Morgunblaðið - 13.08.1992, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. ÁGÚST 1992
Allur barlómur bannaður á
grænum degi í Kolaportinu
í KOLAPORTINU verður sérstakur „grænn dagur“ sunnudaginn
23. ágúst og verður markaðstorgið þá sérstaklega tileinkað öllum
jákvæðum þáttum vistfræða og umhverfismála. Þann dág ætlar
Kolaportsfólk að bregða á leik með framtíðarsýnir, breytt við-
horf og þá byltingu í lífsvenjum sefiT blasir við í náinni framtíð.
Allur barlómur verður bannaður og áhersla lögð á bjartsýni á
betra líf og skemmtilegra umhverfi.
Þennan græna daga í Kolaport-
inu verður stofnunum, félagasam-
tökum, fyrirtækjum og einstakl-
ingum gefið tækifæri til að kynna
jákvæð mál á þessu sviði, hvort
sem um er að ræða hugmyndir,
vörur, þjónustu, upplýsingar eða
annað. Sem undirfiokka má nefna
vistvænar eða umhverfisvænar
vörur, endurnýtingu, mengunar-
varnir, orkusparnað, náttúru-
vernd, iandgræðslu og hrein-
tækni.
Nú þegar er búið að leggja drög
að ýmsum atriðum og má t.d.
nefna þátttöku hugmyndasmiða
eins og Einars Þorsteins sem mun
kynna mótaðar hugmyndir um
vistþort framtíðarinnar sem
byggðar eru á vinnu hans við þró-
un slíks þorps í Danmörku svo og
orkusparandi kúluhúss sem hann
er kannski þekktastur fyrir hér á
landi, en elstu kúluhúsin sem reist
hafa verið hérlendis eftir hönnun
Einars eru nú meira en 10 ára
gömul. Einar mun kynna vistþorp
sem er í vinnslu og mun væntan-
lega rísa í náinni framtíð í landi
Gunnarshólma, rétt utan Reykja-
víkur, en þar verða vistrænt út-
færðar þyrpar 44 hýbýla. í Kolap-
ortinu verður m.a. til sýnis risa-
stórt módel slíks hýbýlis.
Þessi græni dagur, 23. ágúst,
er jafnframt fyrsti sunnudagur
haustsins í markaðstorginu, en
það hefur eingöngu verið opið á
kugardögum nú yfir hásumarið.
Á sunnudögum verður Kolaportið
opið sem fyrr kl. 11-17 en á laug-
ardögum kl. 10-16.
(Úr fréttatilkynningu)
■ HLJÓMS VEITIN Undir
tunglinu spilar á Nillabar í Hafn-
arfirði annað kvöld, föstudaginn 14.
ágúst., frá kl. 23.-03. Hljómsveitin
hefur leikið víða um land í sumar,
síðast á útihátíðinni að Eiðum um
verslunarmannahelgina. Undir
tunglingu skipa Elfar Aðalsteins-
son, söngur, Tómas Gunnarsson,
gítar, Helgi Fr. Georgsson, hljóm-
borð, Guðmundur Jónsson,
trommur og Almar Þór Sveinsson,
bassi.
V^terkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamióill!
flfaHqpitiMaftffr
R AÐ AUGL YSINGAR
Enskukennarar
Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum vill
ráða enskukennara í fullt starf nú þegar.
Upplýsingar hjá skólameistara í símum
98-11079 og 98-12190.
SVÆÐISSTJÓRN MÁLEFNA FATLAÐRA
REYKJAVÍK
Laus staða
Starfsmaður með fagþekkingu og reynslu í
málefnum fatlaðra óskast til að aðstoða og
leiðbeina fötluðu fólki, sem býr í íbúðum.
Um er að ræða 100% stöðuhlutfall og er
vinnutími aðallega á kvöldin og um helgar.
Staðan veitist frá 1. október nk.
Upplýsingar gefur Ásta M. Eggertsdóttir,
framkvæmdastjóri, í síma 621388.
Umsóknir berist til skrifstofunnar í Nótatúni
17, 2. hæð, fyrir 1. september nk.
Innheimtumenn
óskast á eftirtalin svæði:
Seltjarnarnes, Njarðvík,
Stykkishólm, Hellissand,
Patreksfjörð, Hólmavík,
Varmahlíð, Egilsstaði,
Seyðisfjörð, Reyðarfjörð,
Neskaupsstað, Djúpavog,
Kirkjubæjarklaustur, Þorlákshöfn,
Upplýsingar í síma 17336 milli kl. 9-12.
Æskan.
Starfsmenn við
fornleifauppgröft
Þjóðminjasafn íslands óskar að ráða nú þeg-
ar starfsfólk til tínpabundinna starfa við forn-
leifauppgröft. Umsækjendur með reynslu og
háskólamenntun ganga fyrir.
Upplýsingar eru veittar á skrifstofu safnsins
í síma 28888 milli kl. 8.00 og 16.00.
Þjóðminjavörður.
FJÓL8RAUTASKÓLINN VIÐ ÁRMÚLA
ARMULA 12 108 REYKJAVIK SIMI 84022
Frá Fjölbrautaskólanum við Ármúla
Fjölmiðlafræði
Kennara vantar í fjölmiðlafræði nú þegar.
Nánari upplýsingar gefur skólameistari
í síma 814022.
Skólameistari.
Fiskiskip
Til sölu 36 tonna kvótalaus eikarbátur.
Tilboð óskast fyrir 20. ágúst 1992.
Upplýsingar gefa:
Skipasalan Bátar og búnaður,
sími 622554,
og eigandi í símum 93-61284
og 985-22636.
Kvótasala - kvótaleiga - kvótaskipti.
Verslunarhúsnæði
Til leigu glæsilegt, standsett, 120 fm verslun-
arhúsnæði með góðu skrifstofu- og lager-
plássi.
Upplýsingar í síma 688715 alla virka daga
mili kl. 13-18, á kvöldin og um helgar
í síma 657418.
Skíðamenn 30 ára og eldri
Dagana 15. og 16. ágúst verður haldið í
Kerlingarfjöllum opið Reykjavíkurmót í
svigi/stórsvigi. Mótið er opið öllum skíða-
mönnum 30 ára og eldri. Skráning keppenda
er á mótsstað. Keppendur sjá sér sjálfir fyr-
ir gistingu og fæði. Stefnt er að því að fá
sem flesta skíðamenn til leiks og góðrar
samveru.
Nefndin.
Stöðupróf
f framhaldsskólum
Stöðupróf í framhaldsskólum á haustönn
1992 eru haldin sem hér segir:
Þri. 18. ágústkl. 18.00 enska.
Mið. 19. ágúst kl. 18.00 norska, sænska.
Fim. 20. ágúst kl. 18.00 spænska, ítalska.
Fös. 21. ágúst kl. 18.00stærðfr., þýska, franska.
Athygli skal vakin á því, að stöðupróf í erlend-
um málum eru ekki fyrir nemendur sem að-
eins hafa lagt stund á málið í grunnskóla.
Prófin eru haldin í Menntaskólanum við
Hamrahlíð. Þeir, sem ætla að gangast undir
þessi próf, þurfa að tilkynna þátttöku sína á
skrifstofu Menntaskólans við Hamrahlíð.
Skráningu lýkur mánudaginn 17. ágúst.
Hvítabjarnarskinn
Til sölu fallegt hvítabjarnarskinn án
höfuðbeins.
Nánari upplýsingar gefnar á kvöldin út
þessa viku í síma 76094.
Réttingarverkstæði
Til sölu er réttingarverkstæði í fullum rekstri
í leiguhúsnæði á Stór-Reykjavíkursvæðinu.
Áhugasamir leggi inn upplýsingar um nafn
og síma á auglýsingadeild Mbl., merkt:
„AE - 10417“, fyrir mánudaginn 17. ágúst.
Bflasala í Keflavík
til sölu af sérstökum ástæðum.
Er umboðsaðili fyrir bílaumboð og á besta
stað í bænum. Gott útisvæði.
Áhugasamir hafi samband við Róbert í símum
92-11900 á daginn og 92-12423 á kvöldin.
Hjálpræðis-
herinn
Kirkjustræti 2
Almenn samkoma í kvöld
kl. 20.30. Aðalræðumaður:
kommandör Anna Harrevik.
Þú ert velkomin(n)!.
Orð lífsins,
Grensásvegi 8
Almenn samkoma í kvöld kl.
20.30. Allir hjartanlega velkomnir!
UTIVIST
Hallveigarstig 1 • simi 614330
Helgarferðir 14.-16. ágúst.
Bósar í Þórsmörk. Síðsumars-
ferð. Góð aðstaða í skálum.
Gönguferðir við allra hæfi með
fararstjóra. Brottför frá BSl
bensínsölu kl. 20.00.
Fimmvörðuháls 15.-16. ágúst.
Fullbókað er í ferðina. Brottför
frá BSl bensínsölu kl. 8.30 á
laugardag. Fararstjóri Reynir
Sigurðsson.
Sjáumst í Útivistarferð.
Scunhjólp
I kvöld kl. 20.30 er almenn sam-
koma í Þríbúðum. Almennur
söngur. Vitnisburðir. Ræðumað-
ur Þórir Haraldsson. Kaffi að lok-
inni samkomu.
Allir hjartanlega velkomnir.
Samhjálp.
Hvítasunnukirkjan
Völvufelii
Almenn samkoma í kvöld kl.
20.30. Allir hjartanlega velkomnir.
FERÐAFELAG
@ ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 ■ SÍMI 682533
Helgarferðir FÍ
14.-16. ágúst:
1) Bátsferð á Langasjó. Gist í
Lambaskarðshólum og Land-
mannalaugum. Ekið að Langa-
sjó og siglt í gúmmíbát að jökl-
inum. Óvenjuleg ferð - spenn-
andi ferð.
2) a. Þórsmörk - gönguferðir
um Mörkina.
b. Þórsmörk - Fimmvörðuháls
- Skógar. Gist í Skagfjörðsskála.
Brottför í ferðirnar er kl. 20
föstudag. Upplýsingar og far-
miðasala á skrifstofu FÍ.
Enn er hægt að komast í áhuga-
verðar sumarleyfisferðir með
Ferðafélaginu:
1) 14.-16. ágúst (3 dagar):
Núpsstaðarskógar.
Brottför kl. 08. Gist í tjöldum.
Gönguferðir í stórbrotnu lands-
lagi, m.a. á Súlutinda, að fossum
Hvítár og Núpsár og víðar.
2) 19.-23. ágúst (5 dagar)
Hofsjökulshringur.
Brottför kl. 09. Ekin Sprengi-
sandsleið norður og gist í sælu-
húsi F( við Nýjadal. Haldið næsta
dag um Laugafell og Ásbjarnar-
vötn og gist i skála FFS í Lamba-
hrauni. A þriðja degi liggur leiðin
um Vesturdal til Skagafjarðar og
siðan um Blöndusvæðið til
Hveravalla og gist þar. Að lokum
liggur leiðin norður fyrir Kerling-
arfjöll um Kisubotna og á síðasta
degi verður ekið suður með
Þjórsá að vestan um Gljúfurleit,
Þjórsárfossar skoðaðir o.fl.
Spennandi ferð um sannkallaðar
óbyggðir. Leitið upplýsinga hjá
okkur á skrifstofunni.
SkipuEagðar ferðir frá Land-
mannalaugum til Þórsmerkur
verða út ágúst á miðvikudögum
og föstudögum (nokkur sæti
laus).
Dagsferðir til Þórsmerkur á
sunnudögum og miðvikudög-
um - hægt að dvelja milli ferða.
Laugardaginn 15. ágúst kl. 08:
Gengið á Baulu f Borgarfirði.
Sunnudaginn 16. ágúst ki.
10.30 Þjóðleið 2: Selvogsgata
og kl. 13: Krýsuvík - Geitahlið
- Eldborgir.
Ferðafélag Islands.