Morgunblaðið - 16.09.1992, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 1992
9
r
Nudd
Helgarnámskeið
Kenni öll helstu grund-
vallaratriði í heilnuddi.
Persónuleg leiðsögn.
Takmarkaður fjöldi
þátttakenda.
Hjón og pör sérstaklega velkomin.
Ragnar Sigurðsson, nuddari.
Upplýsingar og skráning í síma 91 -620616 eftir kl. 19.00.
Nú er rétti tíminn til að
hefja reglulegan sparnað með
áskrift að spariskírteinum
ríkissjóðs.
Frelsi í gjald-
eyrismálum
Alþýðublaðið birti við-
tal í gær við Jón Sigurðs-
son, iðnaðar- og við-
skiptaráðherra, þar sem
hann (jallar um margvís-
leg áhrif EES og gerir
grein fyrir þeim laga-
frumvörpum um marg-
vísleg málefni, sem nú
eru til meðferðar á Al-
þingi í tengslum við EES-
samninginn. í viðtalinu
segir Jón Sigurðsson
m.a.: „Viðskiptafrum-
vörpin eru um gjaldeyris-
og innflutningsmál. Þar
sem verið er að festa í
sessi frelsisreglur,
þ.e.a.s. að það sé í íslensk-
um lögum leyft, sem ekki
er sérstaklega bannað í
gjaldeyrisviðskiptum og
innflutningsverslun.
Reglan í gildandi gjald-
eyrislöggjöf er hið þver-
öfuga, þar er í reynd allt
bannað nema það sé sér-
staklega leyft. Ég hef að
vísu framkvæmt þau lög
mjög fijálslega, þ.e.a.s.
ég hef rýmkað um þau
mjög frá árinu 1990.
Mér finnst hins vegar
eðlilegra, að lögin séu í
samræmi við breyttan
tíðaranda. Það er hags-
munamál viðskipta og
neytenda, að menn séu
fijálsir að því að versla
með gjaldeyri eins og
aðra liluti. Það frumvarp
er áfangi í þá átt og mér
finnst athyglisvert, að því
máli var n\jög vel tekið
af stjómarandstæðing-
um flestum fyrir helgi
og ekki mikið um and-
mæli þar.“
Sömureglur
og gilda í Evr-
ópu
Síðan segir iðnaðar-
og viðskiptaráðherra, að
á fjármagnsmarkaði sé
stefnt að því að setja
sömu reglur og gildi í
Evrópu. Hann segir:
„Setja reglur sem gilda
i Evrópu þannig að okkar
fyrirtæki geti tekið þátt
í viðskiptum sem fullgild-
ir aðilar, hafi samskonar
efnaliagslegar grund-
vallarreglur, að sams-
Hvað fylgir í kjölfar EES?
Jón Sigurðsson, iðnaðar- og viðskiptaráð-
herra, fjallaði í viðtali við Alþýðublaðið í gær
um margvísleg áhrif aðildar okkar að EES
og þau lagafrumvörp, sem þarf að lögfesta
í tengslum við samninginn og nú eru komin
til umræðu á Alþingi. í Staksteinum í dag
eru birtir nokkrir kaflar úr viðtali Alþýðu-
blaðsins við ráðherrann.
konar öryggis- og eftir-
litsákvæði gildi um þau
eins og gengur og gerist
í Evrópu.
Þama er í raun og
vem ekki verið að breyta
neinum gmndvallarregl-
um heldur er verið að
færa þetta í samþýðan-
legan búning og reyndar
líka verið að breyta lög-
gjöf, sem er tiltölulega
nýlega sett, í ljósi reynsl-
unnar, til þess að tryggja
öryggi viðskiptavina
þessara fyrirtækja. Jafn-
framt er verið að gera
það klárt að þessi is-
lensku fyrirtæki séu jafn
tryggilega varin með ör-
yggisreglum eins og ann-
ars staðar á EES-svæð-
inu.“
Auðlindir i
jörðu og fall-
vötnin
Þá segir Jón Sigurðs-
son um önnur málefni:
„Þar em kannski mikil-
vægust tvö fmmvörp; um
auðlindir í jörðu og virkj-
unarrétt vatnsfalla. Þau
hafa þegar verið samin á
vegum míns ráðuneytis
og em nú til yfirferðar
hjá sérstakri sérfræð-
inganefnd sem stjómar-
flokkamir hafa sett í það
mál. í þessum tillögum
er m.a. gert ráð fyrir
ótvíræðum ákvæðum um
eignarrétt þjóðarinnar á
þessum auðlindum á al-
menningum og í iðmm
jarðar. Hér er mikið mál
á ferðinni og ekki búið
að ganga alveg frá því.
Siðan em að koma
fmmvörp um stofnana-
fyrirkomulagið á lána-
markaðinum, um við-
skiptabanka, sparisjóði
og aðrar lánastofnanir.
Það er fyrst og fremst
formfrágangur því við
erum með tiltölulega nýj-
ar reglur á þessu sviði
en við þurfum að steypa
þessu í það mót sem er
beint tengjanlegt við
EES-reglumar.“
Aukið láns-
traust
Loks segir Jón Sig--
urðsson: „Eg er alveg
sannfærður um það að
staða íslands i alþjóðleg-
um samanburði og hinu
evrópska efnahagsum-
hverfi hefur batnað að
undanfömu. Ég hugsa
að við séum eina Evrópu-
landið þar sem mat á
lánstrausti hefur farið
hækkandi. Island er ör-
ugglega eitt Norður-
landa um það að hafa
bætt sitt lánstraust að
undanförau.
Það er augljóst af
hveiju það stafar. Við
höfum náð hér hálfrar
aldar takmarki um að ná
sæmilega stöðugu verð-
lagi. Við emm nú með
minni verðbólgu en ger-
ist i löndunum hér i
kringum okkur. Við er-
um með betra atvinnu-
ástand en þekkist í flest-
um Evrópulöndum ef
ekki það besta. Við þurf-
um að reyna að halda
þvi. Við þurfum að sjálf-
sögðu að reyna að auka
hagvöxtinn en það em
ekki til þess neinar töfra-
lausnir.
Ég held að við höfum
núna óvenjulegt tækifæri
til að virkja nýtt vaxtar-
skeið, annars vegar á
gmndvelli þessa stöðug-
leika í efnahagsmálum
og hins vegar samnings-
ins um Evrópska efna-
hagssvæðið, sem felur í
sér möguleika til fram-
fara en það er ekkert
sem við fáum fyrirhafn-
arlaust Við verðum að
leggja okkur eftir því og
ég verð að játa það, að
ég sakna þess nokkuð að
samtök í atvinnulifinu,
bæði þjá launafólki og
atvinnurekendum, skuli
ekki hafa rekið fastar á
eftir Alþingi að klára
þetta EES-mál. Ég lít svo
á að það sé eitt stærsta
atvinnumálið i dag og
bendi á að þessi samning-
ur mun færa islensku
fiskverkafólki ný verk-
efni ef rétt er á haldið.
Við bíðum eftir slíkum
verkefnum, t.d. á Suður-
nesjum og reyndar um
allt Reykjaneskjördæmi,
svo ég taki nú það sem
I er mér nærtækast.“
Notaðu símann núna,
hringdu í
62 60 40,
69 96 00
eða 99 66 99
sem er grænt númer.
RÍKISVERÐBRÉFA
Kalkofnsvegi 1, Hverflsgötu 6, sími 91- 626040
sími 91- 699600 Kringlunni, sími 91- 689797
9,2% raunávöxtun
Oryggi
Eigna rs k a ttsfrelsi
Ekkert innlausnargjald
SJÓÐSBRÉF 5
Sjóðsbréf 5 eru eignarskattsfrjáls og henta því vel þeim
sem greiða háan eignarskatt. Sjóður 5 er einnig mjög
öruggur þar sem hann fjárfestir eingöngu í verðbréfum
með ábyrgð Ríkissjóðs Islands. Bréfin bera góða ávöxtim
og hefur raunávöxtun þeirra verið 9,2% sl. 6 mán.
Bréfin eru mjög sveigjanleg þar sem þau eru fáanleg í
hvaða einingum sem er. Þau er einnig hægt að innléysa
hvenær sem er án innlausnargjalds.
RáðgjafarVIBveitafrekari upplýsingar um Sjóðsbréf
5 og auk þess er hægt að fá sendar upplýsingar í pósti.
Verið velkomin í VIB.
* Arsávöxtun m.v.
sl. 6 mán.
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF.
Ármúla 13a, 155 Reykjavík. Sími 68 15 30. Telefax 68 15 26. Símsvari 68 16 25.