Morgunblaðið - 28.08.1992, Síða 1

Morgunblaðið - 28.08.1992, Síða 1
64 SIÐUR B/C/D tntffiifttlilfifrife STOFNAÐ 1913 194. tbl. 80. árg. FOSTUDAGUR 28. AGUST 1992 Prentsmiðja Morgunblaðsins Friðarráðstefnan í London Serbum settir úrslitakostir Fjölgað um mörg þúsund manns í herliði Sameinuðu þjóðanna í Bosníu Lundúnum, Sarajevo. Reuter. TILKYNNT var á Lundúnaráðstefnunni um frið í fyrrverandi lýðveld- um Júgóslavíu í gær að mörg þúsund manna herlið yrði sent á vegum Sameinuðu þjóðanna (SÞ) á næstunni til Bosníu-Herzegovínu tii þess að tryggja að stríðshrjáðum íbúum bærust hjálpargögn. Þar eru um 1.500 hermenn fyrir við þau störf og er búist við að hermennirnir fái leyfi til að veija sig verði þeir fyrir árás. John Major forsætisráðherra Bret- lands sleit ráðstefnunni í gærkvöldi og sagði við það tækifæri að Serbum hefðu verið settir skýrir úrslitakost- ir; leggja sig fram við að koma á Þungbær þingskjöl Bonn. Reuter. ÞÝSKUR þingmaður hefur skorað á rikisstjórnina að borga þingmönnum sérstak- lega til að stunda heilsurækt því skjalabunkarnir á borðum þeirra séu heilsuspillandi. Margrit Wetzel, þingmaður jafnaðarmanna, sagði að þing- menn væru að sligast undan þunga skjala og skýrslna sem þeir fengju til umfjöllunar. Brýnt væri fyrir þá að heQa líkams- og heilsurækt til þess að styrkja bak-, axlar- og handleggsvöðva ef þeir ætluðu ekki að láta þing- störfin flýta fyrir grafarferð sinni. Tók þingmaðurinn sem dæmi að uppkast að lagafrum- varpi um fjárfestingar í austur- hluta Þýskalands sem þingmenn fengu nýlega í hendur hefði eitt og sér verið 750 síður og vegið á fjórða kíló. Irakar virtu flugbannið Washington, Baghdad. Reuter. ÍRAKAR virtust hafa virt flug- bann bandamanna sem kom til framkvæmda sunnan 32. breidd- argráðu í írak í gær og áreittu þeir ekki tugi bandarískra og breskra flugvéla sem fóru í eftir- litsflug yfir bannsvæðið. írakar sögðust ekki ætla láta bandamenn segja sér fyrir verkum og hótuðu að halda áfram flugi yfir byggðir shíta í suðurhluta landsins. Talsmaður bandaríska varnarmála- ráðuneytisins sagði íraka hins vegar hafa hlýtt banninu og erlendir stjórnarerindrekar í Baghdad sögðu þá ekki eiga annarra kosta völ. Yrðu þeir að láta sér nægja að beita land- hernum gegn shítum. Óróleika gætti á olíumörkuðum í gær vegna flugbannsins en verð- breytingar urðu þó ekki. ísraelar óttuðust að írakar mótmæltu flug- banninu með eldflaugaárásum á ísrael og sá Yitzhak Rabin forsætis- ráðherra ástæðu til að vara Saddam Iraksforseta við slíku. Sjá yfirlitskort á bls. 19. friði í Bosníu eða verða einangraðir með öllu frá umheiminum. Major sagði að deiluaðilar hefðu samþykkt að hefja friðarviðæður í Genf í næstu viku. Aður en þær hæfust myndu serbneskar hersveitir safna öllum þungavopnum sínum saman við fjór- ar borgir, Sarajevo, Bihac, Goradze og Jajce, þar sem eftirlitsmenn SÞ myndu taka við eftirliti með þeim. Bosníu-Serbar hefðu heitið því að hætta að skjóta af þungavopnum. Ráðstefnan krafðist þess í yfirlýs- ingu sem samþykkt var í gærkvöldi að stríðsaðilar skiluðu svæðum í Bosníu sem þeir hafa lagt undir sig undanfarna mánuði. Samþykktin beinist einkum gegn Serbum sem sagðir eru hafa lagt um 70% Bosníu undir sig en einnig hafa Króatar tekið væna sneið af landinu. Allir fulltrúar á ráðstefnunni sam- þykktu áætlun um að koma á friði í Bosníu þar sem meðal annars er kveð- ið á um skilyrðislaust vopnahlé, viður- kenningu landamæra, virðingu fyrir mannréttindum, viðurkenningu á sjálfstæði Bosníu, stöðvun þjóðhreins- unar og upprætingu fangabúða. Leiðtogar helstu ríkja sem fulltrúa eiga á ráðstefnunni sögðust andvígir því enn um sinn að hervaldi yrði beitt til þess að stilla til friðar í Bosníu. Þeir sögðust treysta því að hótanir um frekari refsiaðgerðir og einangrun á alþjóðavettvangi neyddi Serba til þess að láta undan. Vilja þeir heldur auka þrýsting á Serba enn frekar og í því sambandi er gert ráð fyrir að utanríkis- og varnarmálaráðherrar Vestur-Evr- ópusambandsins samþykki í fyrra- málið fullt hafnbann á Serbíu. Það felur í sér að herskip geta stöðvað öll skip á Adríahafí og kannað farm þeirra með tilliti til þess hvort hann bijóti í bága við refsiaðgerðir SÞ. Að minnsta kosti níu óbreyttir borgarar sem stóðu í biðröð eftir brauði biðu bana í stórskotaárás á hverfið Cengic Vila í Sarajevo í gær. Þá eyðilagðist króatísk vopna- og bifreiðaverksmiðja í loftárás Serba á borgina Novi Travnik. Morgunblaðið/Þorkell BORNUM BJARGAÐ I SOMALIU Bandaríkjamenn hefja í dag stórfelldan flutning mat- væla til Sómalíu til að reyna að bjarga lífi um tveggja milljóna manna, sem eiga á hættu að svelta í hel. Þessi mynd var tekin þegar Morgunblaðsmenn heim- sóttu Mogadishu, höfuðborg Sómalíu, í fyrri viku og sýnir sómalska konu vigta vannært bam í einni af 200 matargjafarmiðstöðum Rauða krossins í borg- inni. Um 1.350 börn fá próteinríkan graut þar tvisvar á dag og sagði yfirmaður staðarins að mörg þeirra næðu undraskjótum bata þegar þau fengju mat. Ljóst er að alþjóðlegt hjálparstarf hefur bjargað lífí tugþús- unda Sómala, en Rauði krossinn telur þó að tvöfalda þurfi magn matarsendinga til þess að anna þörfínni. Fjölhjarta risaeðlu hætt við aðsvifí RISAEÐLA sem lifði fyrir 200 milljónum ára virðist hafa haft átta hjörtu til að dæla blóði upp tólf metra langan háls að höfðinu. Vísindamenn telja að gífurlegur þrýstingur á hjörtu risaeðlunnar hafi gert henni hætt við hjartaáföllum og segja lík- legt að aldurhnignar eðlur hafi tíðum fallið í yfirlið. í nýjasta hefti hins virta lækningatímarits Lancet segir af hinni 15 metra löngu Barosa- urus jurtaætu. Fræðimönnum ber ekki saman um hvort risaeðlan hafi gnæft hnarreist yfir tijátoppa eða gengið álút með háls við jörðu. í tímaritinu segir að hryggjarliðir í endur- byggðri beinagrind eðlunnar, sem varðveitt er í náttúrusögusafni New York-borgar, bendi fremur til hins fyrrnefnda. Ef rétt er, hefur Barosaurusinn þurft geysiöflugt hjarta- og æðakerfi til að dæla blóði frá bijósti til heila. Vísindamenn við Roosevelt-sjúkrahúsið í New York telja líklegt að meginhjarta risaeðl- unnar hafi verið í bijóstholi hennar, annað neðst í hálsi og þijú pör með jöfnu bili upp eftir honum. Þeir segja í tímaritsgreininni að eldri eðlum hafí líklega hætt til að fá aðsvif við að bogra í leit að æti. En þær hafí væntanlega komist fljótt til meðvitundar þegar þrýstingsmunur minnkaði eftir fall til jarðar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.