Morgunblaðið - 13.08.1992, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 13.08.1992, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. ÁGÚST 1992 17 Réttleysi og þarfir aumingja mömmu eftirRegínu Gretu Pálsdóttur Tilefni þessara skrifa er grein Signýjar Sigurðardóttur í Morgun- blaðinu 29. júlí sl. Fjögurra dálka grein um hið óréttláta samfélag sem við búum í og neyðir okkur til þess að sætta okkur við „að eign- ast ekki börn eða að vera heima hjd börminum okkai*'. Það er a.m.k. tvennt sem við Signý eigum sameiginlegt og það er að vera búnar að skrifa 100 greinar í huganum síðan við urðum mæður og aldrei gert neitt í því að koma hugleiðingum okkar á framfæri. Hugleiðingar mínar eru hins vegar nokkuð frábrugðnar hennar. Ég tilheyri nefnilega þeirri teg- und kvenna, sem af grein Signýjar má ráða að verði stoppuð upp. Þessa ályktun dreg ég af því að Signý telur slíkar konur ekki til og því hljótum við að vera í bráðri útrýmingarhættu. Ég er fjögurra ungra barna móðir og hef ekki litið á það sem nauðungarvinnu að vera heima hjá þeim og annast þau. Þvert á móti tel ég það rétt barnanna að fá að umgangast foreldra sína eins mikið og kostur er og vera til staðar þeg- ar þau þurfa á okkur að halda, fylgjast með þeim vaxa og þrosk- ast. Það er nánast óskiljanlegt að nokkurt foreldri geti látið frá sér fara orð eins og: „... ef ég vil ekki gjöra svo vel að vera heima hjá dóttur minni ...“ — „... að þurfa að vera heima [hjá barninu sínu] oggleyma eigin þörfum ..." o.s.frv. Þegar Signý hafði valið sér að eignast barn (án nokkurs samráðs við samfélagið), þótti henni „ekki mikið“ að gera þær kröfur til samfélagsins að það hjálpaði henni við uppeldi barnsins. En hvað er svo þetta samfélag sem Signý er að tala um? Það er auðvitað hitt fólkið í landinu, ég og þú. Signý vildi gjarnan borga háar upphæðir fyrir „vistun þar sem unnið væri eftir einhverri dag- skrá“. Auk þess lítur hún á þessa vistun dóttur sinnar (hjá dag- mömmu) „sem fyrst og fremst geymslu“ og hefur samviskubit yfir því að dóttir hennar skuli þurfa að lifa við það. En hver á að setja saman dagskrá fyrir dóttur Signýj- ar svo Signý „þurfi ekki að vera heima og gleyma eigin þörfum“ og svo barnið þurfi ekki að vera sent eitthvert í vistun og Signý að sitja uppi með eilíft samviskubit? Svarið er auðvitað samfélagið. Það eru nefnilega ég og þú sem eigum að setja saman dagskrá fyr- ir barnið. Ekki Signý, ekki barns- faðir hennar, heldur meðborgar- arnir. Signý og fyrrverandi sam- býlismaður hennar sáu um að koma barninu í heiminn og segja nú við okkur hin svipað og þeir sögðu við Signýju á Dagvistun barna: „Vesgú, hér er barnið, ykkar er ábyrgðin." Signý telur sig „áhugamann um umönnun barna í þessari borg“ og lýsir útreiðinni sem hún fékk hjá Dagvistun barna: „Ég varð sem sagt að hitta þessar konur [þ.e. dagmæður] og fara eftir minni til- fínningu eingöngu" og hún sagðist síðan þurfa að treysta á „Guð og lukkuna“ þegar hún kom dóttur sinni fyrir. Niðurstaðan er sem sagt sú að Signý þurfti nú á eigin Regína Greta Pálsdóttir „Ég er fjögurra ungra barna móðir og hef ekki litið á það sem nauðungarvinnu að vera heima hjá þeim og annast þau. Þvert á móti tel ég það rétt barnanna að fá að um- gangast foreldra sína eins mikið og kostur er.“ spýtur að bera ábyrgð á vistun dóttur sinnar án nokkurrar hjálpar frá mér og þér (þ.e. samfélaginu). Móðir, áhugamaður um umönnun barna og kona með eigin þarfir á hreinu, hlýtur að hafa skoðun á þörfum barnsins síns. Er til of mik- ils mælst að hún beri ábyrgð á valinu en ekki meðborgararnir? Þörf getur verið á dagvistun í ýmsum tilfellum. Hins vegar er það skoðun mín að foreldrar, hvort heldur þeir eru sundur eða saman, geti ekíri varpað ábyrgðinni á upp- eldi barnanna á okkur hin. Þá get ég ekki látið hjá líða að víkja örlítið að þessum þörfum kvenna sem Signý minnist á. Þarf- irnar sem hún er svo hrædd um að verða bara að gleyma ef hún (sem og aðrar konur) kýs að vera heima og sinna uppeldi barnsins síns. Ósjaldan er fjallað um slíkar þarfir í svokölluðum kvennatímarit- um. Það er afar erfítt að skilja af hveiju konur telja uppeldi eigin barna ekki samrýmast uppfyllingu þessara kvenlegu þarfa. Fær t.d. dagmamma þessum þörfum fullnægt þegar hún er ekki að ala upp eigin börn heldur stunda atvinnu sína? Eða fóstra á dagvist- arstofnun? Spyr sá sem ekki veit. Annars er fróðlegt að vita hversu miklum peningum „samfélagið" ver til hjálpar barni í sömu aðstöðu og barn Signýjar, að meðtalinni niður- greiðslu hinna illræmdu yfirvalda hér í Reykjavík á dagvistarrými. Ekki væri úr vegi að viðkomandi yfírvöld upplýstu það. Höfundur starfar við uppeldi fjögurra barna sinna. Hefurauk þess lokið BA-prófi í uppeldisfræði og MA-prófi í sálarfræði. Tölvusumarskólinn PC eða Macintosh námskeið fyrir 10 -16 ára 2ja eða 3ja vikna námskeið hefjast 17. og 24. ágúst. Kennt frá 9-12 eða 13-16 fimm daga vikunnar. Tölvu- og verkfræðiþjónustan Verkfræðistofa Halldórs Kristjánssonar Grensásvegi 16 • stofnuð 1. mars 1986 (J) j ihátíð ÍÍLixocard í ' [vamms /ík sunnudaginn 16. ágúst / A fí: , Í f* m M '• k íá^S ►. ,?>; -"jy■>* Enn á ný efnir Eurocard til útihátíðar í Hvammsvík í Hvalfirði (aðeins 40 mín. akstur frá Reykjavík) fyrir gullkorthafa og félaga í Euroklúbbnum. Fjölbreytt dagskrá allan daginn tryggir að allir í fjölskyldunni finni eitthvað við sitt hæfi. CVeiði: kl. 10-18 Mikið er af spriklandi fiski í vatninu við Hvammsvík sem er sólginn í alls konar beitu, s.s. maísbaunir, rækju, hrogn, maðk og flugu. Hægt er að veiða allt í kring um vatnið og því ættu flestir að geta krækt í væna silunga eða laxa í soðið. Veiðivörður leiðbeinir við veiðamar og veitir aðstoð ef á þarf að halda. Veiðistangir fást leigðar í veitingaskálanum, og þar eru til sölu spúnar og krókar, svo og laxahrogn til að nota sem beitu. Þar er fiskurinn einnig vigtaður, slægður og þveginn fyrir veiðimenn þeim að kostnaðarlausu. Verðlaun verða veitt fyrir stærsta fískinn sem veiðist fyrir kl. 16. Auk þess hefur verið sleppt einum sérmerktum fisk í vatnið. Verðlaun fyrir að veiða þennan fisk eru vegleg, - helgarferð fyrir tvo til Parísar. ► Golfleikur kl. 10-18 <i> Golfkennsla kl. 10-14 Það er góð aðstaða til golfiðkunar í Hvammsvík og geta þeir sem leika golf nýtt sér hana að vild á hátíðardaginn. Fyrir byrjendur eða þá sem vilja bæta leik sinn verður Amar Már Ólafsson golfkennari með ókeypis golfkennslu á milli kl. 10 -14 á æfíngabraut vallarins. Golfvöllurinn er opinn allan daginn og hægt er að leigja kylfur og fá skorkort í veitingaskálanum. Verðlaun verða veitt fyrir þann bolta sem lendir næst holu á 9. braut eftir upphafshögg. Hestar kl. 10-12 og 14-18 Boðið er upp á stutta útreiðatúra, einkum fyrir yngstu kynslóðina. Tekið er mið af hæfni hvers og eins. M Gönguferð með leiðsögn kl. 12:30 Skemmtileg gönguferð undir leiðsögn Lýðs Bjömssonar sagnfræðings verður farin um Hvammsvík og næsta nágrenni. Gönguferðin tekur rúma klukkustund og er við allra hæfi. Tónlist - leikir Nikkan er ómissandi á útihátíð í sveitinni, og félagar úr Harmonikkufélagi Reykjavíkur leika létta og dillandi tónlist við veitingaskálann kl. 12:30-13:30 ogkl. 14:30-15:30. Dagskrárkynnir hátíðarinnar, Hafsteinn Hafsteinsson, leikur og syngur á milli atriða og stjómar auk þess leikjum fyrir börn á öllum aldri á grasflötinni við skálann. & Grillveisla kl. 13 Efnt er til mikillar grillveislu þar sem Goði og Coke leggja saman og bjóða upp á gémsæta rétti og svalandi gosdrykk. • t Upplýsingabás í veitingaskálanum verður starfræktur upplýsingabás þar sem starfsfólk Eurocard mun veita hvers kyns upplýsingar um hátíðina, svo og allar upplýsingar um Eurocard, Euroklúbbinn og þá þjónustu sem korthöfum og klúbbfélögum stendur til boða. Allt þetta bjóðum við gullkorthöfum og félögum í Euroklúbbnum þeim að kostnaðarlausu, en greiða þarf 400 kr. fyrir hvem veiddan fisk (ath. ekkert veiðileyfisgjald). Hér gefst allri tjölskyldunni kjörið tækifæri til að eiga ánægjulegan dag og Eurocard vonar að sem flestir nýti sér þetta boð. Kreditkort hf., Ármúla 28,108 Reykjavlk. Sími (91) 685499

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.