992, Blaðsíða 41
41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13 ÁGÚST 1992
STOPPEÐAMAMMA
HLEYPiRAF
STALLONE • ESTEILE GETTY
First sWc tíwrwd vp (tís vpoftment
Now4 d«w«g «p me sbeeh.
Óborganlegt grin og
spenna.
Sýnd kl. 5,7,9 og 11.
Miðav. kr. 300 kl. 5 og 7.
TÖFRALÆKNIRINN
Vegna fjölda áskorana
sýnum við þcssa f rábæru
mynd með Sean Connery
í nokkra daga.
Sýnd kl. 5,7,9 og 11.
Miðav. kr. 300 ki. 5 og 7.
TILBOÐ Á POPPI OG KÓKI - KYNNING Á FREYJUHRÍS
- PLAGGÖT AF BEETHOVEN FYRIR ÞAU YNGSTU!
Kattaheimilið Kattholt:
Bætt aðstaða með nýju húsnæði
# Morgunblaðið/Þorkell
Árdís Þórðardóttir færir Sigríði Heiðberg, formanni
Kattavinafélagsins, peningagjðf fyrir hönd heildsölufyr-
irtækisins Birgis sf.
NÝTT húsnæði katta-
heimilisins Kattholts,
Stangarhyl 2, var tekið í
notkun nýverið. Hús-
næðið, sem er um 100 fer-
metrar að flatarmáli, er
viðbót við eldra húsnæði
lieimilisins en það var
opnað fyrir um réttu ári
síðan. Nýja húsnæðið ger-
ir heimilinu, sem á síðast-
liðnu ári tók á móti sam-
tals þúsund köttum, kleift
að halda aðskildum þeim
köttum sem þvi er falið
að gæta á kattahótelinu
annars vegar og týndum
óskilaköttum hins vegar.
Að sögn Sigríðar Heið-
berg formanns Kattavinafé-
lagsins, en það rekur Katt-
holt, er nýja húsið mikill
áfangi fyrir félagið. Nú sé
unnt að sinna mun fleiri
„viðskiptavinum" og að-
staða öll önnur og betri.
Nýja aðstaðan er ætluð
týndum heimiliskisum sem
hvergi eiga öruggt heimili.
Sigríður segir mikilvægt að
nú sé hægt að hafa sérstakt
heimili fyrir óskilaketti sem
sé aðskilið frá kattahótelinu
SENN líður að lokum sum-
arstarfs KFUK í Vindás-
hlíð í sumar. Þátttaka í
dvalarflokkum hefur verið
góð og stundum komust
færri stúlkur að en vildu,
að því er segir í fréttatil-
kynningu.
Síðasti flokkur sumarsins
verður svokallaður kvenna-
flokkur frá fimmtudegi til
sunnudags 27.-30. ágúst nk.
Dagskrá verður fjölbreytt og
er fyrir líkama, sál og anda.
M.a. verða biblíulestrar og
bænastundir, messa, kvöld-
vökur, gönguferðir og útivist,
leikfimi o.fl.
Innritun fer fram á skrif-
stofu KFUM og K við Holta-
veg í Reykjavík, kl. 8-16
virka daga og lýkur henni
mánudaginn 24. ágúst.
■ HUÓMSVEITIN
Skriðjöklar leika í kvöld,
fimmtudag, á Gauki á
Stöng. A föstudag leikur
sveitin í Hreðavatnsskála
og á laugardagskvöld í fé-
lagsheimili Ólafsvíkur.
sem rekið er í Kattholti.
Oftar en ekki er hætta á
að óskilakettir beri með sér
sjúkdóma.
Kattavinafélagið hefur í
gegnum tíðina notið mikils
og góðs stuðnings ýmissa
aðila og hafa íjárframlög
komið sér vel. I tilefni af
opnun nýja húsnæðisins var
félaginu einmitt færð veg-
leg peningagjöf og segir
Kvennadagar eru fyrir allar
konur 17 ára og eldri og
kosta 5.000 krónur. Rútuferð
verður fimmtudag 27. ágúst
kl. 17.30 frá Holtavegi.
OPNUÐ hefur verið sýn-
ing á verkum bandaríska
myndlistarmannsins Don-
alds Judds í sýningarsaln-
um „Annarri hæð“ að
Laugavegi 37 í Reykjavík.
Sigríður þá gjöf hafa riðið
baggamuninn í að koma
nýju aðstöðunni á fót. Þetta
er sérstaklega mikilvægt
fyrir þá sök að heimilið nýt-
ur einungis lágra styrkja
hjá Reykjavíkurborg og
ennfremur af því að tekju-
möguleikar eru lýrir.
Nú þegar aðstaðan í
Kattholti hefur batnað til
muna segir Sigríður áhuga
vera á því að félagið beiti
sér fyrir fræðslu um ketti
og hirðingu þeirra. „Það
þarf að breyta hugsana-
gangi fólks,“ segir Sigríður.
„Fólk er í sumum tilvikum
verulega illa upplýst um
kattahald.“ Sigríður segir
ennfremur að stefnt sé að
því að koma upp aðstöðu
fyrir dýralækningastofu á
Kattholti.
Sum verkanna voru nýver-
ið til sýnis í Slúnkaríki á
ísafírði. Sýningin verðu opin
miðvikudaga frá kl. 14 til
18 í ágúst og september.
Kvennadagar haldnir
hjá KFUK í Vindáshlíð
Donald Judd við eitt verka sinna.
Judd sýnir í „Annarri hæð“
★ ★★ ’/z Bíólínan
„HRAÐUR OG SEXÍ
ÓGNARÞRILLER"
★ ★★ Al Mbl.
LOSTÆTI
★ ★★★ SV MBL.
★ ★★★ PRESSAJV
★ ★★ BÍÓLÍNAN
Sýndkl. 5,7,9og
H.Bönnuö i. 14.
HOMOFABER
A Í f J
SIÐLAUS...
SPENNANDI... ÆSANDI...
ÓBEISLUÐ... ÓKLIPPT...
GLÆSILEG... FRÁBÆR.
„BESTA MYND ÁRSINS“
★ ★ ★ ★ Gísli E. DV
Sýnd kl. 5,7,9 og 11.
KOLSTAKKUR
Bókin er nýkomin út í ís-
lenskri þýðingu og hefur
fengið frábærar viðtökur.
Missið ekki af þessu meist-
araverki Bruce Beresford.
★ ★ ★ Mbl. ★★★*/» DV
★ ★★*/» Hb.
Sýnd kl. 5,7,9 og 11.
Bönnuð innan 16 ára.
LETTLYNDA ROSA
Sýndkl. 5,9 og11.30
Stranglega bönnuð
innan 16ára.
Sýnd kl. 5,7,9 og 11
REGNBOGINN SÍMI: 19000
Gengur vel í
Vatnsdalsá
VATNSLEYSI er ekki alls
staðar til bölvunar. Morg-
unblaðið ræddi í gær við
Grétar kokk Jóhannesson
að Flóvangi við Vatns-
dalsá og sagði hann ána
meiri en í meðallagi, þrátt
fyrir úrkomuleysi, á sama
tima og Víðidalsá, í næsta
dal, væri „eins og lækur“.
Samkvæmt upplýsingum
Grétars hefur veiðin
gengið alveg hreint bæri-
Iega í Vatnsdalsá, aðal-
svæðið hefur gefið milli
550 og 560 laxa, silunga-
svæðið um 100 fiska og
40 laxar hafa veiðst fyrir
ofan laxastiga í Stekkjar-
fossi.
Mikið af stórlaxi...
Grétar sagði enn fremur,
að tveir 23 punda laxar
væru stærstir í sumar, ann-
ar hefði veiðst á aðalsvæð-
inu og hinn á silungasvæð-
inu. Auk þess hefði þó nokk-
ur slatti veiðst af 19 til 22
punda laxi. „Þetta hefur
gengið ágætlega að undan-
fömu, vikuholl sem hætti á
mánudag fékk 94 fiska og
sem dæmi um veiðina þá
má geta þess að hópurinn
sem nú er í ánni fékk 13
laxa í morgun, en veitt er á
sex stangir," sagði Grétar.
Eingöngu er veitt á flugu í
ánni og stendur það til
næsta mánudags.
Dofnar yfir Grimsá
„Þetta er fremur dauft hér
þessa daganna, eiginlega
staðnað. Það er alltaf sama
veðrið og það kemur ekkert
nýtt vatn í ána. Samt er nóg
af laxi og endaspretturinn
gæti orðið mjög góður ef
það rignir eitthvað af viti,“
sagði Sturla Guðbjamarson
í Fossatúni í samtali við
Morgunblaðið í gær. Þrátt
fyrir nokkuð dræma veiði
að undanfömu er mjög mik-
ill fiskur í ánni og það er
alltaf að slæðast inn ný-
runninn lax. Grímsá er ein
örfárra áa hér á landi sem
hefur ekki „rofið 20 punda
múrinn", sá stærsti í sumar
var 17,5 pund. „Hann Kol-
beinn Ingólfsson kemur
hingað í haust og bjargar
þessu!", sagði Sturla og
skírskotaði til þess, að veið-
iklóin Kolbeinn Ingólfsson
lék þann þeik þijú sumur í
röð fyrir fáum árum, að
koma til veiða í lokahollinu
og veiða yfir 20 punda laxa
í hvert sinn, þá einu sem
veiddust í þeim þyngdar-
flokki í ánni þau sumur,
tveir laxanna voru 24 pund
og sá þriðji 20 pund. Sturla
sagði rúmlega 1.400 laxa
vera komna á land og áin
gæti vel gefið um eða yfir
2.000 laxa ef það rættist
úr veðrinu.
Hér og þar...
Reykjadalsá gefur reytings-
veiði þótt svona þurrkar
leiki hanagrátt.„Við vomm
Ólafur G. Karlsson með
sinn stærsta flugulax, 18
punda hæng á rauða
Frances. Laxinn fékk
hann á Steinabreiðu í
Sandá fyrir nokkrum
dögum.
að koma úr ánni og fengum
fimm laxa, þijá á flugu í
Klettsfljóti og tvo á maðkinn
í Breiðafljóti. Laxinn bunkar
sig í Klettsfljótið og þar er
barið sundur og saman. Upp
frá er fiskur að mestu skrið-
inn undir bakka og erfitt
að eiga við hann. En það
er talsverður lax og 60 lax-
ar voru komnir á þurrt er
við hættum," sagði Dagur
Garðarsson, einn leigutaka
árinnar, í gærdag. Besti
tíminn er eftir í Reykja-
dalsá, sem er ekta síðsum-
arsá og ef það rignir gæti
útkoma árinnar orðið mjög
góð.
Um 900 laxar hafa nú
veiðst í Miðfjarðará og fyrsti
20 punda laxinn úr ánni var
dreginn á maðk úr Brúnku-
skurðspolli í Austurá í vik-
unni. Sæmilegt vatn er enn
í ánum, en fer nú hríðminnk-
andi.
Langholtið í Hvítá hefur
gefið um 170 laxa og 22
pundari er stærsti laxinn til
þessa. Snæfoksstaðasvæðið
sem er á mótbakkanum
hafði gefið 50 laxa í byijun
þessa mánaðar og reytings-
veiði hefur verið þar sfðan.
SVFR er með svæðið, en
það batnar oft er á sumarið
líður.
■ Morgunblaðið/SÁM.
Einar Sigfússon með fal-
legan 7 punda hæng úr
Brúarhyl í Sandá. Lax-
inn gein yfir Wadding-
ton-túbu að nafni Willie
Gun.