Morgunblaðið - 16.09.1992, Síða 11

Morgunblaðið - 16.09.1992, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 1992 11 Við þurfum skáldskap Bókmenntir Jóhann Hjálmarsson Bókmenntahátíð 1992. Rithöf- undakynning í Ráðhúsi Reykja- víkur. Péter Esterházy, Erik Fosnes Hansen, Klaus Rifbjerg, Thor Villyálmsson og Olafur Gunnarsson. Ólafur G. Einarsson mennta- málaráðherra sagði í ávarpi við setningu Bókmenntahátíðar 1992 að bókmenntirnar væru „helsta kjölfestan í íslensku menningar- lífi“. Og Thor Vilhjálmsson fullyrti við sama tækifæri: „Við þurfum skáldskapinn til að ná til okkar sjálfra." Þetta eru eftirminnileg orð; Á mánudaginn lásu fimm rithöf- undar úr verkum sínum í Ráðhúsi Reykjavíkur. Fyrstur las Ólafur Gunnarsson úr væntanlegri skáld- sögu, Tröllakirkju. Kaflinn sem Ólafur las gefur fyrirheit um æsi- lega atburði, enda mótaðist hann af ofbeldisþönkum en líka Biblíu- innskotum. Erik Fosnes Hansen, hin skæra stjarna Norðmanna, kornungur höfundur með tvær víðfrægar skál- dögur að baki, flutti kafla úr Sálmi að leiðarlokum. Skáldsagan fjallar um Titanic slysið eða réttara sagt undanfara þess, þ.e.a.s. greinir frá ævi og örlögum sjö tónlistarmanna sem léku í skipshljómsveitinni. Við fengum að skyggnast inn í líf eins þeirra í London og annars í Vínar- borg. Fosnes Hansen er nákvæmur í lýsingum og las ákveðið og var sannfærandi. Það er auðvelt að Miimingar- athöfnum Charcot og áhöfn Ponr- quoi-pas? SENDIRÁÐ Frakklands á ís- landi og aðstandendur kvik- myndarinnar Svo á jörðu sem á himni halda minningarathöfn um Jean-Baptiste Charcot og áhöfn vísindaskipsins Pourquoi- pas? í dag, miðvikudag, kl. 10.30. Athöfnin fer fram við minnis- varðann um dr. Charcot sunnan við Jarðfræðistofnun Háskóla ís- lands. Dr. Jean-Baptiste Charcot er einn þekktasti landkönnuður og vísindamaður Frakka á öldinni. Sendiherra Frakklands á ís- landi, Jacques Mer, og Kristín Jó- hannesdóttir, kvikmyndaleikstjóri, halda ávörp og leggja blómsveig við minnisvarðann. Þennan dag, 16. september 1936, fórst Pourquoi-pas? við Straumfjörð á Mýrum eins og al- kunna er og með því allir sem um borð voru nema einn sem komst lífs af. Skipið hafði komið við í Reykjavík á leið sinni heim til Frakklands eftir könnunarleiðang- ur um Norðurhöf. Pourqoi-pas? sigldi út úr Reykjavíkurhöfn í blíð- skaparveðri að kvöldi dags þann 15. september, eins og mörgum er enn í fersku minni, en hreppti svo aftakaveður um nóttina, barst af leið og steytti á skeri utan við Mýrar með fyrrgreindum hörmu- legu afleiðingum. í kvikmyndinni Svo á jörðu sem á himni er m.a. fjallað um þetta harmsögulega sjóslys, en myndin er fyrsta samstarfsverkefni ís- lendinga og Frakka á grundvelli kvikmyndasáttmála milli ríkjanna sem undirritaður var þegar Francois Mitterand forseti Frakk- lands og Jack Lang menningar- málaráðherra komu í opinbera heimsókn til íslands árið 1990. (Fréttatilkynning) skilja að lesendur skuli hrífast af frásagnargáfu hans. Péter Esterházy er Ungveiji og setur saman smámyndir úr borgar- lífi eftir þeirri smásögu áð dæma sem flutt var eftir hann. Hann er háðskur í túlkun sinni á lífi borgar- anna í borg þar sem ástandið er hvorki gott né slæmt. „Þetta er lélegur líkami", segir söguhetjan um sjálfa sig. Fólki er stýrt eins og hænsnum: „Ef við lofum ekki stjórnmálamennina fálla þeir í þunglyndi." Klaus Rifbjerg, sennilega einn af afkastamestu höfundum sam- tímans, las úr splunkunýrri ljóða- bók, Krigen. í þessari bók er Rif- bjerg á hinum einföldu og opinskáu nótum og hann getur fengið fólk til að brosa, jafnvel alvörugefíð bókmenntaáhugafólk. Minningar og hversdagsleiki setja svip sinn á Krigen, óskylt andrúmsloft því sem við fengum að kynnast í eldra ljóði eftir hann sem var mælskt og myndríkt. Thor Vilhjálmsson kynnti nýja bók sem er endurminningabók og hann hefur ekki enn fundið nafn á, enda sagðist hann alltaf vera í vandræðum með slíkt. Thor sagði afar skemmtilega frá frænda sín- um, Kristjáni Albertssyni, 1947 í París og að lokum á dvalarheimili í Reykjavík þegar farið var að halla undan fæti. Thor dró upp mynd veraldar sem var þegar menn dáðu Péter Esterházy skáld og enginn efaðist um mikil- vægi skáldskapar. Stillinn var stundum myndríkur og ljóðrænn, en frásögnin gat líka orðið raunsæ og skorinorð. Erik Fosnes Hansen Þetta fyrsta kynningarkvöld Bókmenntahátíðar lofar góðu og má þakka fyrir að hlustendum var ekki ofboðið með löngum lestrum. Andríkið var yfírleitt í hófí. a sértiíboöi Air Europa Frábær þjónusta í beinu leiguflugi til Kanarí. Eftir Ijúffenga máltíð verður boðin, tollfrjáls varningur til sölu og sýnd kvikmynd til að stytta farþegum stundir á leið í fríið. með Air Europa Turavia og Heimsferðum á ótrúlegu verði Með tímamótasamstarfi stærsta leiguflugfélags Spánar — Air Europa, Turavia — eins stærsta ferðaþjónustufyrirtækis Spánar og Heimsferða býðst nú íslendingum* hagstæðari Kanaríeyjaferðir en nokkru sinni fyrr. 250 sæti á sértilboði Air Europa flýgur nú í fyrsta sinn til íslands og býður því farþegum Heimsferða 250 sæti á sérstöku kynningarverði. Bókaðu strax og tryggðu þér þessi einstöku kjör. mm ■> r 7. januar JkMtaWBSBMáMftÉteiÍjk’ . ■ w} Verð frá aðeins kr. 39.700 pr. mann m. v. hjón með tvö börn, 2-11 ára, Verð kr. m.v. tvo í smáhýsi Jólaferð 17. des. gifff ' Verð frá kr. 58.400 pr. mann Hjón með tvö börn. Verð kr. 74.900 m. v. tvo í íbúð Glæsílegir nýir gististaðir: Vista Dorada / Sonnenland - Smáhýsi í Maspalomas Duna Beach / Duna Golf - Glæsileg smáhýsi hjá golfvellinum í Maspalomas Liberty Sol - í miðbæ Playa del Inglés Corona Roja - Við ströndina á Playa del Inglés air europa HEIMSFERDIR hf. Austurstræti 17, 2. hæð • Sími 624600 TURAUIA

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.