Morgunblaðið - 16.09.1992, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 1992
15
Vísindasjóður Gigtarfélagsins
getur gjörbreytt aðstöðu til
gigtarrannsókna hérlendis
Aðstæður eru mjög góðar hér-
lendis til að greina orsakir gigtsjúk-
dóma sem eru afleiðing af víxilverk-
un milli erfðaupplags og umhverfís-
þátta. Jafnframt hefur á undan-
fömum árum þróast mjög náin og
traust samvinna milli gigtsjúk-
dómalækna, erfðafræðinga og
ónæmisfræðinga og hefur þegar
náðst töluverður árangur af þessu
samstarfí. Hins vegar vantar til-
finnanlega fjárhagslegan grundvöll
til þess að raunhæft sé að þessi
samvinnufúsi hópur geti hagnýtt
ákjósanleg skilyrði hérlendis til þess
að taka frumkvæði í fjölþjóðlegum
rannsóknum sem hafa það mark-
mið að leiða í ljós orsakir alvar-
legra gigsjúkdóma eins og iktsýki
og rauðra úlfa. Til þess þarf að
byggja upp sérstaka rannsóknarað-
stöðu þar sem hægt verður að sam-
virkja þá reynslu og fæmi sem er
þegar til staðar hérlendis á þessu
sviði og jafnframt að laða hingað
til þessa samstarfs bæði erlenda
fræðimenn og íslenska sérfræðinga
sem starfa erlendis.
Foi-senda alls þessa er að lands-
menn styðji við bakið á Gigtarfélagi
íslands við öflun fjár í vísindajóð fé-
lagsins og ef vel tekst til er Ijóst að
mögulegt verður að gjörbreyta að-
stöðu til gigtarrannsókna hérlendis.
Höfundur er prófessor,
forstöðumnður Rannsóknastofu
Háskólans í ónæmisfræði og
formaður vísindaráðs
Gigtarfélags Islands.
minnst á að þau hafí verið þreytt
eftir erfiði dagsins og enginn eltir
þau uppi og tekur mynd af þeim
við sitt athyglisverða starf. Þau
verða sjálf að gefa sig fram á skrif-
stofu blaðsins til að svo megi verða.
Hvað er að þessu þjóðfélagi að
menn sem ganga berserksgang og
tekst að pína dýr til dauða fá svo
jákvæða athygli? Eftir að fréttin
birtist um börnin sem tóku að sér
hlutverk böðlanna lá við að dýra-
verndarmönnum féllust hendur.
Síminn stansaði ekki. Nú var fólki
nóg boðið og það lét sorg sína og
leiða í ljós. Það má eiginlega orða
það þannig að okkur hafi liðið eins
og við stæðum fyrir framan Esjuna
með teskeið og ætluðum að flytja
hana upp í Borgarfjörð. Hvernig
er hægt að snúa hugarfari heillar
þjóðar? Með fræðslu? Jú, hvar hefur
hún brugðist? Hvernig stendur á
því að börn fara illa með dýr? Það
er fyrir þeim haft. Það er hið eina
raunhæfa svar.
Minkurinn og refurinn eru lifandi
verur og eiga sinn tilverurétt. Skað-
inn sem þessi dýr valda er umdeild-
ur og af mörgum talinn ofmetinn.
Greni eru heimili þeirra. Minkamir
sem börnin gerðu útaf við áttu sér
heimili þar sem verið var að ala önn
fyrir ungviði og koma því á legg.
Það er auðvelt að gera sér í hugar-
lund angist þeirra sem verða fyrir
árásum sem þessum klukkustund-
um saman. Það er líka auðvelt að
gera sér í hugarlund hvílíkt felmtur
grípur þau dýr sem allt í einu finna
skerandi sársauka í einn fótinn —
eru föst í dýraboga.
Stjórn SDÍ og Skuld lýsa eftir
hugmyndum frá almenningi um
hvernig megi koma fræðslu til upp-
rennandi kynslöðar þannig að hún
skilji að dýr geta fundið til og orð-
ið hrædd. Það er okkar mannanna
að reyna að sjá til þess að enginn
meiði þau né hræði.
Ritstjórn dagblaðanna biðjum við
að gera þjóðinni ljóst að menn —
og lítil börn — verðuskulda ekki lof
og upphefð fyrir grimmd og brot á
dýraverndarlögum.
Edda Bjarnadóttir er hópstjóri
Skuldar, vinnuhóps Sambands
dýraverndarfélaga íslands til
verndar villtum dýrum. Jórunn
Sörensen er formaður Sambands
dýra verndarfélaga íslands.
Sumarbrids í Reykjavík
___________Brids_____________
Umsjón Arnór Ragnarsson
Sumarbrids í Reykjavík lauk síðasta
laugardag. Þátttaka í sumar hefur
slegið öll fyrri met og nánast fullt hús
síðustu vikurnar. Mest varð þátttakan
60 pör á einu kvöldi og 210 pör á
einni viku. Meðal þátttaka á kvöldin
(alls spilað 69 kvöld) var 35 pör, en
samtals mættu tæplega 2.400 pör til
leiks yfir sumarið (4.800 manns).
Umsjónarmaður, Olafur Lárusson,
vill þakka fyrir einstaklega góða að-
sókn spilara. Sumarið var skemmti-
legt.
Þröstur Ingimarsson varð brons-
meistari sumarsins, eftir hörku bar-
áttu við þá félaga Lárus Hermannsson
og Guðlaug Sveinsson. Þessir 3 spilar-
ar voru í nokkrum sérflokki spilara
(hvað varðaði stigasöfnun) en alls
hlutu tæplega 320 spilarar stig eftir
sumarið.
Á fimmtudag mættu 37 pör til leiks.
Spilað var í 3 riðlum. Sigurvegarar
riðlanna urðu: A) Vilhjálmur Sigurðs-
son — Þráinn Sigurðsson. B) Páll Þ.
Bergsson — Sveinn Þorvaldsson. C)
Ragnheiður Niélsen — Sigurður Ólafs-
son.
Á föstudag mættu 32 pör til leiks.
Úrslit urðu:
N/S:
Alfreð Kristjánsson - Óli Bjöm Gunnarsson 511
Jón Stefánsson - Sveinn Sigurgeirsson 509
Guðrún Jóhannesdóttir - Þórir Leifsson 464
A/V:
Páll Þ. Bergsson - Sveinn Þorvaldsson 537
Hrafnhildur Skúladóttir - Jörundur Þórðarson 520
Inga Lára Guðmundsd. - Hanna Friðriksdóttir 504
Á laugardag mættu svo 27 pör til
leiks. Úrslit urðu:
N/S:
Gylfi Baldursson — Hjálmar S. Pálsson 376
Bjöm Þorláksson — .Jón Björnsson 288
Jón Viðar Jónmundsson — Valdimar Elíasson 281
A/V:
LárúsHermannsson-ÞórirLeifsson 326
EirikurHjaltason-Þrösturlngimarsson 305
Júlíana Isebam - Margrét Margeirsdóttir 302
Röð stigaefstu spilara varð:
Þrösturlngimarsson 834
LárusHermannsson 819
GuðlaugurSveinsson 751
ErlendurJónsson 540
ÞórðurBjömsson 461
Björn Theodórsson 383
Guðrún Jóhannesdóttir 374
ÓskarKarlsson 373
Gylfi Baidursson 370
Jón Viðar Jónmundsson 352
Albert Þorsteinsson 301
RagnarJónsson 296
SveinnÞorvaldsson 279
Magnús Sverrisson 273
JensJensson 270
Gísli Steingrímsson 265
Gísli Hafliðason 249
Sveinn Sigurgeirsson 248
Jóhannes Guðmannsson 246
Dan Hansson 239
SigurðurB. Þorsteinsson 238
Jón St. Ingólfsson 237
Nýjung hjá Skagfirðingum
Skagfirðingar hófu haustspila-
mennsku sína þriðjudaginn 15. sept-
ember eins og fram hefur komið. Spil-
aður verður eins kvölds tvímenningur.
Skráning í haustbarometer er einnig
hafin, á spilakvöldum og hjá Ólafi
Lárussyni í s. 16538.
Einnig verður bryddað upp á þeirri
nýjung, að frá og með sunnudeginum
20. september verður boðið upp á eins
dags spilamennsku í Drangey við
Stakkahlíð 17. Umsjónarmaður verður
Ólafur Lárussom í boði, til að byija
með, verður tölvuvæddur Mitchell.
Síðar í vetur er stefnt á að bjóða upp
á ódýrt helgarmót (silfurstigamót) í
samvinnu við Bridssamband Reykja-
víkur.
Þetta framtak er hugsað sem fram-
hald á Sumarbrids, til að bjóða áhuga-
fólki um bridsspilamennsku upp á
fleiri valkosti en nú standa til boða.
Vetrarbrids Skagfirðinga hefst á
sunnudaginn kemur kl. 13. Venjulegt
keppnisgjald; sama fyrirkomulag og í
Sumarbrids. Verið velkomin.
mmm
B
■
EINS
nnudag 12-16
TÆKIFÆRI
Allir fá gos og Marabou sœlgœti
SÉRTILBOÐ:
' *
iix-
BAÐINNRETTINGUM
OG FATASKÁPUM ’
M
m' }
MÖGNUÐ VERSLUN í MJÓDD
Álfabakka 16 @ 670050
* GILDIR EKKI Á INNRÉTTINGUM OG HEIMILISTÆKJUM